Alþýðublaðið - 10.03.1974, Page 5
,,Ég er fædd og uppalin i ön-
unarfirði, og var þar náttúrlega
mina barnæsku, fram á ung-
lingsár, þá fór maður að reyna
að pota sér dálitið sjálfur. Ég er
fædd 1926, og þegar ég var kom-
in til vits heyrðist ekki talað um
annað en kreppu. Ég var elst sjö
systkina, og á þessum árum var
nú ekki alltaf vitað, hvort mað-
ur hefði brauðá morgun, — börn
gerðu sér reyndar ekki rellu út
af þvi, það voru foreldrarnir,
sem það hvildi meira á. En
samt sem áður held ég, að
manniifið hafi ekki verið siður
glatt, vegna þess meðal annars,
að fóik hafði þá meiri tima til að
talast við, svoleiðis, að þegar ég
ber saman tvenna tima, — i dag
og þá, — finnst mér, að þjóðlifið
hafi ekki verið verr á sig komið,
fólk hafi verulega veriö i betra
andlegu jafnvægi þá”, sagði
Hjördis, þegar við báðum hana
að segja litillega frá sjálfri sér.
„Ég gondraöi pínu-
litið viö sjó"
,,Svo er þetta furðulega, að
upplifa þetta, að framundir
strið lifðu eiginlega lslendingar
i svipuðu andrúmslofti og svip-
uðu þjóðfélagi eins og þeir höfðu
gert i þúsund ár. Á þessum tim-
um lærðu börn ýmislegt, sem er
fátiðara, að þau læri nú. Ég var
til dæmis að gondra pinulitið við
sjó. Meira var það nú til gam-
ans, en þó af nauösyn stundum,
þvi það var nauðsynlegt að fá
mat, og ég fór stundum á fjörð.
sem kaíiað var, með pabba, og
ég lærði vinnubrögðin og aö átta
mig á þvi sem var að gerast i at-
vinnuháttunum. Það varð að
nota hverja stund og hverja
vinnandi hönd, þó hún væri smá,
strax og maður gat eitthvað að
hafa ofan af fyrir sér, og þá var
maður með fullorðna fólkinu.
Það var ákaflega mikið atriði,
og ég var t.d. yfirleitt alltaf með
föður minum i starfi.
„Ég hef hitt margt gott
fólk á lifsleiðinni"
Maður skilur betur ýmsa
hluti, þegar maður litur til
baka, en þegar maður var barn
og unglingur, og ég get ekki
annað sagt en ég hafi verið
ákaflega heppin, þvi ég hef hitt
svo margt gott fólk á lifsleið-
inni. Þar verð ég fyrst og fremst
að nefna, þó mér sé málið
kannski skylt, að besti maður,
sem ég hef kynnst, er minn eigin
faðir. Það er ekki af þvi að hann
hefur talað svo margt, heldur er
það hans lifernismáti, sem
hefur verið stefnumótandi fyrir
mig að mörgu leyti hin siðari ár.
Svo er ég svo heppin, aö þegar
ég var barn var ég fjögur sumur
i sveit, að visu bara hinum meg-
O
O
O
O
O
O
O
O
O
in fjarðarins. Þar lenti ég á
alveg afskaplega elskulegu
heimili hjá konu, sem átti eftir
að hafa mikil áhrif á lif mitt, þó
ég vissi það ekki þá. Hún tók að
sér heimili systur sinnar, sem
dó frá ungum barnahópi. Hún
var á sinum manndómsárum,
og lifið blasti við henni, en hún
gerði þetta á svo óeigingjarnan
hátt, að ég held það hafi aldrei
hvarflað að henni, að þetta væri
ekki nema sjálfsagt. Og hún
kom þessu fólki öllu til manns.
Hún heitir Kristin Egilsdóttir
þessi kona og er lifandi enn, og
þú kannast kannski betur við
hana, ef ég nefni, að faðir barn-
anna, sem hún tók að sér, var
Bernharður Guðmundsson, afi
séra Bernharðar Guðmunds-
sonar, sem var æskulýðsfulltrúi
kirkjunnar.
„Hef ekki kunnað þaö,
þakka þaö fyrr en
seinna"
En svona hef ég alltaf, alla
mina ævidaga, verið að rekast á
fólk, sem er velviljað og gott og
skilið eitthvað eftir, þó ég hafi
Fyrir rúmri viku voru háttvirtir Alþingismenn islendinga hirtir á
aII eftirminnilegan hátt með hressilegum gusti vestan af fjörðum.
Þeir voru ákærðir fyrir að eyða tima sínum í fánýtt f jas, f jas um fá-
nýti, ekkert. Á þennan hátt hefur líklega aldrei fyrr verið hrist upp í
hæstvirtum alþingismönnum.
Ræðumaður var Hjördís Hjörleifsdóttir, varamaður Hannibals
Valdimarssonar á þingi, — og hún líkti hinu háa Alþingi við þriðja
leikhúsið í borginni.
Alþýðublaðið átti tal af Hjördisi í vikunni, og gefst lesendum hér á
eftir færi á að kynnast lítillega persónunni, sem veitti alþingismönn-
um svoeftirminnilega hirtingu. Og hér fyrir neðan birtist þrumuræða
Herdisar.
ekki haft vit á að skilja það á
stundinni, og þó ég þvi miður
hafi ekki kunnaö að þakka það
þá, hefur það komið til min
seinna. Og ég má ekki gleyma
að minnast á, að ég er búin að
kenna hérna i 16 ár, og ég er svo
lánsöm, að allt það fólk, sem ég
hef starfað með, er úrvals-
manneskjur, og mér svo fremri
margar, en ég vil sérstaklega
geta forstöðukonu minnar, frú
Þorbjargar Halldórsdóttur frá
Vigur fyrir allt það, sem við
köllum heiðarleik, að vera
sannorður, standa við orð sin og
vera traustur. Ég veit ég skildi
það ekki fyrst þegar ég kom
hingað, en hún hefur opnað augu
min fyrir þvi, hvað það er bráð-
nauðsynlegt, bæði fyrir okkur
og umhverfið, og það er eitthvað
það lélegasta, sem við leggjum
okkur i, að tala misjafnlega um
náungann. Það er ákaflega
mikils virði að kynnast svona
fólki, og það mótar okkur viö
löng kynni. Svo vil ég bæta einu
við. Mér finnst ég, á hverjum
vetri læra ýmsa góða hluti af
nemendum minum, þeir eru
alltaf að kenna mér eitthvað.
„Halldór á Kirkjubóli
er leiguliði minn"
Svo er ég sveitamanneskja,
það er i eðlinu liklega. Mér vildi
það lán til, að mér var boðin til
kaups jörð i önundarfirði,
Mosvellir. Þaö var 1967, sem
ég keypti hana af öðdr-
uðum bónda, sem var að
flosna upp. Ég vissi éiginlega
ekki hvað ég var að gera, þegar
ég keypti þetta, en mig hafði
alltaf langað til að eignast ein-
hvern samastað i sveit. Ég er
þarna alltaf á sumrin, og það er
alveg ómetanlegt að vera þarna
eins fuglinn frjáls, og þeir sem
þurfa að létta af sér einhverju
fargi úr stórborginni, eru nátt-
úrlega alltaf velkomnir. Og það
má geta þess, að Halldór á
Kirkjubóli er leiguliði minn.
Hann leigir af mér slægjur.
Það eru þessar viðjur, sem
mér finnst vera á alltof mörgum
Reykvikingum, streitan, sem
mér finnst einkenna Reykja-
víkurlifið allt of mikið núna. Ég
var þar langtimum saman i eina
tið, á árunum 1952—1958, og
Reykjavik þá og nú eru tvær
gjörólikar borgir. Og mér datt i
hug um daginn, að kunningjar
og vinir og frændfólk, sem ég á
þar, eru orðnir eins og fulibókað
hótel. Ef maður stansar hálfan
mánuð eða svo, er ekki vist að
það finni einhverja stund handa
manni, — og það finnur þetta
sjálft en veit ekki hvernig það á
að losa sig úr viöjunum, það er
vandinn”.
Fór í pólitik
fyrir tiljviljun
„Hvernig ferð þú inn i pólitik-
ina?”
„Satt aðsegja var það hálf til-
viljunarkennt. Mitt fólk hefur
alltaf verið vinstrisinnað fólk.
Ég byrjaði upphaflega, þegar
Hannibal var i kosningabanda-
lagi við Magnús Kjartansson og
fleiri, — en hvernig það var ná-
kvæmlega, man ég ekki. Ég
hafði allavega mjög ákveðnar
skoðanir á pólitik og var dálitið
óvægin. Ég tók til dæmis mjög
harkalega afstöðu til hægri eða
vinstri, en ég er að sjá þaö betur
og betur, eins og kemur kannski
fram i ræðunni, aö þetta er ein-
mitt ein af meinsemdunum. Ég
lét mig i það að tala hér á pólit-
iskum fundum og deila kannski
A þessari mynd og myndunum á næstu siðu er Hjördis i hópi
nemenda á matsveinamánskeiði, sem hún kenndi á, á siðastliðnu
ári.
persónulega á menn. og mér
finnst það núna, að það sé ó-
hæfa, þvi það er að minu áliti
eitt og allt fyrir islenska þjóð, að
það komi ekki upp klofningur.
Það er náttúrlega gott hjá okk-
ur, að við höfum leyfi til að
segja skoðanir okkar, en við
verðum aðvirða aðra menn þótt
þeir hafi aðra skoðun og séu á
öðrum armi, og skilja, að þeir
geta verið mætir menn. hvar i
flokki sem þeir standa.
Og þá vil ég gjarnan koma að
einu, sem ég veit ekki hvort kom
nægilega fram i ræðunni, en
hefur angrað mig seinni árin. Ef
pólitiskur andstæðingur gerir
eitthvað verulega gott, og auö-
vitað gera menn úr öllum flokk-
um eitthvað gott, þá má aldrei
viðurkenna það, að minnsta
kosti ekki án einhvers fyrir-
vara. Það er alveg fráleitt aö
halda það, að ekki sé gott fólk i
öllum flokkum, og þess vegna
finnst mér svo hroöalegt, að
þegar menn eru komnir út i
pólitik skuli þeir ekki þora að
viðurkenna þetta, þaö virðist
vera einhver viðtekin skoðun.
að þá séu menn orðnir pólitisk
viðrini, þá er maður farinn að
hlaupa út undan sér og svfkja
sinn málstað”.
Hefur ekki lengur
áhuga á að láta
Ijós sitt skina
„Gætir þú hugsað þér að fara
alveg á þing?”
► ►►►►►
Hjördis Hjörleifsdóttir: Herra
forseti! Ég vil byrja á þvi að
þakka þá vinsemd, sem mér
hefur verið sýnd. Þaö mál, sem
liggur mér á hjarta, hefur verið
þannig vaxið, að ég hef ekki get-
að komið þvi fram á annan hátt
en þennan. vegna þess hve minn
þingtimi hefur verið stuttur.
Annar mundi ég hafa flutt hér
þingsályktunartillögu. Ég vona,
að þetta tefji ekki þingstörf að
mun, þvi að mér sýnist, að það
hafi ekki legiö svo mikið á þá
daga, sem ég hef verið hér i
þinginu að koma ýmsu áleiðis,
og það verður kannske ekki á
næstunni og kannske ekki oftar,
sem ég hef tækifæri til þess að
segja fáein orðum það mál, sem
mér hvilir á hjarta.
Sem sagt, háttvirtu alþingis-
menn. Ég fékk hér i það fyrra
skipti, er ég kom inn á þing,
plagg til undirskriftar, nokkurs
konar eiðstaf, þar sem ég hét
þvi, að i öllum málum skyldi ég
fyrst og fremst fylgja sannfær-
ingu minni, bera sannleikanum
vitni að þvi marki, sem ég hef
vit og getu til. Ég tók mark á
þessu plaggi. Þess vegna hef ég
risið upp og stigiö i þennan
merkisstól, timburhólfið, þaðan
sem rödd sannleikans, visdóms
og ættjarðarástar er ætlað að
hljóma út og suður.
Hættulegur dragsúgur
1. mai fyrir tveimur árum
stóð ég á torgi og hlustaði á
hefðbundnar ræður hefðbund-
inna manna á svölum Alþýðu-
húss ísafjaröar. Að baki þeirra
voru reist þrjú stór og mikil
spjöld. Áritunin var: Frelsi,
jafnrétti og bræðralag. Hann
var hvass og vindhnútar köstuð-
ust yfir söfnuðinn. Allt i einu sá
ég, hvar jafnréttið og bræðra-
lagið hófust á loft og bárust eitt-
hvað út i buskann, i sjóinn að
likindum, en enginn hefur séð
þau siðan. Þarna var höfuð-
skepna að verki, sem þreif úr
höndum óviðbúinna manna tvö
verðlítil pappaspjöld. Hér i söl-
um hins háa Alþingis er sannar-
lega enginn goluþytur, sem
kastast að hnjúkum snjótypptra
fjalla. En það er annars konar
rok, hættulegur dragsúgur, sem
hvirlfast út úr munni háttvirtra
alþingismanna er leitast við að
þeyta út úr hverju brjósti ekki
aðeins jafnréttinu og bræðra-
laginu, heldur frelsinu lika. Sá,
sem á útkjálka býr og kemur
ekki til höfuðborgarinnar nema
á margra ára fresti, annað
hvort til að láta gera við
skemmda tönn eða sem sjaldn-
ar vill þó til, taka setu á Alþingi,
njóta þeirrar óvæntu náðar að
setjast við viskubrunninn nema
spekingum, ráðamönnum, hef-
ur þótt ýmislegt fleira i huga.
Hann langar þó gjarnan að lyfta
sér upp um leið. Ég til dæmis
var ákveðin i þvi að skjótast i
leikhús, ef timi gæfist. 1 fávisku
minni hélt ég, aö þau væru að-
eins tvö, og þangað yrði ég að
fara og kaupa mér miða. En svo
lengi lærir, sem lifir.
Aðalleikhúsið
Mánudaginn þann 18. þessa
mánaðar uppgötvaði ég allt i
einu mér til stórrar furðu, að ég
sat i aðalleikhúsinu, að visu ekki
i stúkusæti, en þó allgóðum stól.
Og án alls fyrirvara upphófst
það furðulegasta sjónarspil,
sem ég á allri samanlagðri ævi
minni hefi séð. Ekki veit ég,
hvað þessi komedia eða öllu
heldur tragedia hefur heitið.
Hafi hún verið kynnt með nafni,
þá fór það að minnsta kosti al-
veg fram hjá mér. Ég er ekki
skarpari en i meðallagi, svo að
háttvirtir þingmenn fyrirgefa
mér vonandi, þótt eitthvað hafi
farið fyrir ofan garð og neðan.
Til dæmis verð ég að játa rúmri
viku siðar að ég veit ekki hverj
ar voru aðalpersónur og hverjar
auka. Það mátti svo virða sem
háttvirtur þingmaður frú Ragn-
hildur Helgadóttir, væri
primadonna númer eitt. Henni
lá að minnsta kosti mikið á
hjarta. Hæstvirtur iðnaðarráð-
herra hafði að sögn fjölmiðla
móðgað útlenska svo freklega,
að líklega mun aldrei um heilt
gróa. Samt hef ég óljósan grun
um, að hún hafi bara verið
statisti. Aðalleikararnir hafi
allan timann staðið að tjalda-
baki, kannske með kvef, hver
veit. það er að ganga. A tima-
bili leit svo út sem senuþjófur
væri kominn i pontuna. Pétur,
háttvirtur alþingismaöur Sig-
urðsson. Ég vissi ekki fyrr hve
feiknalegur ræðuskörungur sá
maður er. Þarna fer lika allt
saman, látbragðið, hreyfing-
arnar, sem innan sviga gátu þó
alls ekki notið sin vegna
þrengslanna og siðast en ekki
sist fram úr skarandi heflað
málfar. Hann talaði um, að
Ölafur nokkur Pálmi mætti vart
lyfta læri án þess að einhverjir
menn, ég greip ekki alveg
hverjir, stjörfnuðu af
aðdáun og forundran. Hann
sagði, að hæstvirtur sjávarút-
vegsráðherra hefði slefað upp
annarri hendi með hinni til að
greiða atkvæði sitt með sátta-
bréfi Breta. Aumingi ég, sem
aðeins hafði lesið Þórberg og
Kiljan, varð að kingja þeim
beiska sannleik, að þeir menn
sem ég taldi nota tunguna af
hvað mestri iþrótt, fölnuðu i
skini þessarar nýju stjörnu. Og
má ég skjóta þvi hér inn i, að
ræða háttvirts þingmanns rétt
áðan jók enn á aðdáun mina.
Ég skal viðurkenna, þótt fá-
vislegt sé, að i upphafi hélt ég,
að einhver væri að meina eitt-
hvað. En þegar á leikinn leið,
rann upp fyrir mér sá grái sann-
leikur, að öll þessi súpa af orð-
um, allur þessi taugaveiklunar-
kenndi hávaði táknaði ekki
nokkurn skapaðan hlut, á
tveggja klukkustunda
meiningarlausan vaðal mátti
kannske hlusta i þessu virðu-
lega þjóðarleikhúsi, þegar sýn-
ingin var ekki bara ókeypis,
heldur einnig borgað þokkalega
fyrir að vera áheyrandi. Mig
varði sist, að þetta væri bara
fyrsti þáttur.
Maðkar í mysunni
En næsta dag, þriöjudaginn
þann 19, var skellt á mann senu
nr. 2. og nú voru plöggin um
ævintýri iðnaðarráðherra kom-
in i réttar hendur, svo að menn
gátu tekið til við að húðstrýkja
hvern annan i fúlustu alvöru.
Að visu var skotið inn einum og
einum aukaþætti, eins og þegar
einn aðalleikarinn skellti þvi á
vesalings stjórnina okkar, að
stefna hennar væri sú að láta fá-
visa sjómenn veiða loðnu til
þess að hafa svo ánægju af þvi
að neyða þá til að sturta henni
steindauðri i sjóinn aftur. Ekki
efa ég, að þingmaðurinn hafi
þarna talað af fyllstu sannfær-
irigu. Fljotlega i upphafi 1. þátt-
ar hafði læðst að mér sá grunur,
að hér væru maðkar i mysunni.
En þegar 2. þáttur var til enda
leikinn, var eins og hula væri
dregin af augum mér. Sá skelfi
legi sannleikur leyndist sem sé
ekki lengur, ef maður hafði
kjark til þess að sjá hann, að
fólkið, sem landsmenn hafði
kosið til þess að vinna og hugsa
af ábyrgð og samhug um
mikilsverð þjóðþrifamál, leyfði
sér að hafa uppi auðvirðilegustu
kúnstir allt i þeirri trú, að orð
þeirra og athafnir kæmust út i
fjölmiðlana, næðu til fólksins i
landinu, svo að það gæti glaðst
yfir bragðvisi og skilnings-
kúnstum foringja sinna. Hvar er
sú þjóð, sem best er komin, að
kyntir séu eldar sundurlyndis og
haturs i brjósti hennar? Hvar er
sú þjóð, sem á það skilið að vera
svikin af forsvarsmönnum sin-
um i öllum þeim málum, sem
mestu skipta? Hvar er sú þjóð,
sem á það skilið, að þingmenn
hennar séu svo óeðlilega skap-
aðir, að þeir hafi tungur tvær og
tali sitt með hvorri? Er það is-
lensk þjóð? Sé svo, þá er hún
lánlausari en ég hafði vonað.
Ég ákæri
A meðan kvöl og neyð plága
svo til hvern einasta tslending
meðvitað og ómeðvitað, blygð-
ast háttvirtir alþingismenn sin
ekki fyrir að eyða mjög svo dýr-
mætum tima i fáránlegar orða-
hnippingar út af engu. Og það,
sem verra er. Þeir vita gjörla,
að fjas þeirra snýst um fánýti,
ekkert. Emil Zola ákærði á sin-
um tima sumt af sinu fólki fyrir
andstyggð, sem það hafði fram-
ið gegn Alfreð Dreyfusi. Ég er
ekki Emil Zola, ég er ekki held-
ur háttvirtur alþingismaður
Hannibal Valdimarsson. Ég er
ekki einu sinni háttvirtur al-
þingismaður Ellert B. Schram,
og þó leyfi ég mér að hrópa út
yfir þennan þingsal, já, út til
ykkar allra. Ég ákæri hvern
einasta þingmann, er hér hefur
sæti, fyrir misnotkun á þvi
valdi, sem þeim er léð og ég á-
kæri ekki sist sjálfa mig fyrir að
hafa þagað til þessa, þó að mér
hafi ekki verið auðvelt um vik.
„Við viljum ekki deyja"
Ég nefndi kvöl og neyð. Hver
er þá sú hin mikla kvöl og neyð,
sem knýr mig til að kveða upp
svo þungan dóm yfir yður, þér
alþingismenn með leyfi
hæstvirts forseta. Grein úr Tim-
anum föstudaginn 22. febrúar
1974. Yfirskriftin er: „Viö vilj-
um ekki deyja, við viljum lifa
lengur," heyrðu lögreglumenn
barnið segja fyrir innan læstar
dyrnar:
„Um kl. 2 í fyrrinótt var
hringt til lögreglunnar úr fjöl-
býlishúsi i Vesturbænum, og
hún beðin um að koma þegar i
stað til að kanna ástæðuna fyrir
miklum látum, sem kæmu úr
kjallaraibúð hússins. Þegar lög-
regluþjónar komu að dyrum
ibúðarinnar, var þar allt slökkt
og ekkert hljóð heyrðist. En
þegar þeir lögðu við hlustirnar,
heyrðu þeir barnsrödd segja:
„Við viljum ekki deyja, við vilj-
um lifa lengur”. Var barninu
auðheyrilega mikið niðri fyrir,
og réðust lögregluþjónarnir þá á
hurðina og brutu hana upp. Þar
inni fundu þeir litla telpu og
konu, sem var með mikið sár á
höfði og yfir þeim stóð liðlega
þritugur maður. Konan skýrði
lögreglunni frá þvi, að maður-
inn, sem hún þekkti, hefði komið
i heimsókn fyrr um kvöldið,
hann hefði verið drukkinn og
veriðmeðhótanir við sig, ef hún
hætti að hafa samneyti við
hann, en það hafði hún tilkynnt
honum áður. Hann hafði haft
með sér byssu, og þegar hún
vildi ekki ræða viö hann lengur,
tók hann hana upp og skaut að
konunni skoti. Fundu lögreglu-
mennirnir far eftir kúluna i
vegg bak við sófa, sem konan
sat i, þegar hann hleypti skotinu
af. Þarna var um að ræða ein-
skotabyssu, svokallaða kinda-
byssu, og hafði hann stolið henni
i húsi, þar sem hann býr fyrir
austan fjall. Eftir að maðurinn
hafði skotið að konunni, sló hann
hana með byssunni i höfuðið og
ógnaði henni og dóttur hennar
þar til lögreglan kom. Maðurinn
var settur i járn og siðan fluttur
i fangageymslu lögreglunnar.
Við yfirheyrslu i gær neitaði
hann að hafa ætlað að skjóta
konuna, en aðeins verið að
hræða hana með þvi að skjóta i
vegginn. Hann hefur nú verið
úrskurðaður i 60 daga gæslu-
varðhald og til geðrannsóknar”.
Forkostulegt ævintýr
Og má ég skjóta hér inn i, að
nærri þvi 100% af afbrotum,
sem framin eru i þessu þjóðfé-
lagi, eru gerð af mönnum, sem
eru undir áhrifum vins og herra
Bjarki Eliasson yfirlögreglu-
þjónn upplýsti alls ekki fyrir
löngu i útvarpinu, að fslend.
væru að þvi marki frábrugðnir
öðrum þjóðum, að þeir yfirleitt
legðu aldrei á ráðin um glæpi
fyrirfram. Snertir þessi grein
um þetta litla vesalings barn og
þá konu, sem i hlut á, snertir
þetta ekki strengi i nokkurs
manns brjósti? Þorið þið — ég
segi, þorið þið að yppta öxlum?
Horfa hvert á annað og yppta
öxlum? Hafið þið um óttuskeið
haft i örmum ykkar 17 ára
stúlkubarn, grátandi kalt og
klæðvana, titrandi inni I innstu
kviku sins unga lifs af ótta við
krumlu vinguðsins, sem sett
hafa á hana sin dökku fingra-
för? Dettur einhverjum ykkar
kannske i hug að yppta öxlum
afgreiða málið á þennan and-
styggilega hefðbundna hátt.
Blessuð góða, á svona löguðu er
ekki mark takandi, það volar,
flest þetta fólk, þegar það er
orðið einum of hifað. Hefur ekk-
ert ykkar þurft að hirða pilt upp
úr forinni, séð tómleikann, ótt-
ann og vonleysið skina i gegnum
ölmóðuna. Þetta er nú skemmt-
un, sem bragð er að, skal ég
segja ykkur. Ef þið eruö alveg
reynslulaus á þessu sviði, þá get
ég fullvissað ykkur um, að þið
þurfið ekki að ganga um þvera
götu á venjulegu föstudags-
kvöldi til að tækifæri gefist á að
reyna svona forkostulegt ævin-
týr. Frelsarinn talaði um kalk-
aðar grafir. Vonandi þarf ekk-
ert okkar að taka það til sin.
Tölur. Sannfæra þær nokkurn
mann? Eitthvert langbesta
tækifæri til að blekkja og rugla
fólk svo mjög eru mjög svo mik-
ið notaðar af nútima stjórn-
málaskörungum. En örfáar töl-
ur koma sér hér samt, tiltölu-
lega auðvelt að komast að þvi,
hvort þarna er enn ein tölulygin
á ferðinni.
Þjóðartekjur og vín-
neysla
Sumir taka mark á rússnesk-
um hagfræðingum. Hvað segja
þeir? 10% minni þjóðartekjur
vegna vinneyslu. Aðrir halla sér
meira til vesturs, trúa banda-
riskri tölvisi. Þeirra hæfustu
hagfræðingar segja nákvæm-
lega það sama: 10% meira
verðmæti handa á milli væri
hægt að útrýma drykkjusýki.
Og hvað með heimaslóðir? Mælt
er af ábyrgum mönnum, er best
þekkja til, að nálægt 90% af
þeim börnum, er koma til með-
ferðar á taugadeild Barna-
spitala Hringsins, séu i þessu
sjúklega ástandi vegna
drykkjuskapar aðstandenda.
Hugsið þið, 90% af litlum börn-
um, sem eru með sjúkdóm, sem
kannske verður aldrei, aldrei á
þeirra ævi læknaður, og þau
koma til með að liða alla ævi
fyrir. Og hvað með heimaslóð-
ir? sagði ég. Má ég spyrja, úr
hverju eruð þið eiginlega gerð
herrar minir og frúr, ef þið ætlið
enn að láta sem ykkur sé þessi
skelfilega vitneskja óviðkom-
andi? Þótt margt sé hægt i okk-
ar tölvisa þjóðfélagi að mæla og
reikna út, þá veit ég ekki enn
nokkurn þann hagfræðing með
tól eða tölvu er gæti sett inn á
gataspjald kvöl og böl og sorg
þúsunda i þessu landi, sem eru i
klóm Bakkusar eða eiga sina i
þeim darraðardansi. Mér hefur
t.d. verið tjáð, að tölur þær, sem
gefnar eru út um fjölda
sjúklinga á Kleppsspitala vegna
ofdrykkju, nái og geti i rauninni
eingöngu náð til þeirra sem
beinlinis hafa verið eöa eru
haldnir þessum sjúkdómi. Á
þeim stað er það hald manna, að
eigi séu þeir færri, er þar dvelja
vegna taugaveiklunar og enn á-
takanlegri sjúkleika, sem
orsakaðist beinlinis af þvi að
hafa búið við drykkju hins sjúka
manns. þangað til jörðin skriðn-
aði undan fótum þeirra, þrekið
til að bera harmana brást. Ég
hef drepið á ungtfólk, illa komið
ungt fólk hvirflast út i svallið.
Hvað þá með hina ráðsettu,
vitru og þroskuðu kynslóð, sem
kallast nú fullorðin. Er hún ekki
fyrirmynd hinnar ungu, sem
dugir til viðmiöunar og stuðn-
ings? Maður skyldi nú halda
það.
Að nefna drottins nafn
Þingveisla fer i hönd. Hún verð-
ur liklega þurr að vanda. Von-
andi er, að þar verði einhver
ungmenni til aö læra, hvernig á
að drekka á finan máta. Hvað
höfðingjarnir hafast að, hinir
meina sér leyfist það. Úr þvi að
enginn annar hefur haft uppi
verulega tilburði til þess að
segja sannleikann um þessi
mál, þar sem þau eiga heima, er
mér það fullkomin ofraun að
þegja lengur, ekki vegna þess
að ég veit, að ég er svo sem ekki
mikil kerling, heldur einmitt
vegna þess að ég veit, að hér er
ég ekki nein sérstök stærð eða
hátt skrifuð. Óþekkt varaskeifa
komin utan af landi rétt til að
fylla út í autt sæti um hálfs
mánaðar skeið og þvi einu búist
við og ætlast til af mér, að ég
þegi og rétti upp höndina, þegar
það á við, en hafi svo vit á að
halda henni undir borði á rétt-
um stað og réttri stundu. Þó er
ég hrædd, eöa öllu heldur,
likami minn er hræddur, svo
hræddur, að fætur minir skjálfa
og ég verð að halda mér, þótt ég
treysti fótum minum til að bera
mig allt til enda þessarar tölu.
En það, sem meira er og sjálf-
sagt enn óheyrilegar, ég treysti
almáttugum guði tíl að veita
orðum minum brautargengi, sjá
til þess, að eyru ykkar heyri og
augu ykkar sjái. Og nú er ég
heldur betur búin að gefa á mér
höggstað, þvi að það mega
sannarlega vera stórar stundir i
sögu þjóðarinnar til þess að
nokkur hér hætti sér út á þann
hála is að nefna drottins nafn.
Hann á nefnilega bara heima á
ákveðnum stöðum á ákveðnum
stundum vegna gamallar hefð-
ar, t.d. i upphafi þings, þegar
allur skarinn gengur i hátiðar-
skrúða úr dómkirkjunni yfir i
alþingishúsið.
Hvílík reisn
Ég skal ekki dirfast að gera
litið úr nokkrum manni eða geta
mér til um skoðanir hans i þessu
máli. En hitt finnst mér stund-
um furðulegt, svo að ekki sé
fastar að orði kveðið, að jörðin
skuli þurfa að skjálfa og rifna og
spúa eldi og eimyrju yfir blóm-
lega byggð til þess að fólki hinn-
ar islensku þjóðkirkju þyki
óhætt að nefna guðs nafn, án
þess að halda, að það sé lagt sér
út til skammar eða athlægis, þá
hrinan er hjá liðin ætla menn
enn á ný að stjórna ferðinni og
látast þá hafa ráð undir rifi
hverju. t nafni drottins starfa
stórir skarar fólks, bæði hér-
lendis og erlendis, til hjálpar
þeim nauðstöddu, þeim, sem
vinið tók allt frá. Það þarf býsna
kokhraust fólk til að lemja höfði
við stein og segja, að þessi leið
sé svo sem ekki betri en önnur,
þegar sannað er með tölulegum
rökum, að sú aöferðin gefst svo
langtum betur en nokkur þeirra,
sem viðhöfð er eftir félagsleg-
um leiðum. Þetta fólk, sem er
brennandi i andanum og að sögn
formanns áfengisvarnarráðs si-
fellt tilbúið að rétta fram hend-
ur sinar af kærleika og óeigin-
girni, er nánast þagað i hel, fær
naumast nokkra fjárhagsfyrir-
greiðslu. Þó veit ég, að hér eru
til nokkrir menn, sem vilja gera
sitt besta, en það nægir bara svo
ógnarstutt og hið islenska fjár-
málakerfi malar svo hægt, að
meðan verið er aö ganga frá
Heródesi til Pilatusar verður
margur maðurinn úti. Hugleys-
ið og hugsunarleysið riöur hér
húsum. Þó að helftin af þjóðinni
sé á dundrandi svalli frá föstu-
degi og fram á mánudag, marg-
ir þannig á sig komnir, að þeir
mæta ekki til vinnu sinnar i upp-
hafi viku, helliö þið ykkur af
fjálgleika i fleiri klukkustunda
umr. út af þvi, hvort z eigi að
hverfa úr islensku máli eða
ekki. Hvilik reisn. Hvilik reisn á
Alþingi Islendinga. Hvernig
vogið þið ykkur að viðhafa
svona vinnubrögð og gera jafn-
framt tilkall til þess að vera virt
og mark sé á ykkur tekið. Heil
iþróttaþing leysast upp i svalli.
17. júni er drukknaður, dottinn
út úr vitund þjóðarinnar öðru-
visi en fyrirkviðanlegur dagur,
dagur þjáninga og skammar, en
ekki eru nema tæp tvö ár siðan
lögreglan varð að koma ör-
bjarga börnum til sins heima
fram á rauðamorgun að aflok-
inni þjóðhátið i Reykjavik. Þaö
virðist vera alveg gleymt.
Þjóðin fylgist með gerð-
um ykkar
Tvö ár i röð er búiö að koma
hér á framfæri frumvarpi flutt
af mönnum allra flokka um þaö,
að hæstvirt stjórnvöld þessa
lands veiti ekki vin i opinberum
veislum. Þetta á að þegja i hel.
Þess vegna kalla ég ykkur hug-
laus. Þið þorið ekki að mót-
mæla. Hugsanlegt væri, að slikt
sé ekki skynsamleg pólitik. Þess
vegna á að þegja svo lengi og
dyggilega, að máliö hreinlega
dagi uppi. Hvernig er það?,fTók
svona langan tima fyrir hv. þm.
að skammta sér kaupið sitt?
Ljósið, sem i þér er, hvar er
það? Ég vil ekki og get ekki trú-
að þvi, að þaö sé ekki lengur lif-
andi. þótt i minum augum skini
það ekki bjarl þessa stundina.
Vitið þið kannske ekki, að það
pólitiska munstur, sem islenskir
stjórnmálamenn hafa lifað og
hagað sér eftir s.l. 30-40 ár, er
vonlaus. dauft og einskis nýtt.
Veit ég vel, að það þarf að reisa
hús, hlaða vegi og byggja brýr.
Það þarf að endurbæta hafnir.
hlynna að bændum og búaliði.
sjómönnum og öðru vinnandi
fólki um allt tsland. En það þarf
fyrst og fremst að snúa sér að
þvi, sem nauðsynlegast er.
hætta að vera Marta og taka sér
Mariu til fyrirmyndar, hætta að
vantreysta hverri sál og koma
til dyranna eins og maður er
klæddur. Þjóðin fylgist með
gerðum ykkar, orðum og at-
höfnum. Verulegur hluti hennar
trúirekki lengur neinu, sem þiö
segið eða gerið. Áratuga gömul
plata hefur ekki lengur nein
áhrif á þjóðina, sem þiö eigið að
stjórna. Ef þiö sjáið þetta ekki
sjálf, þá uggir mig, að þið
verðið látin sjá þaö innan ör-
fárra ára. Þið hafið, stjórn og
stjórnarandstaða. unnið að þvi
ljóst og leynt aö gera hvort ann-
að ómerkilegt i augum þjóðar-
innar. Þvi eruð þið sjálf orðin
nokkurs konar ómerkingar.
Enginn segir. að ekki sé hægt aö
sjá að sér. Enginn segir. aö sá
þurfi endilega að vera ofurseld-
ur aðhlátri, sem áttar sig á þeim
táknum, sem sifellt eru að birt-
ast. tslensk þjóð getur smæðar
sinnar vegna verið til fyrir-
myndar, þvi að hún er nánast
litið annað en ein stór fjöl-
skylda. Þetta verður oft berlegt
á stóru stundunum. En þær eru
snöggtum færri en hinar venju-
legu mannlifsstundir.
Ég veit drottinn. að örlög
manns eru ekki á hans valdi né
það heldur á valdi gangandi
manns að stýra skrefum sinum.
Nemið staðar viö veginn. litist
um og spyrjið um gömlu göturn-
ar, hver sé hamingjuleiöin og
farið hana. svo aö þið finnið sál-
um vðar hvíld.
Ég þakka fyrir.
<r
Sunnudagur 10. marz 1974.
Sunnudagur 10. marz 1974.