Alþýðublaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 5
utgefandi: Alþýðublaðsútgáfan hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður, Frey- steinn Jóhannsson. Stjórnmálarit- stjóri, Sighvatur Björgvinsson. Fréttastjóri, Sigtryggur Sigtryggs- son. Aðsetur ritstjórnar, Skipholti 19, sími: 86666. Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10, simi: 14900. Aug- lýsingar, Hverfisgötu 8-10, sími 86660. Blaðaprent hf. KRAFTAVERK Á I0LAH0TT? Siðasta embættisverk Lúðviks Jósepssonar fyrir jólin var að gefa góðvini sinum jólagjöf. Þá jólagjöf þáði góðvinurinn sem umbun fyrir langa þjónustu i þágu Alþýðubandalagsins — þjónustu, sem fáir vita hvenær byrjaði, enn færri hvernig gengið hefur fyrir sig og er sjálf- sagt ekki lokið enn. Og Lúðvik Jósepsson skar gjöf sina ekki við nögl. Hann gaf góðvini sinum bankastjóraembætti við Seðlabanka íslands — eina af helstu sérfræðistofnunum þjóðarinnar. Ekki dregur Alþýðublaðið það i efa, að góð- vinur Lúðviks,|Guðmundur Hjartarson,hafi unn- ið flokki sinum gott og mikið gagn, en hitt vissi blaðið ekki, að Guðmundur væri sérfræðingur i æðri efnahags- og peningamálum eins og yfir- stjórnendur Seðlabanka hljóta að þurfa að vera. Ef til vill hefur Lúðvik Jósepsson gefið honum sérþekkingu þá i jólagjöf lika. Nema hér hafi orðið kraftaverk á sjálfa jólanóttina eða þvi sem næst um sama leyti og Guðmundur fékk emb- ættið. Nema það hafi nægt honum til þess að öðl- ast þekkinguna og hæfnina að gerast nógu þaul- sætinn á krossgötum Alþýðubandalagsálfanna um þá nótt og láta engin siðaboðorð rugla sig. Hafi slikt kraftaverk gerst, þá hefur Guðmundi farnast betur en Fúsa i þjóðsögunni þar sem honum leiðst að bita sig fastan i flotskjöldinn — eða öllu heldur hið feita embætti — og fékk aukin heldur vitið i ofanálag i stað þess að missa það eins og Fúsi garmurinn. En að öllum þjóðsögum slepptum, þá er þessi embættisveiting Lúðviks Jósepssonar eitthvert það stærsta hneyksli, sem orðið hefur i emb- ættaveitingum á íslandi og er þó þar af mörgu að taka. í margar vikur hefur Lúðvik Jósepsson barist um á hæl og hnakka til þess að reyna að koma Guðmundi Hjartarsyni fyrir i banka- stjórasæti i einhverjum banka. Fyrst átti að reyna að fjölga bankastjóraembættum við Bún- aðarbankanna og koma Guðmundi Hjartarsyni þar fyrir. Sú áætlun fór út um þúfur þar sem meirihluti fékkst ekki i bankaráðinu fyrir Guð- mundi. Næst reyndi Lúðvik við útvegsbankann. Þar fór á sömu leið. Tveir bankaráðsmenn vildu styðja Guðmund. Þrir sögðu nei. Og þar sem bankaráð viðskiptabankanna ráða bankastjóra þeirra, en ekki bankamálaráðherrann, varð Lúðvik að gefast upp þar. Þá sneri Lúðvik sér að þeim eina banka þjóð- arinnar, er hann sem bankamálaráðherra hefur óskoruð yfirráð yfir — Seðlabankanum. 1 bankaráði þess banka var aðeins einn banka- ráðsmaður af fimm með Guðmundi — hinir f jór- ir voru á móti. En hér var bankaráðið aðeins umsagnaraðili. Og Lúðvik kærði sig kollóttan um umsögnina og beitti ráðherravaldi si u til þess að setja vin sinn Guðmund Hjartarson i embættið gegn nær einróma mótmælum banka- ráðsins. Þetta er i fyrsta skipti i sögunni, sem bankastjóri er skipaður við Seðlabankann i and- stöðu við meirihluta bankaráðsins. Skipun Guðmundar Hjartarsonar i banka- stjóraembættið við Seðlabankann er hneyksli. Maðurinn er sjálfsagt góður og gegn, en hann hefur ekki til að bera þá hæfileika, sem þarf til þess að gerast einn helsti efnahagssérfræðingur þjóðarinnar. Skipun hans er ekkert annað en gróf misbeiting ráðherravalds til þess gerð að hygla einum manni og hygla rausnarlega. alþýðu n RTilfil Úr borgarstjórn Reykjavíkur ,KOSNINGAÁÆTLUNIN’ A siðasta fundi i borgarstjórn Reykjavikur fyrir jól — fundurinn var haldinn fimmtudaginn 20. desember — var afgreidd fjár- hagsáætlun Reykjavikurborgar fyrir árið 1974. Sú áætlun auð- kenndist af þvi, aö kosningar eru á næsta leiti. Útgjaldaboginn var þar spenntur eins og framast mátti með þeim afleiðingum, að allar álögur á almenning eru i toppi. Meirihlutanum þótti ekki hlita að reyna að hlifa borgarbú- um við þyngstu gjöldum. A borgarstjórnarfundinum flutti Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, ræðu um afgreiðslu fjárhags- áætlunarinnar og geröi þar grein fyrir viðhorfi Alþýðuflokksins til þeirra mála. Hér fara á eftir nokkrir kaflar úr ræðu Björgvins. I upphafi máls sins sagði Björg- vin Guðmundsson á þessa leið: „Fjárhagsáætlun sú, sem hér er til siðari umræðu, er sann- kölluð kosningaáætlun. Hinn nýi borgarstjóri hefur svo sannarlega látið vaða á súðum við samningu þessarar fjárhagsáætlunar. Allir rekstrarliðir stórhækka og allt upp i 51,1% milli ára, enda örlar hvergi á sparnaði i rekstri. Þvert á móti er bætt við fjölda nýrra starfsmanna á sama tima og Sjálfstæðisflokkurinn talar fjálg- lega um það opinberlega, að spara þurfi i opinberum rekstri, draga þurfi úr rikisbákninu og yfirbyggingu hins opinbera yfir- leitt. Um leið og Geir Hallgrims- son, formaður Sjálfstæðis- flokksins, og fyrrverandi borgar- stjóri flytur hverja ræðuna á fæt- ur annarri um nauðsyn þess að skera niður útgjöld rikisins og að spara skrifstofukostnað hjá hinu opinbera, leggur eftirmaður hans i borgarstjóraembættinu fram frv. að fjárhagsáætlun, sem gerir ráð fyrir stórfelldri þenslu i borgarrekstrinum, i auknu mannahaldi og stórauknum rekstrarkostnaði, yfirleitt. A þvi timabili, sem ég hefi fylgst með undirbúningi fjárhagsáætlunar i borgarráði, minnist ég þess a.m.k. einu sinni, að fyrrv. borgarstjóri, Geir Hallgrimsson, sýndi verulega viðleitni i þá átt að spara á rekstrarliðum fjárhags- áætlunar og var þá margt skorið niður. Slika viðleitni sýndi hinn nýi borgarstjóri ekki s.l. ár, er hann undirbjó sina fyrstu fjár- hagsáætlun i þvi embætti. En það er ekki aðeins að öll sparnaðar- viðleitni detti niður nú, heldur lætur borgarstjóri nú bókstaflega vaða á súðum eins og ég sagði áðan. Þessi fjárhagsáætlun ein- kennist af eyðslustefnu, sem að visu er augljóst, að á rætur sinar að rekja til væntanlegra borgar- stjórnarkosninga. Raunar má að nokkru leyti segja hið sama um eignabreytingaliöina, en framlög til ýmissa framkvæmda á eigna- breytingalið eru nú skyndilega hækkuð verulega og ýmsar tillög- ur okkar minnihlutaflokkanna teknar upp, enda þótt þeim hafi ávallt verið visað frá undanfarin ár, og fjárskorti borið við. Þetta gerist á sama tima og kveinstafir meirihlutans um peningaleysi eru meir en nokkru sinni fyrr. Meiri- hlutinn kvartar sáran undan þvi að geta ekki lagt nógu háa skatta á almenning vegna laga um tekjustofna sveitarfélaga. En þó eru framlög til verklegra fram- kvæmda aukin verulega vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor. Er litið samræmi i málflutningi meirihlutans varð- andi tekjuöflun og framkvæmdir. En nú má spyrja: Er ekki minni hluti borgarstjórnar ánægður með það, að verklegar framkvæmdir skuli auknar veru- lega? Jú vissulega erum við ánægð með það, ekki sist þegar meirihlutinn tekur upp ýmsar af okkar tillögum, sem ekki hafa hlotið náð fyrir augliti hans áður. Evn við gerum okkur það ljóst, að þetta eru kosningatillögur. Það eru væntanlegar borgarstjórnar- kosningar, sem hafa haft úrslita- áhrif á meirihlutann aö þessu sinni og um leið og búið er að kjósa, missir Sjálfstæðisflokkur- inn áhuga á þessum málum á ný, — þ.e.a.s. haldi hann meir'i- hlutanum.’’ Þessu næst vék Björgvin að ein- stökum liðum áætlunarinnar. Um útsvörin sagði hann m.a.: ,,Það hefur áreiðanlega aldrei veriðlögð fram hér i borgarstjórn önnur eins eyðslu- og verðbólgu- áætlun. Útsvörin eru áætluð 1905.5 m.kr. eða 530.5 millj.kr. hærri en á yfirstandandi ári. Er það hvorki meira né minna en 38.6% hækkun milli ára. Er þá reiknað með, aö nota hluta 11. prósentsins, en sérstaka heimild félagsmáfaráðherra þarf til þess að fara með útsvörin fram úr 10%, af brúttótekjum. Leikur Sjálfstæðisflokkurinn hér sama leik og undanfarin ár, þ.e. þann að leggja fram fjárhagsáætlun, sem gerir ráð fyrir, að álagsélagt á útsvörin þótt engin heimild sé fengin fyrir sliku álagi. Ég hefi sagt það hér áður, og ég segi það enn, að frv. að fjárhags- áætlun á aðeins að íela i sér 10% útsvar. 11% er aðeins hugsað i neyðartilfellum, þ.e. ef útgjöld fara einhvern timann á fjárhags- árinu verulega fram úr áætlun, og tekjur hrökkva ekkifyrirgjöldum. Þá á að leita heimildar ráðherra fyrir aukaálag, en fyrr ekki. Ég er algerlega andvigur þvi, ab útsvörin verði á næsta ári inn- heimt með álagi. Ég tel útsvörin svo sannarlega nægilega há án álags. Almenningur stynur þung- an undan hinum háu beinu skött- um rikis og Reykjavikurborgar, og svo virðist sem allir stjórn- málafíokkar séu nú orðnir sam- mála um nauðsyn þess að lækka beina skatta. Sjálfstæðisflokkur- inn berst nú á alþingi fyrir lækkun beinna skatta, en hér i borgar- stjórn vill hann spenna útsvör og fasteignagjöld eins hátt og ýtrustu heimildir leyfa. Ég tel engar likur til þess, að félags- málaráðherra heimili álag á út- svör borgarbúa, enda tel ég enga ástæðu til þess.” Um f a s t e i g n a g j a 1 d a - álagninguna sagði Björgvin m ,a.: ,,Það er sömu sögu að segja um fasteignagjöldin og útsvörin. Þau eru stórhækkuð og gert ráð fyrir að innheimta þau með 50% álagi, ekki aðeins fasteignagjöld at- vinnurekstrarhúsnæðis, heldur einnig fasteignagjöld ibúðarhús- næðis. Sjálfstæðisflokkurinnhefur engar áhyggjur af þeim, sem stynja undan hinum háu fasteignagjöldum, svo sem öldruðum, ekkjum og öðrum lág- launamönnum, sem eiga eigin ibúðir. Fyrst stórhækkaði rikis- stjórnin fasteignagjöldin og Sjálf- stæðisflokkurinn gagnrýndi það, en þó þótti þessum flokki einka- rekstursins ekki nóg að gert, þar eða hann hefur ávallt bætt 50% álagi ofan á fasteignagjöldin hér i borgarstjórn. Fasteignagjöldin eru i frv. að fjárhagsáætlun áætluð 600 m.kr eða 140 m.kr. hærri en á yfir- standandi á ári. Það er 30,4% hækkun. Er þá gert ráð fyrir að fasteignamat hækki um 25%. Ef álagið á fyrrnefndu fasteigna- gjöldin værifelltniður.mundu þau lækka um 100 milj. kr. og um það flytjum við borgarfulltrúar minnihlutaflokkanna tillögu. Við flytjum einnig tillögu um lækkun útsvars um 80 m.kr.” Þessu næst vék Björgvin að ein- stökum útgjaldaliðum áætlunar- innar. Ræddi hann i þvi sambandi sérstaklega um rekstrarútgjöld borgarinnar, en þau hafa mjög aukist i tið núverandi borgar- stjóra, sem stóraukið hefur mannahald i borgarresktrinum og eyðslu fjármuna i sambandi við rekstur borgarinnar. Um þessi atriði sagði Björgvin Guðmundsson m.a.: „Rekstrargjöldin eiga alls að hækka um 33,2% samkvæmt fjar- hagsáætluninni. Einstakir liðir rekstrargjalda hækka mjög mis- jafnlega mikið eða allt frá 18,1% upp i 74,5%. Raunar hækkar liöurinn önnur gjöld ennþá meira eða um yfir 200%. Aætlað er, að stjórn borgarinnar muni á næsta ári kosta 129,3 m.kr. eða hækka um 22.9 m.kr. Er það 21,5% hækkun milli ára. — Annars hefur orðið umtalsverð starfsmanna- fjölgun i öllum borgarrekstrinum samkvæmt upplýsingum, er ég hefi aflað mér hjá fjárhags- áætlunarfulltrúa. Hefur alls fjölgað um 60 starfsmenn — frá fjárhagsáætlun 1973. Er hér um svo mikla fjölgun að ræða á einu ári, að full ástæða er til þess að huga að þvi, hvort ekki er þörf á meira aðhaldi i starfsmanna- ráðningum til borgarsjóðs. Er engu likara en að allar óskir ein- stakra deilda borgarinnar um fjölgun starfsmanna séu sam- þykktar orðalaust. — Hér eru ekki meðtalin fyrirtæki borgar- innar, en þar hefur einnig orðið mikil fjölgun starfsmanna.” 1 lok ræðu sinnar — eftir að Björgvin hafði rakið fjölmörg einstök atriði fjárhagsáætlunar- innar — fjallaði hann um afstöðu minnihlutaflokkanna til hennar. Um það sagði hann m.a.: ,,Við borgarfulltrar minnihluta flokkanna munum ekki fara i neitt yfirboðskapphlaup við Sj^lfstæðisflokkinn vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor. Við leggjum aðal- áhersluna á það, að borgarstjórn marki skýra stefnu i öllum málum og þar á meðal þeim, sem kosta mikið fé til framkvæmda. Við leggjum áherslu á, að stefna verði mörkuð og framkvæmda- áætlanir gerðar til margra ára. Við höfum lagt fram itarlegar tillögur um ibúðabyggingar, um uppbyggingu BÚR, um aðgerðir i þágu aldraðra, um byggingu dag- vistunarstofnana, um skóla- byggingar o.fl. Tillögur þessar fela i sér miklar og ákveðnar aðgerðir en þær kosta liltölulega litla fjármuni fyrir borgarsjóð næsta ár umfram það, sem þegar er komið i frv. að fjárhagsáætlun eða aðeins um 60 millj. undirbúnings- kostnað, sem er sama fjárhæð og við leggjum til, að verði spöruð ‘á rekstri. Næsta ár á fyrst og fremst að fara i undirbúning á framkvæmd tillagna okkar, en siðan eiga þær að framkvæmast á næstu árum. Þannig mun tillaga okkar um uppbyggingu BÚR ekki kosta neina fjármuni næsta ár. Það á að nota árið til þess að undirbúa kaup á 4. skuttogaranum fyrir BÚR og til þess að ganga frá öllum undirbúningi að byggingu nýs frystihúss fyrir BÚR. Ibúðatillaga okkar mun ekki kosta meira næsta ár en sem svarar auknu framlagi til ibúða- bygginga i fjárhagsáætlun meiri- hlutans. En við gerum ráð fyrir að borgarstjórn samþykki nú þegar áætlun til 3ja-5 ára um ibúðabyggingar. Tillaga okkar um byggingu dagvistunarstofnana fjallar einnig um átak i þeim málum á næsta kjörtimabili, en kostar ekki meira á næsta ári en sem svarar þeirri aukningu á framlagi til barnaheimila, er fram kemur i frv. aðfjárhagsáætluninni. Og hið sama má segja um tillögu okkar um skólamál. Við borgarfulltrúar minnihluta- flokkanna verðum þvi ekki sakaðir um að vilja spenna upp fjárhagsáætlunina, enda ofbýður okkur skattpiningarstefna sú, sem fram kemur i frv. og sú mikla eyðslustefna, sem fram kemur á rekstrarliðum.” Kaflar úr ræðu Björgvins Guðmundssonar um fjárhagsáætlunina Föstudagur 28. desember 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.