Alþýðublaðið - 18.10.1974, Side 3
i
HÚSGAGNA-
HÖLLIN AÐ
FLÝJA AF
LAUGAVEGI?
„Mér finnst þetta fráleitt og
geri ráð fyrir, að ég verði fyrir
tilfinnanlegu fjárhagstjóni”,
sagði Jón Hjartarson forstjóri
HUsgagnahallarinnar, þegar
Alþýðublaðið spurði hann i
gær hvort væri álit hans á hinu
nýtilkomna bifreiðastöðu-
banni við Laugaveginn,>„og ég
reikna með að verða að flytja
verslunina héðan vegna
þessa”, sagði hann.
„Ég hef ekki rætt þetta mál
sérstaklega við aðra kaup-
menn hér við Laugaveginn ný-
lega, en ég álit að þeir séu
yfirleitt á móti þessu, og þeir
hafa mótmælt, en það er
greinilega ekki hlustað á okk-
ur”, sagði Jón.
Jón sagðist einu sinni hafa
verið kallaður á fund hjá
umferðarnefnd vegna þessa
máls, og þá hafi hann skýrt
sitt sjónarmið og bent á, að
frekar ætti að stefna aðþvi að
breyta götunni i verslunargötu
og byrja þá á þvi að koma
upp bilastæðum. Sagðist hann
vera hlynntur þvi, að athugað
sé hvort breyta eigi Lauga-
veginum i göngugötu, en ekki
kvaðst hann vera viss um að
það sé heppileg breyting.
„í sambandi við Laugaveg-
inn stangast algjörlega á
tvenn sjónarmið”, sagði Jón,
„sjónarmið forráðamanna
strætisvagnanna er það, að
umferðin þar sé sem greiðust,
en kaupmenn vilja hafa um-
ferðina sem hægasta. Þvi
hægari sem hún er þeim mun
meira er verslað, — þetta er
einföld rekstrarhagfræði”.
Að sögn Jóns benti hann á
það á fundinum, sem hann sat
með umferðarnefnd vegna
stöðubannsins við Laugaveg,
að hentugra væri að leysa
vandamálið með strætis-
vagnaferðirnar með þvi að
láta einn vagn ganga upp
Hverfisgötu og niður Lauga-
veg, milli Lækjartorgs og
Hlemms, og hafa ferðir hans
stöðugar, en láta alla aðra
strætisvagna ganga um Skúla-
götu og Snorrabraut.
HORNIÐ
NEYTENDASAMTÖKIN VARA VID FÖLSKUM AUGLYSINGUM
KÆRA VIKUNA
FVRIR RITSTULD
KÆRUNNI BEINT TIL
BANDARÍSKU
NEYTENDASAMTAKANNA
— Jú, við getum nefnt dæmi,
sagði Björn Matthiasson, gjald-
keri Neytendasámtakanna, er
fréttamaður blaðsins hafði sam-
band við hann i gær vegna frétta-
tilkynningar frá samtökunum,
þar sem neytendur eru varaðir
við auglýsingum á vörum, sem
bandarisku neytendasamtökin
eru sögð hafa mælt með sem
„bestum” eða „best buy”. — Þau
dæmi eru hátalaraauglýsingar
frá Faco og Radióbúðinni, bætti
SENN ER NU
HVER SÍÐASTUR
Senn er nú hver siðastur að
láta athuga ljósabúnað bif-
reiða sinna fyrir veturinn.
Ljósastillingum umferðarráðs
19741ýkur nú um mánaðamót-
in og sjálfsagt verður mikið að
gera siðustu dagana. Þess
vegna er best að fresta þvi
ekki mikið lengur að láta stilla
hjá sér ljósin — þvi vel getur
verið, að ýmislegt annað þurfi
við þau að gera fyrir veturinn.
Björn við.
— öllum seljendum vöru og
þjónustu er stranglega bannað að
nota meðmæli hvers konar, inn-
lendra og erlendra neytendasam-
taka til framdráttar sölu á vörum
sinum eða þjónustu, hélt Björn
áfram. - Hér er um mjög villandi
auglýsingar að ræða, þar eð slik
meðmæli frá erlendum neytenda-
samtökum miðast ávallt við, að
einhver vara sé meðmælanleg
miðað við verð og gæði, sem fáan-
leg eru á markaðinum þar i landi.
Þar með er alls ekki sagt, að slikt
þurfi að gilda hér á landi, þar sem
verðlag og vöruval er allt annað.
Björn sagði Neytendasamtökin
islensku vilja vara mjög ákveðið
við þvi, að kaupendur taki slikar
fullyrðingar bókstaflega.
— Þá er annað mál komið upp,
sagði Björn enn fremur. — Vikan
birti i dag grein, sem tekin er
beint upp úr bandariska neyt-
endablaðinu Consumer's Report,
þar sem birtar eru tölur um við-
gerðartiðni bila. Þessi grein er
birt i leyfisleysi, þvi Neytenda-
samtökin hér hafa einkarétt á
birtingu greina úr öðrum neyt-
endablöðum og þá eingöngu til
birtingar i okkar eigin blaði. Við
höfum látið bandarisku neyt-
endasamtökin vita um þessa
grein i Vikunni og ég reikna með,
að þau muni bregðast hart við.
Flugáhafnir stórtækar í innflutningi áfengis
241 MÍS FLÖSKUR AF BIÚR OG
20 MiS. PELAR Á 8 MÁNURUM!
A fyrstu átta mánuðum þessa
árs komu islenskar flugáhafnir
með 240.000 flöskur af bjór og
20.000 fleyga af sterku áfengi inn i
landið. Auk þess fluttu farþegar
til landsins með sér 50.000 flöskur
af sterku áfengi og 50.000 litra af
léttum vinum á sama tima. Þetta
áfengismagn er umfram það,
sem selt er hérlendis af ÁTVR.
Blaðið „Ný þjóðmál” skýrir frá
þessum tölum á þriðjudaginn.
Þessar 240.000 bjórflöskur eru
20.000 kassar af bjór. Þessar tölur
koma flestum væntanlega á
óvart, en staðreyndin er einfald-
lega sú, að fyrir utan það áfengis-
magn, sem ATVR selur i verslun-
um sinum, er mikið magn af
áfengi flutt inn i landið eftir lög-
legum leiðum. Ahafnir skipa — og
leyfi til að koma með ákveðið
magn af áfengi i hverri ferð. Hér
er þó aðeins um tölur frá Kefla-
vikurflugvelli að ræða, að sögn
blaðsins, og i rauninni fáar áhafn-
ir.
Auk þessa og þess áfengis, sem
flutt er inn af rikinu, er vitað, að
töluvert miklu áfengis- og tóbaks-
magni er smyglað inn i landið,
þótt af og til séu gerðar stórar
„razziur”. Má i þvi sambandi
nefna „Suðra”, sem tók um borð
mikið áfengismagn erlendis fyrir
tæpum tveimur árum, en það
fannst ekki i skipinu þrátt fyrir
mikla leit.
Alþýðublaðið leitaði i gær til
Ragnars Jónssonar, skrifstofu-
stjóra . ATVR, og spurði, hann
versu mikið magn af áfengi hefði
verið flutt inn i landið á fyrstu
átta mánuðum ársins. Ragnar
sagðist ekki hafa þær tölur á tak-
teinum, i janúar ár hvert lægju
fyrir tölur um heildarinnflutning
undangengins árs.
Taflfélag Kópavogs er efst í
1. deild íslandsmótsins í skók
Fyrstu deildar keppnin i skák
hófst um sl. helgi. 1 deildinni eru
sex félög, Taflfélag Reykjavikur,
Taflfélag Hreyfils, Taflfélag
Kópavogs, Skákfélag Akureyrar,
Skákfélag Hafnarf jarðar og
AF HVERJU VARÐ
LANDSHORN
AÐ KASTLJÓSI?
Sveinn Eiðsson,
skrúðsfirði, skrifar:
Fá-
,,Á liðnu ári skrifaði ég
útvarpsstjóra og forráða-
mönnum sjónvarpsins
bréf vegna þáttarins
,,Landshorn", sem þá
hét, en ber nafnið ,,Kast-
ijós" og á að vera með
svipuðu sniði og var.
Ég gerðist i þessu bréf i
mínu svo djarf ir að gagn-
rýna s jónvarpsmenn
vegna þessa þáttar og
annars fréttaf lutnings af
innlendum vettvangi
f yrst og f remst f yrir það,
að hinar dreifðu byggðir
landsins voru afskiptar í
Landshorni, sem nú er og
i Kastljósi.
Nú spyr ég: Hvers
•'egna var naf ninu á þess-
c bætti breytt? Var það
vegna þess, að hann reis
ekki undir nafni? Við
þessu vil ég fá svar, sem
ég vona að Alþýðublaðið
birti".
Hornið er sjónvarps-
mönnum að sjálfsögðu
opið til svara, ef þeir
vil ja.
Óánægö
með
eitthvað?
Hringdu þá i
HORNIÐ
Skáksamband Suðurlands.
Tírslit i fyrstu umferð urðu
þessi: Taflfélag Reykjavikur
vann Skákfélag Akureyrar, 16:4,
Taflfélag Kópavogs vann Taflfé-
lag Hreyfils, 17 1/2:2 1/2 og Skák-
samband Suðurlands vann Skák-
félag Hafnarfjarðar, 13 1/2:6 1/2.
Næsta umferð verður tefld á
sunnudaginn 27. október. Þá
keppa Skákfélag Akureyrar og
Taflfélag Hreyfils á Akureyri,
Taflfélag Reykjavikur og Skákfé-
lag Hafnarf jarðar i Revkjavik og
Suðurlands og Taflfélag Kópa-
vogs i Hveragerði. Keppninni lýk-
ur i lok nóvember.
Keppni i annarri deild gat ekki
farið fram vegna ónógrar
þátttöku.
Föstudagur. 18. október. 1974
I