Alþýðublaðið - 17.06.1974, Blaðsíða 1
Hvað er að vera jafnaðarmaður?
Það hefur lengi verið tiska á
Isiandi að nefna sig jafnaðar-
mann. Sumum hefur þótt það
failegt. öðrum hefur þótt það
fínt. Þegar kommúnistar
klufu Alþýðuflokkinn 1930 og
stofnuðu sinn eigin flokk,
sögðust þeir gera það af þvi,
að Alþýðuflokksforingjarnir,
kratabroddarnir, sem þeir
kölluðu svo, væru engir
jafnaðannenn lengur. Þeir,
kommúnistarnir, væru hinir
einu og sönnu jafnaðarmenn.
Þegar talsverður hluti af
leiðtogum Alþýðuflokksins
stofnaði nýjan flokk með
kommúnistaleiðtogunum 1938
og nefndu hann Sameiningar-
flokk alþýðu — Sósíalista-
flokkinn, sögðust þeir gera
það af þvi, að það vantaði
jafnaðarmannaflokk á
íslandi.Þeirog kommúnist-
árnir væru sönnu jafnaðar-
mennirnir.
Enn vantaði hinn hreina
jafnaðarmannaflokk á
islandi 1956, þegar Alþýðu
bandalagið var stofnað. Það
virtist m.ö.o. komið i Ijós, að
Sósialistaflokkurinn hafði ekki
reynst sá jafnaðarmanna-
flokkur, sem hann átti að
verða, þegar hann var
stofnaður. Þess vegna þurfti
nú nýjan flokk og nýtt nafn.
En ekki reyndist þessi flokkur
nógu mikill jafnaðarmanna-
flokkur heldur. Þá voru Sam-
tök frjálslyndra og vinstri
manna stofnuð. Sumir leið-
togar þeirra virtust samt hafa
meiri áhuga á öðru en
jafnaðarstefnu. Völd reyndust
mikilsverðari en samstaða
með verkalýðshreyfingu og
trúnaður við jafnaðarstefnu.
Og enn eru fámennir hópar
reynslulitilla manna I stjórn
málum að gefa sérskoðunum
sinum nafn og nota til þess
jafnaðarstefnuna.
Þessi misnotkun á nafni og
hugsjónum jafnaðarstcfn-
unnar hefur verið örlagarík.
Hún hefur veikt baráttuna
fyrir þcim sjónarmiðum, sem
eru kjarni og inntak jafnaðar-
stefnunnar: Hugsjóninni um
réttlátara og betra þjóðfélag
frjálsra manna á islandi.
Menn, hópar og flokkar, sem
kennt hafa sig við jafnaðar-
stefnu, hafa ekki stuðlað að
réttlæti og frelsi á islandi,
heldur valdið sundrungu, sem
hefur eflt afturhald og þröng-
sýni. Mál er til þess komið, að
skynsamir islendingar átti sig
á þessu. Það hcfur aldrei verið
til nema einn heilsteyptur
jafnaðarmannaflokkur á
islandi, Alþýðuflokkurinn.
Hann hcfur haldið merki
jafnaðarstefnunnar á lofti.
Þess sér merki á öllum
sviðum þjóðlifsins. Nú er sótt
gegn honum, og enn sem fyrr
sumpart i nafni jafnaðarstefn-
unnar. Sú sókn verður að
mistakast. Aðrir, sem á
undanförnum áratugum hafa
þóst vilja lyfta merki
jafnaðarstefnunnar, hafa ekki
gert það, heldur misnotað það
i valdatafli. Alþýðuflokknum
einum er treystandi til þess að
standa vörð um þær hugsjónir,
sem eru undirstaða sannrar,
lýðræðissinnaðrar jafnaðar-
stefnu.
GÞG
Mánudagur 17. júni 1974 J|j| 55 grg
o