Alþýðublaðið - 28.06.1973, Side 3

Alþýðublaðið - 28.06.1973, Side 3
Hvort félag áfram með sína stjórn sem lúti svo þeirri sameiginlegu „Sameiningin” er það stórmál, sem að flestra dómi er mál málanna á aðalfundum Flugfélags íslands og Loftleiða, sem haldnir verða á sama tima í báðum fé- lögum i dag. Á stjórnar- fundum beggja félag- anna hinn 11. april sl. var formlega samþykkt- ur samkomulagsgrund- völlurinn frá 14. marz, en maðurinn á bak við hann var Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytis- stjóri, sem var formað- ur hinnar stjórnskipuðu nefndar, sem að málinu vann. Til þess, að hægt sé að byggja á þessum grundvelli verður hann að ná löglegu samþykki aðalfunda beggja félag- anna. Er hér um svo viðamikið mál að ræða, að til þess, að hluthafar geti tekið afstöðu til þess, munu á aðalfund- unum verða lögð fram drög að þeirri tilhögun, sem fyrirhuguð er. Vitað er, að rikisstjórnin legg- ur mikla áherzlu á, að sameiningin nái fram að ganga, og eins að henni verði hraðað eftir föng- um. Hefur hún heitið lagabreytingum, sem gera hana mögulega og hafa heitið m.a. skatta- ivilnunum og öðrum friðindum, sem greiða fyrir henni. Flugfélag íslands h.f. er meðlimur IATA Al- þjóðasambands flugfé- laga, en Loftleiðir hf. hins vegar ekki. Aftur á móti er talið að Loftleið- ir hafi utan IATA skapað sér vissa sérstöðu, sem ekki sé rétt að afsala. Þessi ólika staða félag- anna olli vissum vanda i sameiningarviðræðun- um, og mun hafa ráðið miklu um, að ákveðið er að bæði félögin starfi áfram, hvort með sinni stjórn og framkvæmda- stjórum. Hins vegar er áformað, að stofnað verði nýtt hlutafélag, sem annast hluta heildarreksturs beggja félaganna og hefur yfir- umsjón með öllum rekstri þeirra. Er gert ráð fyrir 350 milljón króna hlutafé, sem siðar er heimilt að auka. Á það að greiðast með matsverði eigna beggja félaganna og reiknings- legum eignaverðmæt- um. Þannig er gert ráð fyrir, að hluthafar beggja félaganna fram- selji hinu nýja félagi öll hlutabréf og fái i þeirra stað hlutabréf i þvi|. Þá er gert ráð fyrir þvi, að aðalfundirnir kjósi nú stjórnir i félögunum til ársins 1976 i stað eins árs, eins og gert er ráð fyrir i samþykktum fé- laganna. Þarf þvi til að koma breyting á þeim, sem heimila þessa til- högun. Með þessu móti er gert ráð fyrir þvi, að til verði þrjú félög, en Flugfélagið og Loftleiðir lúti þó yfirstjórn hins nýja félags. Til þess að fyrirbyggja ágreining um þetta hlutverk nýja félagsins, hefur verið rætt um, að stjórnar- menn flugfélaganna eigi að einhverju leyti eða jafnvel öllu leyti sæti i stjórn allra þriggja fé- laganna. Gæti svo farið, að i nýja félaginu yrði 10 manna stjórn, 5 frá hvoru flugfélagi, ásamt oddamanni tilnefndum af Landsbankg íslands, sem hafi þvi aðeins at- kvæðisrétt, að stjórnar- ákvarðanir standi á jöfnum atkvæðum. Eins og áður greinir, varð fullt samkomulag hjá stjórnum flugfélag- anna um, að fara þess á leit við Landsbankg ís- lands, sem hlutlausan aðila, að tilnefna mats- nefnd þriggja óvilhallra manna til þess að meta eignahlutföll félaganna, ef þessar ráðagerðir hljóta löglegt samþykki aðalfundanna. Hafa þessir matsmenn að sjálfsögðu aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum, ef til kemur, enda verður matið framkvæmt innan ramma, sem nánar kveður á um mats- grundvöll i aðalatriðum. Við eignamatið mun ekki verða tekið tillit til „goodwill” flugfélag- anna, og er augljóst, að þetta auðveldar starf matsmanna, en um þetta atriði eru mjög skiptar skoðanir. Ef „sameiningin” verður ofan á#á aðal- fundinum i dag, munu stjórnir FlugfélagSi ís- lands hf. og Loftleiða hf. leita eftir umboði til að ganga endanlega frá stofun hins nýja hlutafé- lags og til þess að undir- ritaða stofnsamning og samþykktir þess. Er stefnt að þvi, að stofnun þess verði lokið fyrir 1. ágúst næstkomandi. Þá verða gerðar nauðsyn- legar breytingar á sam- þykktum beggja félag- anna til samræmis við stofnsaming hins nýja félags. Ekki er kunnugt um, hvaða nafn það hlutafélag hlýtur. Sheil þjónusta Bensínstfíð OPNUAA í DAG i dag aukum við enn þjónustuna við viðskiptavini okkar. Við opnum nýja benzínstöð við Kleppsveg — á gatnamótum Langholtsvegar. Á staðnum bjóðum við upp á þvottasvæði, auk verzlunar með margvíslegar Shell-þjónustuvörur. Við bjóðum yður velkomin og munum leitast við að veita góða þjónustu á hinni nýju stöð, eigi síður en þeim eldri. Olíufélagið Skeljungur hf Shell Fimmtudagur 28. júní 1973 o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.