Alþýðublaðið - 20.12.1973, Síða 2
Tilboö óskast I jarövinnu, viö grunn geödeildar Lands-
spltalans.
Innifalið I verkinu er gröftur, sprengingar og akstur. Enn-
fremur giröing um athafnas)væði.
tJtboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri gegn 2.000,00
kr. skilatryggingu.
Tiiboð verða opnuö á sama staö þriöjudaginn 15. janúar
1974, ki. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SIMI 26844
Nylsöm lólagföf
irá Hamoorg
Stál kökubakKar
2ja og 3ja hæÖa.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir —
Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i
allflestum litum. Skiptum á einum degi
meö dagsfyrirvara fyrir ákveðiö verö.
Reynið viðskiptin.
Milasprautun (iarðars Sigmundssonar
Skipholti 25. Simar 19099 og 20988.
t
Faðir okkar og fósturfaðir
FINNUR GÍSLASON
VÉLSTJÓRI
á M.S. Litlafelli, Brávallagötu 18, veröur jarösettur frá
Fossvogskirkju föstudaginn 21. desember kl. 15.00
Höröur Björn Finnsson, Gunnar Jón Finnsson,
tris Svala Jóhannsdóttir.
HVER MYRÐIR HVERN í NEW YORK?
Negrargegn negrum
Þaö eru átta sinnum meiri lik-
ur á þvi, að svertingi sé myrtur i
New York en hvitur maður eftir
þvi sem lögregluskýrslur sýna.
Rúmlega fjögur af hverjum
fimm morðum i New York eru
framin á fórnarlambi af sama
litarhætti og morðinginn.
The New York Times geröi
þessa könnun með þvi að lesa
skýrslur um fimmtánda hvert
morð, sem framið var i New
York og skyldar ályktanir lög-
reglumanna árið 1971, en það
var síðasta árið, sem hægt var
að fá skýrslur um öll morð i
New York, þegar þessi könnun
var hafin.
Tölva notuð
Það var notuö tölva til aö
ákveða aldur, kyn og kynþátt
bæði morðingja og fórnarlambs
og gera töflu um morð i New
York, sem væri nákvæmari en
áður hafði verið reynt.
Eftirfarandi staðreyndir
þóttu merkilegastar:
Staðreyndir sýndu, að 48 af
hverjum 100 þúsund svörtum i-
búum New York-borgar voru
myrtir 1971, en aðeins 6 af
hverjum 100 þús. hvitum mönn-
um.
Fórnarlömbin voru 50% negr-
ar, en aðeins 22 hvitir menn.
60% morðingjanna voru negrar,
15% hvitir.
1 þeim tilvikum, sem vitað
var bæði um kynþátt morðingja
og fórnarlambs voru 48% morð
negra á negra, en aðeins 13%
hvits manns á hvitum.
18% morðanna voru kynþátta
á milli, en skýrslugerðarmenn
segja, að lægri tölurnar séu ekki
jafnöruggar og þær háu.
Bæði morðingjar og fórnar-
lömb þeirra voru yfirleitt karl-
kyns, þvi að 81% fórnarlamba
og 87% morðingja, sem hand-
teknir voru I New Yo"k-borg
voru karlmenn.
Stærsti hluti fórnarlambanna
var á aldrinum 30—39 ára, eða
26%, en morðingjarnir voru
yfirleitt á aldrinum 20—29 ára,
eða 34%.
The New York Times lét tölv-
una aðgæta aukningu á morðum
I borginni sjálfri og öllum
Bandarikjunum.
A árunum 1966—1971 jukust
morð um 61% og I New York-
borg sjálfri um 59% frá
1968—1972. Fyrstu sex mánuði
þessa árs jukust morð um rúm
11,6% meira en á samsvarandi
tima I fyrra.
Glæpaalda
í Chicago
Fyrsta 6 og 1/2 mánuð ársins
1973 voru 486 manns myrtir i
Chicago eða 35% fleiri en á
saina tima í fyrra, eftir þvi sem
lögregluskýrslur herma.
A saina tima 1972 voru framin
361 morð á þessum tfma og því
liefur moröum fjölgaö um
34.6%.
Lögregluskýrslur sýna 807
nauöganir eöa 4,5% aukningu,
6,784 árásir eöa 12,6% aukningu,
13,691 rán, 14,8% aukning, 24.087
þjófnaöi, 26,8% aukning, 47,851
innbrot, lækkuöu um 0,1% og
10,935 bílstuldi, aukning 19,1%.
Erfiðar spurningar
Stjórnvöld hafa sjaldan reynt
að svara þeirri erfiðu spurn-
ingu, hvers vegna morðum
hefur fjölgað svo mikið undan-
farinn áratug og hvers vegna
morðtiðnin er svona mikið hærri
meðal negra en hvitra manna.
Ekki heldur þvi, hve mun
meira er nú af morðvopnum i
umferð en áður — lögreglan i
New York tók fimm sinnum
fleiri byssur 1972 en 1963 — og
jafnvel sérfræðingar eru ekki á
eitt sáttir um útskýringar.
I ritgerðinni ,,Hvers vegna
myrða negrar negra?” kemur
dr. Alvin F. Poussaint, svartur
sálfræðingur, fram með þá
kenningu, að fjárhagsleg og
þjóöfélagsleg vandamál negra
og fátækt þeirra leiði til likams-
árása.
Dr. Marvin Wolfgang, sem er
forstöðumaður Rannsóknar-
stöðvar á glæpamönnum og
glæpalöggjöfinni við háskólann i
Pennysylvania og sérfræðingur
i morðmálum kemur fram með
allt aðra en ekki óhugsanlega
kenningu urn það, að sumir fá-
tæklingar i Bandaríkjunum hafi
meöfædda ofbeldishvöt,sem hafi
orsakað þennan vöxt i morð-
málum.
En tölvan gaf upplýsingar um
fleira en kynþátt, aldur og kyn
morðingja og fórnarlamba
þeirra i New York-borg.
47% morðingja notuðu byssu
35% hnif, en 9% kyrktu fórnar-
lambið. 45% notuðu hamar eða
álika vopn. Aðrar morðaðferðir
spanna 5%.
38% morðanna voru framin á
götum úti, 35% i ibúðum, 11% i
forstofum, 10% i verslunum og
6% annars staðarv
1 59% tilfellum var ekki unnt
að finna nein tengsl milli morö-
ingja og fórnarlambs i lögreglu-
skýrslum eða ástæðu fyrir
morði, en þegar unnt var að
finna eitthvað til að fara eftir
breyttust tölurnar þannig: 25%
morðingja myrtu menn, sem
þeir þekktu ekki, 26,8% þekktu
fórnarlambið, 17% voru skyldir
fórnarlambinu, 15% voru hjón,
12,5bjuggu saman og afgangur-
inn var skyldur eða tengdur á
einhvern hátt.
Lögreglan i New York-borg
var ekki ánægð með þessar töl-
ur, sem bentu til þess, að um
helmingur allra, sem myrtir eru
i borginni þekktust ekki. John
Bonner lögregluforingi sagðist
hins vegar álita, að tölur deild-
arinnar um skyldleika fórnar-
lambs og morðingja væru ekki á
nægum rökum reistar.
Lögregluskýrslurnar gáfu ój'
fullnægjandi upplýsingar um
störf eða stöðu fórnarlambanna,
en töluverðar um stöðu morð-
ingjanna. 39% voru atvinnu-
lausir, 34% verkamenn, 10%
nemendur, 7% húsmæður, 5%
bilstjórar, 1% fjármálamenn og
4% gátu ekki um atvinnu sina.
1 miklum meirihluta málanna
var aðeins einn handtekinn eða
75,5% málanna. 1 12,8% þeirra
voru tveir handteknir, i 4,3%
þrir og 7,4% fjórir eða fleiri.
Morðin voru oftast framin
seint um kvöld eða árla morg-
uns og um helgar. Ef við skipt-
um þessu i fjögurra klst. timabil
lita málin svona út: 25% milli
miönættis og kl. 4,10% milli kl. 4
um nótt og kl. 8 að morgni, 8%
milli kl. 8 að morgni og kl. 12 á
hádegi, 10% milli hádegis og kl.
4 um dag , 20% milli kl. 4 og kl
8 um kvöld og 27% milli kl. 8 að
kvöldi og miðnættis.
Ef litið er á vikudagana voru
25% morðanna framin á laugar-
dögum, 18% á sunnudögum, 9%
á mánudögum, 11% á þriðju-
dögum, 8% á miðvikudögum og
fimmtudögum og 21% á föstu-
dögum.
Jólagetraun Alþýðu-
blaðsins hef ur heldur bet-
ur kallað á rannsóknar-
hæfileikana hjá fjölda
barna. Lausnirnar
streyma nú inn, en skila-
frestur er til hádegis
f immtudaginn 20. desem-
ber. Síðan verður dregið
úr réttum lausnum og eru
þrjú ferðaútvörp í verð-
laun.
Og nú er bara fyrir þá,
sem enn eiga eftir að
hjálpa Sveini rann-
sóknarlögreglumanni og
jólaveininum að finna
þjófinn, að ganga frá
lausnum sínum og drífa
þær til okkar með utan-
áskriftinni: Alþýðublaðið
— Skipholti 19, Reykja-
vík og sérmerkingin er
,, Jólagetraun".
Hafnarfjarðar Apótek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
BLOMAHUSIÐ
simi 83070
Skipholti 37
Opid ta kl. 21.30.
Einnig laugardaga
og sunnudaga.
(|<roi1) ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA í KR0N
Dúnife í CUUIBK /fmi 64900
o
Fimmtudagur 20. desember 1973.