Alþýðublaðið - 09.08.1974, Síða 8

Alþýðublaðið - 09.08.1974, Síða 8
Myndin er tekin I fyrri leik iiðanna, sem fram fór i Eyjum og lauk með jafntefli. Nýja felliö er i baksýn, og eins og sjá má, rýkur enn úr öskunni. Ljósmynd: Guðni Sigfússon. KR gegn ÍBV í kvöld Leikurinn átti að fara fram á morgun en var flýtt vegna þjóðhátíðar Eyjaskeggja I kvöld leika KR og ÍBV á Laugardalsvellinum, en leiknum var flýtt að ósk Eyjamanna, sem halda þjóðhátið sina nú um helg- ina. Upphaflega átti leikurinn að fara fram á morgun kl. 14:00, en verður eins og áður sagði i kvöld og hefst kl. 20.00. Þeir leikir, sem eftir eru, verða allir miklir baráttuleikir. Tvö lið- anna eru að berjast um toppinn, en hin liðin heyja öli mikla fall- baráttu, og er staðan sú, að öllgeta þau fallið enn nema tvö efstu lið- in, sem eru búin að tryggja sig fyrir falli. Þannig er staðan nú i I. deild- inni, en athuga ber að leikur Vik- ings og IBK er ekki i töflunni: Eim er mót j H til | Drengja- stúlkna- sveina- og meyjameistaramót lslands i frjáisum iþróttum fer fram á Laugardalsveilinum dagana 10. og 11 ágúst nk. og hefst kl. 2 báöa dagana. Mót þetta átti upphaflega aö halda á Akra- nesi og var þaö ákveöiö á siö- asta hausti, en þar sem iþróttavöllurinn I bænum er ónothæfur varö aö flytja mótiö til Reykjavikur. Stjórn FRÍ er þakkiát vallarstjóra og öörum sem geröu þaö kleift aö mótiö fer fram á Laugardaisvelli aö þessu sinni. (Frá FRl.) Enn er máli Elmars Þaö aö Elmar Geirsson lék meö sinum gömlu félögum i Fram nokkra leiki viröist ætla aö draga nokkurn dilk á eftir sér. Hér er hann aö sækja aö marki Eyjamanna á Laugardalsvellinum. Bifreiðastjórar Okkur vantar bifreiðastjóra. Þurfa að hafa réttindi til aksturs strætisvagna. Uppl. i simum 20720 og 13792. Landleiðir h.f. frestað „Við biðum eftir gögnum frá FIFA um málið,” sagöi Bergur Guðnason sem mun vera einn af þeim sem mun dæma I máli Elm- ars Geirssonar. „Ég á von á að niðurstaða liggi fyrir einhvern næstu daga, og ekki siðar en eftir viku verður að vera búiö að dæma i málinu.” Telja má fullvist að FIFA eða Alþjóðaknattspyrnusambandiö muni telja þátttöku Elmars með tveimur liðum ólöglega og um leið gera afstöðu dómstólsins bindandi. Björgvin Þorsteinsson aðeins sem varamaður í landsllðinu í golfi sem nú hefur verið valið Landsliðsnefndin i golfi hefur nú valið golflandslið og styðst landsliðsnefndin eingöngu við stigatöflu GSI, en þar er Björgvin neðarlega á blaði vegna þess að hann hefur tekið þátt I fáum stór- mótum i sumar. Val þetta kemur á óvart, þar sem Björgvin hefur sennilega aldrei verið betri en einmitt um þessar mundir. Er þá skemmst að minnast árangurs hans hér heima og erlendis, þá i Norður- landamóti unglinga, en þar stóðu allir islensku keppendurnir sig með mikilli prýði. Þannig valdi nefndin liðið, Jóhann Benediktsson GS Ragnar ólafsson GR Þorbjörn Kjærbó GS Loftur ólafsson NK Hans ísebarn GR Siguröur Thorarensen GK Varamenn eru Björgvin Þorsteinsson GA og Júiius R. Júliusson GK. ÍBK og Víkingur skildu jöfn Keflvlkingar og Vikingar skildu jafnir eftir mikinn baráttuleik á Laugardalsvellin- um i gærkvöldi, og skoraði hvort liðið tvö mörk. Staðan i hálfleik var einnig jöfn, 1:1. Vikingur kom nokkuð á óvart með getu sinni I þessum leik miðað við það sem liðið hefur sýnt að undanförnu, en Keflvikingar söknuðu greinilega fyrirliða sins, Guðna Kjartanssonar, Kefivikingar skoruöu fyrsta mark leiksins á 23. minutu, og var Jón ólafurþar að verki eftir að hafa fengið sendingu frá Grétari Magnússyni. A fertug- ustu minútu jafnaði Gunnar Orn Kristjánsson svo fyrir Viking, og var staðan þannig i hálfleik. A annarri minútu seinni hálf- leiks skoraði Steinar Jóhanns- son annað mark Keflvikinga, og átti liðið siðan nokkur mark- tækifæri án þess tækist að nýta þau. Þegar halla tók á hálfleik- inn fóru Vikingarnir að sækja i sig veðrið, og þegar tiu minútur voru eftir af leiktimanum jafn- aði Kári Kaaber metin eftir fyrirgjöf frá Jóhannesi Bárðar- syni. 0 Föstudagur 9. ágúst 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.