Alþýðublaðið - 28.06.1973, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 28.06.1973, Blaðsíða 10
Sundnámskeið fyrir börn Sundnámskeið hefjast i sundlaugum Árbæjarskóla og Breiðagerðisskóla 2. júli og standa til 27. júli. Innritun i anddyri Breiðagerðisskóla og i sundlaugÁrbæjarskóla29. júni kl. 10-12 og 14-16. Innritunargjald er kr. 500,00. Fræðsluskrifstofa Reykjavikur. Tilboð óskast i smíöi og uppsetningu innréttinga i Mennta- skólann að Laugarvatni, 2. afanga. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar rikisins, Borgartúni 7, Rvk, gegn 2.000,00 kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á sama staö mánudaginn 9. júli INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26814_ íbúð óskast til leigu Ung hjón með 8 mánaða barn, óska eftir 2ja herbergja ibúð frá 1 ágúst n.k. Reglu- semi heitið. Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir föstudagskvöld, merkt „1973”. Kvennaskólinn á Blönduósi starfar tviskipt næsta vetur. Fyrra námskeið: okt. — des. Siðara námskeið: jan. — maí. Hússtjórnargreinar. Valgreinar: vélritun og bókfærsla. Sendið skriflegar umsóknir. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, simi 95-4239. *■!■ * Tilboð óskast i smíði og uppsetningu inn- réttinga i Menntaskólann að Laugarvatni, 2. áfanga. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Inn- kaupastofnunar rikisins, Borgartúni 7 Rvk, gegn 2.000,00 kr. skilatryggingu. Til- boð verða opnuð á sama stað mánudaginn 9. júli 1973 kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 I Astkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, Einar Guðjónsson, Miklubraut 62 andaðist á Borgarspitalanum 26. júni s.l. Fyrir mina hönd og annarra aðstandenda. Margrét Gunnlaugadóttir. Peppino Russo fyrir framan sinn undarlega múr af gömlum útslitnum eða sködduðum dúkkum framan við hús sitt i Róm. HANN SAFNAR YFIRGEFNIIM DÚKKUM — en móðir lótinnar stúlku fékk dúkkur dóttur sinnar aftur. Peppino Russo og eiginkona hans, Maria, búa i litlu húsi í út- hverfi Rómaborgar. En gatan þrönga, sem liggur umhverfis húsgarð hans, er óvenjuleg sjón. Vegna þess að upp við grindverk- iö beggja megin við er raðað dúkkum i hundraðavis i öllum stærðum ogaf öllum gerðum. Þar er einnig að finna skilti með text- anum: Hlæðu ekki að mér. Aðrir hlæja ef til vill að þér. . . . Nokkrar af dúkkunum eru grá rifrildi, illa leiknar af veðrum og vindi, og með tómleg, starandi augu. Þær hafa verið þarna vetur sem sumur i 10 ár. Aðrar dúkkur eru rifnar i hengla. Enn aðrar eru i mjög góðu ásigkomulagi. Það er alveg sérstök ástæða fyrir þvi, að Peppino Russo safn- ar gömlum dúkku'm, sem hætt er að nota.. A striðsárunum stóð hann sem ungur hermaður frammi fyrir stundursprengdu og logandi húsi. Hann ruddist þangað inn og bjargaði ungri stúlku út úr eld- hafinu, stúlkan sú var Maria, sem hann siðar gekk að eiga. En dauðinn og eyðileggingin, sem Russo sá á striðsárunum, olli þvi, að hann öðlaðist ákafann vilja til þess að liðsinna öllu þvi, sem hafði verið yfirgefið, skadd- að eða fleygt burtu. Hann minntist þessa mörgum árum siðar þegar hann kvöld eitt ók um götur Rómar. Þá kom hann skyndilega auga á dúkku, sem lá ein og yfirgefin i göturæsi. Hann stöðvaði bilinn, tók dúkk- una upp.og þarna sem hann stóð með hana i höndunum, upplifði hann enn einu sinni atburðinn frá striðsárunum þegar hann bjarg- aði hinni verðandi konu sinni úr eldhafinu. — Ég fékk það sterklega á til- finninguna, að dúkkan væri eigin- kona min, segir Russo. — Ég fann til örvæntingarfullrar meðaumk- unar með öllum þeim manneskj- um; er deyja sem fórnardýr sprengja viðs vegar i heiminum og um leið með öllu þvi, sem kast- að er burtu og fleygt. Ég gat einfaldlega ekki fleygt dúkkunni. Ég tók hana með mér heim. Allt upp frá þessu hef ég svo safnað yfirgefnum dúkkum, svo sem eins og til þess að sýna vilja minn til þess að bjarga yfirgefn- um manneskjum. Ég vil með þessu sýna fram á, að ég hef enn von um og trú á manneskjuna og á sigur þess góða hér i heimi. . . . Hið einkennilega áhugamál Peppino Russo hefur einnig haft sinar afleiðingar: Fyrir nokkrum árum var sex ára gömul dóttir bandarisks sendiráðsstarfsmanns i Róm keyrð niður af strætisvagni og lét hún lifið. Sama kvöldið pakkaöi móðir telpunnar, frávita af sorg, öllum dúkkum dóttur sinnar i kassa og setti hann út á miðja götu. Peppino Russo ók um götuna skömmu siðar og fann kassann fullan af dúkkum. Hann tók þær með sér heim og stillti þeim upp meðfram girðingunni. Nokkrum mánuðum siðar komu amerisku hjónin keyrandi eftir götunni sem lá framhjá húsi Russo. Undrandi störðu þau á þann mikla fjölda af dúkkum, sem stillt var upp meðfram veg- inum og skyndilega þekkti konan nokkrar þeirra aftur. Þær höfðu verið I eigu hins látna barns hennar. — Móðirin sárbændi mig um að gefa henni dúkkurnar aftur, segir Russo bliðlega. — Henni fannst, að hún hefði brugðizt litlu dóttur sinni með þvi aö fleygja öllum dúkkunum henn- ar. Auövitað fékk hún þær. Nú starfa þau hjónin I Tókló. Á hverju ári senda þau mér jólakort og þakka mér fyrir að bjarga dúkkunum til minja um litlu dótt- ur þeirra. . . . Aðvöruil: Aðalskoðun bifreiða i Kópavogi árið 1973 er lokið. Þær bifreiðar merktar Y, sem ekki hafa verið færðar til aðalskoðunar fyrir 1. júli n.k., verða teknar úr umferð hvar sem til þeirra næst. Bæjarfógetinn i Kópavogi. Trjáplöntur Birkiplöntur til sölu i 6 stærðar- og verð- flokkum frá 50-150 kr. Lynghvammi 4. Hafnarfirði SÍMI 50572. © Fimmtudagur 28. júní 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.