Alþýðublaðið - 02.10.1973, Síða 10
Reykjavíkurmótið vel á veg komið
FRAM OG VALIIR i ÚRSUTIN?
Tvær umferðir hafa verið leiknar i riðlum Reykjavikurmótsins i hand
knattleik. Er staðan nú þannig, að allar likur eru á þvi að Valur og Fram
mætist enn einu sinni i úrslitum mótsins. Reykjavikurmeistarar Vikings
eru svo gott sem úr leik, eftir tap fyrir tap fyrir Fram á iaugardaginn.
Fram-Vik. 16:14(8:6) litt reynda menn dæma svona
Segja má aö þetta hafi verið leik, og viðkomaiidi mönnum
hinn raunverulegi úrslitaleikur enginn greiði gerðiur með þvi.
riðilsins, þvi þetta eru tvimæla
laust tvö sterkustu lið hans.
Enda varö leikurinn eftir þvi,
harður og hlaðinn taugaspennu,
og áttu litt vanir dómarar
leiksins nokkra sök þar á. Var
það mjög misráðið að láta tvo
t *
Framarar léku ákaflega
sterkan varnarleik, og rugluðu
þarmeð stórskyttur Vikings i
riminu. Leiddu Framarar
lengst af og sigruðu 16:14. Þrátt
fyrir að liðið hafi misst menn
eins og Sigurð Einarsson og
Ingólf, virðist það afar sterkt
nú. Munar þar mikið um endur-
komu þeirra Arnars og Pálma.
Innáskiptingarnar verða
vandamál hjá Vikingi i vetur,
með allar þessar stórstjörnur
(ekki færri en 9 af 12 leik-
mönnum liðsins hafa verið
viðloðandi landslið). I þessum
leik var það vandamál ólevst.
-
w
sumir leikmanna „sveltir” á
meðan aðrir voru hafðir inná of
lengi. Markvarsla Sigurgeirs
var ljósi punkturinn, vörnin
þokkaleg en sóknin ekki nógu
beitt. Brottrekstrar af velli voru
6-7.
Mörk Fram: Axel 5, Pálmi 4,
Björgvin 4, Guðm. Þ. 1, Guðm.
S. 1 og Arni 1.
Mörk Vikings: Einar 6, Olafur
F. 2, Jón Hjaltalin 2, Stefán 2,
Viggó 1 og Jón Sig. 1.
Valur-KR 21:12 (12(6)
Valur þarf nú ekki nema jafn-
tefli gegn Þrótti i siðasta leik
riðilsins til að tryggja sér sæti i
úrslitunum. Eins og gefur að
skilja voru yfirburðir Vals
algerir, og sigur þeirra stór,
21:12.
Mörk Vals: Gisli Bl. 7,
Ólafur 5, Stefán 4, Jón K 2 Jón
Ag. 1, Agúst 1 og Jóh. Ingi 1.
Mörk KR: Haukur 8,
Þorvarður 2, Björn Bl. 1 og
Guðlaugur Bergmann 1.
ÍR-Ármann 14:13 (6:6)
Þetta var jafn og spennandi
leikur, og nokkuð góður á
köflum. Fyrri hálfleikurinn var
hnifjafn, en i siðari hálfleik var
eins og Armann ætlaði að vinna,
komst i þriggja marka forystu
i 4 i i i
Einar Magnússon skorar með
miklum tilþrifum I leiknum við
Fram. Mynd Smarsi.
10:7 og 11:8. En Ármenningar
gáfu eftir á lokaminútunum og
IR tókst að vinna 14:13.
Ármenningar mjög ákveðnir, en
vantar illilega stórskyttu i liðið.
Hjá 1R var Geir Thorsteinsson
markvörður i sérflokki.
Mörk 1R: Ágúst 4, Vilhjálmur
4, Guðjón M. 2, Ólafur 1, Asgeir
1, Hörður H. 1 og Hörður Á 1.
Mörk Ármanns: Björn 3, Jón
Ástv. 3, Ragnar 3, Þorsteinn 3
og Vilberg 1.
Fylkir-Þróttur 18:18
(12:12)
Hinir ungu leikmenn Fylkis
komu sannarlega á óvart með
stórgóðum leik, og hefði örlitil
heppni fylgt þeim i lokin, heföi
sigurinn getað orðið þeirra. En
leiknum lauk með jafntefli
18:18.
Fylkisliðið er i stöðugri fram-
för, og með slikum leik getur
það farið að skáka toppliðum 2.
deildar. Leikmennirnir eru
ungir og óragir. Þróttarar náðu
sér aldrei á strik við hina miklu
og óvæntu mótstöðu. Halldór
Bragason bestur Þróttara, en
Guðmundur Sigurðsson bestur
Fylkismanna ásamt Einari
Ágústssyni.
Mörk Fylkis: Guðmundur 10,
Einar Ag. 3, Einar E 3, og örn 2.
Mörk Þróttar: Halldór 7,
Sveinlaugur 3, Jóh. Fr. 3,
Friðrik 3, Björn 1 og Erling 1.
Næsta umferð verður leikin
um næstu helgi. -SS
Stórafmæli íþróttafrömuða
Það er mikið um stórafmæli I íþróttahreyfingunni i þessari viku. 1
gær varð Hafsteinn Guðmundsson formaður IBK fimmtugur og á
föstudaginn verður svo Albert Guðmundsson formaöur KSÍ fimm-
tugur. óþarfi er að kynna þessa heiðursmenn nánar, störf þeirra að
iþróttamáium eru mönnum kunn. En það er skemmtiieg tilviljun, að
þeir skuli hafa fæðst með svona stuttu millibili, eins samrýmdir
og þeir hafa verið, nú siöast að landsliðsmálum.
Vallarstjóri gefur
grænt Ijós á
Laugardalsvöll
Kaldur Jónsson vallarstjóri
hefur gefið grænt ljós á Laugar-
dalsvöllinn fyrir leik Keflvfk-
inga og Hibernian annað kvöld.
Völlurinn er þokkalega útlit-
andi, cn mjög blautur. Þó er
hann að áliti sérfróðra manna
betri en oftast áður á þessum
árstima, og er það að þakka
góðu sprettuveðri I sumar, og
alvcg fram á þennan dag.
Vegna bleytunnar hefur ckki
veriö hægt að koma sláttuvél á
völlinn, og er hann þvi frekar
loðinn.
„Við erum bjartsýnir á
úrslitin, og eins og málin standa
nú er ekki annað fyrirsjáanlegt
en um jafnan og spennandi leik
verði að ræða”. sagði Hafsteinn
Guðmundsson formaður IBK i
gær. „Nú er bara að vona það
besta með veður og aðsókn, og
spáin mun vera þannig, að
stytta eigi upp”
Keflvikingar tefla fram sinu
sterkasta liði, nema hvað
Grétar Magnússon hefur ekki
: The Royal Bank More than just itf
getað æft seinni hluta sumars
vegna meiðsla. Þess i stað hefur
hann séð um þjálfun liðsins
ásamt Guðna Kjartanssyni,
siðan Bretinn Joe Hooley lét af
þvi starfi. 1 stað Gretars leikur
Hjörtur Zakariasson.
Skotarnir komu til landsins i
gærkvöld. Þeir eru að sjálf-
sögðu með sitt besta lið, þvi haft
er fyrir satt að þeir óttist mjög
■ Keflvikinga I seinni leiknum.
Forsala aðgöngumiða er þegar
hafin, bæði i Keflavik og
Reykjavik. 1 Keflavik eru miðar
seldir hjá þeim Magnúsi
Haralds og Jóni Öla i Sportvik,
en i Reykjavik i tjaldi i Austur-
Stræti.
Leikmenn Hibernian hlaupa út
á völlinn í fyrri leiknum viö
ÍBK. Myndina tók Bjarnleifur
Bjarnleifsson úti í Skotlandi á
dögunum.
Þriðjudagur 2. október 1973.