Alþýðublaðið - 02.10.1973, Síða 2
Smjörlíki h/f hefur ákveðið að efna til samkeppni um
beztu smáréttina. Verðlaun nema samtals 80 þúsund
krónum. Samkeppnin ber heitið: Ljóma smáréttasam-
Jceppnin.
Þátttakendur í samkeppninni þurfa aðeins að senda
inn uppskrift af bragðgóðum, skemmtilegum smárétti,
sem búa má til á fljótlegan og einfaldan hátt.
Fyrstu verðlaun samkeppninnar verða 40 þúsund
krónur, önnur verðlaun 20 þúsund krónur, þriðju verð-
laun 10 þúsund krónur, fjórðu og fimmtu verðlaun 5
þúsund krónur hvor.
Þátttaka í Ljóma-smáréttasamkeppninni er öllum
heimil, konum og körlum, nema þeim, sem hafa matar-
gerð að atvinnu, starfandi húsmæðrakennurum, lærðum
bökurum og brytum.
Kjörorð samkeppninnar er: „Alveg ljómandi“.
Samkeppnisreglur:
IÞátttakendur mega senda
svo margar uppskriftir, sem
peir óska.
2Vélritið, eða skrifið prent-
störfum, allt í uppskriftinni.
Gleymið ekki að gefa upp
nákvæmt mál eða vigt, bök-
unartíma/suðutíma og hita-
stig. Nafn á smáréttinum
ef þér hafið það.
3Veljið yður dulnefni og
skrifið það á uppskriftar-
blaðið. Látið síðan nafn yð-
ar, heimilisfang og síma á
annað blað og setjið það í
umslag merkt. dulnefninu.
Hvort tveggja er síðan látið
í umslag merkt: „Alveg
ljómandi“, pósthólf 5133,
Reykjavík. Umslagið verður
að hafa borizt okkur í síð-
asta lagi 16. október, 1973.
Skilyrði fyrir þátttöku er:
a) að Ljóma-smjörlíki sé
notað á einhvern hátt í
uppskriftinni og
b) önnur efni, sem fáan-
leg eru í verzlunum hér-
lendis,
c) að smárétturinn sé fljót-
gerður.
Smjörlíki h/f áskilur sér
1 rétt til að nota allar upp-
skriftir, sem berast í aug-
lýsingar, í uppskriftabæk-
ur, eða með öðrum hætti og
án þóknunar til sendanda
eða höfundar. Uppskriftirn-
ar verða ekki endursendar
eða verður unnt að gera til-
kall til þeirra á annan hátt,
enda hafi enginn einkarétt
á þeim.
6Fimm réttir komast í úr-
slit. Sendendum þeirra verð-
ur boðið að vera viðstaddir,
þegar úrslit verða tilkynnt
af dómnefnd 15. nóvember
1973. Fargjöld og uppihald
verður greitt fyrir þátttak-
endur utan af landi.
7Sérstök dómnef nd mun
fjalla um uppskriftirnar, en
hana skipa:
Agla Marta Marteinsdóttir,
húsmóðir.
Dröfn Farestveit,
húsmæðrakennari.
Elsa Stefánsdóttir,
húsmóðir.
Jón Ásgeirsson,
fréttamaður.
Skúli Þorvaldsson,
veitingamaður.
Haukur Hjaltason,
matreiðslumaður,
og er hann jafnframt for-
maður dómnefndar.
Ath.: Nánari upplýsingar, ef
óskað er, veitir Smjörlíki
h/f, Þverholti 19,
Reykjavík. Sími: 26300.
Sendið okkur eftirlætisupp-
skrift yðar strax í dag. Hver
veit nema einmitt yðar upp-
skrift verði metin fjörutíu þús-
und króna virði?
□
smjörlíki hf.
ÞVERHOLTI 19, SlMI 26300
REYKJAVlK.
Alþyðublaðið
vantar sendisveina fyrir og eftir hádegi.
Þurfa helst að hafa hjól.
Upplýsingar á afgreiðslu blaðsins i sima
14900.
alþýðu
Blaöburöur
Blaðburðarfólk vantar nú þegar
i eftirtalin hverfi:
Grettisgata — Njálsgata
Laugarnes
Heimar
Skipasund
Voga
Melar
Hagar
Meistaravellir
Laugarásvegur
Múlar
Stóragerði
Kópavogur:
Hrauntunga
Hliðarvegur
alþýðu
Yfirmenn
sjónvarps
mættu
ekki
á fund
Útvarpsráðs
Agreiningur meirihluta Út-
varpsráðs og fréttamanna út-
varps og sjónvarps er kominn á
jað stig, að vart er hægt að
segja að um samstarf útvarps-
ráðs og stjórnenda útvarps og
sjónvarps sé að ræða.
Eins og sagt hefur verið frá i
fréttum gengu útvarpsstóri og
tveir af deildarstjórum hans af
fundi ráðsins I fyrri viku, og er
Útvarpsráð hélt i gær fund um
málefni sjónvarpsins, mætti
enginn af yfirmönnum sjón-
varpsins á þann fund. Þeir, sem
sitja þessa fundi af hálfu sjón-
varpsins að jafnaði eru Andrés
Björnsson, útvarpsstjóri, Pétur
Guðfinnsson, framkvæmda-
stjóri sjónvarps, Emil Björns-
son, fréttastjóri og Jón Þórar-
insson, deildarstjóri lista- og
skemmtideildar.
Blaðamanna-
félagið
mótmælir
vinnubrögðum
Útvarpsráðs
Stjórn Blaðamannafélags ts-
lands geröi eftirfarandi sam-
þykkt á fundi sinum i gær, og
sendi útvarpsráði:
Stjórn Blaöamannafélags ts-
lands vill að gefnu tilefni taka
fram eftirfarandi, vegna þess á-
greinings sem risið hefur milli
fréttamanna Rikisútvarpsins og
meirihluta útvarpsráðs:
X) Stjórnin átelur þá aðferð út-
varpsráðs að birta gagnrýni
sina á störf fréttamanna fyrst i
fjöimiðlum, án þess að ræða við
viðkomandi fréttamenn og
hlýða á skýringar þeirra.
2) Stjórnin fordæmir þann hátt
útvarpsráðs að senda frá sér ó-
rökstuddar fullyrðingar um
vinnubrögð frettamanna Rikis-
útvarpsins, og telur það móðgun
við starfsheiður þeirra frétta-
manna, sem I hlut eiga.
3) Stjórnin leggur áherslu á það
grundvallaratriði frjálsrar
fréttamennsku, að fréttamenn
geti starfaö án þrýstings frá
pólitiskum og fjárhagslegum á-
hrifaaöiium.
Þriðjudagur 2. október 1973.