Alþýðublaðið - 28.12.1973, Blaðsíða 12
alþýðu
n RTíTTí]
Lægð, sem var i gærkvöldi
1200km suðvestur i hafi, veld-
ur aö likindum allhvassri
norðanátt og snjókomu á
Suðurlandi á morgun. Ekki
var vitað um aðra lægö i ná-
grenni landsins i gærkvöldi,
svo útlitiö fyrir næstu daga er
norðanátt og él fyrir norðan en
bjart á Suðurlandi, og alls
staðar frost.
KRILIÐ
□ / SoL V£ SÆLfí QofíÐfí *l ’/SL. FÆ.ÐU
rfípfí \ BÝLum
PUD
InfíDUfi. TflLfít)
V
□ 1 Timflft SHöófíR ÞÝfífD
VFIR Hörri HT77Fd\ | -S /<• sr
TfEPfí
f mbUf,
FIEUIL 1N fífiKHR
□ ruDÞfí 5u/vD
A'oMftsr 7 « SKfíP 5K.ST TfU-f)
r
INNLANSVIÐSKIPH LEIÐ
^TIL LÁNSVIÐSKIPTA
Ibijnaðarbank
fW ÍSLANDS
KÓPAYOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
SENDIBIL ASTOOIN Hf
Við brennum þrjátíu
milljónum um áramotin
30 milljónir króna f uðra
upp i alls konar flugeld-
um, blysum, stjörnuljós-
um og sólum, þegar ís-
lendingar kveðja liðið ár
og fagna því nýja nú um
áramótin. Mikill meiri
hluti þessarar ijósadýrð-
ar kviknar og deyr á svo
til sömu minútunni kl. 12
á miðnætti á gamlárs-
kvöld.
íslenskum framleið-
endum og innflytjendum
þessarar vöru ber saman
um, að eftirspurn hafi
aldrei verið meiri en nú.
Helgi Guðmundsson i
Flugeldagerðinni á Akra-
nesi sagðist ekki hafa
getað sinnt öllum pöntun-
um, sem borist hefðu, en
f ramleiðslan þar er um 40
þúsund flugeldar og Ijós
af 27 gerðum og stærðum.
Þórarinn Símonarson í
Flugeldaiðjunni Þórs-
mörk i Garðahreppi hafði
svipaða sögu að segja.
Hér á landi er þó ekki
framleiddur nema röskur
þriðjungur þess magns,
sem notað er.
Lárus Ingimarsson,
stórkaupmaður, sem er
einhver stærsti innflytj-
andinn, hefur tekið upp
og selt úr 250 trékössum
alls konar flugelda, sem
hann hefur flutt inn frá
Kina og Englandi. Onnur
lönd, sem mest er keypt
frá, eru Japan og Dan-
mörk og Austur- Þýska-
land, að sögn Eiríks
Ketilssonar, sem flytur
inn stjörnuljós og smá-
blys, sem einkum miðast
við yngstu neytendurna.
Reykjavíkurskátarnir
eru nú langstærsti smá-
salinn i flugeldum, blys-
um og alls konar Ijósum,
en allur ágóði af sölunni
rennur til Hjálparsveitar
skáta. Ýmis önnur fé-
lagasamtök hafa einnig
með höndum sölu þessar-
ar vöru til hjálpar góð-
gerða- og líknarstarfi.
Lætur nærri að hvert
einasta mannsbarn á is-
landi verji 150 krónum til
þess að fagna nýju ári og
kveðja liðið, er söluverð-
inu er jafnað niður, en
verulegur hluti af kostn-
aði við skammvinna
Ijósadýrð áramótanna
gengur þó til velferðar-
mála og varanlegrar
hjálpar við ýmsa þá, sem
minnst mega sin og eru
hjálpar þurfi.
PIMM ó förnum vegi
Hvað fannst þér skemmtilegast við jólin?
Ómar Hallsson þjónn: Hvildin,
ég slappaöi vel af frá amstrinu,
og fór svo i mörg jólaboð til upp-
lyftingar.
Ilreinn Kðvarðsson 9 ára: Gjaf-
irnar voru skemmtilegastar,
sérstaklega rafmagnsbillinn
sem ég fékk, annars fékk ég
fullt af gjöfum, meira en venju-
lega.
Sigurður Sigurðsson þjónn:
Maturinn, ég boröaöi mikið af
góðum mat og naut þess. Gæsir
og rjúpur eru t.d. með þvi besta
sem ég fæ. og naut ég þess um
jólin.
Guðrún Kðvarðsdóttir 12 ára:
Pakkarnirog gjafirnar. Ég fékk
mikið af skemmtilegum gjöfum
en skemmtilegast þótti mér að
fá skiði og skfðaskó, sem ég
hlakka mikið til að prófa.
Jón I. Baldursson: Best þótti
mér hvildin og að fá mikinn og
góðan mat. enda svaf ég meira
og borðaði meira en vant er. og
er strax bvrjaður á þvi að halda
i við mig aftur. —