Alþýðublaðið - 06.10.1974, Side 3
Tíundi hver maður hefur
of háan blóðþrýsting
Þriðjungur þeirra hefur ekki hugmynd um
það og það er hættuspilið við útbreiddan
sjúkdóm; sem óhjákvæmilega leiðir
til dauða.
Tlunda hver manneskja þjáist
af of háum blóðþrýstingi — sem
læknar kalla hypertoni.
Þessi sjúkdómur verður siút-
breiddari eins og sjá má m.a. á
tölum frá háskólasjúkrahúsinu i
Freiberg, Vestur-Þýskalandi.
Árið 1948 voru 7% sjúklinganna
með of háan blóðþrýsting, 1960
17%, og i dag er það fjórði hver
sjúklingur, sem þjáist af þessu.
Bandariskir svertingjar hafa
hæsta blóðþrýsting i heimi —
Kinverjar lægsta. Hér er ekki
um kynþáttamisun. að ræða —
heldur umhverfisáhrif. Blóð-
þrýstingur hvitra manna, sem
koma til Kina lækkar og verður
eins og -innfæddra manna eftir
nokkurn tima.
Blóðþrýstingur er gefinn upp
með tveim tölum. önnur talan
er það sem kallað er systólisk og
sýnir þrýstinginn,. sem er á
hringrás blóðsins við inn-
streymi. Hin talan er sú, sem
nefnd diastolisk sýnir þrýsting-
inn, þegar hjartað fyllist blóði
áður en það dælir þvi aftur frá
sér. Siðari talan er alltaf lægri
en sú fyrri.
Sé blóðþrýstingurinn undir
140/90 er maðurinn heilbrigð
ur. Alheimsheilbrigðismála-
stofnunin hefur ákveðið þetta
með samanburði á blóð-
þrýstingsmælingum. Blóðþrýst-
ingur telst of hár, ef hann er
160/95. Gamla reglan um að
blóðþrýstingurinn eigi að vera
100 plús árafjöldann, sem þú
hefur lifað er þvi ekki rétt.
Blóðþrýstingurinn hækkar
eftir fimmtugt. Þetta gildir
jafnt um karla sem konur.
Konur, sem ekki eru komnar
á breytingaaldurinn, fá yfirleitt
ekki of háan blóðþrýsting. Hvat-
inn östrogen, sem stjórnar mán-
aðarlegum tiðum kemur nefni-
lega i veg fyrir þrengsli i æðun-
um.
Of hár blóðþrýstingur stafar
af þvi að æðar likamans geta
ekki flutt blóðstreymið frá
hjartanu. Þær þrengjast, en
hjartað heldur áfram að dæla
sama blóðmagni. Þetta er likt
og i vatnsleiðslu. Vatnsþrýst-
ingurinn er þvi meiri, sem
leiðslan er mjórri.
Aðeins 20% sjúklinganna hafa
of háan blóðþrýsting vegna
sjúkdóma, s.s. nýrnaveiki. Þá
er einnig um aðra tegund af of
háum blóðþrýstingi að ræða og
unnt að lækna hann með réttum
lyfjum.
80% sjúklinganna sem þjást af
of háum blóðþrýstingi gera það
ekki vegna sjúkdóms. Þetta er
það sem almennt er kallað of
hár blóðþrýstingur. Enginn
veit, hverjar orsakirnar eru, en
þó er vitað að eitthvert
samband er milli hans og of
mikillar saltneyslu. Þvi meira
salt, sem neytt er, þvi meiri
vökvi i likamanum og þeim mun
hærri blóðþrýstingur.
Þetta er þó ekki eina orsökin.
Það liggja margar orsakir að of
háum blóðþrýstingi. Ef til vill er
raunverulega ástæðan ofvirkni i
vissum heilastöðvum.
Látið mæla blóðþrýstinginn,
ef einhver i fjölskyldunni hefur
of háan blóðþrýsting, ef þér þjá-
ist af offitu eða streitu og
óánægju. Þá er hættan á of há-
um bióðþrýstingi.
Of hár blóðþrýstingur er arf-
gengur. Það er arfgengt að hafa
litla eða veika hæfileika til að
stjórna blóðstreymi likamans.
Þá þrengjast æðarnar og blóð-
þrýstingurinn hækkar.
Yfirleitt þjást þeir, sem feitir
eru, af of háum blóðþrýstingi.
Alheimsrannsóknir hafa sýnt,
að hvert kiló fitu getur hækkað
blóðþrýstinginn um 10 gráður.
Sálarlifið hefur mikil áhrif á
blóðþrýstinginn. Það er t.d. tal-
að um „háþrýsti-fólk”. Þannig
manneskja er róleg að sjá, i
jafnvægi andlega og skyldu-
rækin heima og að heiman, en
bak við það gervi er óvissan,
spennan og niðurbæld reiði.
Streitan hefur áhrif á likamann
og orsökin er of hár blóðþrýst-
ingur.
Þessi skapgerð finnst aðeins
hjá karlmönnum. Kynhvatinn
östrogen ver konur gegn þessu
og skapbrigðabreytinga verður
vart með of hröðum æðaslætti
og hröðum andadrætti. Hjá
körlum hækkar blóðþrýstingur-
inn. Blóðþrýstingur kvenna
hækkar ekki fyrr en eftir breyt-
ingaskeiðið, þegar hvatinn
östrogen er ekki lengur fyrir
hendi.
Hraustar og heilbrigðar konur
hafa ekkert illt af að taka pill-
una. Það er afar sjaldgæft að
verða var við of háan blóðþrýst-
ing, sem á rætur sinar að rekja
til neyslu hennar, þó er konum,
sem taka pilluna, ráðlagt að
láta mæla blóðþrýstinginn
hálfsárslega. Ef um of háan
blóöþrýsting er að ræða, á kon-
an að hætta að taka pilluna og
þá lækkar hann aftur.
Þriðji hver maður með of há-
an blóðþrýsting veit ekkert um
það. Furðulegt, þvi að ekkert er
auöveldara en að mæla blóð-
þrýsting.
10 — 12 sm breitt band er sett
um handlegg sjúklingsins.
Bandið er fyllt lofti til að
vöðvarnir og háræðarnar herp-
ist saman. Siðan er loftinu
hleypt úr til að æðarnar þenjist
út af blóði, en þá heyrist suð-
hljóð i tækinu, sem sett hefur
verið i olnbogabótina og kvika-
silfursúla sýnir blóðþrýstinginn.
Það er hinn svokallaði systoliski
blóðþrýstingur, sem kemur
fram — og sýnir, hvernig hjart-
að dælir blóðinu inn i blóðrás-
ina.
Sé meira lofti hleypt af svo aö
háræðarnar þrýstast ekki leng-
ur saman er hægt að lesa
diastoliska þrýstinginn.
Tölurnar tvær eru skrifaðar
niður og rétt skal vera rétt, á
eftir þeim eiga að standa staf-
irnir RR. Það eru upphafsstafir
Riva-Rocci — italska barna-
læknisins, sem fann upp blóð-
þrýstingsmælinn 1896.
Læknir þorir þó ekki að segja,
að sjúklingurinn hafi of háan
blóðþrýsting eftir slika könnun
eina. Hann verður einnig gaum-
gæfilega að athuga hjarta, blóð
og þvag. Einnig er rétt að skoða
augun, þvi að háræðarnar i aug-
anu eru yfirleitt sá staður sem
fyrst er hægt að sjá of háan
blóðþrýsting á.
Margir reyna sjálfir að
fylgjast með blóðþrýstingnum.
Þeir halda að allt sé i lagi með
hann, ef þeir eru ekki „rauðir i
framan”. Það er þvi miður ekki
rétt. Það er mjög sjaldan sem of
hár blóðþrýstingur lýsir sér i
miklum roða i andliti.
Þvi miður eru engin ákveðin
einkenni á of háum blóðþrýst-
ingi. Þó er rétt að fara i skoðun,
ef menn þjást af svima, tauga-
óstyrk, hjartslætti og mæði.
Orsökin getur verið of hár blóð-
þrýstingur.
Annað merki um sjúkdóminn
eru höfuðverkjaköst. Þau byrja
á morgnana, þegar risið er úr
rekkju, en hverfa um daginn.
Of hár blóðþrýstingur er i
110-140
70-90
Fari blóðþrýstingurinn yfir 160/95 er hætta á ferðum
— fyrri talan sýnir þrýstinginn, þegar hjartað dælir
blóðinu inn í blóðrásina.
Aldur
10
140
120
100
80
60
200
Blóðþrýstingur
180
160
Blóðþrýstingurinn eykst með aldrinum. Eftir hækkar systolíski þrýstingurinn (efri kúrva) hjá konum jafntsem körlum — þó meira hjá kon-
um. Neðra kúrvustrikið — diastoliska strikið— lækkar hins vegar.
o
Sunnudagur 6. október 1974.