Alþýðublaðið - 25.11.1974, Blaðsíða 1
REIÐAR RADDIR SILDAR-
SJÚMANNA í NORÐURSJÚ
SEM VILJA EKKILENGUR
BORGA UNDIR AFTUR-
ENDANN Á FÚLKI OG LEIKI
ÞESS, SUKKLÍF OG
SKEMMTANIR
► 3
alþýðu
ÞRIÐJUDAGUR
25. nóv. 1974 - 238. tbl. 55. árg.
,Kaninn' sést
í Reykjavík
ER SKERMIRINN
EKKI TENGDUR?
Keflavikursjónvarpið
sést nú litið verr i
Reykjavik en áður en
samningarnir um tak-
mörkun þess voru gerð-
ir. Eftir þeim upplýs-
ingum, sem Alþýðu-
blaðinu hafa borist er
engu llkara, en skerm-
urinn sem átti að úti-
loka Keflavikursjón-
varpið frá Reykjavik og
nágrenni, sé alls ekki
tengdur inn á kerfið.
Alþýðublaðið hafði
samband við fólk viða I
Reykjavik i gær og bar
öllum saman um, að
það hefði liðið nokkur
tlmi, þannig að Kefla-
vfkursjónvarpið hefði
lltið sem ekkert sést, en
nú væri orðin breyting á
og sæist útsendingin sist
verr en áður.
V-ÞYSKUR
TOGARI
TEKINN!
BENEDIKT GRONDAL:
Ohjákvæmilegt framhald
af aukinni sókn þýskra
„Ég tel, að þessi at-
burður sé óhjákvæmilegt
framhald af aukinni sókn
Þjóðverja inn i landhelg-
ina”, sagði Benedikt
Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins I viðtali
viö Albýðublaðið I gær.
Þaö getur ekki farið
fram hjá Þjóðverjum, að
afstaða þeirra er I algerri
mótsögn við þróun haf-
réttarmála á alþjóðavett-
vangi.
t framhaldi af flokks-
þingi Alþýðuflokksins,
sem haldið var fyrir viku,
sendi ég eftirfarandi
skeyti til Helmut
Schmidt, kanslara
Vestur-Þýskalands, og
Willy Brandts, formanns
vestur-þýska jafnaðar-
mannaflokksins, þar sem
Islenskir jafnaðarmenn
hvetja þá eindregið til að
beita sér fyrir stefnu-
breytingu i landhelgis-
málinu:
— 35. þing Alþýðu-
flokksins hefur látið i ljós
vaxandi áhyggjur Islend-
inga yfir aukinni sókn
þýskra togara inn I 50
milna fiskveiðilandhelgi
tslendinga, en hinir þýsku
togarar eru nú einu er-
lendu fiskiskipin, sem
ekki virða þessa fisk-
veiðilandhelgi. tsland
hefur þegar samið við
Bretland, Belgiu og Fær-
eyjar um þessi mál. Þar
sem úthafsveiðar eruð aö
eins smábrot af þýskum
atvinnuvegum, en fisk-
veiðar hins vegar undir-
staöa efnahagstilveru ts-
lendinga, þykir islensk-
um sósialdemókrötum
leitt, að Vestur-Þýska-
land skuli beita áhrifum
slnum i Efnahagsbanda-
laginu til að halda uppi
efnahagslegum aðgerð-
um gegn tslendingum til
að þvinga þá i þessu máli
á sama tima sem ráð-
stefna Sameinuðu þjóð-
anna sýnir vlðtækan vilja
fyrir 200 milna efnahags-
lögsögu.
| BAK
Lokast Vigri og Bjarni
Benediktsson inni í
Hamborg vegna reiði
þýsku fiskimannanna?
„Þýskt fiskimanna-
samband, sem er hluti af
einu öflugasta verkalýðs-
sambandi Þýskalands,
hefur hótað að taka hafn-
armynni og hafnarlokur i
Cuxhaven og Bremerhav-
en á sitt vald, ef nokkurt
islenskt fiskiskip reynir
að komast þar út eða
inn”, sagði Ingimar
Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Félags ís-
lenskra botnvörpuskipa-
eigenda, I viðtali við
Alþýðublaðið i gær, en
villandi fréttaflutningur
þýskra fjölmiðla, um töku
þýska togarans Arcturus,
hafa meðal annars, vald-
ið mikilli ólgu þar.
„Það eru fiskimennirn-
ir, en ekki útgerðarmenn
eða fiskkaupendur, sem
að þessum aðgerðum
standa”, sagði Ingimar
ennfremur, „enda kemur
það fiskkaupmönnunum
illa að fá ekki fisk frá Is-
lenskum skipum, sér-
staklega um þessar
mundir, þvi fiskskortur
er i Þýskalandi nú og
verður fyrirsjáanlega
næstu vikurnar. Togarinn
ögri var á leið til Brem-
enhaven, með um 260
lestir af fiski, en hefur nú
verið snúið til Ostende I
Belglu, og mun losa þar.
Sem dæmi um fiskskort-
inn má nefna það, að ögri
hefði orðið einskipa I
Bremerhaven á morgun,
ekkert annað skip átti að
losa þar þá”.
Snæfugl losaði i Cux-
haven i fyrradag og um
tlma var óttast að erfið-
lega gæti gengið að koma
út úr fiskihöfninni þar.
Það tókst þó i gær og þeg-
ar félagar i fiskimanna-
sambandinu reyndu að
loka hafnarmynninu,
skarst lögreglan I leikinn
og fékk þá ofan af fyrir-
ætlan sinni. Sigldi Snæ-
fugl út á ytri höfnina og
mun taka vistir i dag.
Hætta getur verið á að
önnur skip lokist inni I
þýskum höfnum, þvi bæði
Vigri og Bjarni Bene-
diktsson eru i viðgerð i
Hamborg, Vigri mun eiga
að losna um mánaðamót-
in, en ekki var vitað hve-
nær Bjarni yrði ferðbú-
inn.
Hvarf Geirfinns verður
æ dularfyllra
„Þessi maður er lykill-
inn að lausninni, hver svo
sem hún er”, sagði Valtýr
Sigurðsson, fulltrúi bæj-
arfógetans i Keflavlk, i
viðtali við Alþýðublaðið i
gær, en maðurinn sem
Geirfinnur Einarsson fór
til fundar við hefur enn
ekki gefið sig fram, þrátt
fyrir itrekuð tilmæli lög-
reglunnar þar um.
Nú hefur verið gerð
teikning af þessum manni
eftir lýsingu sjónarvotta
og hefur teikningunni
verið dreift á lögreglu-
stöðvar. Þá er verið að
gera módel af manninum
I leir og sagði Valtýr að-
eins dagaspursmál, hve-
nær lýst yrði eftir mann-
inum I fjölmiðlum með
þessum teikningum, ef
hann ekki gæfi sig sjálfur
fram.
Valtýr sagði, að búið
væri að rannsaka feril og
hag Geirfinns án þess að
þar hefði fundist nokkuð
það, sem gæti varpað
ljósi á hið dularfulla
hvarf hans.
19,5 MILLJONIR
í „GÚMMÍTÉKKUM"
tékkaviðskiptum i viðkom-
andi bönkum og mun vera
rétt i meðallagi. Innláns-
stofnanir i Reykjavik,
Kópavogi, Hafnarfirði,
Keflavik og fleiri nærliggj-
andi stöðum tóku þátt i
könnuninni.
Eitt þúsund og sex inni-
stæðulausir tékkar, að upp-
hæð 19.457.000.00 krónur,
komu fram við skyndikönn-
un -innistæðulausra tékka
þann 22. þessa mánaðar.
Var það 0,92% af heildar-