Alþýðublaðið - 30.10.1974, Side 5

Alþýðublaðið - 30.10.1974, Side 5
BÚtgefandi: Blað hf. Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm.) Sighvatur Björgvinsson Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir Aðsetur ritstjórnar: Skipholti 19, simi 28R00 Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, simi 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, sími 14900 Prentun: Blaðaprent ALÞINGI KOMIÐ SAMAN Alþingi var kvatt saman til fundar i gær eftir nokkurt hlé. Þessa dagana er verið að koma þvi á laggirnar, en raunveruleg þingstörf munu hefjast i næstu viku. Þá mun forsætisráðherra, Geir Hallgrimsson, væntanlega flytja stefnu- ræðu fyrir stjórn sina og er þess að vænta, að sú ræða verði nokkru fyllri og itarlegri stefnuyfir- lýsing, en málefnasamningurinn, sem birtur var i sumar. Hann vakti fleiri spurningar en hann gaf svör við og verður gengið eftir þvi i umræðunum um stefnuræðu forsætisráðherra að hann gefi svör við þeim, þannig að þjóðin viti við hverju má búast af rikisstjórninni. Þing það, sem nú hefur hafið störf, mun fá mörg mál til umfjöllunar. Það þarf m.a. að staðfesta bráðabirgðalög þau, sem rikisstjórnin hefur verið að gefa út á milli þinga. Bráða- birgðalög þessi hafa flestöll verið með þvi marki brennd að skerða verulega umsamin kjör launa- stéttanna i landinu — svo verulega, að ávextir þriggja ára kjarabaráttu launþegasamtakanna eru nú að engu orðnir. Samt sem áður mun rikisstjórnin að öllum likindum fá þessi bráða- birgðalög samþykkt á Álþingi þvi meirihluti hennar þar er svo sterkur. Þó verður lærdóms- rikt að sjá hvort ekki muni einhverjir þing- manna stjórnarliða — t.d. þeir þeirra, sem kjörnir hafa verið i ábyrgðarstöður af verka- lýðshreyfingunni — meta meira sannfæringu sina og skyldur við umbjóðendur sina i röðum láglaunafólksins en flokkshollustu. Auk þessara mála mun utanrikismálin svo bera á góma á Alþingi i vetur. Sjálfsagt mun margt sérkennilegt gerast i þeim umræðum — ekki hvað sist þegar Einar Ágústsson, utanrikis- ráðherra, þarf að fara að berjast við sinn eigin draug frá árum rikisstjórnar ólafs Jóhannes- sonar. Mikilvægustu viðfangsefni þingsins verða hins vegar án efa vandamál efnahagslifsins. Fjárlagagerð verður sennilega erfiðari nú en oftast áður. Alþýðuflokkurinn gerir sér fulla grein fyrir þvi, a ð enginn er öfundsverður af þvi að taka við þrotabúi rikisstjórnar Ólafs Jóhannessonr og að það er erfitt verk að rétta þjóðarskútuna við eftir þriggja ára vanhirðu og óstjórn. Það er enn erfiðara vegna þess, að það er alls ekki sama hvernig það er gert. Einfaldasta leiðin og sú leið, sem án efa mun freista ihaldsstjórnarinnar, er sú að láta almenning i landinu borga brúsann án þess að taka nema mjög takmarkað tillit til misjafnrar getu fólks til þess að axla þær byrðar. Leiðarar Morgunblaðsins, sem fimbulfamba um vanda atvinnurekenda en sneiða hjá vandkvæðum heimilanna, eru e.t.v. forsmekkur að þvi sem koma skal. En Alþ.fl. mun berjast gegn þvi, að láglaunafólkið i landinu verði látið taka að sér þyngstu afborganirnar af vixilskuldum rikisstjórnar Ólafs Jóhannessonar. Hann mun beita sér fyrir þvi að byrðunum verði deilt á þegna þjóðfélagsins eftir efnum þeirra og ástæðum. Hann mun veita rikisstjórninni andstöðu og aðhald, en þó sýna fulla ábyrgð. Þannig getur Alþýðuflokkurinn mest og best unnið fyrir launþega og neytendur við þær aðstæður, sem nú eru i islenskri pólitik. Getur Watergate bjargað „gleymda manninum”? Undanfarin 20 ár hefur Alger Hiss lifað við skömm eftir fimm ára fangelsisdóm fyrir meinsæri. Þessi dómur gerði ungan lögfræðing frá Kaliforniu — Richard Nixon — frægan. Það furðulega er, að nú bendir allt til þess, að erfiðleikar Nixons i dag geti aðstoðað Hiss við að sanna sakleysi sitt... og allt er það að þakka fjórum orðum á Water- gate-segulböndunum. Fréttirnar um segulbandsupp- tökur Nixons forseta hafa veitt eldri manni, sem lifir óþekktur i New York nýja von eftir 20 ára skömm. Alger Hiss var i ábyrgðarstöðu i Washington, en honum var varpað i fangelsi og nafn hans at- að sauri i einhverju mesta hneykslismáli, sem komið hefur fyrir hjá öryggisþjónustu Banda- rikjanna. Hann hefur alltaf haldið fram sakleysi sinu. Hiss vonar að fjögur orð á segulbandsupptökunni i Water- gatemálinu geti sannað þetta. bað var framlag Nixons i Hiss- málinu, sem gerði það að verkum að hann fékk vissa þýðingu hjá þjóðinni og tryggði honum vara- forsetaembættið hjá Eisenhower. Hiss var dæmdur i fimm ára fangelsi fyrir meinsæri i njósna- máli. Hann heldur, að sönnunin á sakleysi hans sé á segulbands- spólunum, sem eru um Watergate frá 28. febrúar 1973. Þá segir Nix- on John Dean að kynna sér Hiss- málið sem dæmi um það, hvernig eigi að reka slik mál. AFORNSÖLU — Við fundum ritvélina og Pumpkin-skjölin, á Nixon að hafa sagt samkvæmt afritunum. Ritvélin var sú sama og Hiss átti að hafa notað til að taka afrit af rikisleyndarmálum, sem hann var sakaður um að afhenda kommúnista njósnurum. Hiss var sannfærður um að fyndist gamla ritvélin hans félli þetta mál um sjálft sig og ritvél- in, sem menn héldu að væri gamla ritvélin hans fannst á forn- sölu i Washington og honum til mikillar undrunar var letrið á rit- vélinni og skjölunum eins. Hann var dæmdur fyrir meinsæri fyrir dómi. Hann hélt þvi fram að skipt hefði verið um ritvél og hann væri fórnarlamb samsæris. FYRIRMYNDAR FORTIÐ Hiss telur, að orð Nixons ,,við fundum ritvélina” sanni ásakanir hans. Eitt er vist, að hefði Richard Nixon ekki rekið málið og komið fram eins og fyrirmyndar leyni- lögreglumaður i reifara hefði Al- ger Hiss aldrei verið dæmdur. Fortið Hiss var til fyrirmyndar. Hann tók próf frá lögfræðideild- inni i Harward og var einn af að- stoðarmönnum Roosevelts. Hann vann lika að stofnun Sameinuðu þjóðanna og kom sjálfur með einkaskjölin til Trumans forseta. 1948erHiss skyndilega ásakað- ur um að hafa verið félagi i kommúnistaflokknum öll þessi ár og séð um að vinna að einkamál- um þeirra innan bandarisku rikisstjórnarinnar. Akærandinn var fyrrverandi kommúnisti Whittaker Chamb- ers. Um þetta leyti hófust ofsókn- irnar á hendur rauðliða i Banda- rikjunum. í þinginu sá nefnd um leit að mönnum með nnd-banda- risk sjónarmið. Nixon ungi var einn i þessari nefnd. HRÆÐILEG MISTÖK Hiss krafðist þess að vera yfir- heyrður af nefndinni, þegar Chambers kom með ákæruna. Hann var þá 44 ára. Hann var skelfingu lostinn yfir ásökunum og neitaði að hann hefði nokkru sinni verið kommúnisti. Flestir nefndarmenn vildu fús- lega viðurkenna, að hér væri um hræðileg mistök að ræða, sem væru að gera út af við traustan mann i opinberu embætti. Þeir vildu hætta við málið. Nixon var sá eini, sem krafðist þess, að nefndin héldi rannsókn- inni áfram. Hann hafði ekkert að segja stjórnmálalega þá, en hann bar enga virðingu fyrir Hiss. Hann fékk nefndina til að leggja blessun sina yfir frekari yfir- heyrslur á Chambers. Chambers lagði fram sannanir um, að Hiss væri ekki aðeins fé- lagi i kommúnistaflokknum held- ur og rússneskur njósnari. Sönn- unargagnið voru afrit af skjölum frá utanrikisráðuneytinu. Chambers hélt þvi fram, að Hiss hefði tekið afrit af leyniskjölum allt frá 1938. Chambers sá um ljósmyndun á skjölunum ásamt öðrum kommúnista að næturlagi til að Hiss gæti skilað frumritun- um i ráðuneytið næsta dag. Seinna hélt Chambers þvi fram, að Hiss hefði sjálfur. vélritað af- ritin á eigin ritvél og þá voru sönnunargögnin, sem Chambers lagði fram tekin af dómsmála- ráðuneytinu til öryggis. Þá fór Nixon að óttast, að málið yrði þaggað niður. Hann tók ljósrit af sönnunar- gögnunum, sem Chambers hafði falið i graskeri og þess vegna voru skjölin nefnd Pumkinskjölin (pumpkin-grasker). Hann notaði þessi skjöl til að neyða dómsmálaráðuneytið til að höfða mál gegn Hiss til að dæma hann fyrir meinsæri. RÍKISLEYNDARMAL Það verður að koma njósna- máli fyrir rétt innan þriggja ára. Þvi var ekki hægt að daema Hiss fyrir njósnir og Nixon frétti, að dómurinn vildi heldur dæma Chambers fyrir meinsæri. Þetta myndi eyðileggja málið gegn Hiss. Nixon ásakaði þvi dóms- málaráðuneytið opinberlega fyrir að reyna að hylma yfir kæruna gegn Hissog sagði, að ráðuneytið væri ekki fært um að varðveita rikisleyndarmál. Dagblöðin stóðu með Nixon. FBI neyddist til að gripa til sinna ráða og á elleftu stundu fannst gamla ritvélin hans Hiss á forn- sölu. Það gerði út um örlög hans. Chambers dó 1961, en Hiss, sem nú er 69 ára, reynir enn að þvo smánarblettinn af heiðri sinum. — Ég er ekki bitur, segir hann — vinir minir hafa aldrei yfirgef- ið mig. En ég kann ekki vel við brennimerkið, sem ég fékk. Þaö fer ekki aðeins i taugarnar á mér. Ég vil losna við það. r t f*' Gömul mynd, sem sýnir Alger Hiss til hægri. Miðvikudagur. 30. október. 1974. o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.