Alþýðublaðið - 16.10.1973, Síða 12
alþýöu
LynuTuJ
I dag er búist við, að í
Reykjavík og nágrenni
verði vestan goia eða
kaldi, skýjað en að
mestu þurrt. Hiti verður
við frostmark.
I gær kl. 15 vár hæg
breytileg átt um allt
land og þurrt, nema
hvað smáél voru sums-
staðar á Vestfjörðum. I
Reykjavík var vestan
gola, skyggni 30 km og
hiti f jögur stig.
KRÍLIÐ
V£fPB 'i S>KQLfí [
OHBirt) /LfíV SJ'OUÐ 5FOR/H
i 1 uTiTiú
t
SKÝLV urr
OLBRI W,Jmi \0LIKIR
1
L
Hijóm , RoSK /LL. GPES/ V
v£/L. SVfHlR Smst
1 TÍrrm B'utí
HL/orfl wn
fORLm pfns
h
! | sl I
INNLÁNSVIÐSKIPTILEID
LÁNSVIÐSKIPTA
^BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
KÓPAVOGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
Læknisfræðilegt
minjasafn að
Nesi við Seltiörn
Embættisbústaður
Bjarna Pálssonar, fyrsta
landlæknis á Islandi, er
hið síðasta nokkurra
danskbyggðra steinhúsa
hér á landi, sem nú er í
einkaeign. I fjárlága-
frumvarpi er nú öðru sinni
heimilað að festa kaup á
Nesstofu, sem reist var
árið 1763 að Nesi við Sel-
tjörn á Seltjarnarnesi.
Bjarni Pálsson var
skipaður landlæknir hinn
18. mars 1760. Sat hann
fyrst á Bessastöðum.
Kona Bjarna var Rann-
veig, dóttir Skúla
AAagnússonar, fógeta.
Að sögn Þórs AAagnús-
sonar, þjóðminjavarðar,
eru uppi hugmyndir um
að gera Nesstofu sem
líkasta því, sem hún var,
og að komið verði þar upp
læknisfræðilegu minja-
safni. Þarna varog fyrsta
apótek á íslandi, sem
síðar varð Reykjavíkur-
apótek, og flutt var til
Reykjavíkur í lyf jasalatíð
Odds Thorarensen.
Nú er tvíbýli að Nesi og
bua báðir bændurnir í
þessu merka og myndar-
lega húsi, sem nú er stefnt
að að verði ríkiseign.
Onnurhúsfrá svipuðum
tima eru Viðeyjarstofa,
og kirkja, Landakirkja í
Vestmannaeyjum, Hóla-
kirkja, Bessastaðastofa
og kirkjan þar, og
Stjórnarráðshúsið.
o o o
Laugarnesstofa var eitt
þessara húsa rifið. Nes
við Seltjörn var konungs-
jörð og hlunnindajörð til
búskapar, og mun það
hafa ráðið mestu um
staðarvalið, þegar .byggt
var yfir fyrsta landlækni
á íslandi.
SENDIBIL ASTÖDIN Hf
Við álpumst
yfir landið
eins og
I fjárlagafrumvarpi
rikisstjórnarinnar er gert ráð
fyrir 78.000 króna fjárveitingu
”til umbóta við Geysi i Hauka-
dal.” Jafnframt fellur niður
tveggja milljón króna framlag
”til endurbóta við Gullfoss”.
Sigurður Magnússon hefur að
undanförnu beitt sér mjög
fyrir þeim endurbótum og þvi
var það, að blaðið leitaði álits
hans á málinu.
— Ég get ekkert sagt um
þetta annað en það. sagði
Sigurður, -að það er fyrir
löngu búið að gera tillögur um
nauðsynlegar framkvæmdir
við Gullfoss, til að
mannsæmandi verði að geta
átt þar viðdvöl. En vegir guð-
anna - einnig þeirra, sem fjár-
málunum stýra - eru órann-
sakanlegir og mér þess vegna
óskiljanlegir. Ég veit ekki
hvernig hægt verður að halda
hér á næsta ári stórhátið án
þess að reynt verði að þvo þá
forsmán, sem hefur lengi
verið af óþrifum við Gullfoss
og það verður ekki gert án ein-
hverra fjárframlaga.
Hreinlætismálin við Geysi
hafa verið til skammar
Einkum þó vegna þess, að
þangað hefur ekki verið leitt
nægjanlegt kalt vatn. Ef
þessar 78 þúsundir eiga að
fara til þeirrar nýju vatns-
lagnar, sem lengi er búið að
jagast i að fá, þá er það ef til
vill réttlætanlegt, ef aðrar
leiðir hafa verið ófærar. En
ætli þetta fé eigi ekki að fara
til Geysisnefndar?
Ég hef gert opinberlega
grein fyrir afstöðu minni til
hreinlætismálanna við
Gullfoss og hef þar fáu við að
bæta, sagði Sigurður loks.- Ég
vil þó visa til samþykkta
sem gerðar voru nýlega á
ferðamálaráðstefnunni á
Egilsstöðum. Þær eru allar
byggðar á góðum og gildum
rökum, sem eru grundvölluð á
þeirri staðreynd, að þó að við
yrðum sammála um það að
loka landinu fyrir öllum út-
lendingum, þá þurfum við
sjálf að ferðast eins og sið-
menntað fólk um okkar eigið
land i stað þess að álpast yfir
það eins og skynlausar
skepnur.
á förnum vegi
Hvort haldið þér með Israelsmörmum eða Aröbum?
Magnús ólafsson, nemi:
Útþenslustefna Israela hefur
gert það að verkum, að maður
hefur ekki lengur sömu samúð
með þeim og ’67. Þeir eru farnir
að taka sér land með hervaldi
og slikt tfðkast ekki með sið-
menntuðum þjóðum.
Þóra Helgadóttir húsmóðir:
Ég get ekkert um það sagt ég
er alveg á móti striði. Ég veit af
eigin reynslu, að það er alveg
voðalegt að lifa við strið.
Magnús Arinbjarnarson, 13
ára:
Israel, auðvitað. Hinir
byrjuðu.
Bjarni Jónsson:
Ég er nú orðinn svo gamall og
gleyminn, að ég á erfitt með að
svara þessu, en Israelar eiga þó
heldur samúð mina með tilliti
til þess að þeir eru færri og hafa
átt miklu meiri og margvislegri
erfiðleika við að striða.
Magnús Jónsson:
Hvorugum. Þeir ættu að hætta
þessu og skammast sin!