Alþýðublaðið - 18.10.1974, Síða 9

Alþýðublaðið - 18.10.1974, Síða 9
„Laugardalshöllin er ekki lengur opin handknattleiknum við fáum ekki inni með mótin okkar þar í vetur — Það er ekki forsvaranlegt að fá hingað dýran þjálfara, ef ekkert húsnæði er til að æfa í” sagði Sigurður Jónsson formaður HSÍ Okkar stærsta vandamál er húsnæðisskorturinn við eigum í miklum erfiðleik- um með að koma öllum leikjunum i islandsmótinu fyrir. Laugardalshöllin er ekki lengur opin fyrir okk- ur, við erum að vinna að því að fá hingað 1. flokks erlendan þjálfara en það virðist varla vera forsvar- anlegt ef ekkert húsnæði er hértilaðæfa í", sagði Sig- urður Jónsson formaður HSI á blaðamannafundi sem stjórnin hélt á mið- vikudaginn. En þar kom fram mikill hugur hennar til að efla allt handknatt- leiksstarfið og greinilegt að stjórnin hefur ekki setið auðum höndum að undan- förnu. Þjálfaramálin A fundinum kom fram að Birgir Björnsson hefði tekið að sér að þjálfa landsliðið fram að áramót- um eftir að hart hafði verið að honum gengið. Hver tekur svo við landsliðinu eftir áramót er ekki ljóst ennþá, en á þingi sem haldið var i Sviss i haust höfðu þeir Birg- ir Björnsson og Jón Erlendsson samband við einn aðalmanninn i Alþjóðasamtökunum, Kunst að nafni en hann er Rúmeni og fyrr- um landsliðsþjálfari og einskonar „Guðfaðir handknattleiksins” eins og einn Tækninefndarmaður HSÍ komst að orði. „Hann ráðlagði okkur að leita til Tékkóslóvakiu sem við gerð- um”, sagði Sigurður. „En núna -standa yfir bréfaskriftir þangað i gegnum sendiráð Tékka hér. Um árangurinn er ekki gott að segja að svo stöddu, en mikil á- sókn hefur verið i að fá þjálfara og leikmenn frá Austantjalds- þjóðunum til hinna Evrópuland- anna og þá sérstaklega V-Þýska- lands. Þetta hefur leitt til þess að þeir eru nú mjög varir um sig og eru þeir nú farnir að kalla heim þessa þjálfara og leikmenn. Þá með Ölympiuleikana i huga. Fáum við ekki erlendan þjálf- ara hingað um áramótin, mun Kunst koma hingað til að kynna sér aðstæður og leggja linurnar með þjálfara okkar. En hann ráð- lagði okkur að leita til Tékkó- slóvakiu i leit að þjálfara, en þar eru handknattleiksþjálfarar mjög vel menntaðir og færir. 1 vor munum við svo senda tvo menn til Rúmeniu þar sem þeir munu sitja þjálfaranámskeið.” Fjármálin Þá kom fram hjá stjórninni að hún vinnur nú mikið starf við að rétta fjárhaginn við. En skuldir sambandsins námu um G til 7 miljónum þegar núverandi stjórn tók við. Þessi upphæð hefur hækkað verulega siðan, aðallega vegna verðbólgunnar. Hefur stjórnin nú ákveðið að hleypa af stað happdrætti þar sem ibúð verður vinningurinn. En mjög fljótlega verður hægt að kynna þetta happdrætti nánar. Ætlunin er að verð hvers miða verði 200 kr. og öll iþróttafélög fái miða til sölu og i sinn hlut fengju þau svo 50 kr. af hverjum seldum miða. „Takist þetta hjá okkur,” sagði Islandsmótið í handknattleik 1. deild hefst 6. nóvember Þá leika Valur-Víkingur og Fram-Ármann Á blaðamannafundi skýrði mótanefnd frá þvi að búið væri að ganga frá leikdögum allra leikj- anna i 1. deild, en ekki væri búið að ganga endanlega frá leikjum annarra flokka. Væri ástæðan sú, hversu gifurleg húsnæðisvanda- mál væri við að etja þar sem enn vantaði tima fyrir 20 leikkvöld. Eins og ástandið er nú væri ekki enn séð fyrir endann á hluta af Dómararnir Búið er að skipa millirlkja- dómarana I handknattleik, en það eru dómarapörin Karl Jóhannsson og Hannes Þ. Sig- urðsson, Björn Kristjánsson og óli ölsen, Magnús V. Pét- ursson og Valur Benediktsson. I vetur munu fimm dómara- pör dæma i 1. deild, það eru millirikjadómararni, en þeir Sigurður Hannesson og Gunn- ar Gunnarsson, Jón Frið- steinsson og Kristján örn Ingibergsson munu auk þess dæma i 1. deild. t hinum deildunum verða 15 dómarapör starfandi og verð- ur reynt að skapa starfandi dómurum næg verkefni i vetur þannig að áhugi þeirra á dóm- aramálum haldist. þeim 500 leikjum sem mótanefnd- in þyrfti að koma fyrir. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að fjórum sinnum i vetur verður leikin heil umferð yfir helgi i 1. deildinni. Verður þá bæði leikið á laugardögum og sunnu- dögum. Ekki verður að efa að keppnin i ár ætti að geta orðið spennandi, þvi mikil breidd virð- ist vera i handknattleiknum um þessar mundir. 2. deildin I 2. deild verður fyrsti leik- urinn á Akureyri, en þá leikur Þór við Fylki úr Arbæjar- hverfi 9. nóvember. A undan- förnum árum hefur sá siður verið hafður á að tvö lið fara norður i einu og leiki þá tvo leiki á tveim dögum. Þessu hafa Norðanmenn viljað fá breytt og hefur það orðið ofaná að aðeins eitt karlalið sækir þá heim i einu i vetur. Hinsvegar verður þá leikið i 1. deild kvenna á undan leikjun- um i 2. deild karla. Keppnin i 2. deild ætti að geta orðið mjög spennandi I ár og ætti slagurinn að standa á milli félaganna að norðan, Þórs og KA og Þróttar og KR að sunnan. Golf Golfklúbbur Hornafjarðar heldur opið golfmót fyrir kon- ur og karla laugardaginn 19. okt. sunnudaginn 20 okt. n.k., og verða leiknar 36 holur með forgjöf. Völlur þeirra Horn- firðinga er i mjög góðu á- standi, þar sem þurrkatið hef- ur verið þar undanfarið. Flogið veröur austur laug- ardag kl. 10.30, og til baka að austan kl. 18.30 á sunnudag. Norður- landa- þing Um helgina verður hér hald- iö Noröurlandaþing frjáls- iþróttaleiðtoga, en þetta er i 31. sinn sem slikt þing er hald- ið. Jafnframt er þetta i þriðja skipti sem slikt þing er haldiö hér. Hingað eru væntanlegir 9 erlendirgestir sem sitja munu þingið. Eru það 3 Sviar, 3 Norðmenn, 2 Danir og einn Finni. Mörg mál verða tekin fyrir á þinginu og munum við segja nánar frá þvi helsta sem þar verður á dagskrá. Þingið hefst á Loftleiöa- hótelinu á laugardagsmorgun- inn kl. 9:30. Sigurður ætti fjárhagurinn að gjörbreytast til hins betra”. Tækninefndin Tækninefndina skipa þeir Berg- ur Guðnason form. Hilmar Björnsson og Þórarinn Eyþórs- son. Um störf Tækninefndar gat Bergur Guðnason þess, að Hilmar Björnsson hefði nú verið ráðinn i hálft starf og hefur hann aðsetur i skrifstofu HSl. Starf Hilmars verður „úttekt” á þjálfaramál- um, námskeiðshaldi, útbreiðslu- starfsemi og undirbúningi fram- haldsnáms fyrir handknattleiks- þjálfara að loknum grunnskóla ISI. Hilmar hóf störf 1. október s.l. og er nú að afla upplýsinga, frá aðildarfélögum HSl. Akveðið er að efna til námskeiða og eða fyrirlestra úti á landi, en fyrst um sinn beinist starf Hilmars að Faxaflóasvæðinu. Tækninefnd efndi til fundar með þjálfurum félaganna i sept- ember s.l. Einvaldur landsliðsins og þjálfari Birgir Björnsson ræddi þar samskipti landsliðsins og félaganna næstu mánuði. Kom þar fram mikil og ánægjuleg samstaða um þjálfun landsliðs- manna, en hún mun aðallega fara fram hjá félögunum fram að ára- mótum. Þá hefur Tækninefnd verið falið að leggja fram hugmyndir um undirbúning landsliðsins fyrir undankeppni ólympiuleikanna. Þar eru mörg ljón á veginum m.a. óvissa um landsliðsþjálfara og verkefni frá jan. 75—nóv. 75. Nefndin er þó einhuga um að hefja strax markvissan undir- búning frá næstu áramótum. Að lokum gat Bergur þess að á næst- unni muni Hilmar kynna hand- knattieikinn i skólunum. Landsleikir Mikið verður um að vera hjá landsliðinu i vetur og mörg verkefni biða þess. Landsliðið mun halda utan 23. þessa mánað- ar til Sviss þar sem það tekur þátt i f jögurra landa keppni. En i leið- inni leikur liðið landsleik við Luxembourg. 1 nóvember verða leiknir tveir leikir hér heima við Færeyinga, en þeir voru teknir inn sem full- gildir meðlimir i Alþjóða hand- knattleikssambandið núna i haust. Þá koma A-Þjóðverjar hingað og leika tvo leiki og i desember er fyrirhugað að Kanadamenn komi hingað og leiki hér á leið sinni til Evrópu. Eftir áramótin verður mikið um að vera en við munum segja nánar frá þeim siðar. Af þessu má sjá að þeir HSl menn hafa ekki setið auðum höndum að undanförnu og ef að likum lætur ætti öll starfsemi handknattleiksins að verða mjög blómleg i vetur. York City fær ekki áhorfendur heima frekar en hér Eins og eflaust flestir muna lék enska knattspyrnuliðið York City hér nokkra leiki i vor i boði Vals og Þróttar. Vegna þess hve að- sóknin að leikjum liðsins her var dræm munaði minnstu að liðið hætti við að leika alla leiki sina og færi heim. Úr þessu rættist þó og félagið lék umsamda leiki og þótti þeim áhugi okkar á knatt- spyrnu ekki upp á marga fiska. York City vanu sig upp úr 3. deild I fyrra og hefur staðið sig mjög vel i 2. deild það sem af er og hefur félagið unnið marga góöa sigra. Ekki hefur farið mikið fyrir á- horfendunum hjá York i gegnum árin en félagið hefur lengst leikið i 3. og 4. deild. En þar sem liðið vann sig upp i 2. deild á siðasta keppnistimabili bjuggust flestir við að nú yrði breyting á og for- ráðamenn félagsins voru yfir sig hrifnir að fá Aston Villa eitt frægásta félagið i Englandi i heimsókn i fyrsta leik liðsins á heimavelli og bjuggust við met aðsókn. Þeir urðu þó fyri miklum von- brigðum, þvi það mættu aðeins um 8 þúsund manns og ekki einu sinni óskabyrjun þeirra York manna sem skoruðu fljótlega i leiknum fékk áhorfendur til að fagna. Þeir horfðu svo i þögn á leikmenn Aston Villa ná sann- gjörnu jafntefli i leiknum, 1-1. I næsta heimaleik York sem var gegn Cardiff komu aðeins 5 þúsund áhorfendur og kipptu þeir sér litið upp viö sigur sinna manna 1-0 i leiknum. „Við fáum litlu meir aðsókn núna, en þegar við vorum að berj- ast um fall i 3. deildinni”. sagði einn af forráöamönnum félags- ins. „Við gerðum okkur vonir um að fá 20 þúsund áhorfendur gengi okkur vel, en úr þessu á ég ekki von á slikum fjölda nema þá á leik okkar við Manchester United en á það lið vilja allir horfa.” Föstudagur. 18. október. 1974 o

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.