Alþýðublaðið - 14.11.1973, Side 12

Alþýðublaðið - 14.11.1973, Side 12
alþýðu mnm INNLÁNSVIÐSKIPTILEIÐ TIL LÁNSVIÐSKIPTA BÚNAÐARBANK ÍSLANDS KÓPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 SENDIBiLASTÖDIN Hf I dag og næsta sólar- hring spáir veðurstofan norð-austan golu og síð- ar kalda hér á höfuð- borgarsvæðinu. Hér verður þvi bjart veður og nokkuð frost. Sem sagt gott og fagurt veð- ur eftir árstima. Þó má búast við, að veður fari heldur kólnandi. KRILIÐ L \ VfíNófi Hfífi fíyýéjfí SPU/ffí T/ZH/ "n WfíÐ " /vywr NOfúv /30/26 | X£/ NS> SCjN/R Honu fíESS ,°L .9 T O/ Ó.V7/J HLU: , r v/ KobJN fíVfí ■ S£U/< •óvfíRfy SN'HÍH <öfím‘3r % £/NZ> VEGO tJfí □ L LOnj,k /fl /T i/ .V UNUN Vfí&N /NN l. — — — — Er hægt að tala „að handan”? Á mánudaginn 12. nóvember birtist i Visi ritdómur um bók- ina um Ragnheiði biskupsdóttur eftir Ólaf Jónsson, bókmennta- gagnrýnanda blaðsins. Kallar Olafur grein sina ,,Eg er viss um aö þau gerðu það i gær” og fer mörgum hörðum orðum um þessa umdeildu bók, kallar hana meöal annars „ósvifnasta ritfals, sem dæmi eru til (um)”, og ræður fólki eindregiö frá þvi að kaupa bókina. Mun aldrei hafa birst jafn hvassyrtur rit- dómur i isiensku blaði og liklega hefur lesendum aldrei fyrr verið ráöið frá aö kaupa viökomandi bók — og ekki einu sinni aö lesa hana. Vegna þessa snéri Al- þýöublaðið sér til þeirra Olivers Steins, bókaútgefanda i Hafnar- firði, Sverris Pálssonar, skóla- stjóra á Akureyri, sem bjó bók- ina til prentunar eftir segul- bandsupptökum þeim, sem Stefán Eiriksson, kaupmaður á Akureyri, gerði af „ósjálfráðu mæli” Guðrúnar Sigurðardótt- ur, miðils, sama stað, svo og Stefáris sjálfs, og leitaöi um- sagnar þeirra um hvatningu og fordæmingu Ólafs Jónssonar. Oliver Steinn Jóhannesson: Alþýðublaðinu er óhætt aö flytja Ólafi Jónssyni og alþjóö þau skilaboð frá mér, að bókin er rifin út og ekkert lát á sölunni þrátt fyrir þessa grein. Fyrsta prentunin, á fjórða þúsund, er nær uppseld og önnur prentun, sem er næstum jafn mikið upp- lag, er þegar komin i bókband og ekkert eintak til hjá forlaginu i dag. Ég vil svo leyfa mér að benda á, aö áriö 1906 kom út kver upp á 64 siöur, „tJr dularheimum I”, og var hún sögð „rituð ósjálf- rátt” af Guðmundi Jónssyni, sem þá var 17 ára unglingur. Þetta voru 5 ævintýri, sem Guð- mundur sagðist hafa ritað eftir Snorra Sturlusyni, Jónasi Hall- grimssyni, H.C. Andersen og einhverjum fleirum, ef ég man rétt. Þessi Guðmundur Jónsson varð siöar skáldið Guömundur Kamban. Þvi er hægt aö álykta, að Guðmundur hafi haldið þess- um miöilshæfileikum sinum, þannig skynjað efni sitt i Skál- holt, og látið siðan skáldið Kamban fara um það höndum sinum. Svona hugleiðingar viðurkennir náttúrulega ekki Ólafur Jónsson. Um þennan ritdóm hef ég annars ekki mikið að segja, nema hvað að Ólafur Jónsson er það viða ósanngjarn og ófyrir- leitinn. Skrif hans jaðra við at- vinnuróg og ég get ekki fallist á að þaö sé hlutverk ritdómara að hvetja fólk til að kaupa ekki við- komandi bók, hver svo sem per- sónuleg skoðun ritdómarans kann að vera á henni. Stefán Eiríksson: Þetta fellur nú um sjálft sig. Þarna er islenskur blaðamaður að f jalla um það mál, sem flest- ir Islendingar hafa áhuga fyrir, og hann gerir það væntanlega samkvæmt siðareglum blaða- manna. Ég segi nú eins og er, aö ég er orðinn hálf hvekktur á mistúlkunum og missögnum blaðamanna og blaða, en þó vil ég ekki setja öll blöð undir þann sama hátt — t.d. Morgunblaðið hefur komið mjög vel fram i þessu máli. Hitt er svo annað, að þessi grein Olafs Jónssonar hrekur ekki ummæli okkar á neinn hátt. Mér finnst vægast sagt vafa- samt, að hann telur sig geta varpað fyrir róða framburði sjö manns, sem allir hafa lýst sig fúsa til að eiðsverja hann. Hvað varðar þá fullyröingu Ólafs Jónssonar um að þetta verk sé stolið og stilfært upp úr Skálholti Kambans, þá vil ég að það komi fram, að við vissum fyrir um þessi 6 eða 8 dæmi, sem Ólafur bendir á. Annað er ekki likt með bókunum tveimur, þessari bók og Skálholti, enda likingarnar ekki umtalsverðar þegar tveir aðilar fjalla um sama efni. Við höfum verið ákærð og á- sökuð fvrir að sælast eftir fé með þessari bók, en staðreyndin er sú, að við berjumst fyrir spiritisma. Við teljum þessa bók stórkostlega sönnun fyrir þvi, að lif sé að þessu lffi loknu. Sverrir Pálsson: Mér þykir grein ólafs Jóns- sonar sanna það eitt, að maður- "Víloð'frá kaupum! Þetta mál er orðið langt og mætti þó lengja þaö enn áður en þessu annarlega ritverki væru gerö skii. En ég fæ ekki betur séð en hér sé um aö ræöa eitthvert hið ósvifnasta ritfals, sem dæmi eru til, hvaöa sáifræðilega skýringu sem kann aö mega finna á til- komu þess. En við þetta ósæmi- lega athæfi leggja þeir nafn sitt, Sverrir Pálsson skólastjóri á Akureyri og Oliver Steinn bóka- útgefandi i Hafnarfirði ásamt þvi ,,andafunda”-fólki fyrir norðan, Guðrúnu og Stefáni. Það vonandi að almenningur veiti þeim þá hirtingu sem þau munu skilja — með þvi aö vikja frá kaupum á svikinni vöru. Þetta er niðurlagið á ritdómi Ólafs Jónssonar um bókina um Ragnheiði Brynjólfsdóttur, og birtist i Visi sl. mánudag, 12. nóv- ember. 1 stuttu viötali við Alþýðublaðið sagði Ólafur Jónsson: „Ég geri mér fulla grein fyrir þvi, að þetta eru óvenju harka leg orö. En þessi bók er lika utan við allt velsæmi. Það er ekki bara eitt, heldur allt, sem er ógeðfellt við útkomu þessarar bók- ar”. FRÁ MIÐILSSAMBANÐI ^ GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUfi inn þekkir ekki til. Hann hefur ekki nægan kunnugleika til að mynda sér rétta skoðun á mál- inu. Þarna er viða hrikalega að orði komist, en ef til vill er þessi grein ekki annað en liður i þeirri nið- og rógsherferð, sem Visir hefur staðið fyrir að undan- förnu. Það hefur varla komið út svo tölublað af Visi undanfarinn hálfan mánuð, að ekki hafi þar verið nið og rógur um þessa bók. Vissulega eru likingar með Skálholti Kambans viða all miklar, en það þurfti svo sem ekki speking á borð við ólaf Jónsson til að segja manni það. Við vissum mætavel um það fyrir, en engar skýringar get ég gefið á þvi. Svo vikur þessu verki viða mjög frá verki Kambans i mikilvægum atrið- um en þaö eina, sem ég get full- yrt um þetta, að hér er ekki um að ræða fals á nokkurn hátt. Málið er ekki svo einfalt. Ef Ólafur Jónsson þekkti Guðrúnu Sigurðardóttur, þá myndi hann ekki dirfast að halda þessu fram. Ef Ólafur hvetur fólk til að kaupa ekki bókina, þá er það náttúrlega fyrst og fremst mál útgefandans, en ég átti sist von á þvi frá ritdómara og menningarfrömuði, að menn væru hvattir til að mynda sér skoðun af ummælum annara, fremur en að kynna sér sjálfir og af eigin rammleik þau mál- efni, sem um er rætt. . . Ætlarðu að notfæra þér skíðafærið í vetur? PIMM á förnum vegi Gunnar Bergmann, nemandi i Sjómannaskólanum: Ég hef aldrei farið á skiði og veit ekki hvort ég geri það nokkurn tim- ann, þvi ég veit ekki, hvort það er skemmtilegt eða leiðinlegt. Svo hefur maður áhuga á ýmsu öðru. Jón Kristján Pálsson, nemandi i Sjómannaskólanum: Nei, ætli það. Ég hef aldrei átt skiði, nema tunnustafi i gamla daga. Siðan þá hef ég aldrei stundað þetta og hef ekki hugsað mér að gera það. Þórir Sigurbjörnsson, verslun- armaður: Já, endilega. Ég hef gert mikið af þvi að stunda skiði um ævina — hef reyndar ekki farið á skiði ennþá i vetur, þvi skiðasnjórinn er varla kominn. Guðrún H a 11 d ór s d ó 11 i r , nemandi: Ég hef nú litið gert af þvi að stunda skiði og hef ekkert frekar hugsað mér aö fara á skiði i vetur. En ef aðstæður leyfa geri ég það kannski. Guðriður Gisladóttir, nemandi: Ég hugsa að ég bregði mér á skiði ef það verður gott skiðafæri, — hef reyndar ekki stundað skiðaferðir að ráði. En ætli maður fari ekki, ef það fer t.d. hópur úr skólanum. J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.