Alþýðublaðið - 10.10.1974, Page 5
alþýöu| Útgefandi: BlaS hf.
11 PfTTl Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm.)
11] hUJ L11 Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
ASsetur ritstjórnar: Skipholti 19, sími 28R00
Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, simi 28660 og 14906
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, simi 14900
Prentun: Blaðapnnt
JAFNRETTI KYNJANNA
Nú eru átta ár liðin siðan lögin um launajafn-
rétti karla og kvenna, sem fela i sér, að konur og
karlar beri jafnmikið úr býtum fyrir sömu
vinnu, komu að fullu til framkvæmda. Með
launajafnréttislögunum voru mörkuð timamót i
jafnréttismálum hér á landi.
Forsaga þessara timamóta er i fáum orðum á
þessa leið: Rúmum sex árum áður en lögin
komu að fullu til framkvæmda lagði einn af
þingmönnum Alþýðuflokksins fram tillögu á Al-
þingi þess efnis, að konur og karlar hefðu sömu
laun fyrir sömu vinnu og yrði launajafnrétti
kynjanna tryggt með lagasetningu. Þetta mál
knúði Alþýðuflokkurinn siðan i gegn á Alþingi og
i rikisstjórn, þó að fullnaðarframkvæmd þess-
arar mikilvægu lagasetningar tæki reyndar heil
sex ár. Samþykkt var, að launajafnréttið kæmi
til framkvæmda i áföngum á umræddu sex ára
timabili.
Hér er talandi dæmi um það, hvernig Alþýðu-
flokknum hefur tekist að knýja fram stórmál —
mikilvæg baráttumál jafnaðarmanna — þó að
hann sé i samvinnu við aðra flokka i rikisstjórn,
sem leggja allt annað mat á stjórnmál og hafa
allt aðrar grundvallarhugmyndir i þjóðfélags-
málum en Alþýðuflokkurinn.
Jafnréttismál kynjanna tók Alþýðuflokkurinn
upp sem baráttumál i stjórnarsamstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn og honum tókst að knýja
málið fram til sigurs. Við það breyttist réttar-
staða islenskra kvenna mjög mikið, ekki sist
verkakvenna i fiskiðnaðinum. Hér var stigið
stórt skref fram á við til aukins og eðlilegs jafn-
aðar. En nú þarf að stiga fleiri skref i jafnréttis-
málum kynjanna. Við það verður til dæmis ekki
unað lengur, að grundvallarhugmyndirnar á
bak við lagasetninguna um launajafnrétti, sömu
laun fyrir sömu vinnu, séu viða þverbrotnar i at-
vinnulifinu. Við það verður ekki unað lengur, að
atvinnurekendum og jafnvel sjálfu rikinu, sem
er stærsti atvinnurekandinn i landinu, liðist að
breyta starfsheitum þeirra starfa, sem konur
inna af hendi, einvörðungu til að halda þeim i
lægri launaflokkum en körlum.
í tið fyrrverandi stjórnar lét Alþýðubandalag-
ið i veðri vaka, að það berðist fyrir auknu jafn-
rétti i þjóðfélaginu. Af hálfu Alþýðubandalags-
manna var mikið talað, en hins vegar ekkert
gert til þess að bæta réttarstöðu islenskra
kvenna eða auka jafnréttið i þjóðfélaginu.
Þannig eru vinnubrögð hinna hávaðasömu
gasprara og lýðskrumara, sem hafa forystu fyr-
ir hinum afdankaða kommúnistaflokki, enda
stendur ekkert eftir, þegar þeir nú hafa yfirgefið
stjórnarráðið, nema þá helst enn viðsjárverðara
launamisrétti i landinu en áður hefur þekkst i
áratugi.
Alþýðuflokkurinn berst fyrir réttlátu og
manneskjulegu þjóðfélagi og enn skortir mikið
á, að jafnrétti og réttlæti riki á íslandi. Jafnað-
armenn undir forystu Alþýðuflokksins eiga þvi
enn mikið verk að vinna á íslandi.
Alþýðuflokkurinn mun áfram vinna að jafn-
rétti i þjóðfélaginu. Einn þáttur jafnréttisins er
jafnrétti kynjanna. Þar er viða pottur brotinn.
40 MILLJÓNIR BRETA KJÓSA í DAG
VERKAMANNAFLOKKURIDN
SRURSTRAHGLEGASTUR
Wilson: Kjósið ekki yfir ykkur atvinnuleysi.
í dag ganga fjörutiu
milljónir breskra kjós-
enda að kjörborðinu og
kjósa fulltrúa sina á
þing i Westminster.
Fyrir fjórum dögum,
þegar Björn Hansen,
blaðamaður við norska
Arbeiderblaðið, skrifaði
greinina um bresku
þingkosningarnar, sem
hér fer á eftir, mátti
þegar sjá, að þreyta var
farin að þjá breska
stjórnmálmenn enda
hefur kosningabaráttan
verið eitilhörð. Eini
maðurinn, sem þá rak
kosningabaráttuna enn
af fullum krafti og lét
hvergi deigan siga, var
f ors ætisráðherr ann,
Harold Wilson.
Wilson sagði í ávarpi
til breskra kjósenda á
sunnudag: „Kjósið ekki
yfir ykkur atvinnu-
leysi”.
Kosningabaráttan hefur gengið
vel fyrir Verkamannaflokkinn, en
Wilson gerir sér fullkomlega
grein fyrir þeim sveiflum, sem
geta orðið á vogarskálum stjórn-
málanna, jafnvel á siðustu
stundu, og þá ekki sist þeirri
hættu, sem það gæti þýtt fyrir
hann sjálfan og flokk hans, ef
kjósendur sýna sinnuleysi og
tómlæti, þegar mest liggur við.
Að loknum tvennum kosningum
á aðeins sjö mánaða timabili og
þeirri kosningabaráttu, sem þeim
hefur fylgt, eru Bretar orðnir
dauðþreyttir á hinni pólitisku
baráttu. Bæði
stjórnmálamennirnir og
kjósendur hlakka þvi i rauninni
til, að orrahriðinni ljúki vegna
kosninganna, sem fram fara i
dag.
Niðurstöður allra skoðana-
kannana um fylgi bresku stjórn
málaflokkanna benda til þess, að
Verkamannaflokkurinn hafi
örugga forystu.
Hinn pólitiski „barometer”
sýndi um siðustu helgi, að Verka
mannaflokkurinn hefði forskot
fram yfir Ihaldsflokkinn, sem
nemur 4,5—9%.
Sunday Times hefur dregið
saman niðurstöður skoðanakann-
ana siðustu daga og telur, að
forskot Verkamannaflokksins sé
7,5% og er það einu prósenti
meira forskot en flokkurinn hafði
fram yfir íhaldsflokkinn helgina
á undan. Þannig er talið, að
Verkamannaflokkurinn njóti
fylgis 42,5% kjósenda,
Ihaldsflokkurinn 35% kjósenda og
Frjálslyndi flokkurinn 19%
kjósenda og er þá miðað við
meöaltal úr skoðanakönnunum á
undanförnum dögum.
Gefi þessar tölur rétta mynd af
kosningaúrslitunum verður að
fara aftur til ársins 1966 til að
finna sambærileg úrslit og at-
kvæðaskrið á milli kosninga.
Samkvæmh niðurstöðum skoð-
anakannana á Verkamannaflokk-
urinn tryggan sigur I 50 af 100
kjördæmum i kosningunum til
neðri deildarinnar.
Eins og kunnugt er voru skoð-
anakannanir fyrir kosningarnar
1970 og sömuleiðis I febrúarkosn-
ingunum á þessu ári mjög „mis-
visandi” um raunveruleg kosn-
ingaúrslit. Af þessum sökum hafa
þær stofnanir, sem framkvæma
þessar skoðanakannanir, nú verið
mjög varkárar I öllum spám sin-
um. Sömuleiðis hafa dagblöðin
ekki gert eins mikið veður úr
niðurstöðum skoðanakannana
fyrir kosningarnar nú og fyrir
tvennar fyrri þingkosningarnar
og veigrað sér við að draga mjög
ákveðnar ályktanir út frá þeim.
Eitt af þvi, sem stofnanirnar,
sem annast framkvæmd kannana
á hugum breskra kjósenda, hafa
gripið til, er að spyrja háttvirta
kjósendur, hversu ákveðnir þeir
séu I þvi að nota atkvæðisrétt sinn
á kjördegi. Svörin við þessari
spurningu benda til þess, að I-
haldsflokkurinn hagnist á hinum
„óákveðnu”. Þess vegna má
vafalaust draga að minnsta kosti
1% frá áðurnefndu forskoti
Verkamannaflokksins. En engu
að slður benda niðurstöður skoð-
anakannananna I heild til þess, að
Verkámannaflokkarinn vinni
hreinan meirihluta I þingkosning-
unum í dag.
Stærsta vafaatriðið, sem áhrif
getur haft á heildarúrslit bresku
þingkosninganna, er fjöldi þeirra,
sem ekki höfðu ákveðið nokkrum
dögum fyrir kjördag, hvaða flokk
þeir ætli að kjósa og sömuleiðis sá
fjöldi, sem hugsanlega kemur til
með að sitja heima og greiða ekki
atkvæði.
„Upprisa” Frjálslynda
flokksins virðist ætla að dragast
enn um sinn. En i kosningunum i
febrúar hlaut Frjálslyndi flokk-
urinn þó verulegan byr og varð
það flestum ljóst, þegar kosn-
ingabaráttan þá var um það bil
hálfnuð. Flokkurinn fékk þá um
20% greiddra atkvæða, en vegna
þeirrar kjördæmaskipunar og
þeirra kosningalaga, sem gilda I
Bretlandi, fékk flokkurinn aðeins
14 þingmenn kjörna til neðri
deildarinnar af þeim 635 þing-
mönnum, sem þangað eru kjörn-
ir.
I kosningunum nú býður
Frjálslyndi flokkurinn fram um
100 fleiri frambjóðendur en I
kosningunum i fyrravetur, en þaö
virðist ekki hafa bætt neitt stöðu
flokksins með tilliti til kosning-
anna i dag. Allt bendir þvi til
þess, að Frjálslyndi flokkurinn
muni raunverulega tapa i þessum
kosningum.
Bæði Jeremy Thorpe, leiðtogi
Frjálslynda flokksins, og Edward
Heath, leiðtogi Ihaldsflokksins
töluðu til kjósenda á sunnudaginn
var. Heath virtist þá þegar „sleg-
inn út”, þó svo að hann vegna
skyldurækni við flokk sinn og
væntanlega kjósendur hans léti i
ljós bjartsýni á sigur.
I sjónvarpsviðtali á mánudag
gagnrýndi Heath Verkamanna-
flokkinn fyrir að vera andvigur
tillögu ihaldsmanna um myndun
þjóðstjórnar, samsteypustjórnar
allra flokka. En þetta mál hefur
verið höfuðmál Heaths i kosn-
ingabaráttunni, en þetta höfuð-
mál sitt hefur honum aldrei tekist
að draga nema að hálfu leyti að
húni á flaggstöng thaldsflokksins.
Um helgina virtist Heath hafa að
mestu gefist upp á að halda þess-
ari tilraun sinni til myndunar
þjóðstjórnar i Bretlandi til
streitu.
A mánudag fjallaði Harold Wil-
son, forsætisráðherra aðallega
um atvinnumálin, ástandið i
atvinnumálum, I ræðu, sem hann
flutti til breskra kjósenda. Hann
réðist harkalega á foringja I-
haldsflokksins, m.a. á Sir Keith
Joseph, fyrrverandi félagsmála-
ráöherra, sem lagt hefur til, aö
hamlað verði gegn verðhækkun-
um með þvi að auka atvinnuleysi.
Forsætisráðherrann hefur
vafalaust rétt fyrir sér, að sinnu-
leysi meðal kjósenda getur kostað
Verkamannaflokkinn afdrifarik
atkvæði og jafnvel það, að hann
missi völdin.
En hann hafði einmitt I huga
furbulega stefnu hins fyrrverandi
félagsmálaráðherra og hugsan
legt sinnuleysi og áhugaleysi
kjósenda á kosningum i dag, þeg-
ar hann lýsti þvi yfir að stuðning-
ur við Ihaldsflokkinn væri hið
sama og að kjósa yfir bresku
þjóðina aukið atvinnuleysi, sem
flestir munu vist ásáttir um, að sé
nógu mikið fyrir i Bretlandi.
Fimmtudagur. 10. október. 1974.