Alþýðublaðið - 10.03.1974, Síða 6
fTTT
1
,,Ég get varla svaraö þessu.
Ég hef aöeins hugleitt þetta
vegna þess, að málin gætu æxl-
ast þannig. þó ég hafi ekki mikla
trú á þvi. En það eru mörg mál,
og ekki sist þetta stóra mál, sem
ræða min var byggð utan um,
sem mér er kappsmál, að fólk
fari að skilja, hvað stórt er: Það
er spurningin um þetta: Ef
maður hefur tækifæri, hvort
manni er leyfilegt aö færa sig til
hliðar og ætla öðrum að gera
hlutina. En ég held ég sé alveg
hreinskilin i þvi, að ég hef
kannski einhvern timann haft á-
huga á þvi, en ég hef ekki lengur
neina persónulega löngun til að
láta ljós mitt skina”.
Þingmenn mjög mishæfir
„Telur þú, að allir þeir, sem
eru á þingi núna, séu hæfir til
þess?”
,,Þetta er dálitið vandasöm
spurning. Mér finnst nú senni-
legt, að þeir séu mjög mishæfir,
en ég vil undirstrika, að ég held,
að i öllum flokkum séu hæfir
menn. En ég hugsa. að það lendi
alltaf annað slagið inn á Alþingi
menn. sem ekki ættu þar heima.
Og mér þótti dálitið leitt þarna
um daginn, að það eru til menn
þarna á þingi, sem ég hef alla
tið virt. Þar vil ég nefna mann
eins og Eystein Jónsson. Ég
virði hann vegna þess, að ég veit
ekki til þess, að hann hafi nokk-
urn timann reynt aö misnota að-
stöðu sina. Hann er vinnusamur
maður og heiðarlegur maður,
og af þvi mér fannst ég verða að
taka dálitið djúpt i árinni þá
hlaut ég að stugga við mönnum,
sem var ekki alveg veröskuld-
að”.
,,Ég hef heyrt, aö Eysteinn
hafi talað við þig á eftir og hálf-
partinn skammað þig fyrir
ádrepuna”.
,,Ég skal segja þér hvernig
þetta var, þvi þær eru nú svo
fljótar að fljúga fiskisögurnar
og breytast. Það eina, sem Ey-
steinn sagði mig við morguninn
eftir, á fundi með menntamála-
nefnd var, að þetta væri af van-
kunnáttu, og það væri vanda-
laust að koma svona utan að og
segja svona hluti, og honum
fannst þetta óverðskuldaö. En
hinu bætti hann við, og það
fannst mér drengilegt af hon-
um. þvi þetta er sá maður, sem
ég hefði sist viljað styggja, að
sem betur fer væri hann ekki
langrækinn.
En það sem ég var að undir-
strika i þessari ræöu, er sú skoð-
un, sem ég er komin á eftir
margra ára umhugsun og lestur
og áhrif góðs fólks og kannski
áhrif, sem ég ekki veit hvaðan
koma, er að trúa og treysta ein-
hverju sem er meira en ég er
sjálf. Það er númer eitt, og á þvi
verð ég aö byggja, og eins og ég
kem lika inn á i ræðunni, aö
Kristur á sinum tima gerir sér
grein fyrir, að við erum jarðar-
búar og jarðarbörn og við þurf-
um að sinna ýmsum verkefnum,
sem við köllum daglegar skyld-
ur og störf. En það er ekki sama
á hvaða hátt við byggjum það
sem við erum að pota, mann-
anna börn.
„Smá í minni trú"
,,Ert þú trúuð?”
,,Ég má segja það já, en að
visu má segja, aö ég sé veik i
trúnni, ósköp smá. Ég finn það
ekki sist i minu starfi, með nem-
endum minum, að þaö er ósköp
smátt, sem ég get veitt þeim ein
og óstudd, þannig að trúin er
orðin mér brýn nauðsyn, það er
svo mikill léttir að henni. Það
sem er erfitt, þar hefur maður
stuðning, og lika þegar eitthvað
gleður mann.”
,,Það er á ræðunni að sjá, að
þú ert bindindismanneskja”.
Ekki alla tíö nákvæm-
lega bindindismanneskja
,,Já, ég er það. En ég hef þó
ekki alla tið verið nákvæmlega
bindindismanneskja. Vin sá ég
reyndar aldrei sem barn, svo ég
mætti nefna þvi nafni, það var
ekki íarið með þaö á minu heim-
ili. ég var svo lánsöm, og ég var
orðin 21 árs gömul, þegar ég get
sagt, að ég sæi vin. Það skeður
þannig, að ég var þrjú ár sam-
fleytt erlendis, fyrst i Bretlandi
og siðan i Danmörku. Þar fór
fólk með vin eins og við köllum
að fara með það á finan máta,
og þetta var yfirleitt létt vin,
sherry og i mesta lagi kokktei 11
af og til, og mér fannst þetta svo
bráð-eðlilegt. Ég veit ekki hvort
ég á aðsegja, að ég hafi fundið á
mér, jú kannski smá-breytingu,
svo ég varð opnari. En á þessum
árum sá ég aldrei drukkinn
mann.
Þegar ég kom altur heim og
fór á Húsmæðrakennaraskólann
snerti engin af skólasystrum
minum vin, svo þetta datt alveg
út úr lifi minu aftur. Svo þegar
ég kom hingað vestur var ein-
staka fjölskylda, sem fór með
vin á þennan hátt, sem mætti
kalla prúðmannlegan, og mér
fannst ekkert athugavert við aö
taka sherryglas með vinum og
kunningjum. En það var ekki
fyrr en þégar ég var orðin kenn
ari og húin að vera það nokkur
ár, að vandamálið fór að koma.
Ég er húsvörður hérna og vaki
eftir stúlkunum, og þar sem
þetta var mér enginn akkur, ég
lét ekkert á móti mér, geröi ég
það bara upp við mig að láta
vinið alveg vera. Ég hugsaði
það þannig, að væri ég að fara
með vin, við skulum segja i
nokkuð sama mæli og nemend-
urnir eru skrifaðir upp fyrir og
siðan kannski reknir eftir þrjú
brot, væri það afskaplega mikil
tvöfeldni, ef ég er að ávita þær
fyrir nákvæmlega það sama og
ég er að gera.”
Þjóðin má ekki klofna
,,Ert þú fylgjandi vinbanni?”
,,Ef á ferðinni er hreinlega
þjóðarvoði, þannig aö það er
brýn nauðsyn, þá gæti vinbann
um stundarsakir hjálpað. En ég
trúi aldrei á valdbeitingu, það
sem ég trúi á er hugarfars-
breyting, það er það eina, sem
gildir til frambúðar. Það bætir
t.d. ekki ástandið að fjölga lög-
regluþjónum. þegar afbrotum
fjölgar, — það heldur þvi aðeins
i skefjum og verndar borgar-
ana”.
,,Og að lokum, til að slá botn-
inn i þetta samtal. Hver er af-
staða þin i því máli, sem nú er
efst á baugi, varnarmálunum?”
,,Það er nú ekkert leyndarmál
fyrir þá, sem þekkja mig. Ég
hef alltaf verið á móti her i land-
inu, alltaf frá fyrstu byrjun. En
ég held, að þegar allt kemur til
alls. þá skipti minna máli, þótt
einhverjir dátar séu lengur eða
skemur á islenskri grund, el'
þjóðin hefur ekki klofnaö. Það
er meira virði, að þjóðin haldi
saman sem heild, hún skiptist
ekki i tvær óvinafylkingar, þaö
er það mest ógnvekjandi, sem
getur komið fyrir nokkra þjóð.
Þá erum við i sjálfu sér her-
numin. og það gagnar litið þótt
einhverjir dátar á Keflavikur-
flugvelli fari i burtu. Ég hef
nefnilega afskaplega mikinn
mentað fyrir Islands hönd. Þá á
ég ekki við þennan gamla þjóð-
ernishroka, heldur er sérstaða
okkar einstök. Við komum hér
að hreinu og ósnortnu landi, og
þótt einhverjir írar hafi verið
hér fyrir fara ekki sögur af þvi,
að viðhöfum úthellt miklu blóði,
þegar við tókum landið. Annað
hefur mér alltaf fundist sér-
stakt, en það er kristnitakan á
tslandi. Þegar að þvi er komið
að skerast i odda, að þá skuli
menn fela einum manni að taka
ákvörðun. Hann leggst undir
feld og þegar sú ákvörðun er
tekin kemur fram sú skynsemd,
að menn megi blóta á laun.
Hann skildi, að það var ekki
hægt að draga linuna alveg. Og
það vil ég hafa lokaorð min, aö
við eignumst aftur Þorgeir
Ljósvetningagoða til að leysa
ágreiningsmál eins og varnar-
málið”.
ÞORKI
Kraftaverk
Tökum að okkur öll venjuleg „KRAFTAVERK” og jafnvel fleira. Ilöfum til þess Traktorspressur og gröfur, ásamt þrælvönum möniium. * m
Þór og Smári, _]m J_J Jnf
Vélaleiga Sími 41834 íP4C)a®
Bifreiðasala Vesturbæjar
Höfum opnað bilasölu að Bræðraborgar-
stig 22. Leggjum áherslu á öryggi við-
skiptanna. —• Látið skrá strax á sölulista.
Biiasalan Bræðraborgarstig 22.
Simi 26797.
Volkswageneigendur
Höfum f'yrirliggjandi: Bretti — Hurðir —
Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i
allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bilasprautun (iarðars Sigmundssonar
Skipholti 25. Simar 19099 og 20988.
Alþýðublaðið inn
á hvert heimili
Sunnudagur 10. marz 1974.