Alþýðublaðið - 19.01.1975, Page 2
Popphljómsveit
Gunnars Þórðarsonar...
Hljómleikar á vegum Félags íslenskra hljómlistarmanna í Átthagasal Hótel Sögu...
Félag Islenskra Hljóm-
listarmanna heldur
hljómleika á sunnudaginn
í Átthagasal Hótel Sögu/
og byrja þeir kl. 21. Á
hljómleikunum koma
fram 18 manna hljóm-
sveit F.i.H. Jasskvintett
Gunnars Ormslev og
popphljómsveit Gunnars
Þórðarsonar. Tilefni
hljómleíkanna er ráð-
stefna sem haldin verður
nú um helgina á vegum
Nordjass. Nordjass-
nefndin er nýstofnuð á
vegum Nomus (sam-
starfsnefndar um nor-
ræna tónlist) og hélt hún
fyrsta fund sinn í Kaup-
mannahöfn í fyrravor.
Er nefndinni ætlað að
fjalla um aukna sam-
vinnu hljómlistarmanna
á noröurlöndum, þeirra
er leika Jass, popp og
aðra alþýðutónlist. All-
gott samstarf er talið
hafa náðst í þessum efn-
um hvarvetna um
norðurlönd/ og má þar
nefna sem dæmi Jass-
hátíð sem haldin var í
Molde í sumar, og
hátigjna, sem haldin var í
Kaupmannahöfn i októ-
ber s.l. Á báðum stöðum
vakti þátttaka íslending-
anna Péturs östlunds og
Leifs Þóra rinssona r
mikla athygli. Nordjass-
ráðstefnuna hér sitja
eftirtaldir: Stig Rönn-
quist (Finnland), Steinar
Kristiansen (Noregur),
Nisse Sandstróm og Rog-
er Waklis (Svíþjóð) og
Chresten Larsen og Erik
Moseholm (Danmörki
Allir eru þeir þekktir
hljóðfæraleikarar og for-
ystumenn í jass og popp-
tónlist á norðurlöndum.
Fulltrúar islands á ráð-
stefnunni verða: Gunnar
Ormslev og Gunnar
Þórðarson (F.i.H.) og
Jón Múli Árnason
(Nomus og ríkisút-
varpið).
Ekki er að efa, að
margt manna verður á
hljóm leikunum, enda
ekki á hverjum degi sem
hér eru haldnir tónleikar
hvað þá með þetta mörg-
um úrvals hljóðfæraleik-
urum. Athyglisverð er
hljómsveit sú er Gunnar
Þórðarson hefur sett
samanaf þessu tilefni, og
ræddi Brambolt stuttlega
við hann til að fræðast um
„popphljómsveitina".
Gunnarsagði: „í þessari
hljómsveit eru valdir
menn í hverju plássi. Það
eru fyrir utan mig þeir:
Ari Jónsson á trommur,
Áskell Jónsson á flautu
og hinar og þessar tunn-
ur, Pálmi Gunnarsson
sem leikur á bakka,
Jakob Magnússon mun
leika á píanó og Halldór
Pálsson á allt og tenó-
saxafón.
Við höfum æft dálítið
saman að undanförnu,
þannig að hér er alls ekki
hægt að segja að um
„jamm" sé að ræða. En
við munum sem sagt
leika þarna nokkur lög
sem við höfum æft saman
og ég held að þetta ætti að
geta orðið bara nokkuð
gott."
Þá er ný hljómsveit að
lita dagsljósið, en hún er
þó svo nýf ædd, að ekki er
búið að skýra hana enn
þá. Þeir sem þessa
hljómsveit skipa eru: Ari
Jónsson, sem lemur
Gunnarsson sem mun
þenja bassa og væntan-
lega syngja ásamt Ara,
Ömar Óskarsson, leikur á
orgelið og píanóið og Tom
Lansdown mun leika á
gítar. Það var mál til
komið að einhverjir létu
til sin taka í hljóm-
sveita r ley sinu, og
piltarnir þessir eru ekki
af verri endanum, allir
þrautþjálfaðir hljóm-
listarmenn og færir. Þeg-
ar Brambolt hafði sam-
band við Ara hafði hann
þetta um málið að segja:
„Jú það er rétt, við erum
byrjaðiraðæfadáiítið, þó
að við byrjum ekki að
spila alveg á næstunni.
Við höfum ætlað okkur
þegar til kemur, að spila
mest „ameríkulinuna",
það er að segja þessa
amerísku tónlist sem er
mjög vinsæl erlendis, og
hefur upp á síðkastið
notið vaxandi vinsælda
hérlendis. Innan í milli
munum við svo f létta vin-
sælustu lögin".
o
Sunnudagur 19. janúar 1975.