Alþýðublaðið - 18.10.1974, Qupperneq 12
alþýöu
I n RTiTTil
Bókhaldsaðstoó
meó tékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
KOPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
SENDIBIL ASTOÐIN Hf
YFIR 40 BÍLAR TAKA ÞATT í SPARAKSTURSKEPPNI
ÍSLENSKA BIFREIÐA- 0G VÉLHJÚLAKLÚBBSINS
ömar Ragnarsson varö annar í góöaksturskeppni Bindindisfélags ökumanna I haust, og nú spreytir hann sig I sparaksturskeppninni. Myndirnar voru teknar I
góöaksturskeppninni.
1 gærkvöldi höfðu verið skráð-
ir rúmlega 40 bilar i sparakst-
urskeppnina, sem verður á
sunnudaginn á vegum islenska
bifreiða- og vélhjólaklúbbsins,
og búist við, að enn fjölgaði
þátttakendum fyrir hádegi i
dag, þegar frestur til að skrá
bila til keppninnar rennur út.
t þessari keppni er nær ein-
göngu keppt undir nöfnum bila-
umboðanna, og höfðu sjö umboð
látið skrá frá tveimur og upp i
sjö bila i gærkvöldi. Meðal öku-
manna verða Ömar Ragnars-
son, sem ekur Fiat 126 fyrir
Davið Sigurðsson hf., Þórir
Jónsson, forstjóri Þ. Jónsson &
Co, sem ekur Mustang Giha
fyrir fyrirtæki sitt, Svein Egils-
son, og Sæberg Þórðarson, sölu-
stjóri hjá Heklu, sem ekur
Volkswagen Passat TS fyrir
Heklu hf. Eina undantekingin er
sú, að Eyjólfur Brynjólfsson ek-
ur Ford Victoria árgerð 1934
fyrir Vikuna. Alþýðublaðið
hafði i gær samband við Eyjólf
og Sævar Guðmundsson, sem á
bflinn með honum, og fór þess á
leit að fá að taka mynd af biln-
um i þvi skyni að birta hana hér.
Voru þeir báðir samþykkir þvi,
og var ákveðið að hittast á
ákveðnum tima i gær til að taka
myndina, en til þess þurfti að
taka bilinn út úr bilskúr. En áð-
ur en af myndatökunni varð
komst Kristin Halldórsdóttir
ritstjóri Vikunnar i málið og
bannaði þeim félögum að leyfa
Alþýðublaðinu myndatökuna.
Þótti Eyjólfi þetta mjög furðu-
legt, þegar við höfðum samband
við hann seint i gær, og varð
honum að orði: „Það er engu
iikara en við eigum ekki lengur
bflinn og höfum ekki ráðstöfun-
arrétt yfir honum.” Hann sagði,
að auk Vikunnar hafi tisku-
verslunin Adam legið i þeim að
keppa á bilnum i nafni verslun-
arinnar, en þar sem þeir höfðu
þá gert samning við Vikuna,
höfnuðu þeir þvi.
sina við Laugardalshöllina
klukkan hálf ellefu. Þar verða
þeir búnir undir keppnina, og
m.a. komið fyrir i þeim fimm
litra brúsum, sem tengdir verða
við bensindælu bflanna. Siðan er
ætlunin að aka einn hring um
borgina til að hita bilana vel upp
fyrir keppnina, en siðan verða
bilarnir ræstir hver af öðrum
frá bensinstöðinni eftir að fimm
litrum af bensini hefur verið
dælt á þá. Eins og skýrt hefur
verið frá verður ekið um Bæjar-
háls og sem leið liggur austur
Hellisheiði og svo langt sem
bensinið endist i hverjum bil. 1
hverjum bfl verður fulltrúi ts-
lenska bifreiða- og vélhjóla-
klúbbsins til að lita eftir að sett-
um reglum sé fylgt. Samkvæmt
þeim má ekki aka hægar en 45
km. á klst. og ekki hraðar en 70
km. á klst., og ökumönnum er
ekki leyfilegt að drepa á vélun-
um og láta bilana renna niður
brekkur.
metrar upp i 5000 rúmsenti-
metra. Minnsta vélin er i jap-
önskum Minica station frá Agli
Vilhjálmssyni, en með stærstu
vélarnar eru 8 strokka Bronco
og Ford Victoria, sem áður er
nefndur. Erfitt er að spá fyrir
um úrslitin i hinum ýmsum
flokkum, en þó má litillega hug-
leiða, hvaða bilar af minnstu
gerðunum eru sigurstrangleg-
astir. Citroen hefur oft sigrað i
sparaksturskeppni, en sjö bflar
af þeirri gerð verða með að
þessu sinni. Minnstur er 2 CV 6,
sem hefur mjög góða sigur-
möguleika i sinum flokki, ásamt
Ami 8, og sömuleiðis hefur
Citroen GS góða möguleika i
sinum flokki. í minnsta flokkn-
um má ennfremur nefna Minica
og Fiat 126, sem báðir hafa
mjög góða sigurmöguleika. En
það fer allt eftir vélarstærðinni
eða bilnum yfirleitt, aksturslag
ökumannanna hefur mikil áhrif
á eyðsluna, og I samkeppni bfla
með svipaðar eða sömu vélar-
stærðir hefur það úrslitaþýð-
ingu.
Keppnin hefst klukkan tvþ á
sunnudaginn við bensinstöð
Esso á Artúnshöfða, en kepp-
endur eiga að mæta með bfla
Bilunum er skipt i flokka eftir
rúmtaki vélanna, og eru vélarn-
ar af stæröunum 359 rúmsenti-
fimm a förnum vegi
Finnst þér réttlætanlegt að beita börn
líkamlegum refsingum?
Ágúst Böðvarsson, mjólkur-
fræðinemi:Nei, ég er algjörlega
á móti þvi. Ég á ekki börn sjálf-
ur, en sé ekki hvernig hægt er að
réttlæta slikt.
Guðrún Jónsdóttir, húsmóðir:
Það getur komið fyrir, að það sé
nauðsynlegt, það veltur á þvi
hvað þau hafa verið óþekk. Ann-
ars er ég ekki fylgjandi þvi, ekki
þar fyrir. Ég á sjálf tvö börn.
Edda ólafsdóttir, aðstoðarverk-
stjóriog húsmóöir: Það veltur á
aðstæðum og þvi, sem þau hafa
gert af sér. Sjálf á ég tvö börn.
Elinborg Guðmundsdóttir, hús-
móðir: Alls ekki. Ég á sjálf sex
börn, sem ég hef náttúrlega
þurft að dangla aðeins i, en það
er samt ekki réttlætanlegt. Svo
ernáttúrlega ekkisama hvernig
maður fer að þvi.
Jón Benediktsson, starfsmaður
hjá Mjólkursamsölunni: Það er
nú það, já. Það getur verið
nauðsynlegt, en bara einu sinni.
Það er rétt að láta krakkana að-
eins finna til, en ekki berja þau.
Maður verður að halda i við þau
og hleypa þeim ekki of langt.