Alþýðublaðið - 17.06.1974, Síða 11
kost á Djúpavogi. Papey er i
eyði en nytjuð að einhverju
leyti.
Frá Breiðdalsvik er ekið um
Breiðdalsheiði upp á Fljótsdals-
hérað. Á Egilsstöðum er við-
skiptamiðstöð héraðsins og það-
an er bilvegur um Fagradal nið-
ur á Reyðarfjörð og Eskifjörð
og siðan um Oddsskarð til Nes-
kaupstaðar. Ég geri ráð fyrir að
ekki neiti sér allir um að
skreppa þangað, enda ástæðu-
laust að flýta sér svo mikið.
Frá Egilsstöðum er lika bil-
vegur um Fjarðarheiði til
Seyðisfjarðar og það er krókur
sem margir munu áreiðanlega
taka. Sömuleiðis þykist ég vita
að flestir leggi leið sina til Borg-
arfjarðar, þar sem Dyrfjöll
tróna fyrir dalbotni inn af firð-
inum, fræg fyrir fegurð eins og
reyndar Borgarfjörðurinn sjálf-
ur, en hann þykir mér einna
fallegástur af Austfjörðum,
enda undirlendi meira þar en
annarsstaðar á fjörðum á Aust-
urlandi.
Aður en við yfirgefum Fljóts-
dalshérað skreppum við auðvit-
að i Hallormsstaðaskóg og Atla-
vik. Á Hallormsstað er meiri
skógur en annarsstaðar á ís-
landi. Ég gæti trUað að mikið
yrði um tjöld á þessum slóðum i
sumar, þvi að þarna er viða
notalegt og skjólsælt i skógin-
um. Það kæmi lika til álita að
bregða sér sem snöggvast upp
að Skriðuklaustri, þar sem
Gunnar Gunnarsson rithöfund-
ur bjó um skeið, þar á að vera
byggðasafn, ef það hefur ekki
verið flutt.
Svo liggur leiðin upp Jökuldal
og um Möðrudalsöræfi að
Möðrudal og Grimsstöðum á
Fjöllum. Þvi miður er Jón i
Möðrudal allur, sá sem byggði
kirkjuna og málaði altaristöfl-
una og gerði garðinn frægan um
langt skeið. Þar var gott að
koma og hUsbóndinn kunni vel
að taka á móti gestum.
NU er um margt að velja, þeg-
ar nálgast byggðina. Mývatn er
þarna á öðru leitinu með
Dimmuborgum, Kálfaströnd og
SlUtnesi, svo að nokkuð sé nefnt.
Þá er heldur ekki Ur vegi að
bregða sér i Grjótagjá og skola
af sér ferðarykið. Á hinu leitinu
er svo Dettifoss, mikilUðlegasti
foss landsins. Enginn sleppir
honum. Sama er að segja um
Ásbyrgi, Hljóðakletta og
Hólmatungur, hver staðurinn
öðrum betur af guði gerður. All-
ir þessir staðir freista til langr-
ar dvalar og maður verður bein-
linis að beita sig hörðu við brott-
förina.
Siðan liggur leiðin áfram
vestur á bóginn. Góður áningar-
staður er i Vaglaskógi og oft
margt um manninn. Að þvi
bUnu tekur Vaðlaheiðin við og
brátt er höfuðstaður Norður-
lands, Akureyri, i sjónmáli. Þar
munu flestir staídra við og blása
mæðinni, enda margt að skoða:
Lystigarðurinn, sundlaugin,
kirkjan, hUs skáldanna þriggja,
Matthiasar, Nonna og Daviðs
Stefánssonar, svo að nefnt sé
það sem fyrst kemur i hugann.
Að áningu lokinni á Akureyri
er um tvennt að velja. Annars
vegar að aka þjóðveginn áfram
vestur yfir Oxnadalsheiði eða
sem leið liggur norður fyrir
Kaupfélaögin eru samtök almennings, og er stjórnað eftir fyllstu
lýðræðiskröfum.
ÓlafsfjarðarmUla og taka sjálf-
sagt margir siðari kostinn, þó
að leiðin lengist nokkuð við
krókinn.
Skagafjörður er fagurt og
sögurikt hérað og erfitt að gera
honum skil á örskömmum tima.
Liklega neita fæstir sér um að
aka heim að Hólum, þeim forn-
fræga sögustað, enda varla af-
sakanlegt i svona visitasiu-
ferð. Kirkjan á Viðimýri er ein
af fáum torfkirkjum á landinu
og sjálfsagt að reka nefið þar
milli starfs og hurðar, þó ekki
væri meira. I Glaumbæ er eitt
elsta og merkasta byggðasafn
landsins og bærinn sjálfur gam-
all og fornaldarlegur, ekki sist
fyrir yngri kynslóðina, sem al-
inn er upp i nýstárlegri hUsa-
kynnum og þekkir hvorki bUr
eða eldhUs i gamla stilnum, þvi
siður alla þá muni og áhöld sem
þarna fylgja.
Margir halda sjálfsagt áfram
UtUrdUralaust vestur yfir
Vatnsskarð, þegar Skagafjörð-
ur er kvaddur, en freistandi er
þó að aka Ur fyrir Skaga og æja
einhversstaðar i námunda við
Ketubjörgin, ekki sist ef þannig
stæði á að von væri i miðnætur-
sólinni. Þetta er viðkunnanlegur
áningarstaður og Drangey á
miðjum firði.
í HUnavatnssýslu verður
Vatnsdalurinn varla sniðgeng-
inn, enda má hringaka um hann
og virða þannig rækilega fyrir
sér þennan bUsældarlega dal án
mikillar fyrirhafnar. Siðan er
upplagt að skreppa i Borgar-
virki og að Hvitserk, jafnvel
fyrir Vatnsnes með viðkomu i
Hindisvik með sel á skerjum og
hrossastóð i haga, þótt séra Sig-
urð sé þar ekki lengur að finna.
Það er nU farið að togna býsna
mikið Ur ferðalaginu og timinn
að kortast, ef að likum lætur.
Framundan er Holtavörðuheiði
og siðan tekur við hið grösuga
og gróðursæla Borgarfjarðar-
hérað. Þar er vissulega margra
kosta völ i sumarleyfi, en við
skulum láta hér staðar numið að
sinni.
Hér hefur verið gert lausiegt
riss af hringferð um landið með
tilheyrandi UtUrdUrum. Kannski
er ekki mikið á þessu að græða i
sjálfu sér. Þetta er lika frekar
gert til að vekja fólk til umhugs-
unar um möguleika i ferð sem
Meö Heimilistryggiflgu er innbu yóar m.a. tryggt gegn eldsvoóa, eldingum,
sprengingu, sótfalli, snjóskriöum, aurskriöum, foki, vatnsskemmdum, innbrotsþjófnaói o.fl.
í Hcimilistryggingu er innifalin ábyrgöartrygging fyrir tryggingataka maka
hans og ógift börn undir 20 ára aldri, enda hafi þessir aöilar sameiginlegt lögheimili.
Tryggingarfjárhæöin er allt aö kr. 1.250.000,- fyrir hvert tjón.
í Hcimilistryggingu er örorku- og dánartrygging húsmóóur og barna yngrj
en 20 ára, af völdum $lyss eöa mænuveikilömunar. Örorkubætur fyrir húsmóöur og börn,
nema kr. 300.000,- fyrir hvert þeirra vió 100% varanlega örorku.
Hcimilistrygging Samvinnutrygginga er nauðsynleg trygging fyrir öll heimili
og fjölskyldur.
SAMVINNUTRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500
þessari, heldur en semja fasta
ferðaáætlun, hver einstakur
ferðamaður getur svo betrum-
bætt rissið til samræmis við sin
áhugaefni i ferðalaginu, eftir
þvi sem timi og ástæður leyfa.
I þessu spjalli hefur fyrst og
fremst verið miðað við fólk á
venjulegum byggðabilum. Þeir
sem aftur á móti hafa yfir að
ráða stærri og sterkari farar-
tækjum eiga fleiri kosta völ,
geta t.d. brugðið sér inn i
óbyggðirnar, jafnvel suður yfir
hálendið um Sprengisand eða
Kjöl, ef svo ber undir. Slikir
lukkunnar pamfilar eru þó i
miklum minnihluta og verða þvi
ekki gerðir að umtalsefni I þess-
um hringferðarpistli.
Það er erfitt að giska á hvað
margir muni táka þátt i þessu
hringferðalagi i sumar, ef til vill
væri ekki fjarri lagi að nefna 40-
50þUsund og geta menn þá farið
nærri um bensinsopann sem
harf í feröalatJiö
SjfiS^s,
is?SaíSíh
'iii
jSSSÆ
nnn.m1 ■ ■_
mn;mnnnni m in,
unii min iiim iminmn.L
[T nri" nini FnrrnrK"
ir min nmn im
BBninn.il
EINANGRUIVARGLEH
Eramleitl ineð
FRC
Aöferö
Smiii miii
miii iiiin
ti
min iiiin
5-i%:
spr
10 úra ábyr<íð
\mm
'jfy/b' ■ ■ E1N A N G RUNÍRGLE R ■ |
Smiöjuvcgi 7 Kupuvogi.
simi 1 :iI<111 ( l líntir)
Þau eru lyftistöng atvinnulifsins i hverju héraði og hafa lyft
hverju Grettistakinu öðru meira á þvi sviði.
í starfi þeirra er ávallt vorhugur og framfarir.
Sendum félagsmönnum og landsmönnum öllum haminguuóskir á
Þjóðhátiðararinu.
Mánudagur 17. júni 1974
o