Alþýðublaðið - 08.11.1973, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 08.11.1973, Blaðsíða 2
t siðasta þætti um FITU OG KÖLKUN voru raktar nokkrar uppskriftir af gómsætum há- degisverðarréttum og forrétt- um með mjög litlu feitmetis- innihaldi og æskilegu hlutfalli mettaðra og ómettaðra fitu- sýra. í þessum þætti, sem er jafnframt sá síðasti i kaflanum um FITU OG KÖLKUN, höldum við áfram meö uppskriftirnar og byrjum nú á aðalréttum. AÐALRÉTTIR Uvalkjötsbuff 500 gr. hvalkjöt, hálf tsk. pap- rlka, hálf tsk. salt, pipar framan á hnifsoddi, 4 laukar, 40 gr jurtasmjötliki, 2 msk. sólblómaolia. Hvalkjötiö er skorið i buff- sneiðar, sem eru gjarna lagðar i bleyti I undanrennu i dálitla stund á meðan blóðið fer út kjöt- inu. Siöan eru sneiðarnar barð- ar meö kjöthamri og papriku, salti og pipar stráð á. Laukurinn skorinn i sneiðar og brúnaður i sólblómaoliu á pönnu. Smjörlikið hitað. Hvalbuffiö steikt þar i 5-6 min. á hvorri hliö. Pannan má ekki vera mjög heit. Framreitt með grænu salati og kartöflum. Austrænn þorskur 500 gr þorskflök, 1-2 feitir hvitlaukar, 1-2 tsk. sólblóma- olia, salt, pipar, 4 tómatar, 2 laukar, 2 lárberjablöö, 1 kvistur timian, 40 gr jurta- smjörliki,3/4dl sherry, 1 til 2 sltrónur. Flökin eru skorin i meðalstór stykki. Eldfast fat nuddað að innan með hvitlauknum og penslað með sólblómaoliu. Flökin lögð i fatið, krydduð meö salti og pipar. Tómatarnir, sem skornir hafa verið I þunnar sneiöar, eru lagð- ir yfir ásamt vel söxuðum lauknum, lárberjablöðum og timian. Smá bitum af jurtasmjörliki dreift yfir réttinn ásamt með sherryinu. Fatið hulið meö álpappir og sett I 200 stiga heitan ofn i ca. 30 min. Slöan er rétturinn tekinn út úr ofninum, skreyttur meö sitrónu- sneiöum og borinn fram með brauðsnúðum, soönum hris- grjónum og kartöflum. Porskflök i potti með grænum baunum. 600 gr þorskflök, 2 msk. hveiti, salt, karrý, 20 gr jurtasmjörliki, 1,5 dl vatn, 1 pakki (250 gr) af frosnum grænum baunum,- 1-2 búnt af persillu. Flökin skorin i minni sneiðar. Þeim siðan snúið upp úr hveiti, sem I hefur verið blandað salti og karrý. Pottur með þykkum botni smuröur að innan með jurta- smjörliki og fiskstykkin væg- steikt i pottinum. Vatnið sett i pottinn og fiskur- inn soöinn við vægan hita i ca. 10 min. Frosnum baununum þá hellt út i og leyft aö malla áfram i 10 min. Rétt áður en fram er boriö er rétturinn skreyttur með saxaðri persiliu. Smásilungur I álpappir 4 smásilungar (t.d. murtur), 10 gr jurtasmjörliki, 2 tsk. salt, sitrónusafi úr 1 sitrónu, 2 msk. dill. Silungarnir eru þvegnir og hreinsaöir og lagðir hver á sinn álpappirsbút, sem áöur hefur verið smurður með jurtasmjör- liki. Salti er stráð yfir silungana, sitrónusafa dreypt á þá og sax- að dill sett i kviðarhol þeirra. Alpappirnum er nú pakkað þétt utan að fiskinum (sjá mynd) og pakkarnir siöan settir inn I 170 stiga heitan-ofn og steiktir i 30 min. Grillaðir kjúklingar 2 kjúklingar, 1-2 tsk. salt, 1/4 tsk. pipar 1/2-1 tsk. rosmarin, 2 msk. sólblómaolia. Kjúklingarnir eru þvegnir og þurrkaðir. Ef notaðir eru frystir kjúkl- ingar, þá á fyrst aö leyfa þeim að þiðna það mikið, að hægt sé að fjarlægja innmatinn, sem oftast er I plastikpoka innan i kjúklingnum. Kjúklingarnir nuddaðir meö blöndu af salti, pipar og rós- marin. Þeir siðan settir á grillteininn með eftirfarandi hætti: stóra teininum stungið gegnum háls- opið og eftir endilöngum kjúkl- ingnum og út um gumpinn. Stuttu hliðarteinunum stungið gegnum vængjaendana. Lærun- um siöan fest upp meö sérstök- um skrúfum (sjá mynd). Ef hvorki eru til kjötpinnar eða skrúfur til þess að festa lær- unum upp meö né heldur eru á grillspjótinu stuttu hliðartein- arnir, sem eiga aö halda vængj- unum saman, þá má binda vængina upp að skrokknum með bómullargarni og á sama hátt festa lærunum upp. Þegar búið er aö ganga frá kjúklingunum á grillteininum eru þeir grillaðir i 10 min., eða þar til þeir eru orðnir alveg þurrir. Þá eru þeir penslaðir með sól- blómaoliu. Kjúklingarnir eru grillaðir uns þeir eru orðnir fallega-ljós- brúnir á litinn og eru orönir vel meyrir (ca. 45 min). Þeir eru siðan hlutaðir i sund- ur og bornir fram með grænu salati með sveppum eða fylltum tómötum (uppskriftir af báðum þessum réttum voru gefnar i Al- þýðublaöinu i kaflanum um vltamin og velliðan, sem birtist I blaðinu i vor). Portvinskjúklingur 1 pk. hraðfryst kjúklinga- brjóst (ca. 1 kg ), 50 gr jurta- smjörliki, 1 dl portvin, 500 gr sveppir, 1 msk. hveiti, salt, pipar. Brjóstin látin þiðna og brúnuð I potti. 1/2 dl portvin sett i pottinn og öflur, 20 gr jurtasmjörlíki, paprika. Kartöflurnar eru þvegnar vel. Hverri kartöflu siðan pakkaö inn i álpappir og pakkarnir sið- an settir i 200 stiga heitan ofn og bakaöir i 1 klst. Með mjög beittum hnif er svo skorinn krossskurður i hlið hverrar kartöflu. Þrýst léttilega á báöa enda hverrar kartöflu (notið potta- leppa) uns þær opna sig um skurðina. Þar ofan i er smjörlíkisbiti látinn og paprfku svo stráð yfir. Þessar kartöflur eru mjög góðar með t.d. nautasteikum svo sem eins og tornados. „Coq au vin” 1 stór unghani, 100 gr laukur, 2 gulrætur, 4 smáar rófur, 1 púrra, 1 lárberjalauf, timian, 4 dl rauðvin, 60 gr jurta- smjörliki, salt, pipar. Haninn hreinsaður og þveginn og hlutaöur I 4 eða 8 hluta eftir vild. Stykkin krydduð með salti og pipar og stráð dálitlu hveiti. Þau eru siðan brúnuö i jurta- smjörlikinu i potti, og þvinæst er grænmetið, sem hreinsað hefur verið og skorið i stykki, brúnaö. Allt er þetta svo sett saman i eldfast fat, ásamt timian og lár- berjalaufi. Rauðvininu hellt yfir og rétturinn soðinn uns hann er Stingiö griliteininum inn um hálsopið og út um gumpinn. Ef tveir kjúklingar eiga að vera á sama teininum, þá eiga þeir að fara báöir eins upp á teininn — þ.e.a.s. háls fyrst, gumpur siðast. Vængjunum er haldiö upp að skrokknum með hliðarteinunum (bómullarbandi ef þá vantar) og lærunum meö skrúfum (eða bómullarbandi). Holl fæða hraustur líkami Fita og kölkun 7 kjúklingabrjóstin látin malla á- fram i ca. 30 min. Sveppirnir hreinsaðir og skornir i sneiðar. Þeim velt upp i 1 msk af hveiti, sem pipar og salt hefur verið blandað saman viö. Sveppirnir siðan settir út i pottinn og áfram steikt við væg- an hita i 30 min. Rétt áður en kjúklingurinn er borinn fram er 1/2 dl af portvini hellt yfir hann. Borið fram með kartöflum og salati. Bakaðar kartöflur. 4 mjög stórar og góðar kart- orðinn meyr i 200 stiga heitum ofni (gætið þess að hafa lok á eldfasta fatinu og að það sé sæmilega vel þétt). Réttur þessi er svo borinn fram með: Volgum brauðsnúðum. Brauðsnúðar klofnir og smurðir með sólblómaoliu. Dá- litlu af hvitlauksdufti stráð yfir og loks smávegis af grófu salti. Snúðarnir settir i ofn, 200 stiga heitan, og hitaðir upp áður en þeir eru bornir fram. Grillsteikt kálfakarbónaöi. 600 gr magurt kálfakjöt, 1-2 msk. sólblómaolia, salt, steyttur pipar. Kjötið hreinsað og þerrað. Hakkað einu sinni i hakkavél. Mótað úr hakkinu buff — 4 sneiðar. Þær siöan settar i eldfast fat, sem hefur verið smurt meö sól- blómaoliu. Að ofan eru buffsneiðarnar smurðar með oliunni. Kryddað- ar með salti og pipar. Fatið siðan sett i ofn og grill- steikt á mesta straum I ca. 10 min. Það má gjarna snúa sneiðun- um eftir 5 min. steikingu. Framreitt t.d. með bökuöum kartöflum. Kálfslundir á la Mallorca 600 gr kálfslundir, 1-2 msk. hveiti, salt, pipar, 4 msk. sól- blómaolia, 2 appelsinur, 8 an- sjósur (eöa smásild) 1 dl appelsinusafi, 6-8 salatblöð. Kálfslundin er skorin i fjórar þykkar sneiðar og þær barðar léttilega með kjöthamri. Sneiðunum siðan snúið upp úr hveiti, sem blandað hefur verið með salti og pipar. Sneiðarnar siðan steiktar i sólblómaoliu á heitri pönnu i 2-3 min. á hvorri hlið. Appelsinusafanum hellt út á pönnuna og suðunni leyft að koma vel upp. Kálfakjötssneiðarnar siðan lagðar á salatblöðin á fati og soðinu hellt yfir. Skreytt með appelsinusneiðum og ansjósum. Framreitt með nýjum kart- öflum. ABÆTISRÉTTIR Ferskjur með marcipani 4 stórar, nýjar ferskjur (eða 1 dós af niöursoðnum ferskj- um), 100 gr marcipanmassi, 125 gr aprikósur, 2-3 msk. flórsykur, 2 msk. romm. Húöin tekin af nýju ferskjun- um, þær eru klofnar I tvennt og steinarnir teknir út þeim. í hverja holu (eftir steinana) er siðan sett marcipankúla. Aprikósusósa gerð úr aprikós- unum, sem lagðar hafa verið i bleyti og soðnar og siðan mauk- pressaðar i gegnum sigti. Ef sósan er of þykk má gjarna þynna hana með vatni. Sósan er síðan bragðbætt með flórsykri og rommi. Ferskjurnar settar i skál eða desertglös og sósunni siðan hellt yfir. Flamberaðar plómur. 1 kg. plómur, 2msk. sykur, 1,5 dl appelsinusafi, 2 msk. sitrónusafi og 4 msk. af rommi til flamberingarinnar. Plómurnar skornar i sundur og steinarnir teknir úr. Sykur- inn siðan bræddur á heitri, þurri pönnu (gjarna koparpönnu). Appelsinusafi og sitrónusafi settir samanvið. Plómurnar svo settar á pönn- una og soðnar meyrar við væg- an hita. Það, sem næst gerist, ætti helst að fara fram við matar- Hafnarfjarðar Apotek Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Helgidaga kl. 2 til 4. PAI: SaLGATISOCBO Skipholt 29 — Sími 244fi6 BLOMAHUSIÐ simi 83070 Skipholti 37 Opid til kl. 21.30. Einnig laugardaga og sunnudaga. ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA í KR0N o Fimmtudagur 8. nóvember 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.