Alþýðublaðið - 20.12.1973, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 20.12.1973, Blaðsíða 3
Niðurlæging Alþýðu- bandalagsins þessar sið- ustu vikur hefur orðið til þess, að tveir af helstu forvigismönnum Alþýðu- bandalagsins i verkalýðs- málum á Isafirði hafa sagt sig úr flokknum. Þessir menn eru Guð- mundur Gislason, for- maður Sjómannafélags tsfirðinga, og Reynir Torfason, ritari félagsins. Ástæður fyrir þvi, að þeir sögðu skilið við Al- þýðubandalagið eru greindar tvær. 1 fyrsta lagi niðurlæging Alþýöu- bandalagsins i sambandi við lyktir landhelgismáis- ins og i öðru lagi eru þeir mjög andvigir þeirri þró- un, sem orðið hefur i fé- lagsmálum Alþýðu- bandalagsmanna á ísa- firði, en menntamannalið úr Menntaskólanum á Isafirði hefur smátt og smátt verið að draga öll völd i félaginu i sinar hendur og þoka jafnframt til hliðar verkalýðsfólki, sem fylgt hefur Alþýðu- bandalaginu að málum. AliGLÝSINGA- SÍMINN OKKAR ER 8-66-6Ö 20.000 lesta skemmtiferðaskip landfast í Nauthólsvík 74 Hópur manna i Reykjavik lands 20.000 lesta skemmti- vinnur nú að þvi, að fá hingað til ferðaskip. sem festa á i land i ,,Hótel Skip" „Við getum ekki meinað fé- lögum okkar að vinna lögleg störf”, sagði Agnar Gústafsson varaformaður Lyftingasam- bands tslands, er Alþ.b. innti hann eftir þvi, hvort sambandið hyggðist koma i veg fyrir, að lyftingamenn myndu áfram ráðnir til að meina þjónum verkfallsvörslu. Lyftingasambandið hefur ekki tekið þetta mál fyrir, en þess má geta, að núverandi for- maður þess er Finnur Karlsson, en hann var einn lyftingamann- anna sem lentu i ryskingum við þjóna við Hótel Sögu um siðustu helgi, og var ráðinn til þess af veitingastaðnum. ISI mun hins vegar lita þetta mál alvarlegri augum en Lyftingasambandið, og hefur kallað saman sérstak- an fund vegna þess, og verður hann haldinn i dag. Alþ.bl. hafði i gær samband við Björn R. Lárusson, sem kjörinn var formaður Lyftinga- sambandsins 20. okt. s.l. Kom þá i ljós, að Björn hafði sagt af sér formennsku i sambandinu 26. októbereða sex dögum eftir kjörið vegna ágreinings við aðra stjórnarmenn Tók Finnur þá við stjórnartaumunum. Björn sagði aðspurður, að sér fyndist framkoma lyftinga- mannanna hneykslanleg og lyft- ingaiþróttinni til skammar. Agnar Gústafsson, varafor- maður Lyftingasambandsins, vildi taka það fram, að frásögn þjónanna af „slagnum” við Hótel Sögu hefði verið málum blandin. Til dæmis hefði það verið alrangt, að Gústaf Agn- arssQn (sonur Agnars varafor- manns) hefði fótbrotið Jónas Þórðarson þjón. Gústaf hefði aldrei nálægt manninum komið. „Sannleikurinn i þessu máli á eftir að koma i ljós”, sagði Agn- ar. _____________________ Þjónsstarfið I Sovétrfkjunum cr starf þjóns álitið jafnerfitt og starf námu- verkamanns. A þetta benda norskir þjónar, sem nú eiga i launastriði eins og starfsbræður þeirra hér á tslandi. llafa norskir þjónar hótað verkfalli, fái þeir ekki hærri próscntur. I Noregi er dánartala þjóna i starfi frekar há, og cr það að mati þjóna vegna þess hve starfið er crfitt og tekur á taug- arnar. Nauthólsvik i Reykjavik og gera úr þvi hótel. I þvi skipi, sem mennirnir hafa helst auga- stað á, eru 1000 rúm og myndi það að sjálfsögðu leysa þann mikla hótelvanda, sem við hefur verið að striða hérlendis að und- anförnu. Einn mannanna er Sveinn As- geirsson, hagfræðingur, og sagði hann i viðtaii við frétta- mann blaðsins i gærkvöldi, að undirbúningur hefði staðið i þrjú ár — og alltaf miðað við, að skipið kæmi hingað til lands 1974. Kaupverð sagði Sveinn, að væri áætlað i kringum 200 millj- ónir króna og væri það ekki nema 10-15% af kostnaði við byggingu hótels af sömu stærð. — Við höfum farið fram á rikis- ábyrgð, sagði Sveinn, — og mun fjármáiaráðuneytið hafa óskað umsagnar Ferðamálaráðs. Svar þess, sem barst i siðustu viku, var neikvætt, en það svar var algjörlega órökstutt og þvi sendum við erindið umsvifa- laust um hæl. Nú biðum við eftir svari öðru sinni. Sveinn kvað þó jákvæða af- stöðu Ferðamálaráðs ekki for- sendu fyrir kaupunum: — Ekki ef okkur tekst að útvega féð eftir öðrum leiðum, sagði hann. — Væntanlegir hluthafar eru þeg- ar orðnir margir, en hlutafélag- ið verður ekki stofnað fyrr en eftir að leyfi hafa fengist. Sveinn sagði skipið vera lúxusskip, fyrsta flokks hótel, með veitingasölum, sundlaug- um og öðru þvi, sem um borð i slikum skipum erað finna Ekki tókst að ná i Lúðvik Hjálmtýs- son, form. Ferðamálareðs i gærkvöldi. SMYGLGOSS EÐA RAUSNARGJAFIR flugAhafna? Nokkuð magn af ótolluðu tóbaki og áfengi fannst nýlega í fórum tollþjóns á Keflavíkurflugvelli, og vinnur fulltrúi bæjarfógeta í Keflavík að rannsókn málsins. Við yfirheyrslur hefur tollþjónninn borið því við, að f lugáhafnir haf i gef ið sér umrætt góss. Málið verður sent saksóknara rikisins. — HORNIÐ Á GATNAMÁLASTJÓRI EKKI SALT f GRAUTINN? „Það skyldi þó ekki vera, að gatnamálastjóri eigi ekki leng- ur fyrir salti á grautinn?” spurði „Göngumóður”, sem EKKI POLITISKT MAL Jón Magnússon, lögmaður, hafði samband við okkur vegna forsiðufréttar i gær um: „Hver fær Heilsuverndarstöðina. Kvaðst Jón vilja taka fram, að hann hefði sótt um stöðuna, þar sem i auglýsingu var tekið fram, að maður með lögfræði- eða viðskiptafræðimenntun væri sá, sem leitað væri eftir. Þá kvaðst Jón vilja taka fram i sambandi við atkvæðagreiðslu Heilbrigðismálaráðs, þar sem hann fékk 5 atkvæði, en Gisli Teitsson 1, að ekki hefðu það bara verið sjálfstæðismenn, sem kusu hann, heldur og full- trúar Alþýðuflokksins og Fram- sóknarflokksins. „Ég hef verið erlendis undan- farið”, sagði Jón. „Ég taldi þessa umsókn mina ekki geta orðið pólitiskt mál og vildi ekki vinna þannig með henni”. hringdi i Hornið Astæðan fyrir þvi, að „Göngu- móður” vakti máls á þessu er sú, að undanfarna frostdaga hefur honum og öðrum göngu- móðum borgurum gengiö bölv- anlega að fóta sig á gangstétt- um borgarinnar sökum hálku. Ekkert hefur verið gert til þess að greiöa götu fólks eftir þess- um stéttum — ekki einu sinni með þvi að bera á þær salt, sem þó er heldur óvinsæl lausn á þessum vanda. En það hefur heldur ekki verið borið við að moka stéttarnar, þ.e. það var ekki gert á meðan snjórinn var enn að mestu ófrosinn. Af þess- um sökum hafa margir fengið flugferðir og skelli, sem „Göngumóði” finnst að gatna- málastjóri beri fulla ábyrgð á. A hinn bóginn má benda á, að flestir bilstjórar fagna hverjum saltlausum deginum, þvi salt á götum er hvimleitt og fer ekki vel með viðkvæmt stál bila og dekk, auk þess sem saltið veldur leiðinda slabbi. En til þess að þeir njóti sannmælis fyrir það se'm vel hefur verið gert má benda á, að vegagerðin og starfsmenn gatnamálastjóra brugðu hart við.þegar allar göt- ur voru að verða ófærar sökum snjóa, og byrjuöu eldsnemma á laugardagsmorguninn, eða jafnvel strax um nóttina, að ryöja þær. Var það vel að verið, og fáir tepptust vegna ófærðar. fram ályktun stjórnar Innkaupastofnunarinnar frá 10. þ.m. heimild til kaupa a ljósaperum fyrir Borgarspítalann frá JÓhanni ólajEssyni h. f. Álvktunin var samh. með 4:1 atkv. fundargerð desember 1973. Eg er enn heimsmeistari NEI! Hdan, fyrrverandi get- raunaspámaður Alþ.bl. hringdi: ,,Það er alrangt, sem kemur fram í fyrirsögn á baksiðunni í þriðjudags- blaðinu, að spámaður Ex- press hefði bætt met mitt, þ.e. að hafa engan réttan leik. Eins og réttilega kemur fram i greininni, er aðeins hægt að jafna metið, en ekki bæta það. Tel ég mig enn heims- meistara, og ekki skal þvi gleymt, að ég setti metið á undan!" Lokaorö viðtals viö Gunnar Þóröarson mjólkurfræðing, i nýjasta hefti Strokkhljóðsins, sem er rit um mjólkuriðnað. JOLAGJÖFIN Við leituðum til Jakobs Jakobssonar, fiskifræðings, til að velja sér jólagjöfina i dag. — Þvi er fljótsvarað i frostinu, sagði Jakob. — Þá vantar mann hlýja og góða vettlinga, helst loöfóðraða. Svo var þetta siður hér áður fyrr, að maður fengi vettlinga i jólagjöf. Við fórum á stúfana og i Tösku- og hanskabúðinni, Bergstaðastræti 4, fundum við loðfóðraða belgvettlinga, sem kosta 1.050 krónur. o Fimmtudagur 20. desember 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.