Alþýðublaðið - 28.06.1973, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 28.06.1973, Blaðsíða 4
Æskulýðsráð Reykjavíkur Siglingar í Nauthólsvík sunnudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 7 til 22. — Innritun á staðnum. Simi 1-59-37. Dagsferðir í Saltvík Aldur: 8 til 13 ára. — 2. júli til2. ágúst. Leikir, útivera, náttúruskoðun. Innritunargjald kr. 200. — Daggjald kl. 150. Reiðskóli í Saltvík 2. til 13. júli og 16. til 27. júli. Nokkur sæti laus Upplýsingar á skrifstofunni, Frikirkjuvegi 11, simi 1-59-37. ■ r' Frá Tæknifræðingafélagi Islands í tilefni þess, að ný reglugerð fyrir Tækni- skóla Islands hefur verið staðfest, verður um hana fjallað á aðalfundi T.F.I. i dag, fimmtudag. STJÓRNIN. Fra mönnum og málefnum súpunni, og gerist núsárog móö- ur i sinu eigin kjördæmi. Honum er þetta fjórðungsmál sjálfsagt ekki eins fast i hendi og trúboðið Ólafi digra, en hann vill margt fyrir flokksvini sina þrjá á Sauðárkróki gera, og þvi er það, að mönnum þykir sem Stikla- staðarorrustan sé hafin i riki forsætisráðherra. VITUS Stiklastaðar- Almannavarnir ríkisins orustan á Sauðárkróki Ólafur er mannsnafn, sem frægt er úr sögunni, meðal ann- ars fyrir trúboð. Sá maður, sem kristnaði Norðurlönd með járni og eldi, féll að lokum að Stikla- stöðum eftir að hafa fengið miklar sæmdir af samtið sinni og helgs manns orð i munni komandi kynslóða. Nú er annar Ólafur risinn upp, að visu ekki með konungsnafnbót, og hyggst reka nokkurt trúboð á Norður- landi. Siga lið saman af þessu tilefni, en óvist enn hvort málið endar með eins konar Stikla- staðarorrustu. Alþýðublaðið skýrði frá þvi i gær, að enn hefði ein sýslunefnd bætzt i hóp þeirra, sem ekki vildu skiptingu á Fjórðungssam- bandi Norðlendinga, en það er sýslunefnd Skagfirðinga. Aður höfðu sýslunefndir i Húnavatns- sýslum báðum tekið af skarið og lýst sig andvigar skiptingu. Hins vegar mun Ólafur Jóhann- esson hafa lýst sig fylgjandi skiptingu, og farið þar að orðum og hugmyndum málvina sinna á Sauðárkróki, sem mun finnast hlutur Akureyrar i fjórðungs- sambandinu fullmikill, en jafn- framt hafa hug á nokkrum met- orðum i leiðinni, enda er ætlunin að setja upp aðalstöðvar hins nýja sambands á Sauðárkróki. Það mun vera kjördæmaskip- unin, sem tillögur um nýtt fjórð- ungssamband nyrðra eru byggðar á. Sýslufélögin telja þó, að slikt sé harla reikul undir- staða og kjördæmaskipun sé breytingum undirorpin. Hins vegar séu sýslufélögin fastmót- aðar stofnanir og grónar og á þeim beri að byggja. Jafnframt er bent á, að fjórðungssam- bandið nái yfir hinn gamla Norðlendingafjóðrung, þ.e. frá Hrútafirði að Langanesi, og til þess hafi verið stofnað af sýslu- félögunum sjálfum. Það séu þvi þau, sem hljóti að ráða skipan þessara mála, en ekki stjórn- málamennirnir. Allt eru þetta góð og gild rök, enda komið á daginn, að sýslu- nefndirnar vestan Oxnadals- heiðar halda fast við fyrra skipulag. A Sauðárkróki rikja önnur sjónarmið. Forystumenn fyrir þeim eru einkum þeir Ste- fán Guðmundsson, Guðjón Ingi- mundarson og Marteinn Frið- riksson. Hafa þeir gerzt eins konar herforingjar Ólafs i strið- inu, sem öðrum þræði er innan- flokksmál forsætisráðherra. Hélt ólafur, að Stiklastaðarorr- ustan væri unnin i héraðinu, og kom vist á óvart, að sýslunefnd Skagfirðinga skildi reynast and- vig klofningi fjórðungssam- bandsins. Ekki er enn séð fyrir endann á Stiklastaðarorrustu hinni nýju. Hún geisar nú sem harðast á Sauðárkróki, enda hefur verið boðaður eins konar stofnfundur hins nýja fjórðungssambands. Þeir Ólafur og Björn á Löngu- mýri hafa veriö á yfirreið um kjördæmið að undanförnu, eins og sjá má i Timanum. Björn er að venju talliðugur við menn og segist ekkert skipta sér af þessu fjórðungsmáli, en laumar inn i milli, að hann skilji ekkert i þessari vitleysu i Ólafi. Er sýni- legt, aö Björn ætlar sér að kom- ast heill úr Stiklastaðarorrust- unni, að minnsta kosti ætlar hann ekki að láta fara fyrir sér eins og Þormóöi Kolbrúnar- skáldi, enda ekki efst i huga, aö sýna mönnum hvort hjartaræt- urnar eru ljósar eða dökkar, nú þegar hann undirbýr framboð s'itt til næstu þingkosninga. Enn sem fyrr situr Ólafur i óska eftir að ráða skrifstofustúlku. Vélritunar- og einhver enskukunnátta nauðsynleg. — Laun samkvæmt launa- kerfi hins opinbera. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Al- mannavarna i Lögreglustöðinni við Hlemmtorg. ORKUSTOFNUN óskar að taka á leigu nokkra jeppa. — Upplýsingar i sima 21195 kl. 9—10 og 13—14. Frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík Umsóknarfrestur um skólavist fyrir nýja nemendur i vetur er til 15,. ágúst. Inntökuskilyrði i 1. bekk eru: 1) Gagnfræðapróf eða hliðstætt próf. 2) 24 mánaða hásetatimi eftir 15 ára ald- ur. Þá þurfa umsækjendur að leggja fram augnvottorð frá augnlækni, heilbrigiðs- vottorð og sakarvottorð. Fyrir þá, sem hafa ekki gagnfræðapróf eða hliðstætt próf, verður haldin undir- búningsdeild við skólann. Einnig er heim- ilt að reyna við inntökupróf I 1. bekk i haust. Prófgreinar eru: Stræðfræði, eðlis- fræði, islenzka, enska og danska. Inntökuskilyrði i undirbúningsdeildina eru 17 mánaða hásetatimi eftir 15 ára ald- ur, auk fyrrgreindra vottorða. Haldin verður varðskipadeild við skól- ann i vetur. t ráði er að halda 1. bekkjardeildir og undirbúningsdeildir á eftirtöldum stöðum, ef næg þátttaka fæst: Akureyri, ísafirði og Neskaupstað. Námskeið i islenzku og stærðfræði fyrir þá, sem náðu ekki prófi i þeim greinum upp úr undirbúningsdeild og 1. bekk i vor, hefjast 14. sept. Þeir, sem ætla að reyna við inntökupróf, geta sótt þau námskeið. Skólastjórinn. * TJÖLD — SVEFNPOKAR — ALPAPOKAR ÚR STRIGA OG NYLON — YLFIN GABAKPOKAR * EINGÖNGU FYRSTA FLOKKS EFNI * FULLKOMIN VIÐGERÐAÞJÓNUSTA BELGJAGERÐIN BOLHOLTI 6 — Sími 36600 0 Fimmtudagur 28. júní 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.