Alþýðublaðið - 30.10.1974, Side 4

Alþýðublaðið - 30.10.1974, Side 4
Svefn og draumar Flcstir eyða þriðja hluta æv- innar i rúminu. t okkar landi lif- ir hver maður að meðaltali 70 ár. Það þýðir, að rúmlega 23 ár fara I svefn. Er þetta tlmi, sem eytt er til einskis, eða höfum viö gagn af honum? Hvert er hlutverk svefnsins? Er ekki hægt að breyta vökutimanum? Hvernig vcrða draumar til og hvers vegna koma sumir draumar fram? Þessar spurningar og margar fleiri hafa um langan aldur ver- ið ofarlega i hugum fólks. A vor- um dögum rannsaka lifeðlis- fræðingar, sálfræðingar og læknar fyrirbærið vaka — svefn. Samt sem áður verða til hinar og þessar fjarstæðukenndar hugmyndir, fréttir berast af fólki, sem sefur ekki, um undra- lyf, sem lækna svefnleysi þegar i stað. Gömul og ný hjátrú og þokukenndar skýringar á þeim fyrirbærum, sem koma fyrir i svefni gera hann torskilinn og leyndardómsfullan. Við munum reyna að varpa Ijósi á einhverj- ar af þessum spurningum i eftirfarandi viðtali við A.M. Vein, prófessor við Setsenov- læknaháskólann f Moskvu. „Fólk hefur alltaf haft áhuga á hlutverki svefnsins. Og sú spurning, hvað svefninn sé manninum, er sennilega ekkert frumleg”. Svefninn er ein af frumþörf- um mannsins, sem hann getur ekki lifað án. Þarfir mannsins ákvarða hegðun hans að mörgu leyti. Þörfin hefur vissar að- gerðir i för með sér. T.d. er fæðutaka virk starfsemi og rannsóknir siðustu ára hafa leitt I ljós, aðsvefninn er starfsemi”. „Ef svefninn er starfsemi, er hann þá ekki ætlaður til hvildar, eins og álitið hefur verið um aldir?” „Sú hugmynd, að svefninn sé til að endurnæra krafta þá, sem maðurinn hefur eytt yfir daginn er enn mjög útbreidd. En maðurinn gerir fleira i svefni en að hvila sig. Hjarta og vöðvar geta hvilst á vökutima. Það var þess vegna eðlilegt, að farið væri að draga hlutverk svefns- ins sem hvildar eingöngu i efa. Siðar kom i ljós, að hluti heilasellanna starfar i svefni, ekki siður en i vöku og stundum enn virkar. A nóttunni endur- skipuleggja þær starf sitt og mynda ný sambönd innbyrðis. Visindamenn komust að þeirri niðurstöðu, að i svefni færi fram úrvinnsla úr þeim upplýsingum, sem koma til heil- ans yfir daginn. Hluta þeirra er fleygt, en aðrar geymdar til mismunandi langs tima. Þess vegna dregur svefninn úr þeim áhyggjum, sem koma upp i vöku. t svefni eiga sér stað breytingar, sem stuðla að endurnýjun þeirra krafta, sem eytt hefur verið. Sem sagt svefninn er ekki aðeins venja. Hann er þáttur i lífi hvers ein- asta manns”. „En nú hef ég oftar en einu sinni heyrt, að til væri fólk, sem nyti yfirleitt aldrei svefns’. „Hvorki ég né starfsbræður minir höfum nokkurn tima rek- ist á slikt fólk, þó að við höfum rannsakaö svefn i fjölda ára. Meöal sjúklinga okkar hafa ver- iömenn, sem halda þvi fram, að þeir geti ekki sofið. En svefn- linurit leiddu i ljós, að þeir sváfu ekki undir 3-4 klst. á sólar- hring”. „Þeir sofa 3—4 stundir. Vitað er, að Napóleon og Edison sváfu 2—3 stundir á sólarhring. En nú er til fólk, sem veröur að sofa 10 stundir til að hafa gagn af svefninum. Er þetta bil ekki of breitt?” „Það er komið undir eigin- leikum taugakerfis hvers og eins, skapferli, barnsvana og erfðafræði. Það leikur enginn vafi á þvi, að 5—6 stunda eðli- legur svefn nægir til að tryggja liffærunum eðlilega starfsemi. Samt sem áður eru margir, sem sofa meira. Þar er um að ræða fullnægingu svefnþarfarinnar, sem að mörgu leyti er komin undir hugarástandi mannsins auk venju og erfðafræðilegra eiginleika”. „Mörgum gengurillaað sofna kvöldið fyrir einhvern stórvið- burð eða er þeir kviða einhverju verki. Getur þetta ekki haft slæmar afleiðingar i starfi? Það hefur einnig slæmar afleiðing- ar, ef fólk á mjög erfitt með svefn. Er hægt að hjálpa þeim, sem þjást af svefnleysi?” „Ég er á móti orðinu „svefn- leysi”. Allir sofa eitthvað, svo að þetta orð er ónákvæmt. Einn- ig hefur það slæm áhrif á hug- myndir manna um vandamál þeirra. Svefn og vaka eru nátengd. Verði rask á öðru, kemst einnig rask á hitt. Með öðrum orðum, vansvefn á rætur sinar að rekja til vökunnar. Fulltrúar ýmissa starfsgreina þurfa á allri vöku sinni að halda istarfi, s.s. flugmenn, bilstjórar og fl. Streita, mikil andleg reynsla og litil likamleg hreyf- ing leiðir til vanliðunar og siðan til vansvefns. Margir reyna að bæta svefn- inn með hjálp ýmissa svefn- lyfja. Lyf breyta eðli svefnsins, en hafa engin áhrif á sjálfa or- sökina. Verkefnið er fólgið i þvi að koma réttu lagi á svefn og vöku. Tilfinningaástand okkar, skap og viðkvæmni hefur mikil áhrif á svefninn. Þess vegna er bæði lyfjameðferð og sálræn meðferð nauðsynleg til að koma reglu á sálarástand okkar. Þetta á við um fólk, sem stöð- ugt þjáist af vansvefni. Sá, sem sefur yfirleitt eðlilega, en getur ekki sofnað fyrir próf t.d. vinnur það svefntap upp á næstu dög- um”. „I upphafi samræðna okkar minntust þér á, að virk sálræn starfsemi færi fram i svefni. Draumar hafa alla tið verið mikið áhugaefni manna. A und- ánförnum tuttugu árum hafa orðið til visindalega grundvall- aðar hugmyndir um drauma, eftir að svokallaður „hraður svefn” uppgötvaðist. Gætuð þér ekki sagt okkur nánar frá þessu svefnstigi?” „Áður var talið, að svefninn yrði þvi dýpri sem lengra liði á nóttina og yrði siðan léttari, en nú hefur verið sannað, á á eftir „hægum svefni” kemur „hrað- ur svefn” og eru slik umskipti 4—6 sinnum á nóttu. Sannað hefur verið, að yfir- gnæfandi meirihluti fólks dreymir i hröðum svefni. Draumar eru 4—6 sinnum á nóttu, þ.e.a.s. jafnoft og um- skiptin milli hægs og hraðs svefns. Alla dreymir, en fólk, sem vinnur erfiðisvinnu dreymir ekki eins skýra og innihaldsrika drauma. Það má ekki gleyma þvi, að þær upplýsingar, sem koma til heilans, eru eins konar eldsneyti fyrir draumana. Ekki taka allir eftir draumum sinum. Vakni maður upp af „hröðum svefni”, man hann draum sinn án erfiðleika, en vakni hann af „hægum svefni”, eru litlar likur á, að hann muni drauminn”. „Nú er til fólk, sem trúir á drauma og margir draumar koma fram. Sl. ár sá Karpov, stórmeistari leik i draumi, sem bjargaði honum frá tapi i bið- skák. Hvernig má skýra þetta?” „Ég held að allir draumar eigi sér raunverulegan grund- völl i lifinu. 1 draumana bland- ast þrá okkar og gleði, þjáning- ar og harmur. í svefninum er maðurinn áfram sá hinn sami persónuleiki, sami einstakling- ur og i vökunni, en hugsanir hans koma fram á opnari og frjálsari hátt. Fréttir um, að einhver draumur hafi ræst berast mjög fljótt út. öllum er sagt frá þvi. En það er sjaldan sagt frá draumum, sem ekki koma fram og þeir gleymast fljótt, en flestir draumar eru af þeirri tegund- inni. Listafólk heldur áfram starfi sinu bæði i vöku og svefni. Akvörðun eða uppgötvun kemur skyndilega, en hún sprettur ekki upp af engu. Sá sem hefur mikinn áhuga á starfi sinu og ræður yfir mikilli þekkingu getur öðlast vitneskju I svefni, en sá, sem litið veit, gerir engar uppgötvanir. Draumar geta þess vegna verið mjög vel upplýstu fólki til hjálp- ar”. (APN) Olíukyndingaviögerðir Stilling og nýtismæling- ar. Sóthreinsum einnig miðstöðvarkatla. Helg- ar-og kvöldþjónusta. Oliubrennarinn s.f. Simi 82981. Ford Bronco — VW-sendibflar Land Rover — VW fólksbllar BÍLALEIGAN iEKILL BRAUTARHOLTI 4. SÍMAfl 28340-37199 Auglýsið í Alþýðublaðinu NAUTASKROKKAR Kr. kg 397.- Innifalið i veröi: Útbéining. Mérk'Tng. Pökkun. Kæling. KJÖTMIDSTÖDIN Lakjarvarl, Laugalak 2. abni JS0 2O Meö 32 myndum, svart-hvitum og i litum, eftir ýmsa Ijósmyndara. - Skýringarkort í texta. Einstaklega skýr og greinileg lýsing á fyrsta eldgosi sem oröiö hefur i þéttbýli á íslandi. Fjórar útgáfur: íslenzk, norsk, ensk, þýzk. Verö kr. 800 - + sölusk. HEIMSKRINGLA. ' t Bálför FINNS B. KRISTJÁNSSONAR rafverktaka, fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 31. október kl. 13.30. Marta Finnsdóttir, Kristján Finnsson, Guðfinna Finnsdóttir, Kristin Finnsdóttir, Þorleifur Th. Finnsson, Pétur Lárusson, Hildur Axelsdóttir, Gunnar S. Óskarsson, Hilmar Einarsson, Hrafnhildur Jósefsdóttir. Hjartans þakkir til ykkar allra, fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andiát og útför eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa, HALLSTEINS HINRIKSSONAR, kennara Sérstakar þakkir færum við stjórn og félögum öllum í Fimieikafélagi Hafnarfjarðar fyrir ómetanlega hjálp og vináttu fyrr og siðar, Guð blessi ykkur öll. Ingibjörn Arnadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Stjórnmál 2 til við að ala upp nýja ung- sveina og verður að sjálfsögöu engu um það spáð, hvort þeir eiga eftir að fara að dæmi þeirra dr. Ólafs Ragnars & Co, þegar þeir öðlast nægilega þekkingu á hinu innsta eðli Framsóknarflokksins. Ef til vill lánast uppeldið betur nú en siðast. Tveir hinna nýju erfingja framsóknaróðalsins eru þegar komnir svo langt i framsókn- arfræöunum, að þeir eru tekn- ir til viö að skrifa sinn hvorn langhundinn um framsóknar- pólitik i Timann á sunnudög- um. Nú er bara að sjá, hvernig hinir nýju lærisveinar bregð- ast viö, þegar kemur að næstu hamskiptum Framsóknar- flokksins, þegar hann hallar sér næst á „vinstri hliðina”. H.E.H. o Miövikudagur. 30. október. 1974.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.