Alþýðublaðið - 22.06.1973, Side 9

Alþýðublaðið - 22.06.1973, Side 9
IÞROTTIR IÞROTTIR IÞROTTIR IÞROTTIR IÞROTTIR IÞROTTIR IÞROTTIR IÞROTTIR EVRÓPULIÐIN SEM ÁFRAM HALDA- Eftirtalin lið hafa unnið sér rétt til þess að taka þátt i Evrópubikarkeppninni og Evrópukeppni bikarmeistara i knattspyrnu i ár: Evrópubikarkeppnin. FC Bruegge (Belgiu), Bayern Munchen (V.-Þýzkaland) CSKA Sofia (Búlgaria) Vejle (Dan- mörk), Dynamo Dresden (A.- Þýzkaland), Liverpool (Eng- land), TBS Turku (Finnland), Nantes (Frakkland) Olympia- kos (Grikkland), Ajax (Holland) Waterford (Irland) Juventus (ttalia), Jeunesse Esch (Luxembourg), Crusaders (N.lrland), (Skot- land), Basel (Sviss)), Atvida- berg (Sviþjóð), Sarja Worosjilovgrad (Rússland), Atletico Madrid (Spánn) Galat- asaray (Tyrkland), Ujpest Dosza (Ungverjaland), Fram (Island). Keppni er enn ólokið i nokkrum löndum. Evrópukeppni bikarmeistara. Anderlecht (Belgia), FC Koeln eða Borussia Moenc- hengladbach (VÞýzkaland), Beroe Stara Zagora (Búlgaria), Banik Ostrau (Tékkóslóvakia), Freja Randers (Danmörk) Magdeburg (A.-Þýzkaland), Sunderland (England), Olympique Lyon (Frakkland), Paok Saloniki (Grikkland), NAC Breda (Holland), Cork HIBERNIANS (Irland), Fola Esch (Luxemburg), Glentoran (N.-Irland), Brann (Noregur), SW Wacker (Austurriki), Legia Varsjá (Pólland), Sporting Lisboa (Portúgal), Glasgow Rangers (Skotland) FC Zuerich (Swiss), Malmö (Sviþjóð), Vasas (Ungverjaland Cardiff (Wales), IBV (tsland). Hér er það eins, að keppni er ekki lokið i nokkrum löndum. Fréttir þessar fengum við frá NTB fréttastofunni norsku, en i skeytinu var ekkert minnzt á það, hvaða lið frá íslandi hefðu unnið sér þátttökurétt, svo við bættum þeim auðvitað inn á listann. UM BOLTANN í BRETLANDI NETZiER FER TIL Francis Lee vonast eftir að komast aftur i enska landsliðið og hann segir I viðtali: ,,Eg er ekki útbrunninn enn og ég mun sanna það næsta keppnistimabil.” Coventry City hefur hafnað til- boði frá Leeds i hinn 22 ára gamla Skota Willie Carr. Tilboð Leeds mun hafa hljóðað upp á 200 þús. pund. REflL MflDRID Cardiff hefur mikinn áhuga á þvi að fá til sin John Mahoney frá Stoke. Cardiff bauð fram 100 þús. pund fyrir leikmanninn, en Stoke hafnaði boðinu eftir viku umhugsunarfrest. Tommy Docherty, fram- kvæmdastjórj Man. Utd. er nú til- búinn að taka við tilboðum i David Sadler. Talið er að 50 þús. pund dugi til að fá Sadler og munu Southampton, Coventry og Ipswich hafa áhuga. Swindon, 'Oxford, Orient og Fulham hafa öll hug á að fá til sin hinn unga tengilið Tottenham, Phil Holder, en talið er að hann muni ekki vilja fara frá Spurs, Allan Ball efast ekki um að hann verði valinn i enska lands- liðið á ný, ef FIFA banninu verður af honum létt. I viðtali segir hann: „Ég veit að ég er bezti leikmaður I Englandi i minni stöðu. Ég fer fyrst að hafa áhyggjur, þegar ég er það ekki lengur”. IÞROTTA- MENN ÁRSINS Þessi mynd var tekin þegar Lasse Viren, finnski hlaupagikk- urinn, tók við viðurkenningu sem iþróttamaður Norðurlanda. Þarna við afhendinguna voru við- staddir þeir iþróttamenn sem höfðu verið kosnir iþróttamenn ársins á hinum löndunum fjórum og það er Guðjón Guðmundsson sem er þarna á myndinni, annar frá vinstri. Að baki honum stendur Jón Asgeirsson, formaður Samtaka iþróttafrétta- manna. Lasse Virén er annar frá hægri á myndinni. flVERY KOMINN í ÞAÐ HEILAGA Avery Brundage sá aldni fyrr- verandi formaður Alþjóðlegu Ólympiunefndarinnar gekk I SVEIT ÆtlS SETTIIS- LANDSMET Sveit Ægis setti nýtt Islandsmet i 4x100 m skrið- sundi á sundmóti KR i vikunni. Sveitin synti á 3.59,6 og bætti eldra metið um góðar fimm sekúndur, en það met var einnig I eigu Ægis- sveitarinnar. I metsundinu skipuðu þeir Ægis-sveitina Finnur Garðarsson, Sigurður Ólafsson, Axel Alfreðsson og örn Geirsson. fyrradag i það heilaga með hinni 36 ára gömlu prinsessu Mariann Reuss og gerði þá heyrum kunnugt að hann óskaði eftir að eignast tvibura. Brundage er 85 ára gamall margmilljónamæringur og hann dansaði inn i sælu hjónabandsins með prinsessunni sinni i lúxus- villu sinni i Suður-ölpunum. Prinsessan hefur þekkt Brundage i 14 ár, en það var fyrst á sumarleikunum i Munchen i fyrra að kærleikurinn milli þeirra fór að blómstra, en hún var þá einkaritari formannsins. LANDS- LIDS- FERLI HANS LOHIÐ? Liklegt má telja að lands- liðsferill Gunther Netzer i V.- Þýzkalandi sé á enda eftir að hann réðst til spánska stór- liðsins Real Madrid fyrir himinháa upphæð. Óvist er talið i Þýzkalandi að hann verði einu sinni valinn i 40 manna hópinn, sem valinn verður fyrir HM keppnina næsta sumar. Netzer hefur aðeins leikið einn landsleik siðan V.-Þýzka- land vann Evrópukeppnina fyrir ári siðan. Telja má Netzer snjallan að hafa náð svo góðum samningi við Real Madrid, þvi það er staðreynd, að þótt hann sé vafalaust einn snjallasti uppbyggjari i heiminum, þá hefur hann aldrei hin siðari árin getað æft fyllilega vegna sifelldra meiðsla. Þar að auki er hann nú nærri 29 ára gamall. Einvaldur V.-Þýzka lands- ’ liðsins, Helmut Schoensegir: „Við munum leika 10 æfinga- íeiki fyrir HM keppnina. Það er hugsanlegt að Real Madrid muni láta okkur Netzer eftir i þessa leiki, en ég hefi áður átt i erfiðleikum með erlend félög með að fá leikmenn lausa i landsleiki svo ég held það sé viturlegra að finna nýjan mann sem allra fyrst”. Einn leikur fer fram i að vera lengi úr sviðs- vellinum mætast 0 Föstudagur 22. júní 1973

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.