Alþýðublaðið - 24.01.1974, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 24.01.1974, Qupperneq 7
ÉG VAR AUGU eiginkonu eða tengdamóð- ur fyrir tvö hnndruð dali. FBI telur, að Morð h/f hafi séð um morð á þúsund manns i Bandarikjunum fyrsta árið, annað hvort skotið, kyrkt eða stungið það, en kyrkingum var aðaílega beitt við það fólk, sem illa var liðið. Fórnar- lambið var bundið á fótum, höndum og um hálsinn, þannig að það kafnaði, þeg- ar það reyndi að losa sig. Lögreglan var andvaralaus. Albert Anastasia var kallaður mesti morðingi i sögu Mafiunnar, en það var litill heiður. Hann var naut- heimskur. Anastasia var sagt, að morðinginn Abe (Kid Twist) Reeles væri hrein- asti hugleysingi, nema hann væri með hlaðna byssu i höndunum, en Anastasia réði hann samt hjá Morð h/f. Reeles var gripinn glóðvolgur, þegar hann reyndi að fremja morð og kjaftaði frá öllu. Sex samstarfsmenn hans i Morð h/f lentu i rafmagns- stólnum fyrir bragðið. Reeles var sagt að segja allt af létta til að sleppa við rafmagnsstólinn og hann sagði, að Albert Anastasia væri forstjóri Morð h/f en Maflan í Bandarikjunum hefur ekki síður góð sam- bönd viö lögregluna, en Mafian á Italiu. Skömmu áður en Reeles átti að skrifa undir vitnisburð, sem hefði komið Anastasia I rafmagnsstólinn féll hann út um glugga á sjöttu hæð i lögreglustöðinni þar, sem sex lögregluþjónar gættu hans. Hann dó. Lögreglu- þjónarnir skildu ekki, hvað hafði komið fyrir. Þeir fengu sér blund. Áhrif Mafiunnar á stjórnmálalif Bandarikj- anna er furðulegt. Þeir, sem eru i Mafiunni velja dómara, lögreglustjóra og fylkisstjóra. Þeir búa I vel vörðum húsum og aka um i brynvörðum bilum, sem kosta rúmlega hundrað þúsund dali. Umberto átti fóstbræður á borð við Anastasia, Joe Adonis, sem réði lögum og lofum i New York og bauð lögreglustjórum, þing- mönnum og fylkisstjórum á veitingahús og i hóruhús- in, sem hann rak. Hann hafði hins vegar mikið álit á Frank Costello, sem hann taldi gáfaðan mann, en Costello einbeitti sér að fjárkúgun og var eini maðurinn, sem Umberto þekkti, sem fékk borgað fyrir fjárkúgun og dró hana siðan frá á skattskýrslunni. Carles Luciano, sem kallaður var „Lucky” (sá heppni) var þekktastur þessara manna, en hann var dæmdur i 30 til 50 ára fangelsis. Luciano var upp- alinn i fátækrahverfum New York-borgar „Litlu Italiu” og rikti yfir Mafi- unni um gjörvöll Bandarik- in. Hann bjó á Waldorf Astoria og kallaði sig Charles Ross, en honum var ekkert ómögulegt, ekki einu sinni morð. Baráttuaðferðir. Luciano hafði einkarétt á vændi og hvitri þrælasölu. Hann hafði einstakt lag á að fá konur til að hlýða. Einu sinni komst hann yfir 19 ára stúlku frá Suðurrikj- unum, sem vildi ekki hlýða honum og neitaði að gerast vændiskona. Luciano lét demba henni i bólið og hátta hana. Hún var úr Suðurrikjunum og fyrirleit negra, svo að hann sendi fjóra kraftalega negra inn. Þeir áttu að nauðga henni hver á fætur öðrum, uns hún gæfist upp. Hún var samvinnufús, þegar þeir höfðu lokið sér af. Luciano réði yfir rúm- lega tvö þúsund hórum i New York, en hann var settur i fangelsi, þó að heimsstyrjöldin frelsaði hann. Skemmdarverk voru si- fellt unnin við höfnina i New York og krökkt af njósnurum þar. Yfirvöldin réðu ekki við neitt. Charles Luciano þekkti Mafiuna og hann gat það. Bandarikja- stjórn leitaði til hans og hann vildi gjarnan aðstoða stjórnina. Hann sendi skilaboð til Mafiunnar og honum var hlýtt, en Luci- ano vildi fá sin laun við striðslok. Hann fékk að fara úr fangelsinu, ef hann færi til Sikileyjar og þakk- aði fyrir, þvi að Sikiley var betri en fangelsi i Banda- rlkjunum. Bæði á Sikiley og i Bandarlkjunum er nauð- Charles Lucky Luciano fékk fimmtiu ára fang- clsisdóm, en var náðað- ur fyrir aðstoð sina við bandarisk yfirvöld. meðan lieimsstvrjöldin siðari stóð yfir. Hann fékk frelsi, þó að liann væri gerður landrækur. synlegt að hlýða lögmálum Mafiunnar. Misþyrmingar og morð er refsingin og að- eins dauðinn biður þess, sem talar af sér. Það liggur dauðarefsing við þvi að tala um Mafiuna eða Cosa Nostra — jafnvel við kon- una sina. Joe Valochi var mesti svikari I sögu Mafiunnar. Hann sagði allt af létta, þegar hann frétti, að hann væri dauðadæmdúr: „Vito Genovese bað mig um að gefa fé til velgjörðastofn- ana fara i kirkju og um- gangast ekki stelpur i ná- grenninu”. Joe Valachi seldi fiknilyf og var fangi nr. 82811 i rikisfangelsinu i Atlanta i Georgiu-fylki, þegar hann greip járnstöng og drap annan fanga. Valachi hélt að þessi fangi væri sendur frá Mafiunni til að myrða hann. Framhald í næsta blaði ér n v & 'V* % ■ ,..N; •->. JÉ m Tímamir hafa breyst og hugsjónakona fyrri alda, sem stjanaði við húsbónda sinn og herra, þegar hann kom þreyttur heim úr vinnunni, virðist hálfhlægileg nú og alls ekki i samræmi við þá öld, sem við lifum á. Mörgum konum finnst samt. maðurinn vera miðja alheimsins og þær njóta þess blátt áfram að sitja við fætur hans og stara hrifnar á hann. Þá er konan innst inni geisha. Ef þu ert hamingjusöm með að vera þú sjálf, berst fyrir jafnrétti og neitar að vera kynferðisvera, litur á karlmenn sem meðbræður þina og ekki sem ofur- menni, ertu senniiega gyðja. Langar þig til að vita, hvort þú ert geisha eða gyðja? Taktu þátt i getraun- inni okkar! 0 Fimmtudagur 24. janúar 1974. Maður, sem þú þekkir vel og ert hrifin af, hringir I þig að kvöldi dags og spyr, hvort hann megi koma og fá kaffibolla. Þú hefur stundarfjórðung áður en hann kemur. Hvað gerirðu þann tima? a) Málar þig og snyrtir, greiðir þér og skiptir um föt. b) Sérð um, að allt sé snyrtilegt I svefnherberginu. c) Lagar til i stofunni, hellir úr öskubökkunum og setur Beet- hoven-plötu á fóninn. o _ Finnst þér kvenfólk i síðbuxum: a) Glæsilegt (ertu mikið sjálf i sið- buxum?). b) Agætar fyrir aðrar, en ekki fyrir mig. (Ég vel heldur siðan kjól eða pils). c) Agætar til Iþróttaiðkana, en ó- mögulegar út i búð eða á skrifstof- unni. § ~ Hvernig yrði þér við, ef einhver biði þér að taka þátt I nektarpartíi: a) Yrðirðu fokvond? b) Neitaðir kurteislega og segðir, að slikt ætti ekki við þig. c) Segðir já, þvi að það gæti alltaf verið, að þér þætti það skemmti- legt. Þú situr i troðfullum strætisvagni og maðurinn við hliðina á þér tekur um lærið á þér i skjóli dagblaðs. Hvað gerir þú: a) Færir þig annað hin rólegasta. b) Læturðu á engu bera i þeirri trú, að þú getir alltaf fært þig, ef þetta versni. c) Slærð hann utan undir. o Þú verður fertug á morgun, hvernig bregstu við: a) Leiðist það og óskar þér nýs barns. b) Ert niðurbrotin. c) Finnst það spennandi og gaman, þvi að fertugar konur geta verið mjög aðlaðandi. O Þú ert úti að ganga með karl- manni. Ertu vön að: a) Ganga róleg við hlið hans og tala við hann. b) Hanga utan i honum og njóta stuðnings frá honum. c) Viltu helzt að hann taki undir hönd þér af og til og stjórni þér i umferðinni. o Einn ungur yfirmaður á skrif- stofunni er vanur að kalla þig „elskuna” eða „yndið mitt”. Finnst þér það: a) Skemmtilegt, þó að hann meini ekkert með þvi, af þvi að það ornar þér um hjartarætur. b) Þreytandi. c) Nákvæmlega sama, þvi hann man sennilega ekki, hvað þú heitir og verður þvi að kalla þig þessum nöfnum. O — ~ Þér er boðið til kvöldverðar af myndarlegum og aðlaðandi manni. Hvers konar forrétt velurðu: a) Franskan hors d’oeuvres. b) Ostrur. c) Melónu með skinku. o Elskhugi þinn vil gjarnan hátta hjá þér, en þig langar ekki vitund til þess. Hvað gerirðu: a) Lætur eins og allt sé i bezta lagi og reynir að dylja það, hvað þú ert treg. b) Segir honum, að þig langi ekk- ert, þvi að þú ert hreinskilin. c) Segist vera með höfuðverk. o ~~ z Þegar þú kaupir þér föt, reynirðu þá að velja? a) Eitthvað, sem vinkonur þínar eru hrifnar af. b) Eitthvað, sem manninum þinum finnst tælandi. c) Eitthvað sem klæðir þig vel. o ~ _ llvaða álit hefur þú á giftingar- hringum: a) Að allir hringir séu góðir, þvi að þeir vekja athygli á höndunum b) Að giftingarhringir séu gamal- dags. c) Eða ertu stolt af að bera gift- ingarhring og vilt, að maðurinn þinn geri það lfka. 0 Þú kynnist einstaklega aðlaðandi manni, sem er minnst 25 árum cldri en þú. Hvað gerirðu: a) Reynir að ná i einhvern yngri. b) Vilt eiga hann að vini. c) Finnst þetta spennandi og in- dælt, þvi að aldur og reynsla hefur oft meira að segja en æska. Q ~ Maðurinn þinn segist elska fisk. Hvað gerir þú: a) Kaupir matreiðslubók með fisk- réttum og eldar þá. b) Leggur til, að hann bjóði þér á veitingahús, sem þekkt er fyrir fiskrétti. c) Gefur honum djúpsteikta humarhala eins oft og þú hefur tima og krafta til. Ef þú gætir verið einhver þessara þriggja kvenna i hálft ár, hver þeirra vildirðu þá vera: a) Grace prinsessa i Mónakó. b) Jackie Onassis. c) Raquel Welch. o n Finnst þér, að þú getir: a) Elskað marga menn samtimis. . b) Sért eins manns kona. c) Rómantisk og hafir oft verið ást- fangin. Hvernig bregstu við, ef einhver maður býður þér upp i sveit: a) Ert hrifin yfir að komast up i sveit með elskhuganum. b) Ekkert sérlega hrifin. Þú vildir heldur fara á fint veitingahús. c) Segir allshugar fegin já og ferð að taka til nesti. Hvernig brestu við, ef þú hefur rifist við eiginmanninn eða elsk- hugann: a) Með iskulda. b) Fyllist örvæntingu. c) Brestur i grát. Kennir þú i brjósti um allar ógift- ar konur yfir þritugt: a) Mjög mikið. b) Alls ekkert. c) Bara ef hún er enn hrein mey. Q~ ~ llvers konar gjöf viltu helzt, að karlmaður gefi þér: a) Bók, plötu eða miða i leikhús. b) Ávfsun, svo þú getir keypt þér eitthvað, sem þig vantar. c) llmvatn, skartgripi eða töfrandi nærfatnað. @ ~ Nú byrja allir I boðinu að rifast, en hvað gerirþú: a) Reynir að jafna málið, ef lætin eru of mikil. b) Ert alltaf á sömu skoðun og glæsilegasti maðurinn i boðinu. c) Reynir að hafa siðasta orðið. SVONA REIKNARÐU STIGIN: SVONA REIKNARÐU STIGIN. 1) a-10, b-20, c-0. 2) a-0, b-20, c-10. 3) a-0, b-10, c20. 4) a-10, b-20, c-0. 5) a-10, b-0, c-20. 6) a-0, b-10, c-20. 7) a-20, b-0, c-10. 8) a-10, b-20, c-0. 9) a-20, b-0, c-10. 10) a-10, b-20, c-0.11) a-20, b-0, c-10.12) a-10, b-0, c-10.13) a-20, b-0, c-10.14) a-10, b-0, c-20.15) a-0, b-10, c-20.16) a-20, b-0, c-10. 17) a-0, b-10, c-20. 18) a-10, b-0, c-20. 19) a-0, b-10, c-20. 20) a-10, b-20, c-0. DÚMURINN HLJOÐAR ÞANNIG: Milli 400 og 360 stig: Annaö hvort hefurðu ekki verið heiðarleg í svörum þinum eða þú hugsar ekki um neitt nema kynlífið. Það má vel vera, að hver einasti blóð- heitur karlmaður telji þig svarið við draumum sínum, en hætta er á þvi, að venju- legum mönnum finnist erf- itt að umgangast þig. Gleymdu þvi ekki, að karl- maður er oft ekki síður góð- ur vinur en elskhugi, og það væri alls ekki svo f ráleitt af þér að hitta vinkonu þína eða móður einstöku sinnum. Milli 350 og 300 stig: Þú ert geishan holdi klædd — til- finninganæm, blíð, þolin- móð og elskuleg. Þú skilur vel, hvað maðurinn þinn þarfnast og veitir það fús- lega, en þú lætur samt alls ekki kúga þig. Til hamingju — þú ert bæði kvenleg og að- laðandi. Milli 290 og 180 stig: Þú ert fædd til að vera eiginkona og móðir. Hjónaband þitt er vafalaust (eða verður það) mjög hamingjusamt og börnin verða að manni, þvi að uppeldið er eins og best verður á kosið. Á hitt ber svo að líta, að þú gengst mikið upp í móðurhlutverkinu og það er hætta á því, að þú þurrkir sjálfa þig út sem einstakling. Reyndu stund- um að lita á þig sem sjálf- stæða veru, sem er skemmtilegt að umgangast. Innan við 180 stig: Þú ert hreinasta gyðja — köld og fögur. Þú lifir því lífi, sem hentar þér best og það er ó- trúlega þægilegt að um- gangast þig, þvi að þú ert sjálfstæð og engum háð. Þú ert mjög sjálfsörugg og lítur á karlmenn sem jafningja þína. Karlmenn kunna vel við þig, dá þig, og verða stundum ástfangnir af þér, en þú gefur aldrei sjálfa þig tii fulls. Ertu kannski hrædd við að viðurkenna tilfinn- ingar þínar og hugsanir fyr- ir sjálfri þér? Fimmtudagur 24. janúar 1974.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.