Alþýðublaðið - 28.12.1973, Side 2
PÁFARÍKIÐ REKUR UMFANGSMIKIL
VIÐSKIPTI A MÖRGUM SVIÐUM
Erindrekar páfaríkisins
kunna fleira en faöir-
voriö sitt, aö þvi er segir í
bókfregn, er nýlega
birtist i danska blaöinu
Aktuelt. Fé páfaríkisins
er m.a. að finan i Radio
Corporation of Amerika,
en það fyrirtæki er
stærsti framleiðandi
dans- og dægurlagaplatna
á ítaliu. Páfarikíð á
einnig hlutabréf í Cera-
mica Pozzi, sem fram-
leiöir alls kyns hreinlætis-
og snyrtitæki og salernis-
tæki. Áriö 1964 átti
Ceramica Pozzi i fjár-
hagserf iöleikum og þá
var þaö hans hátign
Agostino Cassaroli frá
Páfarikinu, sem fékk
Ungverjaland til þess að
kaupa mikiö magn af sal-
ernisskálum og þaö varö
til þess aö bjarga fyrir-
tækinu.
Augljóst er, ap Páfa-
ríkiö hefur lært sina
lexiu af rómverska keis-
aranum Vespasian, sem
lagöi skatt á opinber
salerni. „Peningar eru
lyktarlausir", sagði hann
viö þaö tækifæri og þaö
varö að orðtæki, sem enn
lifir. Gróðinn af sölunni
af. P-pillum — sem Páfa-
ríkið er raunar á móti,
opinberlega — er líka
lyktarlaus. Þessar og
fleiri eftirtektarverðar
upplýsingar eiga rætur
sínar aö rekja til rann-
sóknar, er leíöir i Ijós
hvar fé Vatikansins er
fólgiö og hverjar eigur
Páfarikisins eru. Þetta
mun vera fyrsta
könnunin á því máli, sem
fram hefur fariö, og hana
annaðist Corrado Pallen-
berg, fyrrum blaöa-
maöur hjá Daily Express,
Evening News og Sunday
Telegraph. Bókin hefur
mikinn fróöleik aö geyma
og er nýlega komin út á
dönsku. Pallenberg hefur
gengið mjög rækilega til
verks- Hann hefur
skrifað páfanum og beðið
um aö fá aðgang aö
reikningum páfaríkisins.
Svariö viö þvi var munn-
legt nei. Páfaríkiö
skrifar næstum aldrei um
peningamál. Gert er
jafnvel út um milljóna-
viöskipti á alþjóöavett-
vangi með símtölum og
fundum.
Grundva I laratr iöi í
Biblíunni er, að hægri
höndin skuli ekki vita
hvaö sú vinstri gerir. Því
ráði hlítír páfaríkiö.
Þann er varla aö finna,
sem hefur yfirsýn yfir öll
fjárhagsmál kaþólsku
kirkjunnar. Pallenberg
hefur nú samt sem áður
komist talsvert lengra en
margir aörir við hið risa-
vaxna leynilögreglustarf
sitt. Hann hefur m.a.
komistað því, að framlög
sjálfboöaliöa til páfa-
ríkisins úr öllum heim-
inum nemi um 500
milljónum isl. króna
árlega og kardínáli hefur
laun, er nemur um 100
þús. kr. á mánuði, auk
ýmissa hlunninda, er
hann nýtur.
Banki páfans i páfa-
rikinu, „Stofnunin fyrir
trúarlega starfsemi", er
notaður til annars en
trúarlegrar starfsemi.
Ýmsir viðskiptavina
bankans eru tengdir
kaþólsku kirkjunni en
ýmsir viðskiptavina hans
eru þó heimslegar
sinnaöir og sterkefnaöir.
Um þennan banka er unnt
að flytja peninga úr landi
og einnig til hans utan úr
heimi án þess að gjald-
eyrislöggjöf og gjald-
eyriseftirlit íta Iska
ríkisins nái til þess. Með
öðrum orðum: Þeir, sem
eiga bankann að og geta
fengið hann til að reka
viðskipti fyrir sig, eiga
auðveldan leik. í staðinn
er það alvanalegt, að
viöskiptavinir bankans
arfleiði bankann aö
nokkrum prósentum af fé
sinu.
Efnahagsleg og fjár-
hagsleg starfsemi páfa-
rikisins er afar marg-
slungin. Svo aö aðeins séu
tekin frímerki páfa-
rikisins færa þau rikinu
tekjur sem nemur
nokkrum hundruöum
milljóna ísl. króna
árlega. Páfarikiö er
meöeigandi, með aðild
sinni að hlutafélaginu
Immobiliare, aö mörgum
byggingum i miðborg
Parísar, skýjakljúfum í
Montreal, heilum borgar-
hluta i Washington og
plantekrum í Mexiko
City. Hlutabréfum þessa
félags utan ftalíu er
komið fyrir í Líberíu til
aö foröast skatt-
álagningu.
Á italíu er fé páfa-
rikisins fólgiö i margs-
konar starfsemi. Hér
skulu talin nokkur dæmi
þess Þaö er fólgiö í
stærsta tryggingarfélagi
Italiu, auk annarra
tryggingar félaga, í
nokkrum bönkum og
iðnfyrirtækjum. Páfa-
rikið á t.d. peninga í
fyrirtæki sem framleiðir
salt á Síkiley og í fyrir-
tæki, sem framleiðir
næstum 90% af öllu stáli á
italíu. Auðvitaö á páfa-
rikið einnig stóran hluta
fjárins i bankanum, sem
heitir „Banco di Santo
Spirito" eöa „Banki hins
heilaga anda". Hann
starfar utan páfaríkisins,
en var stofnaður af því á
sinum tima.
Pallenberg hefur
komist að þvi, að páfa-
rikið festir fé sitt í fyrir-
tækjum, sem stofnuð eru
til að mæta ýmsum
grundvallarþörfum
mannsins. Hins vegar er
látið við það sitja að eiga
tiltölulega litið í hverju
fyrirtæki fyrir sig. Páfa-
ríkið á auðvitað hlutabréf
i ítalska flugfélaginu
Alitalia, og i ítölsku hrað-
brautunum, sem bílarnir
njóta góðs af.
Árið 1929 gerði páfa-
rikið samning við ríkis-
stjórn Mussolini eftir
margra ára deilur.
Mussolini saþykkti að
borga næstum tvo mill-
jarða ísl. króna, sem var
gifurleg fjárhæð í þá
daga. Hinir klóku fjár-
málamenn páfaríkisins
ávöxtuðu féð á þann hátt,
að það varð smám saman
uppspretta enn meiri
auðs. Hluti samningsins
árið 1929 var á þann veg,
að páfarikið væri skatt-
frjálst. Sú dýrð stóð þó
aðeins til 1963. Nú verður
hinn heilagi stóll að
greiða tekjuskatta, rétt
eins og aðrir dauðlegir
menn.
Páfaríkið á gífurlegan
varasjóð í gulli. Hann er
ekki geymdur á italiu,
heldur í Fort Knox í
Bandaríkjunum, þar sem
gullforði bandaríska
ríkisins er varðveittur.
Þau verðmæti, sem páfa-
rikiö ræður yfir, er varla
unnt að meta til f jár. En
Corrado Pallenberg telur,
að ávöxtunarfé
páfarikisins nemi um 10
milljörðum ísl. króna. Þá
eru ekki reiknaðar með
tekjur frá byggingar-
framkvæmdum, gjöfum,
sölu frímerkja og toll-
frjálsum fyrirtækjum i
páfarikinu.
Rétt væri aö bæta því
við, að Pallenberg ræðir í
bók sinni einnig um þann
gifurlega kostnað, sem p-
áfaríkið hefur meðal
annars af félagsmála-
legri starfsemi sinni og
h já Iparstarf semi um
allan heim. Páfarikið
neitar hins vegar með
öllu að veita almenningi
aðgang að upplýsingum
um samband tekna og út-
gjalda.
Hafnarfjarðar Apotek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
Sklpholt 29 — Sími 24406
BLOMAHUSIÐ
simi 83070
Skipholti 37
Opið tu kl. 21.30.
Einnig laugardaga
og sunnudaga.
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA IKR0N
Dúnn
í ClflEflBflE
/ími 04900
Föstudagur 28. desember 1973