Alþýðublaðið - 28.11.1973, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 28.11.1973, Blaðsíða 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmála- ritstjóri Sighvatur Björgvinsson. Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggs- son. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur rit- stjórnar, Skipholti 19. Simi 86666. Af- greiðsla: Hverfisgötu 8-10. Sími 14900. Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10. Sími 86660. Blaðaprent hf. ÞAR DUGA ENGIN VETTLINGATOK t gær var tekin fyrir til fyrstu umræðu i sameinuðu alþingi til- laga þingmanna Alþýðu- flokksins um kerfisbreytingu i skattamálunum. Eins og Alþýðublaðið hefur skýrt frá er kjarni þeirrar tillögu sá, að sú nýja stefna verði mótuð i skattamálum að horfið skuli frá þvi, að meginþorri einstaklinga greiði tekjuskatt til rikisins af tekjum sinum. Þess i stað verði tekinn upp óbeinn skattur — virðisaukaskattur. Þessari stefnu mætti lýsa i stystu máli þannig, að ákveðið verði, að rikisvaldið hætti að skattleggja venjulegar launatekjur laun- þeganna i landinu en fari þess i stað að skattleggja eyðsluna. Það var Gylfi Þ. Gislason, formaður Alþýðuflokksins, sem hafði framsögu fyrir þessari stórmerku tillögu Alþýðuflokks- mannanna á fundi alþingis i gær. 1 ræðu sinni lýsti Gylfi þvi m.a., hvers vegna Alþýðu- flokkurinn teldi réttara að leggja til algera kerfisbreytingu á skattamálunum i stað þess að láta sér nægja að gera tillögur um úrbætur á þvi kerfi, sem nú er viðhaft og lengi hefur i gildi verið. Um þetta atriði sagði Gylfi Þ. Gislason m.a. á þessa leið: „Meginástæða þess, að þing- flokkur Alþýðuflokksins setur nú fram tillögur um jafn gagn- gerar breytingar á skatta- málum rikisins og felast I þessari tillögu, er sú, að komið cr út i ógöngur á sviði islenskra skattamála. Byrði beinna skatta er orðin óbærilega þung, einkum og sér i lagi eftir þá breytingu, sem núverandi rikis- stjórn beitti sér fyrir skömmu eftir valdatöku sina. Fólk, með venjulegar launatekjur, greiðir skatta af tekjum sinum til hins opinbera samkvæmt hæsta skattstiga, eins og um hátekju- fólk væri að ræða. Alagningar- kerfið er orðið óeðlilega flókið og veitir skilyrði til marg- háttaðra undanbragða undan skattgreiðslu, bæði löglegra og ólöglegra. Sú staðreynd blasir við hverju mannsbarni, að margir skattgreiðendur greiða ekki þann skatt af tekjum sinum, sem þeim ber, og er þetta nú eitt mesta þjóðfélags- ranglæti sem viðgengst á tslandi. Hlutföll tekjuskatts af tekjum er orðið svo hátt, að almennir launþegar cru farnir að greiða frá þriðjungi og allt að helmingi tekna sinna i beina skatta, ef tekjurnar fara fram úr lágu lág- marki. Slik óhófleg skattheimta er orðin fjötur á framtakssemi og vinnuvilja og undirrót þess, að menn leggi sig ekki fram eins og þeir vildu i raun og veru — láti undir höfuð leggjast að inna af hendi störf, sem þeir i sjálfu sér hafa áhuga á og væru fúsir til að vinna, af þvi að launin fyrir þau verða óeðlilega lág vegna þess, hve mikili hluti þeirra hverfur i beina skatta til opinberra aðila.Það ranglæti, sem er orðið rikjandi i skatta- inálum og ófremdarástandið i þeim efnuin er þannig beinlinis orðinn hemill á heilbrigðan og eðlilegan vöxt þjóðartekna. Þegar þannig er koinið er nauðsyn gagngcrra breytinga.” Allir launþegar á Islandi geta tekið undir þessi orð Gylfa Þ. Gislasonar — undir þá lýsingu, sem hann gefur af ástandinu i skattamálum á Islandi. Almenningur gerir sér það ljósara nú en nokkru sinni áður, að brýnasta viðfangsefni islenskra efnahagsmála er að gera tafarlausar úrbætur á sviði skattamála — og þar duga engin vettlingatök. tþeim efnum þarf að brjóta niður til grunna hið ór- éttláta og óhæfa skattkerfi, sem tslendingar búa nú við, og setja nýtt. Og Alþýðuflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn i landinu, sem hefur bent á nýstárlega og skynsamlega leið i þeim efnum. Skattamála- tillögur hans eru merkustu til- lögur, sem komið hafa fram i skattamálunum um margra áratuga skeið. Alþýðublaðið skorar á almenning að kynna sér þá nýju stefnu, sem Alþýðu- flokkurinn hefur borið fram, og berjast með honum fyrir fram- gangi hennar. EHGA TEKJUSKATTA A ALMENNINGI Byröi beinna skatta óbæriiega þung — Kjarni hinnar nýju stefnu er sá , að horfið skuli frá þvi, að meginþorri einstaklinga greiði tekjuskatt til rikisins af tekjum sinum, heldur greiði gjöld sin til hins opinbera i staðinn i formi óbeins skatts —• virðisauka- skatts, sagði Gylfi Þ. Gislason, formaður Alþýðuflokksins, er hann mælti fyrir tillögum þing- manna Alþýðuflokksins á fundi sameinaðs alþingis i gær um kerfisbreytingu i skattamálun- um. — Þeim,, sem hafa mjög háar tekjur, er þó ætlað að greiða áfram stighækkandi tekju- skatt — sagði Gylfi — og sömu- leiðis er ráð fyrir þvi gert, að áfram verði greiddur stighækk- andi tekjuskattur af hagnaði af atvinnurekstri. A hinn bóginn er gert ráð fyrir sérstakri tekjuöfl- un, sem verja á til þess að hækka tekjur þeirra, sem lægstar tekjur hafa, og ætla má, að greiða mundu meira vegna hækkunar söluskatts en þeir hefði greitt i tekjuskatt. Gylfi vék þessu næst að ástæð- um þess, að þingmenn Alþýðu- flokksins hafa borið fram tillögur sinar um kerfisbreytingu i skattamálunum. Hann sagði m.a.: „Meginástæða þess, að þing- flokkur Alþýðuflokksins setur nú fram tillögur um jafngagngerar breytingar á skattamálum rikisins og felast i þessari tillögu, er sú, að komið er út i ógöngur á sviði islenskra skattamála. Byrði beinni skatta er orðin óbærilega þung, einkum og sér i lagi eftir þá breytingu, sem núverandi rikis- stjórn beitti sér fyrir skömmu eftir valdatöku sina. Fólk, með venjulegar launatekjur, greiðir skatta til hins opinbera af tekjum sinum samkvæmt hæsta skatt- stiga, eins og um hátekjufólk væri að ræða. Álagningarkerfið er orðið óeðlilega flókið og veitir skilyrði til marg- háttaðra undanbragða undan skattgreiðslu, bæði löglegra og ólöglegra. Sú staðreynd blasir við hverju mannsbarni, að margir skattgreiðendur greiða ekki þann skatt af tekjum sinum, sem þeim ber, og er þetta nú eitt mesta þjóðfélagsranglæti, sem við- gengst á Islandi. Hlutföll tekju- skatts af tekjum er orðið svo hátt, að almennir launþegar eru farnir að greiða frá þriðjungi og allt að helmingi tekna sina i beina skatta, ef tekjurnar fara fram úr lágu lágmarki. Slik óhófleg skatt- heimta er orðin fjötur á fram- takssemi og vinnuvilja og undir- rót þess, að menn leggi sig ekki fram eins og þeir vildu i raun og veru, láta undir höfuð leggjast að inna af hendi störf, sem þeir i sjálfu sér hafa áhuga á og væru fúsir til þess að vinna, af þvi að launin fyrir þau verða óeðlilega lág vegna þess, hve mikill hluti þeirra hverfur i beina skatta til opinberra aðila. Það ranglæti, sem rikjandi er orðið i skattamál- um, og ófremdarástandið i þeim efnum er þannig beinlinis orðinn hemill á heilbrigðan og eðlilegan vöxt þjóðartekna. Þegar þannig er komið, er nauðsyn ganggerra breytinga”. Launafólk strax komiö í hæsta skala Þá sýndi Gylfi Þ. Gislason fram á, hve langur vegur er nú orðinn frá þvi, að núverandi tekjuskatts- innheimta sé það tæki tiltekjujöfn unar, sem henni var ætlað að vera. Gylfi tók mið af þeim álagn- ingarreglum, sem i fjárlaga- frumvarpi rikisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að gildi um tekju- skattsálagningu á næsta ári og sagði siðan: „Rikissjóður mun þvi aðeins sleppa barnlausum hjónum við greiðslu tekjuskatts, að tekjur þeirra i ár séu innan við 338800 kr. Sem betur fer eru þau barnlaus hjón ekki mörg, sem hafa lægri tekjur en þetta, svo að segja má, að rlkið láti yfirleitt barnlaus hjón greiða sér tekjuskatt. Ef hjónin eiga þrjú börn, sleppir rik- ið þeim þvi aðeins við tekju- skattsgreiðslu, að tekjur þeirra séu innan við 477.400 kr. Séu tekj- ur slikrar fjölskyldu hærri, greið- ir hún tekjuskatt af tekjum sin- um. Þá er á hinn bóginn rétt að at- huga, hvenær tekjuskattsgreið- endur lenda i hæsta tekjuskatts- stiga. Hæsti tekjuskattur til rikis- ins er 44.44% af tekjuskattsskyld- um tekjum. Enn fremur verður yfirleitt að greiða 11% tekjuút- svar til sveitarfélags eða samtals 55.44% af tekjuskattsskyldum tekjum. Hverjar skyldu tekjurnar þurfa að verða i ár til þess að menn lendi i þessum 55.44% skattstiga af tekjum sinum? Barnlaus hjón, sem i ár hafa 454.300 kr. i tekjuskattsskyldar tekjur, greiða þessi 55.44% af þvi, sem þar er umfram. Meðal tekj- ur barnlausra hjóna i ár eru taldar munu nema mun hærri upphæð en þessari. Það þýðir, að venjulegir launþegar munu lenda i hæsta tekjuskattsstiga og.greiða yfir 55% af sérhverri viðbótar- krónu, sem þeir afla sér i tekjur umfram tekjumark, sem er veru- lega undir meðaltekjum barn- lausra hjóna. Ef hjónin eiga þrjú börn, lenda þau i hæsta skattstiga og greiða 55,44% af tekjum sin- um, ef þau hafa hærri tekjur en 592.900 kr. Þegar þessar stað- reyndir eru hafðar i huga, þarf engan að undra, þótt kvartað sé undan þungri skattbyrði, og stað- hæft sé, að hún sé orðin hemill á vinnuviija og vöxt þjóðarfram- leiðslu”. Gylfi Þ. Gislason Enginn tekjuskattur af almennum launatekjum Þá benti Gylfi Þ. Gislason einn- ig á það i ræðu sinni, hversu mikla þýðingu skattamálin hefðu við hvers konar kjarasamninga. — Ef venjulegur launþegi er farinn að greiða meira en helm- ing tekjuauka iskattatil opinberra aðila, þá fær hann ekki nema helming þeirra kauphækkunar, sem hann semur um viö vinnu- veitenda sinn. Þess vegna beinist athygli launþegasamtaka i sivax- andi mæli að skattamálum, sagði hann. Gylfi vék siðan að hugmyndum þingflokks Alþýðuflokksins um skatt kerfisbreytingu og sagði i þvi sambandi m.a.: „Aðalatriði þess nýja tekju- skattskerfis, sem tillaga þessi fjallar um, er, að launþegar skuli ekki greiða tekjuskatt af almenn- um launatekjum. Auðvitað er það álitamál, hvað telja eigi almenn- ar launatekjur. Niðurstaða þing- flokks Alþýðuflokksins varö sú að leggja til, að miðað yrði við, að hjón með 750.000 kr. tekjur á ár- inu 1973 greiði engan tekjuskatt. Þessi fjárhæð á siðan að sjálf- sögðu að breytast i hlutfalli við framfærslubyrði. Þegar lekjur launþega fara fram úr þessu marki, 750.000 kr., er gert ráð fyrir þvi, að af þeim verði greidd- ur stighækkandi tekjuskattur, sem þó skal aldrei nema hærra hlutfalli af tekjum en á sér stað samkvæmt giídandi lögum. A hinn bóginn er gert ráð fyrir þvi, að af öllum atvinnurekstri, hvort sem hann er stundaður af ein- staklingum, sameignarfélögum, hlutafélögum, samvinnufélögum eða opinberum aðilum, skuli greiddur tekjuskattur eftir sömu reglum og nú gilda. 1 þessu sambandi vill þing- flokkur Alþýðuflokksins einnig minna á fyrri tillögur sinar um breytingar á reglum um greiðslu tekjuskatts og útsvars hjóna. Til- lögur okkar eru þær, að allar kon- ur verði sjálfstæðir skattgreið- endur, hvort sem þær eru giftar eða ógiftar og hvort sem þær afla sér eigin tekna eða ekki með vinnu utan heimilis, enda sé þá þvi hjóna, sem vinnur einvörð- ungu heimilisstörl', ætlaður hluti af tekjum hins samkvæmt nánar ákveðnum reglum. Við gerum okkur ljóst, að hér er um mjög viðamikið og vandasamt mál að ræða. Þess vegna ætlumst við ekki til, að þessar breytingar á skattalögum komi til fram- kvæmda á næsta ári, þar eð okkur er Ijóst, að lalsverðan tima þurfi til þess að undirbúa þær. Þess vegna gerir tillagan ráð fyrir þvi, að þessar breytingar komi ekki til framkvæmda fyrr en við álagn- ingu tekjuskatts á árinu 1975”. Skattleggjum eyðsluna, en ekki tekjurnar Þessu næst ræddi Gylfi Þ. Gislason tekjutap það, sem rikis- sjóður mun verða íyrir vegna nið- urfellingar tekjuskatts af al- mennum launatekjum og hvernig þingmenn Alþýðuflokksins hyggj- ast mæta þvi tekjutapi. Hann sagði: „Augljóst er, að jafnstórfelld lækkun á tekjuskatti til rikisins og hér er gert ráð fyrir, mun hafa i för með sér verulegt tekjutap fyrir rikissjóð. 1 gildandi fjárlög- um er gert ráð fyrir þvi, að ein- staklingar greiði 4.1 milljarð kr. i tekjuskatt. Sú lækkun tekju- skatts, sem gert er ráð fyrir i til- lögunni, mundi samkvæmt áætl- unum, sem geröar hafa verið, lækka þessa eða hliðstæða tekju- skattsinnheimtu um 2/3 hluta, þannig að tekjutap rikissjóðs mundi verða 2,5—3 milljarðar kr. miðað við fjárlög þessa árs. Þennan tekjumissi þarf að sjálf- sögðu að bæta rikissjóði. Aðalatriðið i þvi sambandi er, að gerð er tillaga um, að sú hækk- un söluskatts, sem runnið hefur i Viðlagasjóð, skuli haldast, en hún nemur sem kunnugt er 2% og á að falla niður 1. mars n.k. að ó- breyttum lögum. Ef söluskattin- um, scm rennur nú i Viðlagasjóð, yrði haldið og söluskatturinn hækkaður um 2—3 stig umfram það, sem hann er nú, yrði rikis- sjóði bættur sá tekjumissir, sem hann yrði fyrir vegna lækkunar lekjuskattsins. Jafnframt er benl á að kanna möguleika á, að sölu- skattur sé ekki innheimtur af brýnustu nauðsynjum, en hins vegar viðbótarsöluskattur af ó- hófsvörum”. Tekjujöf nunarsjóð í tryggingakerfið. Þessu næst bar Gylfi Þ. Gislason saman þau tvenns konar skattkerfi, sem hér um ræðir — þ.e.a.s. beina skatta og óbeina. Benti hann m.a. á þá kosti ó- beinna skatta, að skatlgreiðendur réðu þá meiru um það sjálfir, hversu mikið þeir greiða i skatta með þvi að ákveða, hvað og hversu mikið þeir kaupa umfram nauðþurftir. — Söluskattur hefur ekki lam- andi áhrif á vinnuviija og fram- takssemi. Fremur mætti segja, að hann hvetji til sparnaðar, sagði Gylfi. Einnig benti hann á hve miklu minni kostnaður væri samfara innheimtu söluskatts en tekju- skatts og annarra beinna skatta. Þá vék Gylfi einnig að ólikum áhrifum framangreindrar kerfis- breytingar — ef samþykkt verður — á afkomu einstaklinga og fjöl- skyldna i landinu. Hann sagði: „Sumar fjöldskyldur spara meira vegna lækkunar tekju- skattsins en sem nemur auknum útgjöldum vegna hækkunar sölu- skattsins, en aðrar verða fyrir meiri útgjöldum vegna aukningar söluskattsins en nemur sparnaði vegna lækkunar tekjuskattsins. Er þetta auðvitað fyrst og fremst komið undir hæð teknanna og ráðstöfun þeirra. Greiðsla sölu- skatts fer að sjálfsögðu eftir eyðslu skattgreiðandans, en greiðsla tekjuskatts eftir tekjum hans. Gera má þvi ráð fyrir, að breyting á skattgreiðslu frá tekjuskatti i söluskatt valdi auk- inni skattgreiðslu launþega með mjög lágar tekjur. Þess vegna er Framhald á bls. 4 KAFLAR IÍR FRAMSÖGU GYLFA Þ. GÍSLASONAR MEÐ SKATTAMÁLATILLÚGU ALÞÝÐUFLOKKSINS Miðvikudagur 28. nóvember 1973. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.