Alþýðublaðið - 02.10.1973, Qupperneq 12
alþýðu
mum
A Suður- og Vestur-
landi er spáð sunnan átt,
hvassviðri og rigningu i
dag, en á morgun er gert
ráð fyrir skúrum.
Norðanlandsog austan
er spáð hægviðri og
hlýju. Þar er spáð suð-
vestan átt hlýju veðri og
úrkomulausu á morgun.
KRILIÐ
r
5- HLUT/Q //LUT Ufi
SIHRR £ll>SM. 'U-'fíT
r) £MO PU , BÚinP
TALfi /n£hf
TflK /<LU /</<U BfEN
dfíuÞl LW/M>5 HLUT/ Rt/nP PP
’> 5 k sr Q Rfí G6!
VfíiJin Lnmri JOTu A'V
PONfí S«f)p
MED tölu T/'/v/)/ TflUfí
L
IHNLÁNSVIÐSKIPTILEID
L LÁNSVIÐSKIPTA
z_/iV B (J NAÐA RB A N Kl
' ÍSLANDS
KÓPAYOGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
Stal tússpennum og skósvertu
stökk síðan ofan af annarri hæð
alþýdu
Ritstjórn: Skipholtj 19. Sími 86666.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10. Sími
14900.
Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10. Simi
86660.
„Litlu sem engu var stolið, en
mikið skemmt", er oft viðkvæðið,
þegar fjölmiðlar skýra frá inn-
brotum — og er þá í flestum
tilfellum um það að ræða, að
skemmt er fyrir hærri upphæðir
en sem nemur andvirði þýfisins,
sé þá yfirleitt einhverju stolið
JtJt A
”Fjórir tusspennar, tvær dósir
af skósvertu, verðlitill minnis-
peningur, sjónvarpstæki og
segulbandstæki og tvö blaðalaus
ávisanahefti”. Þannig hljóðar
listinn yfir það, sem stolið var á
sunnudagsmorguninn i fyrirtæki
einu við Laugaveginn. Allt komst
til skila, þar eð þjófarnir voru
gripnir rétt við innbrotsstaðinn,
en segulbandstækið og sjónvarpið
hvorttveggja mjög mikið
skemmt, ef ekki ónýtt, þar eð
tækjunum var fleygt útum glugga
á annari hæð.
En þjófarnir, sem voru i þessu
tilfelli tveir piltar innan við
tvitugt, lögðu ekki litið á sig
við þjófnaðinn. Að minnsta kosti
annar þeirra kleif upp stiga, sem
stóð við vinnupalla á bakhlið
hússins, og tókst með einhverju
móti að handstyrkja sig frammeð
glugga á annari hæð og smokra
sér inn um litinn opnanlegan
glugga. Ekki hefur það gengið á-
takalaust fyrir sig, þvi blóðstorka
var á glugganum, þegar að var
komið.
Þegar þjófarnir komu inn tóku
þeir til við að leita að einhverju
fémætu og rótuðu i þvi skyni i
öllum skúffum og á öllum borðum
og dreifðu um gólf. Þegar þeir
höfðu ákveðið, hvað tekið skyldi
fóru þeir að glugga á bakhlið
hússins og fleygðu fyrrnefndum
tækjum þar út.
Þegar hér var komið sögu hafði
kona i nærliggjandi húsi orðið vör
við mannaferðir. Þegar hún sá
sjónvarpstækið fljúga út um
gluggann hringdi hún á lög-
. regluna.sem kom fljótt á staðinn.
Við það kom styggð á þann, sem
‘enn var inni i fyrirtækinu, og
hann tók það til bragðs að stökkva
út um gluggann. Þótt fallið ofan
af annari hæð hafi verið mikið
kom hann niður á fæturna og tók
siðan á rás. Lögreglan hóf eftirför
og náði pilti fljótlega. Félaga
hans náðu þeir á Laufásveginum,
og þrætti hann i fyrstu fyrir að
hafa átt hlutdeild i innbrotinu, en
hinirárvökulu lögreglumenn tóku
eftir þvi, að hæl vantaði undir
annan skó hans. Hællinn fannst
siðan fyrir neðan umræddan
glugga.
Að sögn eiganda fyrirtækisins
nemur tjónið ekki minna en eitt
hundrað þúsund krónum, og ber
hann skaðann sjálfur, þar sem
hann hafði ekki þjófnaðar-
tryggingu. Að þvi er lögreglan
tjáði honum er ekki um annað að
gera en biða og vona, að piltarnir
fari einhverntima að vinna fyrir
sér og semja þá við atvinnu-
rekendurna um endurgreiðslu á
tjóninu. Piltarnir, sem voru undir
áhrifum áfengis, sluppu hins-
vegar út fljótlega eftir, að runnið
var sæmilega af þeim, og
rannsóknarlögreglan yfirheyrt
þá.
Litla örin ofarlega til hægri
á myndinni sýnir leið þjófsins
af vinnupöllunum inn um
gluggann, en stóra örin úr
glugganum til vinstri sýnir
leið tækjanna niður á tröpp-
urnar, - og slðan þjófsins.
FIMM ó förnum vegi
1 *
Heldur þú að það verði af stjórnmálaslitum við Breta?
Lára Einarsdóttir, vegfarandi:
Ef ólafur Jóhannesson vill ekki
missa mannoröiö, þá gerir hann
það.
Anna Hansen, trúboði: Ég er i
Vottum Jehóva og við tökum
aldrei beina afstöðu til stjórn-
mála. Aftur á móti vitum við, að
Guð á mjög fljótlega eftir að
grfpa I taumana — bæði i land-
helgismálinu og öðrum málum
— og snúa öllu á betri veg.
Jóhann Diego, garðhönnuður:
Já, ég trúi þvi og finnst ekki
annað sjálfsagt en að stjórnvöld
beiti róttækum aögerðum I
þessu máli og láti hvergi undan.
Asgeir Ólafsson, tækni-
fræðingur: Ég vona ekki . Það
væri of alvarlegt mál fyrir
báðar þjóðirnar. Til aö komast
hjá stjórnmálaslitum verður að
koma undanlátssemi Breta. Af
okkar hálfu er hún ósennileg.
Jón H. Sigurbjörnsson, flautu-
leikari I Sl: Ég veit ekki, en
vona þó að svo verði, ef Bretar
ekki fara út fyrir. Við veröum
að sýna fulla hörku.