Alþýðublaðið - 28.02.1974, Síða 3

Alþýðublaðið - 28.02.1974, Síða 3
Nú vilja tryggingafélögin fá 60-70% hækkun á bílatryggingarnar. Nýtt tryggingaár hefst á morgun, en enginn veit, hvað verður ofan á í Ijósi nýgeröra kjara- samninga telja tryggingafélögin sig þurfa að hækka iögjöld af ábyrgöatryggingu bifreiða um 60-70%. Áður var ólitið, að þau þyrftu að hækka um 40- 50%, eins og Alþýðu- blaðið hefur skýrt fró, en sú hækkun var miðuð við verðlag eins og það var á síðasta ári. Eins og kunnugt er hefst nýtt tryggingaár á morgun, 1. mars, en kröfum um hækkun iðgjalda hefur enn ekki verið skilað til stjórn- valda. Að sögn Ásgeirs Magnússonar, formanns Sambands íslenskra trygginga- félaga stafar það af því, að beðið var með að ganga frá kröfunum þar til k jarasamningar hefðu náðst. Nú sagði hann, að verið sé að vinna að þessum útreikningum, þó ýmis atriði séu enn óljós, eins og það hvort frumvarp um tvöföldun vátrygg- ingarupphæðar og tvö- foldun eigináhættu, verður samþykkt á Alþingi, og eins hvort söluskattshækkun verður samþykkt. Eftir að tryggingafél hafa sent hækkunar- beiðni sína til stjórn- valda fer hún fyrir ný- stofnaða trygginga- eftirlit, sem mun kanna það og gera tillögur um, hversu mjkil hækkun skuli leyfð, að þvi er Magnús Kjartansson, tryggingamála- ráðherra, sagði við Alþýðublaðið í gær. Allt þetta tekur vafalaust talsverðan tíma, en að því er Ásgeir Magnússon sagði við Alþýðublaðið verða tryggingafélögin að endurnýja tryggingar viðskiptavina sinna og taka nýjar frá og með 1. mars. Ekki sagði hann, að ákveðið hafi verið með hvaða hætti það verður gert, en sagðist álíta það ekki ósenni- legt, að iðgjöldin verði innheimt samkvæmt þeirri verðskrá, sem félögin vilja fá sam- þykkt, en siðan fái við- skiptavinirnir endur- greitt verði hækkunin minni — eða öfugt. Hann er rannsakandi á svipinn, strákhnokkinn á myndinni, en ljósmyndarinn neitaði alveg að gefa upp á hvað hann var að horfa. Þvi var það, að við efndum til verðlaunasamkeppni meðal starfsfólks blaðsins um besta svarið við þeirri spurningu. Eins og með þjóðhátiðarsamkeppnirnar allar reyndist ekkert svar verðlaunanna virði, en þrir starfsmenn sögðust álita að hann væri að horfa á kunningja sinn borða is. Þessir sömu þrir fóru siðan út og keyptu sér ispinna. HARÐBAKUR HEITIR HANN Eins og Alþ.bl. hefur skýrt frá, hafa þeir Björgvin Guðmundsson og Albert Guðmundsson lagt til, að BÚR kaupi sjötta og siðasta Spánartogarann af stærri gerðinni, en hann var upphaf- lega ætlaður útgerðarfélagi Akureyringa. Togara þessum var fyrir skömmu hleypt af stokkunum i San Sebastian á Spáni, og hlaut hann nafnið Harðbakur. Útgerðarfélag Akureyringa hefur óskað eftir þvi að verða leyst frá kaupsamningum að togaranum. Harðbakur er systurskip Bjarna Benedikts- sonar og annarra umdeildra togara sömu gerðar. Laus staða Staða hjúkrunarkonu á Djúpavogi er laus til umsóknar nú þegar. Laun samkvæmt launakerfi rikisins. Umsóknir sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 27. febrúar 1974. Stofnun hlutafélags um þörungavinnslu við Breiðafjörð Samkvæmt lögum nr. 107 27. desember 1973 um þörungavinnslu við Breiðafjörð hefur verið ákveðið að stofna hlutafélag er reisi og reki verksmiðju að Reykhólum við Breiðafjörð til vinnslu á þörungum eða efnum úr þörungum. Akveðið er að aðild sé heimil öllum einstaklingum cða félögum, sem áhuga hafa og geta stofnendur skráð sig fyrir hlutafé hjá iðnaðarráðuneytinu, Arnarhvoli, Reykja- vík, fyrir 8. marz n.k. Lágmarkshlutafjárframlag er kr. 10.000,-og er að þvi miðað að 1/4 hlutafjárloforðs greiðist innan viku frá stofnfuudi. Athylgi skal vakin á, að skv. 4. gr. tilvitnaðra laga geta hluthafar i Undirbúningsfélagi þörungavinnslu, sem stofnað var skv. lögum nr. 107/1972, skipt á hlutabréfum i hinu nýja hlutafélagi. Stofnfundur verður haldinn föstudaginn 15. mars n.k. kl. 10:00 i fundarsal stjórnarráðsins á þriðju hæð i Arnar- hvoli. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bílasprautun Garðars Sigmundssonar Skipholti 25. Simar 19099 og 20988. Saumanámskeið GRUNNNAMSKEIÐ t VERKSMIÐJUSAUMI hefjast við Iðnskólann i Reykjavik 11. mars næstkomandi. o Kennt verður hálfan daginn í tvcimur námshópum, ef næg þátttaka fæst. o Nántskeiðin skiptast i tvær annir, og stendur fyrri önn i fjórar vikur eða til 5. april. Siðari önn verður tvær vikur og hefst 16. april o Kennd verða undirstöðuatriði verksmiðjusaums, meðferð hraðsaumavéla og vörufræöi. Auk þess verða fyrirlestrar um atvinnuheilsufræði, vinnuhagræðingu og fleiri efni. o Þáttökugjald er kr. 1500.- o Innritun fer fram til 7. mars á skrifstofu skólans (simi 26240), sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Skólastjóri Fimmtudagur 28. febrúar. 1974. o

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.