Alþýðublaðið - 17.06.1974, Side 13
eo
GRAND PRIX 1974
IbÍLAR OG UMFERÐj
maður var við, að þjöppunar-
hlutfallið hefur verið aukið, og
hefur hitakerfinu verið breytt til
bóta, en hitakerfi i loftkældan
bil er þó aldrei verulega gott.
Hitakúturinn, sem endurhitar
kælikerfið áður en það fer inn i
farþegarýmið, hefur verið
endurbættur, og er smiðaður á
. sama hátt og Sigurður
Stefánsson, sem lengi rak verk-
stæði fyrir Trabant, smiöaði
fyrir viðskiptavini sina.
Aksturseiginleikar Trabant
eru furðulega góðir, sérstak-
lega, þegar miðað er við, að
hann er á þverfjöðrum að
framan og aftan og ekki nema
615 kg að þyngd. Sjálfsagt
, kemur þar aðallega til fram-
hjlóladrifiö, en að aftan eru
hjólin á pendúlörmum og
örmum, sem liggja beint fram.
Tannstangaskýringin gerir
bilinn mjög fástan i rásinni i
þjóðvegaakstri og nokkuð lipran
i innanbæjarakstri, en þó er
hann helst til >ungur i stýrinu.
Litlar sem engar breytingar
hafa orðið á bilnum, eins og fyrr
segir, en þó hafa sætin verið
bætt talsvert, sérstaklega fram-
sætin. Þau halda vel að lik-
amanum, og bökunum er hægt
að halla aftur og stilla þau eftir
þörfum. Mælaborðið er alveg
óbreytt, og það verður að teljast
galli, að enn er ekki kominn
bensínmælir, og ennþá er i hans
Scheckter sigraði í Svíþjóð -
Svíinn Peterson varð úr leik
Grand Prix fyrir „for-
mula 1" bíla fór fram á
Anderstorp í Svíþjóö á
sunnudaginn. Sigur-
vegari varð Jody
Scheckter frá Suður-Af-
ríku, en Svíinn Ronnie
Peterson, sem er nú sjötti
í heimsmeistarakeppn-
inni með 10 stig, varð að
hætta keppni eftir níu
hringi vegna bilunar í
bílnum, sem er af
gerðinni Ford Lotus.
Emerson Fittipaldi,
sem var stigahæstur fyrir
keppnina, jók forskot sitt
upp í 27 stig með því að
verða fjórði og fá þrjú
stig. Daninn Tom Belsö,
tókst nú í fyrsta sinn að
Ijúka keppni í Grand
Prix, náði áttunda sæti.
Hann tók fyrst þátt í S-
Afríku Grand Prix í vor
en varð að stoppa á f yrstu
metrunum vegna bilunar
í bílnum.
ökumönnum Ken
Tyrrel tókst vel upp nú í
fyrsta sinn eftir að Jacie
Stewart hætti að keppa,
en bílar frá honum voru í
fyrsta og öðru sæti. Sá
sem náði öðru sæti er
Patrick Depallier frá
Frakklandi. Scheckter
hlaut tíu stig fyrir þennan
sigur sinn og komst upp í
þriðja sæti í
heimsmeistarakeppninni
ásamt Niki Lauda frá
Austurríki, og Depallier
komst í sjötta sæti ásamt
Ronnie Peterson. Röð sjö
fyrstu á Anderstorp var
þannig:
1. Jody Scheckter, S.-
Afríku, Tyrrel-Ford, 80
hringir, 1 klst. 58 min
31.391 sek. 9 stig.
2. Patrick Depallier,
Frakkl., Tyrrel-Ford,
1:58:31.771, 6 stig.
3. James Hunt, Englandi,
Hesketh Ford,
1:58:34.716. 4 stig.
4. Emerson Fittipaldi.
Brasilíu, Mc-Laren-Ford,
1:59:24.898. 3 stig.
5. Jean-Pierre Jarier,
Frakklandi, Shadow-
Ford, 1:59:47.794. 2 stio
6. Grahan Hill, Englandi
Lolaö Ford, 79 hringir. 1
stig.
Þá er staðan i heims-
meistarakeppninni
þannig:
1. Emerson Fittipaldi,
27 stig, 2. Clay Regazzoni,
22 stig.
3. Niki Lauda, 21 stig, 3.
Jody Scheckter, 21 stig.
5. Denis Hulme, 11 stig,
6. J.P. Beltoise, 10 stig.
6. Ronnie Peterson, 10
stig, 6. Patrick Depallier.
10 stig, 9. Mike Hailwood,
9 stig. 9. Carlos
Reuteman, 9 stig.
Trabant á ferð
(Ijósm. Friðþjófur).
ER ARFTAKI GAMLA FOLKS
VAGNSINS KOMINN FRAM Á
SJÓNARSVIÐIÐ?
stað varatankur, sem stillt er á
þegar aðaltankurinn er tómur.
Girstöngin er á sama stað, þ.e.
kemur út úr mælaborðinu við
hliðina á stýrinu og er raunar
samsvarandi stýrisskiptingu.
Giraröðin er öfug eins og áður,
þ.e. fyrsti gir er frá og niður og
fjórði gir að og upp. Þessi
skipting er mjög lipur, þegar
menn fara að venjast henni.
Segja má, að tæknilega hafi
Trabant staðnað þar sem hjóla-
búnaður og vél hafa litið breyst
frá þvi um 1960. í fyrsta lagi
hafa allar aðrar verksmiðjur
hætt við tvigengisvélina, sem
sumum likaði reyndar vel við og
hefur sina kosti. Hinsvegar er
hún þannig i eðli sinu, að
mörgum er heldur i nöp við
hana, og hversvegna taka þeir
sig ekki til hjá Zwikau og fram-
leiða litla og netta fjögurra
strokka, vatnskæida fjórgengis-
vél? Liklega er ástæðan sú, að
þeir þurfa þess ekki, Trabantinn
selst eins og heitar lummur i
Austur-Evrópu, og liklega vilja
þeir heldur halda verðinu niðri á
kostnað tæknilegrar full-
komnunar.
Verðugur arftaki
Volkswagen „bjöllunnar"
kom fram á sjónarsviðið
nú nýverið, og er það álit
manna, að honum sé ætlað
að koma í staðinn fyrir
hann, þótt forráðamenn
VW verksmið janna í
Wolfsburg beri eindregið á
móti því. Gamla Fólks-
vagninn segjast þeir ætla
að framleiða enn um óá-
kveðinn tíma. Þessi heitir
Volkswagen Golf, og von
er á, að farið verði að selja
hann hér á landi í
september í haust. Verðið
er ekki ákveðið ennþá, en
líklega verður bíllinn
dýrari en VW 1303, sem
kostar nú um 540 þúsund
krónur.
Lengi hefur verið talað um, að á
næsta leiti sé arftaki gamla met-
sölubilsins Volkswagen. Hann
hefur þó látið standa á sér, og
einmitt þetta hefur valdið þeim
hjá Wolfsburg talsverðum höfuð-
verk. Þeir gera sér grein fyrir
þvi, að með þvi að framleiða
þennan vinsæla og lifseiga bil,
„grunnmódel 1” i hartnær 40 ár,
hafa þeir kennt öðrum i bila-
iðnaðinum mikilvæga lexiu. Hún
er sú, að flestir þeir, sem kaupa
sér bila, eru fyrst og fremst að
kaupa fyrir sanngjarnt verð
farartæki til að flytja fjölskyld-
una milli staða og hugsa ekkert
um og gefa ekkert fyrir tækni-
legar nýjungar, né aksturseigin-
leika. Þessum kröfum hefur
Volkswagen fullnægt, — en hin
siðari ár hafa lika margir aðrir
bilaframleiðendur fullnægt þeim.
Það hefur orðið til þess, að
framtið gamla Volkswagen er
ekki eins trygg nú og áður.
Enda hefur reyndin verið sú, að
á undanförnum árum hefur
Volkswagen orðið að vikja fyrir
tæknilega fullkomnari bilum i
hverju landinu á fætur öðru, —
nema helst Bandarlkjunum, en á
þann markað er ekki treystandi
vegna gifurlegrar aukningar á
innflutningi litillaevrópskra bila.
Þeir hjá Wolfsburg hafa reynt að
skapa nýjan Volkswagen og mis-
tekist, en loksins fundu þeir
manninn, sem tókst það. Það var
Wilhelm Kraus, og þeir náðu i
hann til Brasiliu, en áður hafði
hann unnið fyrir Audi. Fyrir
Wolfsburg skapaði hann fyrst
Passat, sem er að mestu leyti eins
og Audi, en siðan kom VW Scir-
occo.
Hvorugur þessara bila gat þó
komið i stað gamla Volkswagen
sökum þess, að þeir voru of stórir
og það var ekki fyrr en nú nýlega,
þegar VW Golf var kynntur, að
segja mátti, að hann fengi verð-
ugan arftaka. Þeir hjá Volks-
wagen segjast þó alls ekki vera á
þeim buxunum að hætta að fram-
leiða gamla fólksvagninn á næst-
unni, þótt þeir geti ekki leynt.-1
þeim framtiðarvonum, sem þeir
binda við Golf. Aætlað er, að fljót-
lega verði framleiddir 3000 Golf á
dag, og er þá ekki erfitt að
imynda sér, að það muni að
einhverju leyti gánga út yfir
söluna á þeim gamla. Þó er óvist,
hvað verður hér á landi, þvi
samkvæmt upplýsingum Ingi-
mundar Sigfússonar, forstjóra
Heklu, verður Golf dýrari en VW
1303, þegar hann kemur hingað,
sem reiknað er með að verði i
september. VW 1303 kostar nú um
540 þúsund krónur, svo VW Golf
verður talsvert nærri 600 þúsund-
unum.
Ekki er ætlunin að fara út i
nákvæma lýsingu á VW Golf nú,
— það biður þar til við fáum tæki-
færi til að prófa hann. En sé litið i
fljótheitum á helstu tæknilegar
staðreyndir má nefna, að vélin er
að framan, vatnskæld og drifið á
framhjólunum. Þá er vélin þvers-
um, en það er gert til þess að fá
meira pláss inni þótt billinn sé
talsvert styttri en gamli VW. Með
þessum tæknilegu atriðum er VW
kominn i harða samkeppni við
fjölda smábila, en að öllum
likindum var það eini leikurinn i
stöðunni, bæði vegna þess hvað
þessi tilhögun gefur miklu betri
aksturseiginleika en afturmótor-
inn, og einnig getur ekki einu
sinni Volkswagen leyft sér að
framleiða bila, sem hafa ekki
almennilega miðstöð.
Golf verður hægt að fá með
tvennskonar vélum, — 1100 ccm
sem er 50 DIN hö og 1500 CCM
sem er 70 hö. Billinn með 1100
ccm vélinni er kallaður Golf og
Golf L, en með stærri vélinni Golf
S og Golf LS. Teikningin er Itölsk,
hönnuðurinn er Giergio Giugiaro.
Niki Lauda veifaði í mark, þegar hann sigraði Grand
Prix á Spáni, en það var fyrsti Grand Prix sigur hans. Að
þessusinni gat hann ekki lokið keppni á Ferrari bíl sín-
um, en samt sem áður er hann í þriðja sæti í heildar-
keppninni.
Mánudagur 17. júni 1974