Alþýðublaðið - 15.08.1974, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 15.08.1974, Qupperneq 9
Hartford til City Manchester City hefur fest kaup á skoska leikmanninum Asa Hartford sem leikið hefur með WBA. Kaupverðið er 250 þúsund pund. Þessi sala kemur nokkuð á óvænt, þar sem Hartford hefur sýnt slaka leiki með liði sinu i Texaco bikarnum Ejns og margir muna þá ætlaði Leeds að kaupa Hartford fyrir tveim árum, en rifti kaupunum þeg- ar i ljós kom að hann hafði hjartagaila. Hann virðist hafa náð sér að fullu því við læknis- skoðun kom ekkert óvenjulegt i ljós. ___ Þróttarar í æfingabúðir i Eins og kunnugt er, fór stór 1 hópur af islensku handknatt- J leiksfólki til Sviþjóðar fyrir t stuttu og tók þar þátt i mijdu handknattleiksmóti og stóðu sig þar með stakri prýði. Meðal keppenda var 2. t flokkur karla úr Þrótti. Eftir mótið héldu nokkrir Þróttarar til Danmerkur og munu þeir nú stunda æfingar hjá félagi Bjarna Jónssonar Arhus KFUM. Siðan er meiningin að Meistaraflokkur fari utan til keppni i Danmörku og dvelji , svo i æfingabúðum ytra undir leiðsögn Bjarna. Þróttarar ættu þvi að verða með m jög sterkt lið i 2. deild i vetur og verður keppnin i deiidinni án efa mjög spenn- andi og tvisýn þvi að mikið er lagt uppúr hjá félögunum að komast i I. deild og ekkert til sparað i þvi sambandi. Puttemans og Bedford Belgiumaðurinn Puttemans varð að láta sér nægja annað sæti i 2 milna hlaupi á eftir Rod Dixon frá Nýja Sjálandi á miklu frjálsiþróttamóti sem fram fór i Stokkhólmi nýlega. Timi Dixons i hlaupinu varð 8.14,4 en Puttemans fékk tim- ann 8.16,6. A sama móti keppti Bretinn Dave Bedford I 5.000 m hlaupi og varð aðeins i 7. sæti, timi hans i hlaupinu var 14.02,6. Eftir hlaupið sagði Bedford að það hefði aðeins verið upphit- i un fyrir EM-mótið. L Jafn- tefli A mánudagskvöldið léku 1 skosku meistararnir Celtic vináttuleik gegn ensku bikar- meisturunum Liverpool i Glasgow. Þetta var siðasti leikurinn sem Bill Shanley stjórnaði liðinu en hér eftir verður Bob Paislei sem áður var aðstoðarmaður Shanleys stjórnandi liðsins. Leiknum lauk með jafntefli i-1-1:___- - - - < Bikarkeppnin ÓVÆNT ÚRSLIT Völsungur sigraði Eyjamenn Óvæntustu úrslitin urðu i Eyj- um, þegar Völsungur frá Húsa- vik sigraði Eyjamenn 2-0. Mörk Völsunga komu bæði i fyrri hálf- leik, það fyrra gerði Hermann Jónsson eftir glæsilega send- ingu frá Hreini Elliðasyni, en það siðara var sjálfsmark Eyja- manna. 1 seinni hálfleik var stóöug pressa að marki Húsvikinga, en markmaður þeirra átti stórleik og varði allt sem á markið kom og sætti oft furðu hvernig Hús- víkingum tókst að verjast. Skagamenn sigruðu Skagamenn sigruðu Fram i Bikarkeppninni i gærkvöldi 2-0. í hálfleik var staðan 1-0. Mörk Skagamanna skoraði Teitur Þórðarson sitt i hvorum hálfleik. Víkingur sigraði KR Víkingur sigraði KR eftir framlengdan leik 3 — 2. Eftir að staðan hafði verið 1 — 1, eftir venjulegan leiktima. Það voru Víkingar sem urðu fyrri til að skora, á 38. min. skaliaði Páll Björgvinsson i markið eftir aukaspyrnu. A 59. min. jafna KR-ingar með marki Ottos Guðmundssonar. Áður hafði Ólafur Lárusson skallað I þverslá og boltinn hrokkið þaðan til Ottós. Eftir að venjulegum leiktima var lokið og staðan jöfn, varð að framlengja i 2 x 15 min. í fyrri hálfleik framleng- ingarinnar skoruðu Vikingar tvivegis. Fyrst Páll Björg- vinsson og svo Kári Kaaber. í seinni hálfleik minnkaði Ólafur Lárusson muninn niður i eitt mark. Valur sigraði í Keflavík Valsmenn komu á óvart og slógu Keflvikinga út úr Bikar- keppninni i gærkvöldi. Eftir framlengdan leik með 3 mörk- um gegn 1. Fyrsta mark leiksins skoraði Steinar Jóhannsson fyrir Kefl- víkinga úr vitaspyrnu. Alexander jafnar og eftir venjulegan leiktima var staðan 1-1. Það varð þvi að framlengja og i framlengingunni skoruðu Valsmenn tvivegis. Landsmótið í golfi Stendur nú sem hæst, á þriöju- daginn var keppt i flokkakeppni og var þar hörð og tvisýn barátta sem lauk með sigri Golfklúbbsins Keilis, En hér er röðin. Högg 1. Golfklubburinn Keiiir 485 2. Golfklúbbur Reykjav. 487 3. Golfklúbbur Vestm.eyja 497 Golfklúbbur Akureyrar 497 5. Golfklúbbur Ness 516 6. Golfklúbbur Suðurnesja 521 í hverri sveit keppa átta menn, en árangur 6 bestu er talinn. Það kom nokkuð á óvart að Golfklúbb- ur Suðurnesja skyldi lenda i sið- asta sæti. Sunna hefur gert samninga við eftirtalin hótel og íbúðir: LAS PALMAS: HOTEL CRISTINA. Lúxushótel staðsett rétt við Las Canteras ströndina í Las Palmas. Mjög glæsileg salarkynni, veitingastaðir, barir og sundlaug. Hvert herbergi loftkælt og með baði, síma, útvarpi og svölum. APARTAMENTOS ROCHAS. Góðar og vel staðsettar (búðir, með baði, svölum, setustofu og eldhúsi. Hver íbúð með svölum og einnig sérstakar sólsvalir á efstu hæðinni. Stutt frá Las Canteras ströndinni. PLAYA DEL INGLES. APARTHOTEL ESCORIAL. Mjög skemmtilegt (búðarhótel, sem tekið var í notkun í desember 1973. Fallegir salir, hárgreiðslustofa og verzlanir, skemmtileg setustofa með bar og billiard-borði. Hvert herbergi er með slma og útvarpi. Góð sólbaðsaðstaða, þrjár sundlaugar, þar af ein barnalaug og tveir tennis-vellir. Þarna er um að ræða íbúðir fyrir fjóra, sem hafa 2 svefnherbergi, stofu, bað og svalir. Einnig íbúðir fyrir tvo, sem eru sameiginleg stofa og svefnherbergi, bað og svalir. HOTEL WAIKIKI. Sérkennilegt og fallegt hótel, sem samanstendur af 5 turnlaga byggingum. Einnig þetta hótel var opnað ( desember 1973. Falleg húsgögn og herbergi öll með baði, s(ma, útvarpi og svölum. Mjög stór sundlaug, sérkennilegur útibar, tennisvöllur og keiluspil. HOTEL PARQUE TROPICAL. Stórglæsilegt hótel byggt í spönskum stll. öll herbergi með slma, útvarpi, baði og svölum. Glæsilegir salir og danssalur þar sem dansað er á hverju kvöldi. Stórkostlegur garður f sérflokki með gosbrunni og litlu stöðuvatni, börum, sundlaug sem er með yfirbyggðan pall þar sem þjóðdansar eru sýndir vikulega. Lítil sérströnd fyrir hótelið. LOS SALMONES. Góðar fbúðir með svefnherbergi, stofu, baði, eldhúsi og svölum. Falleg húsgögn og innréttingar og útvarp I hverri fbúð. Góð sólbaðsaðstaða með stórri sundlaug og bar. KOKA Mjög góðar íbúðir. þar sem möguleiki er fyrir tvo eða fjóra. Fjögurra manna íbúðir eru með svefnherbergi. stofu með svefnaðstöðu, eldhúsi og baði, svölum, síma og útvarpi. Tveggja manna (búðir hafa sameiginlega stofu og svefnherbergi, bað, eldhús, svalir. síma og útvarp. Góður veitingasalur. hágreiðslustofa, keiluspil og diskótek. Mjög góð sólbaðsaðstaða og stór ^undlaug. SANTA FE. (Bungalows) Mjög góð og falleg einbýlishús með svefnherbergi, stofu, eldhúsi, baði og síma. Húsin standa á sérsvæði sem er vel ræktað og hafa sameiginlega sólbaðsaðstöðu og sundlaugar, Þó fylgir sérgarður og sólstétt hverju húsi. SUN CLUB (Bungalows) Þetta glæsilega hverfi samanstendur af 319 lúxus einbýlishúsum á vesturhluta Playa del Ingles. Hvert hús hefur setustofu, svefmherbergi, bað og eldhús og eru öll búin mjög vönduðum og faliegum húsgögnum og innréttingum frá Svfþjóð. Framan við hvert hús er sólstétt með sólstólum og borði og er algengt að fólk grill-steiki mat þar. Hverfið er mjög vel skipulagt og fallega ræktað, stórar og sérkennilegar sundlaug- ar, tennisvöllur. keiluspil, köfunarskóli, leikfimissalur og gufubað. Öll húsin eru með loftkælingu og upphitun. 18 holu golf-völlur skammt frá og býður SUN-CLUB uppá ókeypis ferðir þangað með „Mini-Bus". SUNNA HEFUR SKRIFSTOFU Á PLAYA DEL INGLIS MEÐ ÍSLENZKU STARFSFÓLKI. ÖLL FLUG ERU DAGFLUG Á LAUGARDÖGUM orotttor Komudagur 23. nóvember 3 vikur 14. desember 14. desember 2—4 vikur 28. des. eða 11. janúar 21. desember 2. vikur 4.janúar. 28. desember 2—4 vikur 11. jan. eða 25. janúar ll .janúar 2—-4 vikur 1 5. jan. eða 8. febrúar 25. janúar 2—4 vikur 8. feb. eða 22. febrúar 8. febrúar 2—4 vikur 22. feb. eða 8. marz 22. febrúar 2—4 vikur 8. marz eða 22. marz 8. marz 2—4 vikur 22. marz eða 5 apríl 22. marz 2 vikur 5. aprfl. FERflASKRIFSTOFAN SUNNA LÆKJARGOTU 2 SINIAR 16400 12070 Sanna býður allt það besta á Kanaríeyjum Fimmtudagur 15. ágúst 1974. o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.