Alþýðublaðið - 20.03.1974, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 20.03.1974, Blaðsíða 5
LOÐNUGJALDIÐ Útgefandi: Blaö hf. Ritstjóri og á- byrgöarmaöur/ Freysteinn Jó- hannsson. Stjórnmálaritstjóri, Sighvatur Björgvinsson. Frétta- stjóri, Sigtryggur Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórnar, Skipholti 19, sími: 86666. Afgreiðsla: Hverfis- götu 8—10, sími: 14900. Auglýsing- ar, Hverfisgötu 8—10, sími 86660. Blaðaprent hf. KOSNINGABRELLAN Sjálfstæðisflokkurinn i Reykjavik hefur nú kunngert nýjustu kosningabrellu sina þá sem á að gera flokknum kleift að halda völdum áfram i Reykjavik eftir borgarstjórnarkosningar þær, er fram fara 26. mai n.k. Borgarstjórinn i Reykjavik boðaði blaðamenn á sinn fund fyrir skömmu og kunngerði kosningabrelluna. Hann skýrði frá þvi, að nú hefði verið gerð mikil ; f áætlun um að klæða borgina gróðri. Og Morgunblaðið talur nú fjálglega um hina ,,grænu byltingu” borgarstjórans. Visi var svo mikið niðri fyrir, er hann skýrði frá byltingu borgarstjóra, að hann birti mynd af Birgi inni i leiðara og sagði, að blaðamannafundurinn sýndi, að Birgir væri réttur maður á réttum stað! Blaðamannafundur borgarstjóra minnir á annan blaðamannafund, sem haldinn var i áróðursskyni á sl. ári, þ.e. hinn fræga fund Magnúsar Kjartanssonar iðnaðarráðherra, er hann boðaði iðnbyltingu. Var mikið grin gert að þeim fundi, þar eð iðnbylting Magnúsar var ekkert annað en orðagjálfur hans sjálfs um að gera ætti iðnbyltingu enda öllum ljóst, að það gerist engin iðnbylting með því einu að halda blaðamannafund. Og hið sama er að segja um grænu byltinguna hans Birgis. Það gerist engin græn bylting i Reykjavik með þvi einu að borgar stjóri haldi blaðamannafund og skýri frá þvi að teiknuð hafi verið mörg kort og samdar miklar áætlanir, sem kosta nokkur hundruð þúsund kr. Það er ákaflega ,,billegt” fyrir borgarstjórann i Reykjavik að dreifa á blaðamannafundi áætlun- um fyrir næsta kjörtimabil um framkvæmdir við uppgræðslu i Reykjavik ofl., sem kosta eiga rúmlega 600 millj. kr. Það væri eðlilegra, að Birgir tsleifur dreifði slikum kosningaáróðri á kosningafundum Sjálfstæðisflokksins en mis- notaði ekki borgarstjóráembættið i þvi skyni að miðla slikum áróðri. Vissulega eru allir Reykvikingar hlynntir þvi, að borgin sé klædd sem mestum gróðri og sem flest útivistarsvæði risi. Og allir flokkar borgar- stjórnar Rvikur hafa sýnt þvi máli meiri áhuga en Sjálfstæðisflokkurinn. En þeir hafa flutt raunhæfar tillögur um þau mál svo sem um að- gerðir á vissum svæðum eins og Elliðaársvæð- inu, en ekki verið með skýjaborgir. En Sjálfstæðisflokkurinn verðuri næstu borgarstjórnarkosningum dæmdur af verkum sinum á kjörtimabilinu en ekki áróðursritum borgarstjóra. Hann verður t.d. dæmdur af verkum sinum i Breiðholtshverfi, þar sem sam- göngumálin eru i algeru öngþveiti, þar sem hundruð barna biða eftir rými á dagvistunar- stofnunum, þar sem ekki er unnt að halda uppi boðinni kennslu vegna seinagangs i skólabygg inga málum, þar sem engin aðstaða er til i- þróttaiðkana og engin aðstaða fyrir ibúana til félagsstarfsemi. Hvernig væri herra borgar- stjóri að gerá byltingu i þessum hagsmunamál- um Breiðholtsbúa? alþýðu \mm - ER OSANNGJÖRN BRADABIRGDALAUSH Þann 6. mars sl. var til umræðu i efri deild Alþingis frumvarp rikisstjórnarinnar um að láta leggja á sérstakt gjald á loðnu, er siðan á að nota almennt i þágu út- vegs i landinu. Við þaö tækifæri tók Jón Armann Héðinsson til máls. Hann sagði m.a.: „Hæstvirtur sjávarútvegsráð- herra hefur nú gert grein fyrir þessu frumvarpi i stuttri ræðu, þó að hér sé farið inn á nýtt svið, eins og hann drap réttilega á og sagði sig i hóp þeirra manna, er var- lega vildu fara i þvi efni að láta á- kveðinn hóp ta%a á sig almenna byrði. Ég vænti, að hann muni standa við þau orð, vegna þess að hér er fitjað upp á nýju atriði i sameiginlegri lausn, sem rekstrarvandræði togaraflotans eru. Það þarf ekki að gera hv. þm. grein fyrir þvi. Ég vænti þess, að þeim sé það kunnugt, að sjávarútvegurinn hefur lagt á sig i gegnum marga áratugi, held ég, kvaðir, sameiginlegar kvaðir, þannig að menn hafa borið það hver eftir sinni getu, en jafnvel þó að bátar hafi haft erfiðan rekstur, þá hefur verið tekið af öllum þeim afurðum, eilitil prósenta og lagt i sameiginlegan sjóð, aflatrygg- ingasjóð og aðra sjóði, sem hinir auðvitað hafa lagt meira i, sem hafa aflað betur og þannig fært á milli. Nú er þetta samkomulag eða þessi venja réttara sagt, brot- in. Við, allmargir, i hópi útvegs- manna mótmæltum þessu nýmæli mjög ákveðið. En þaö var nú kokkað á öðrum stöðum og vildi nú helst enginn gangast við fað- erninu á þessu fyrirkomulagi, þegar á reyndi. Það kom greini- lega fram á fundinum, sem fjall- aði um máliö, aö enginn vildi bera ábyrgð á þessum óskapnaöi, sem vonlegt er. Við lögðum til, út- gerðarmenn. aö hinu gamla kerfi yrði haidið um sameiginlegar byrðar og við tækjum okkar stóra skerf i þvi, en þaö væri ekki fitjað upp á nýju formi. Um það stóð á- greiningurinn. Ég held, aö ég geti sagt það frá sjónarmiði þessara manna, sem deildu um þetta fyrirkomulag, að þeir voru allir tilbúnir að taka á sig ákveðnar kvaðir. en brjóta samt ekki þá grundvallarreglu, sem hefur hér gilt um árabil. að hafa þetta ekki sameiginlegt á heildarflotanum heldur láta 1500 sjómenn taka á sig svo stórar kvaðir, sem hér er um að ræða, og er óneitanlega gert af 80—90 útgeröarfyrirtækj- um einnig. Ef ekki heföi veriö fallist á þetta samkomulag, þá hefði allt runnið i verðjöfnunar- sjóð, segir ráðherrann. i fyrsta lagi deildi nú hæstv. sjávarút- vegsráðherra mjög á það. þegar viðreisnarstjórnin stofnaði sjóð- inn og fann lionum allt til foráttu, og er hægt aö fletta þvi upp og lesa það upp, ef menn vilja standa hér i löngum umræðum . Það sem skeði i fyrra var það hvoru tveggja og það liggur nú skjalfest og geta þingmenn flett þvi upp i skjölum á borðunum hjá sér, að verðlagningin á loðnunni i fyrra var útgerðinni feikilega óhag- stæð, svo að ekki sé meira sagt. Annað eins hefur liklega aldrei átt sér stað áður á tslandi, svo að það er ósanngjarnt að taka miö af þvi nú, að hún hafi hækkað núna um 50, 60—80% eða jafnvel upp i 100% eins og með frystu loðnuna. t fyrra var um tilraun að ræða. Það er allra manna mál, að sann- gjarnt væri eða okkur var sagt að rétt væri að byrja varlega og þvi heitið að hafa ekki mið af þvi sið- ar meir. t fyrra var verðlag á loðnu fyrst 1.96 kr. framan af ver- tið miðað við það verð, sem mjöl hafði selst á og lýsi. Siðan lækkaði það niður i 1.76, en þá hækkaði m.jölið bara verulega. En sjó- menn og útvegsmenn fengu ekki verðhækkunina. Það voru aðrir, sem stungu henni á sig og þaö var ekki einu sinni Verðjöfnunarsjóð- urinn, sem stakk henni á sig, heldur verksmiðjurnar. Þær munu hafa haft margar hverjar a.m.k. á aðra krónu fria út úr kg, þegar útgerðin og báturinn fengu innan við krónu brúttó og sjó- menn taka helming af brúttóafla eftir þessum skiptakjörum. Nú skeði það aftur um daginn, að verð lækkar á almennum markaði. þó að sölur hafi ekki farið fram héðan, þá segja verk- smiðjurnar upp verðinu og hrópa: eldur eldur og allt sé að fara i kaldakol og þær knýja l'ram verulega verölækkun þrátt fyrir stóraukinn rekstarkostnað við öflun. Það er bariö i gegn og þannig stendur dæmið núna, svo að afkoma bátaflotans er ger- samlega allt önnur en þegar þetta var til umræðu á sinum tima um áramót. Ég og margir fleiri, sem vorum á þessum fundi marglögö- um til, að við fengjum tækifæri til þess að leggja sjálfir eitthvaö til hliðar til þess aö mæta óvæntum áföllum. Það yrði ekki öllu skipt upp, það náðist ekki fram. Þvi miður er afkoma togaraflotans svo léleg og ég vil skjóta hér inn spurningu til hæstv. ráðherra, að hann upplýsi okkur eitthvað um störf svonefndrar togaranefndar og hann hefur sérstakan mann i sinni þjónustu, sem er kallaður sérfræðingur i útgerðarmálum og hann hefur starfað núna undan- farnar vikur og sérstaklega feng- ist við það, að mér er tjáð aö rannsaka afkomu togaraflotans og ég vil fá að vita, eftir svona margra vikna athugun, hvernig sú staða er i dag. Ég veit það og man, að hæstv. ráðherra var ekkert hrifinn af þvi á sinum tima, þegar helminga- skiptastjórnin tók upp 5 þús. kr. skattinn á bila til að leysa rekstrarvandræöi togaraflotans. Það var ekkert gert i þvi að leysa vandann sjálfan, heldur bara sagt: Gerðu svo vel. hér eru pen- ingar. Ég trúi þvi ekki. að hann ætlist til þess i dag, að það sé lagður ákveðinn skattur á og sagt: Gerið svo vel togaraút- gerðarmenn, hér eru peningar. haldið áfram. Þaö leysir vandann i augnablikinu. Viö verðum aö vita, i hverju vandinn er fólginn. Ég trúi ekki ööru. en hann hugsi eins og hann gerði fyrir 20 árum i þessu efni. Ég trúi ekki öðru. Hann felldi úr gildi 11% kvöð ina, sem fiskkaupendur áttu á herðum sér frá viöreisn og rétti fiskkaupendum á sinum tima. Ef þessi 11%) hefðu verið i dag. stæði islenska togaraútgerðin mun bet- ur að vigi. Þaö hefur margsinnis komið fram, að frystihúsin segj- ast hafa það góöa afkomu. þau segja það frjáls og óþvinguö flest hver, að þau hafi það góða af- komu. að þau geti fært á milli frá fiskvinnslunni yfir á öflunina til togaranna. Þetta þýðir það auö- vitað. að sjómennirnir sem eru á togurunum, hafa minna úr býtum en þeim ber og náttúrlega útgerð- in Íika. þvi aö á þessum minni togurum, ég tala nú fyrst og fremst um þá. þeir eru miklu fleiri. þeir eru með,nokkurn veg- inn helmingaskipti. Það er deilt núna um kjörin á þessum skipum og sumir segja. að hásetinn hafi of góöar tekjur. Ég held nú, að hann vinni fyrir sinu þarna um borö. Hins vegar get ég fallist á það, að þaö séu rök fyrir þvi að taka ákveöna prósentu eins og 3 eða 5% af brúttó afla i svo- kallað tækjagjald. eins og sumir hafa nefnt og draga þaö frá óskiptu. Það kemur bæöi þeim til góöa og útgeröinni sjálfri og þaö mundi nokkuð létta á vissum þætti, þegar i þessi skip er komið mjög mikið af tækjum til að létta vinnu og betri vinnuaöstaða hefur verið sköffuð, sem kostar auðvitað stóraukið fjármagn. En um þetta er ekki samkomulag. Þvi miður þarf aö snúast viö þessum vanda mjög skarplega. þvi að hann er mikill. en hér er verið að leysa hann til bráöa- birgða." t Fulltrúaráðið i Reykjavik auglýsi^.^," ...^ F R AM BOÐSMÁLIN Fulltrúaráð Alþýðuflokksins i Reykjavik boðar til fundar i kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20,30 að Hótel Esju. FUNDAREFNI: 1. Álit uppstilinganefndar um framboð við væntanlegar borgar- stjórnarkosningar i Reykjavik. Fulltrúaráðsfólk! Mætið vel og stundvislega. STJÓRNIN Miðvikudagur 20. marz 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.