Alþýðublaðið - 27.06.1974, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 27.06.1974, Blaðsíða 7
STEFNA ALÞVDUFLOKKSINS HÖTAST AF TILLITI TIL ÖRVGGIS OG ÞJÖBERNIS Viðtal við Jónatan Þórmundsson, prófessor um varnarmál og fleira Jónatan Þórmundsson er prófessor i lögfræði við Háskóla Islands, 36 ára að aldri. Hann starfaði um tima i Framsóknar- flokknum og sat meðal annars i stjórn Sambands ungra Fram- sóknarmanna, en hefur verið ut- an flokka siðan 1972. Jónatan er einn þeirra sem i vetur gengust fyrir undirskriftasöfnuninni Var- ið land. Alþýðublaðið spurði Jónatan, hvort hann teldi hið mikla fylgi við undirskriftasöfnunina tákna kröfu um óbreytta skipan varnar- liðsins. I fyrsta lagi tel ég, að það tákni andmæli gegn stefnu núverandi stjórnar i varnarmálum og ótimabærum áformum hennar um að visa varnarliðinu brott eða segja upp herverndarsamningn- um við Bandarikin. Ég tel engan vafa á þvi, að allir þeir sem skrif- uðu undir, vilja, að Islendingar taki virkan þátt i samstarfi vest- rænna þjóða. A sama hátt er ljóst, að enginn Islendingur er þvi meðmæltur, að á íslandi sitji er- lendur her um aldur og ævi, og ég hygg, að fæstir þeirra, sem undir skrifuðu, vilji aukin umsvif varnarliðsins umfram þær lág- marksvarnir, sem við búum við nú. Það, hvernig vörnum er fyrir komið, hverjir annast þær og hversu lengi þær vara, er sum- part komið undir ástandi mála i heiminum og sumpart undir þvi, hvaða hátt Islendingar telja best samrýmast hagsmunum sinum Þótt stefnuyfirlýsing Varins lands væri miklum mun skýrari en andstæðingarnir vildu vera láta, er ljóst, að kröfu hennar má uppfylla á fleiri en einn veg, t.d. að þvi er varðar samsetningu og þjóðerni varnarliðsins, yfirstjórn varnarstöðvarinnar o.s.frv. Telur þú þá undirskriftasöfnun- ina ekki fela i sér andmæli gegn stefnu Alþýðuflokksins um endur- skoðun varna landsins? Ég tel stefnu Alþýðuflokksins i þessu máli mótast bæði af tilliti til öryggishagsmuna tslands og til menningar- og þjóðernislegra á- stæðna. Ég fæ ekki séð, að hún brjóti á neinn hátt i bága við yfir- lýsingu Varins lands. Þingsályktunartillaga Alþýðu- flokksins felur i sér, að gerð skuli rannsókn á hinum ýmsu þáttum varnarmálanna. Ég man ekki betur en utanrikisráðherra hafi áformað, að láta fara fram rann- sókn á efnahags- menningar- og öryggishlið varnarmálanna, en mér er ekki kunnugt um, að hún hafi verið birt enn sem komið er. Hvað olli þvi, að leiðir þinar og Framsóknarflokksins skildi fyrir tveimur árum? Ég vil geta þess, að ég var fé- lagi i Framsóknarflokknum ein- ungis i fimm ár, 1967—72, enda þótt ég hafi fyrir þann tima haft á mér nokkurn Framsóknar- stimpil. Ég kynntist i Fram- sóknarflokknum mörgu ágætu fólki og á þaðan góðar minningar, ekki sizt frá starfi minu við Fé- lagsmálaskólann. Ástæðurnar til þess, að ég hvarf aftur úr flokkn- um eftir stuttan starfsferil, eru margvislegar. Mér fannst sam- starfið við ýmsa aðila innan flokksins mjög hvimleitt. Þá má nefna, að mér þótti nokkuð á það skorta, að stefna flokksins i sum- um málum, einkum varnarmál- um, væri nægilega skýr. Virðist reyndar, sem Framsóknarmenn hafi, ef markað er af skrifum Timans og ræðum forustumanna flokksins, stefnt að þvi að leggja niður varnir. Ég harmaði það alltaf, hversu erfiðlega flokknum gekk að komast að efnislegri niðurstöðu i hinum ýmsu þjóð- málum og ennfremur hvað al- mennir flokksmenn höfðu i raun litið að segja um stefnumótunina. Meðan ég starfaði i Framsóknar- flokknum hafði ég engin áform um að halda áfram i stjórnmálum eða taka á mig meiri háttar trúnaðarstörf, en fyrir gagnrýni mina á ýmislegt, sem miður fór i flokksstarfinu, var ég bæði sak- aður um að vera hættulegur vinstrisinni og framagosi. Það má auðvitað segja, að ég hefði ekki þurft að ganga úr Fram- sóknarflokknum þrátt fyrir veru- lega óánægju, en mér finnst miklu hreinlegra að yfirgefa flokk, þegar maður er ekki ánægður. Það fer þá eftir atvik- um, hvort maður haslar sér völl i nýjum flokki eða stendur utan allra flokka. Hvers vegna fylgdir þú ekki fyrri samstarfsmönnum þinum i SUF yfir i Möðruvallahreyfing- una? Auðvitað verður að hafa i huga, að í okkar hópi voru menn ekki, fremur en annars staðar, á eitt sáttir i öllum þjóðmálum, þótt forusta Framsóknarflokksins virtist lita þannig á. Ég var og er enn sammála þeim um margt I þeirra gagnrýni á vinnubrögð innan Framsóknarflokksins. En um annað var verulegur ágrein- ingur, svo sem um varnarmál. Ég var lika löngu hættur störfum i þessum hópi, þegar Möðruvalla- hreyfingin kom til, og kom aldrei til tals, að ég yrði þar með. En horfir þetta kannski öðru visi við, þegar þeir verða epdan- lega gengnir úr Framsóknar- flokknum og e.t.v. i SFV? Að þvi er mig varðar, þá tók ég fram, aðég varhætturstjórnmála- afskiptum i bili, þegar á þessu stigi er þessi klofningur varð, og allt óvist um frekari þátttöku i stjórnmálum. Það er þó alveg ljóst, að ég get ekki átt samleið með þeim vinstriframsóknar- mönnum, sem hafa stofnað Möðruvallahreyfinguna. Um sumt hef ég verið þeim ósammála lengi, svo sem varnar- og öryggismál, og um önnur mál sið- ar, svo sem baráttuna fyrir við- haldi núverandi vinstri stjórnar. Ert þú kannski ekki vinstri maður? Þvi vil ég helzt hvorki svara með jái eða neii. Ég tel fyrir það fyrsta, að varnir landsins standi i engu samhengi við vinstri eða hægri i þjóðmálum. Vinstri og hægri eru óljós hugtök, sem fyrst og fremst snerta afskipti rikis- valdins af atvinnulifinu, skiptingu þjóðarteknanna, stjórn atvinnu- tækjanna og samfélagshjálp. við þá, sem minna mega sin. Þótt ég sé fylgjandi tiltölulega frjálslegu atvinnukerfi, sem miðist við is- lenzkar aðstæður, tel ég mig með hliðsjón af skilgreiningu minni fremur vera vinstri mann. En vilji menn skipta þjóðinnieftir af- stöðu til varnarmála i hægri og vinstri, verð ég að telja mig hægri mann vegna mikilvægis þess máls. A-lista fagnaður A-listinn efnir til baráttusamkomu i Skiphól, Hafnarfirði fimmtudaginn 27. júni kl. 20.30. Dagskrá: Ávörp flytja Erna Friða Berg Hrafnkell Ásgeirsson Jón Ármann Héðinsson Karl Steinar Guðnason Kjartan Jóhannsson Fundarstjóri: Guðmundur Árni Stefánsson. Skemmtiatriði: Ómar Ragnarsson og Fiðrildi. SAMSTADA MERKIR SIGUR Alþýðuflokkurinn og uppbótarsætin Reglur um úthlutun uppbótarsæta Reglurnar um úthlutun upp- bótarþingsæta eru allflóknar, en skipta verulegu máli, ekki síst fyrir Alþýðuflokkinn sem fær að- allega uppbótarmenn. Þvi er ekki úr vegi að rifja upp reglurnar og taka úthlutun uppbótarsæta til Alþýðuflokksins 1971 sem dæmi um notkun þeirra. Alþýðuflokkurinn fékk 1971 11.020 atkvæði, eða 10,5% gildra atkvæða, en ekki nema 2 þing- menn kjördæmakjörna, Gylfa Þ. Gislason i Reykjavik og Jón Armann Héðinsson i Reykjanes- kjördæmi. (Gylfi náði kjöri nokk- uð örugglega, en Jón Armann var siðasti þingmaður stns kjördæmis og komst að vegna heppilegrar atkvæðaskiptingar andstæðing- anna). Af þeim 11 uppbótarþingsætum, sem úthlutað er til jöfnunar milli flokka, fékk Alþýðuflokkurinn 4, sem er meira en nokkur annar flokkur hlaut, og má af þvi sjá, að kjördæmaskipunin er honum mest i óhag. Þarna koma upp- bótarsætin til leiðréttingar, en þeim er þannig úthlutað, að sem jöfnust atkvæðatala sé á bak við þingmenn allra flokkanna. En uppbótarsæti fær þó enginn flokk- ur, nema hann komi að a.m.k. einum þingmanni kjördæma- kjörnum. Þess vegna er nú jafn- vel talið hugsanlegt, að Alþýðu- flokkurinn falli alveg út af þingi, þótt flestir spái honum a.m.k. á- þekku fylgi og hann fékk siðast. Svo er að finna, hverjir af hin- um föllnu frambjóðendum flokks- ins risa upp sem uppbótarþing- menn. Þar er til skiptis farið eftir atkvæðaf jöída, sem frambjóö- anda er reiknaður, og hlutfalli hans af gildum atkvæðum i kjör- dæminu. Fyrsti uppbótarþingmaður Al- þýðuflokksins (og um leið fyrsti landskjörinn þingmaður) varð Eggert G. Þorsteinsson, þvi að hann hafði hæsta atkvæðatölu, nefnilega helminginn af atkvæð- um flokksins i Reykjavik (af þvi að hann var i öðru sæti listans) eða 2234 atkvæði. Annar uppbótarþingmaður flokksins varð Pétur Pétursson, þvi að hann hafði hæsta atkvæða- hlutfallið, 11%. Þriðji varð svo Stefán Gunnlaugsson, þvi að hann hafði mesta atkvæðafjöldann (að Eggert Þorsteinssyni frágengn- um), 1310 atkvæði, þ.e. helming af atkvæðafjölda flokksins i Reykjaneskjördæmi. Fjórði varð Benedikt Gröndal á næsthæsta at- kvæðahlutfalli, 10,8% gildra at- kvæða i Vesturlandskjördæmi. Ef Alþýðuflokkurinn hefði feng- ið fimmta uppbótarmanninn, hefði það orðið Bragi Sigurjóns- son, enda varð hann fyrsti vara- maður landskjörinna þingmanna Alþýðuflokksins og hefur sem slikur setið meira og minna á hverju þingi siðan. Það hefði hann orðið út á atkvæðafjölda (1147 atkv.), en reyndar hefði hann lika staðið næstur, þótt farið hefði verið eftir hlutfalli (með 10,1%). Reyndar hafði Sigurður Guðmundsson fleiri atkvæði en Bragi (þriðjung af atkvæðunum i Reykjavik eða 1429 1/3 atkv.), en hann kom ekki til greina, þvi að enginn flokkur má fá tvo upp- bótarþingmenn i sama kjördæmi. Tvö kjördæmin, Reykjavík og Reykjanes, hafa langfæsta þing- menn miðað við atkvæðafjölda. Þess vegna falla þar frambjóð- endur, sem hafa miklu fleiri at- kvæði en þeir, sem ná kjördæma- kjöri annars staðar á landinu. Þannig er alltaf við þvi að búast, að fyrsti og þriðji uppbótarmaður hvers flokks sé úr þessum kjör- dæmum. (Hefði til dæmis Björn Jónsson misst 130 af atkvæðum sinum yfir til Alþýðuflokksins og fallið fyrir Braga Sigurjónssyni, hefði hann ekki orðið þriðji upp- bótarmaður Samtakanna, þrátt fyrir 11% atkvæða, heldur Hall- dór S. Magnússon i Reykjanes- kjördæmi). Þó er hugsanlegt, að þriðji uppbótarmaður sé úr Norðurlandskjördæmi eystra (eins og hjá Sjálfstæðisflokknum 1967), eða Suðurlandskjördæmi, ef frambjóðandi i Reykjaneskjör- dæmi verður annar uppbótar- maður (á hæstu hlutfalli). Þessi tvö kjördæmi standa lika best að vigi að ná i fimmta uppbótarþing- mann flokks. Fimm manna kjördæmin (þau litlu að viðbættu Reykjaneskjör- dæmi) hafa besta aðstöðu til að koma að öðrum og fjórða upp- bótarmanni, en Suðurlandskjör- dæmi og Norðurlandskjördæmi eystra koma þareinnig til greina. En útilokað er, að Reykjavikur- frambjóðendur komist i þessi sæti. Þeir verða nefnilega kjör- dæmakjörnir með 7—9% at- kvæða, en annars staðar falla frambjóðendur með 10—15%, og ganga þeir fyrir i þessi sæti. Fylgistilfærslur geta haft flókin og jafnvel óvænt áhrif á það, hverjig verða þingmenn, ekki sist fyrir litlu flokkana. Ef til dæmis Pétur Pétursson hefði misst 56 af atkvæðum þeim, sem hann hlaut 1971, hefðu bæði Benedikt Grön- dal og Bragi Sigurjónsson verið komnir með hærra atkvæðahlut- fall en hann. Benedikt hefði þá orðið annar uppbótarmaður, Bragi fjórði, en sá fimmti (vara- maðurinn) hefði orðið Karl Guð- jónsson i Suðurlandskjördæmi. A sama hátt hefði Benedikt Gröndal ekki mátt við þvi að missa 50 at- kvæði. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði til dæmis unnið 10% af fylgi and- stæðinga sinna i' Reykjaneskjör- dæmi, hefði Ölafur G. Einarsson náð þingsæti Alþýðuflokksins þar. Þá hefði Jón Ármann Héðinsson orðið fyrsti uppbótarmaður Al- þýðuflokksins (með vitund fleiri atkvæði en Eggert G. Þorsteins- son), Eggert þriðji, en Stefán Gunnlaugsson dottið út, þvi að tveir uppbótarmenn mega ekki vera úr sama kjördæmi. Alþýðu- flokkurinn hefði þá fengið fimmta uppbótarsætið, og hefði Bragi Sigurjónsson skipað það, en Birg- ir Finnsson (með 9,1% atkvæða i Vestfjarðakjördæmi) orðið vara- maður. Ef þetta hefði gerst samfara þvi, að Alþýðuflokkurinn hefði fengið svo sem 100 atkvæðum meira i Reykjavik hefði Eggert orðið fyrsti uppbótarþingmaður Jón Ármann annar (á hlutfalli), Bragi þriðji (á tölu), Pétur Pétursson fjórði (á hlutfalli), Karl Guðjónsson fimmti á tölu, með aðeins 6 atkvæðum fleira en Benedikt Gröndal) og Benedikt varamaður. Þannig er að mörgu að hyggja, þegar Alþýðuflokksfólk viða um land veltir fyrir sér möguleikun- um á þvi að fá sinn frambjóðanda fyrir uppbótarþingmann. o Fimmtudagur 27. júní 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.