Alþýðublaðið - 28.12.1973, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 28.12.1973, Qupperneq 3
BENSOGDATSUN GERfl HELMINGINN AF LEIGUBÍLAFLOTANUM Val leigubilstjóra á bilum er farið að beinast einkum að tveimur gerðum. Eru það Mercedes Benz og Datsun, en samtals verða bilar af þessum gerðum um 47% af leigubila- flota landsmanna fljótlega eftir næstu áramót. Á þeim tveimur árum, sem japönsku Datsunbilarnir hafa verið fluttir til landsins hafa tugir leigubilstjóra keypt slika bila, og nú fyrir skömmu tóku 34 bflstjórar sig til og pöntuðu sameiginlega Datsunbila, sem þeir fá afgreidda eftir áramótin, og verða bílar af þeirri gerð þá yfir 200 talsins i leigubilaflotan- um. Leigubilstjórar þessir fá 50- —60 þús. króna afslátt af bilun- um með þvi að panta svo marga i einu, og verður verðið þá um kr. 650 þúsund hver bill. Aðeins ein tegund hefur enn vinninginn yfir Datsun. en það er Mercedes Benz. Af þeirri teg- und eru um 250 bilar i leigu- akstri, eða rétt rúmlega 26% af öllum leigubilum. Kaldasti desember í 87 ár Meðalhitinn i desember hef- ur verið lægri en hann hefur verið i þeim mánuði i 87 ár.eða siðan árið 1886. Sé dagurinn i gær reiknaður með i meðaltal- inu er meðalhitinn i Reykjavik — 3.6 gráður, en árið 1886 var meðalhitinn —5,0 gráður. „Þetta er ágætt dæmi um það hversu kaldur mánuðurinn hefur verið", sagði Markús Á. Einarsson veðurfræðingur við Alþýðublaðið i gær, ,,og ef svo heldur sem horfir er sist á- stæða til að ætla, að meðaltal- ið lækki, en þó getur veðrið breyst". Skrár yfir veðurmælingar eru til frá árinu 1880, en sá vetur var með endemum kald- ur, og var meðalhitinn i desember —6.1 stig. Arið 1909 var meðalhitinn i desember —3.3 stig i Reykja- vik. Kjörgögnin tepptust en... Séra Páll Þórðarson er sá klerkur sem einna lengst hefur mátt biða eft- ir fréttum af kjöri sinu. Noröfirðingar gengu til prestskosninga 9. desem- ber, en eins og fram hefur komið i Alþ.bl., komust kjörgögn ekki til biskups- skrifstofunnar i Reykjavik fyrir jól, og voru sam- gönguerf iðleikar orsök þess. I gær voru atkvæði svo talin á skrifstofu bískups. Á kjörskrá voru 984 og greiddi 641 atkvæði. Séra Páll hlaut 640 atkvæði, en einn seöill var auöur. Þvi telst séra Páll Þórðarson kjörinn lögmætri kosningu til Norðf jaröarprestakalls. Verkamannafélagið Dagsbrún Jólatrésfagnaöur Dagsbrúnar verður i Lindarbæ 3. og 4. janúar n.k. Aðgöngumiðar seldir á skrifstofunni. Ingólfs-Café Gömlu dansarnir í kvöld kl. 9 llljómsveit Garðars Jóhannessonar Söngvari Björn Þorgeirsson. Aðgöngumiöasala frá kl. 8. — Simi 12826. Blaðburðarfólk vantar nú þegar i eftirtalin hverfi: Nökkvavogur, Gnoðarvogur, Ljósheimar, Kópavogur, Fagrabrekka og nágr. Ms. Hekia fer frá Reykjavfk þriöjudaginn 8. janúar vestur um land i hring- ferö. Vörumóttaka: 3. og 4. jan. og til hádcgis 7. jan. til Vestfjaröa- hafna. Noröurfjaröar, Siglufjarö- ar, Ólafsfjarðar, Akureyrar, Húsavikur, Raufarhafnar, Þórs- hafnar, Kakkafjaröar, Vopna- fjaröar, Borgarfjaröar og Seyöis- fjaröar. ÁLFNAÐ ER VERK ÞÁ HAFIÐ ER 8 SAMVINNUBANKINN HORNIfi Hótel-kassör vantar alveg Gylfi S. Guðmundsson, Há- tröð 3, Kópavogi, skrifar: ,,A árunum 1964—1967 starf- aði ég sem matreiðslumaður i Sviþjóð. Ég kynntist þar meðal annars rekstri veitinga- og gistihúsa og þá um leið viðskipt- um þjóns og veitingamanns, það var nokkuð frábrugðið þvi er ég átti að venjast hér, og vakti þvi forvitni mina. Mun ég hér leit- ast við að skýra þetta i sem fæstum orðum. LÉLEG UGLA EN ERLINGUR A HRÖS SKILIÐ Sjónvarpsáhorfandi hafði sam- band við Hornið: ,,Ég var búinn að hlakka tölu- vert til að sjá „Ugla sat á kvisti”, sem var á dagskrá sjón- varpsins á jóladagskvöldið, enda auglýst mikið og — að þvi er virtist — merkilegt pró- gramm. En þar tókst aðstand- endum þáttarins að klúðra hon- um endanlega. í þennan þátt var bókstaflega ekkert varið, samræmið hvergi til staðar, og þau atriði, sem boðleg voru, skemmd með lélegum upptök- um eða þá á vitlausum stað i dagskránni. Um þessa svoköll- uðu „brandara” er ekki ástæða til að fara mörgum orðum. Ég held ég hafi séð einhvers staðar eða heyrt nú nýverið, að þetta ætti að vera siðasti þátturinn af þessu tagi, og það er stórfint. Þessi hugmynd, sem var asna- legiupphafi, hefur hvort eð er algjörlega gengið sér til húðar. Jónas verður að gera betur en þetta. Aftur á moti var mikill og stakur sómi að „Vér morðingj- ar". sem sjónvarpið sýndi á annan. Þar var geipilega vel farið með gott leikrit og Erling- ur Gislason, leikstjóri, á mikið hrós skilið”. Á veitingahúsum i Sviþjóð er starfsgrein sú er þar nefnist Hótel-Kassör(ska) (á islensku hótelgjaldkeri). Til þess að öðl- ast starf sem hótelgjaldkeri, þarf menntun. Sú menntun er veitt i hinum mörgu veitingaskól um Sviþjóðar og til lokaprófs i greininni er þess krafist að við- komandi hafi gengið i gegnum þær greinar er þjónum og mat- reiðslumönnum eru kenndar, og reikingshald og lagervörslu. Starf hótelgjaldkera er greitt af veitingamanni og þjóni sam- eiginlega, og fer það þannig fram að þjónn greiðir 2 1/2% af sinu 15% þjónustugjaldi til veit- ingamanns, en veitingamaður sér um ráðningu, kaupgreiðslu og annað til gjaldkera. Starf hótelgjaldkera sparar þjóni bæði mikla vinnu og tima svo og ábyrgð. Starf hótelgjald- kera er i meginatriðum eftirfar- andi: 1. Allt reikningshald vegna veitinga, sem fram eru bornar. 2. Alla vörslu vins og drykkjarfanga og ábyrgð gagn- vart veitingamannai. 3. Alla afgreiðslu, mælingu, blöndun og hönnun drykkja. 4. Eftirlit með öllum veiting- um er úr eldhúsi koma. Komi fram klögumál gesta vegna reikninga, drykkjar- fanga, magns veitinga eða ann- ars er aö slarti hótelgjaldkera lýtur, er veitingamaöur gerður ábyrgur og hótelgjaldkeri þvi fulltrúi veitingamanns og ber að meta þær kvartanir hverju sinni. Að minu áliti er hér um að ræða samstarf veitingamanns og þjóns sem báðum er til hags, þjónninn getur gefið sér mun meiri tima, og þannig annað fleiri gestum og um leið veitt betri þjónustu en ella. Þar með getur hann að sjálfsögðu átt von á riflegra drykkjufé gesta, um leið og hann losnar við alla á- byrgð og áhyggjur vegna lager- vörslu, reikninga, vanmældra drykkja o.fl. Veitingamaður kemst i nánari snertingu við gestinn, hann get- ur gefið betri þjónustu og þannig aukið vinsældir veit- ingahúss og hann hefur einnig betra eftirlit með öllum veiting- um sem gestum eru bornar. Ástæðan fyrir þvi að ég skrifa þessar linur er aðallega það slæma ástand sem margur gest- urinn verður var við á mörgum veitingahúsum hér á landi, að þjónusta sú, er hann greiðir fyr- ir er i allt of mörgum tilfellum innt af hendi af ófaglærðu fólki, meðan þjónninn er önnum kaf- inn við skriftir, lagervörslu eða annað, sem hjá honum virðist méira virði en viðskiptavinur- inn.” LAGREIST, HLIÐ OG LÍTIÐ Gunnar Dal, skáld, hefur sent Horninu eftirfarandi vísur vegna úthlutunar „viðbótarritlauna” fyrir árið 1973: „Við hallarhlið Mammons þeir hópast, og heiðurs og peninga biða. En hliðið er lágreist og litið, og lokað þeim sem ei skriða. Og margur er maðurinn hljóður, og margt er nú óskrifað blaðið, þvi rykið þeir hefja til himins, og henda stjörnum i svaðiö”. FWA FL L/GFEZILAGMNU BILSTJORAR Flugfélag Islands h.f. óskar að ráða bil- stjóra til starfa við vöruafgreiðslu félags- ins á Reykjavikurflugvelli. Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrif- stofum félagsins, sé skilað til starfs- mannahalds fyrir 5. janúar m.k. FLUCFELAC ISLAJVDS Amtsbókasafnið á Akureyri óskar að ráða bókavörð (bókasafnsfræð- ing) sem fyrst. Umsóknir ásamt upp- lýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar undirrituðum fyrir 1. febrú- ar 1974. Laun samkvæmt kjarasamning- um starfsmanna Akureyrarbæjar. Allar upplýsingar um starfið veitir amtsbóka- vörður. Bæjarstjórinn á Akureyri Viðlagasjóður auglýsir Crtborgun 2.áfangagreiðslu bóta fyrir ónýt hús i Vestmannaeyjum hefst mið- vikudaginn2. janúar 1974. Þeir, sem óska eftir að fá greiðslu sina senda til Vest- mannaeyja láti vita um það á skrifstofu Viðlagasjóðs, Tollstöðvarhúsinu i Reykja- vik fyrir áramót. Viðlagasjóður Föstudagur 28. desember 1973 o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.