Alþýðublaðið - 28.06.1973, Page 2
LÆGRI LÍKAMSHITI - LENGRA LIF
EF MAÐURINN gæti lækkað
likamshita sinn um aðeins
nokkrargráður. þá væri unnt aö
lengja lifið. Það staðhæfir
a.m.k. bandariski geðlæknirinn
Robert Myers við Purdue-há-
skólann. Hann byggir staðhæf-
ingu sina á tilraunum með ketti
og apa.
Fiest spendýr, þar á meöal
maðurinn. hafa 37 stiga likams-
hita. Þetta hitastig getur að
sjálfsögðu verið breytilegt
vegna áhrifa sjúkdóma og um-
hverfishita. en við eölilegar að-
stæður er það nokkuð stöðugt.
Jafnvel við mjög afbrigðileg
loftslagsskilyrði i aðra hvora
áttina mun likaminn reyna að
viðhalda þessu fasta hitastigi
með hjálparráðum ■ eins og
hrollskjálfta eða hröðum andar-
drætti. sem kælir likamann.
ÞETTA FASTA HITASTIG
hefur að áliti sérfræöinga þjón-
að þörfum sinum vel og lengi.
En það er vissulega ástæða til
þess að ihuga, hvort ekki sé rétt
að breyta þvi. Að minnsta kosti i
ákveðnum tilvikum.
Ef manneskja verður fyrir
sýkingu, sem likami hennar
getur ekki unnið bug á meö góðu
móti. þá nægir oftast hitaaukn-
ing um nokkrar gráður til þess
að drepa sýklana. Lækkun hita-
stigsins getur verið þarfleg t.d.
við uppskurði, vegna þess. að
lækkun á hraöa efnabreytinga i
iikamanum kemur i veg fyrir
skaða og blæöingar i likams-
vefjunum.
ÞETTA eru ekki bara vanga-
veltur. Þegar hefur tekizt að
lækka likamshita spendýra i til-
raunastofum. Myers prófessor
hefur sýnt fram á, að hitastigi
likamans er stjórnað af heila-
dinglinum. Og hann komst að
raun um að stjórna mætti hit-
anum með þvi aö koma til leiðar
breytingum á efnasamsetning-
um i heilanum. Sé hlutfall natri-
ums i heilanum aukið. þá ris lik-
amshitinn ört. Sé aðstrevmi
kalciums aukið, lækkar hitinn.
ASAMT Tonny Yaksh hefur
Myers prófessor framkvæmt
svipaðar tilraunir á rhesusöp-
um. Niöurstaðan var hin sama.
Ef heilanum var ..fært" natri-
um reis hitinn.og ef aukið var
kalciummagn hans lækkaöi
hitastig likamans. Þegar nýju
stöðugleikahitastigi var náð hjá
dýrunum leitaðist likaminn við
að viðhaída þvi án tillits til þess,
hvort honum voru gefin hitaböð
eða köld böð — og lækkaður lik-
amshiti lengdi lif dýranna. My-
ers prófessor telur, að unnt sé
að finna upp aðferð. sem geri
það að verkum, að beita megi
sömu aðferðum við menn.
VIÐ SUMARHREINGERN-
INGUNA
EF BÆKURNAR ERU
ORÐNAR MATTAR OG UPP-
LITAÐAR Á KJÖLNUM,
REYNDU ÞA AÐ BERA BÓN
A KJÖLINN OG FÆGJA
BLÓMARÁÐ
Klippið stilkana af niðri i
vatninu. Hafið ekki of kalt vatn i
vasanum. Vasinn á að vera
hreinn. Blómin má ekki setja i
sól.
í BÍLINN
Börnum leiðist oft i löngum
ökuferðum. Búðu til „hillu” fyrir
þau úr einhverju sterku efni og
saumaðu vasa á. Leyfðu svo
börnunum sjálfum að fylla
vasanameðleikföngum. Hengdu
svo vasapokann á bak framsæt-
anna og þá fer vel um börnin....