Alþýðublaðið - 19.01.1975, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 19.01.1975, Blaðsíða 6
(barnanna hvers um sig) i við- eigandi linu og reit og tilgreina upphæð eignar með vöxtum i dálknum „Eignir kr.” og vaxta- tekjur eða aðrar tekjur (t.d. arð eða leigutekjur) af eigninni i dálknum „Tekjur kr ”. Nafn- greina ber vinnuveitanda bamsins (barnanna hvers um sig) i viðeigandi linu og reit og tilgreina upphæð greiddra launa I peningum og hlunnindum (sbr. 6. og 7. tölulið III. kafla leiðbein- inganna) I dálknum „Tekjur kr.”. Siðan ber að færa niður samtölu allra eigna og tekna barnsins (barnanna), draga þar frá i þar til gerðri linu og reitum skattfrjálsar innstæður og yerð- bréf og vexti af þeim, en þar er um að ræða sams konar eignir og vexti og rætt var um i A-lið leiðbeininganna, færa siðan skattskyldar eignir og tekjur bamsins (barnanna) i viðeig- andi linu og reiti. Heildarupp- hæð skattskyldra eigna ber sið- an að færa i tölulið 10,1, (Eignir barna) i framtali. öski fram- teljandi þess að eignir barna, eins eða fleiri, séu ekki taldar með sinum eignum skal sleppt aö færa þann hluta eignanna i greindan tölulið en geta þess sérstaklega i G-lið framtals, bls. 4, að það sé ósk framteljanda, að barnið verði sjálfstæður eignarskattsgreiðandi. Heildar- upphæð skattskyldra tekna ber að færa i tölulið 11, III, (Tekjur barna) i framtali. F-liður, bls. 4. Stundi barn, sem hefur skatt- skyldar tekjur skv. E-lið fram- tals, nám sem veitir rétt til námsfrádráttar skv. mati rikis- skattstjóra, ber að tilgreina nafn barnsins, skóla og bekk með deild i F-lið. I dálkinn „Námsfrádráttur eða hámarks- frádráttur kr.” ber að færa upp- hæð námsfrádráttar skv. mati rlkisskattstjóra eða upphæð skattskyldra tekna barnsins, hvora sem lægri er. Sé upphæð skattskyldra tekna barnsins (hvers barns um sig) hærri en upphæð námsfrádráttar og mis- munurinn hærri en 37.750 kr. getur framteljandi óskað sér- sköttunar á tekjum barnsins. Skal hann þá færa i dálkinn „Viðbótarfrádráttur vegna ósk- ar um sérsköttun barns kr.” þá upphæð mismunarins sem er umfram 37.750 kr. Siðan ber að færa niður frádrátt samtals skv. báðum dálkum F-liðar, leggja upphæðir beggja dálkanna sam- an og færa heildarupphæð i tölu- lið 2, IV, i framtali. Nemi upphæð skattskyldra tekna barnsins (hvers barns um sig) að frádregnum námsfrá- drætti 37.750 kr. eða lægri upp- hæð á framteljandi rétt á frá- drætti er nemur 50% af mis- munarupphæðinni. Þá upphæð skal hann færa i tölulið 12, V. i framtali. G-liður, bls. 4. Þessi stafliður framtalsins er sérstaklega ætlaður fyrir at- hugasemdir framteljanda. Þar skal m.a. geta þess ef með framtali fylgir umsókn um lækkun tekjuskatts (Ivilnun) á þar til gerðum eyðublöðum eða framsett skriflega á annan full- nægjandi hátt. Ivilnun getur komið til greina vegna ellihrör- leika, veikinda, slysa, manns- láts eða skuldatapa sem hafa skert gjaldþol framteljanda verulega, vegna verulegs eignatjóns, vegna framfærslu barna sem haldin eru langvinn- um sjúkdómum eða eru fötluð eða vangefin, vegna framfærslu foreldra eða annarra vanda- manna eða vegna þess að skatt- þegn hefur látið af störfum vegna aldurs og gjaldþol hans skerst verulega af þeim sökum. Enn fremur getur komið til greina ivilnun vegna verulegra útgjalda af menntun barns (barnaí framteljanda sem eldra er (eru) en 16 ára. Eyðu- blöö með nánari skýringum til noktunar I þessu sambandi fást hjá skattyfirvöldum. Þar er annars vegar um að ræða um- sóknareyðublað vegna mennt- unarkostnaðar barna og hins vegar vegna annarra framan- greindra ástæðna. Ennfremur skal tilgreina fengin og greidd meðlög með börnum á sautjánda ári i þess- um staflið, sbr. 2. og 3. tölulið i upphafi leiðbeininganna. Að lokum skal framteljandi dagsetja framtalið og undirrita. Ef um sameiginlegt framtal hjóna er að ræða skulu þau bæði undirrita það. ATHYGLIskal vakin á þvi að sérhverjum framtalsskyldum aðila ber að gæta þess að fyrir hendi séu upplýsingar og gögn er leggja megi til grundvallar framtali hans og sannprófunar þess ef skattyfirvöld krefjast. öll slik gögn, sem framtalið varða, skal geyma a.m.k. i 6 ár miðað við framlagningu skatt- skrár. Lagatilvitnanir i leiðbeining- um þessum eru i lög nr. 68/1971 um tekjuskatt og eignarskatt með áorðnum breytingum skv. lögum nr. 7/1972 og lögum nr. 60/1973 svo og lögum nr. 10/1974 um skattkerfisbreytingu. Varðandi skattframtal ársins 1976skal athygli vakin á þvi að skv. ákvæðum reglugerðar nr. 257 • 1974 ganga ákvæði 25. gr. reglugerðar nr. 245/1963 að þvi er varðar viðhaldskostnað Ibúð- arhúsnæðis að nýju i gildi frá og með 1. jan. 1975. Ber þvi i skatt- framtali ársins 1976 að telja fram raunverulegan viðhalds- kostnað ibúðarhúsnæðis á árinu 1975 og geta fært sönnur á hann með reikningum ef krafist verð- ur. Reykjavik, 15. janúar 1975 Rlkisskattstjóri. Hlunnindamat 1. Fæði: Fullt fæði sem vinnuveitandi lætur launþega (og fjölskyldu hansi endurgjaldslaust i té er metið sem hér segir: Fæði fullorðins 375kr.ádag. Fæði barns, yngraenlöára 300kr.ádag. Samsvarandi hæfilegur fæðis- styrkur (fæðispeningar) er met- inn sem hér segir: 1 stað fulls fæðis 500kr.ádag. 1 stað hluta fæðis 200'kr.ádag. 2. íbúðarhúsnæði: Endurgjaldslaus afnot laun- þega (og fjölskyldu hans) af Ibúðarhúsnæði, sem vinnuveit- andi hans lætur i té, skulu metin til tekna 4% af gildandi fast- eignamati hlutaðeigandi ibúð- arhúsnæðis og lóðar. Láti vinnuveitandi launþega (og fjölskyldu hans) i té Ibúðar- húsnæði til afnota gegn endur- gjaldi, sem lægra er en 4% af gildandi fasteignamati hlutað- eigandi ibúðarhúsnæðis og lóð- ar, skal mismunur teljast laun- þega til tekna. 3. Fatnaður: Einkennisföt karla 9.000 kr. Einkennisfötkvenna 6.200 kr. Einkennisfrakki karla 7.000 kr. Einkenniskápa kvenna 4.600kr. Hlunnindamat þetta miðast við það að starfsmaður noti ein- kennisfatnaðinn við fullt árs- starf. Ef árlegur meðaltalsvinnu- timi starfsstéttar reynist sann- anlega verulega styttri en al- mennt gerist og einkennisfatn- aðurinn er eingöngu notaður við starfið, má vikja frá framan- greindu hlunnindamati til lækk- unar, eftir nánari ákvörðun rikisskattstjóra hverju sinni, enda hafi komið fram rökstudd beiðni þar að lútandi frá hlutað- eigandi aðila. Með hliðsjón af næstu máls- grein hér á undan ákveðst hlunnindamat vegna einkennis- fatnaðar flugáhafna: Einkennisföt karla 4.500 kr. Einkennisföt kvenna 3.100 kr. Einkennisfrakki karla 3.500 kr. Einkenniskápa kvenna 2.300 kr. Fatnaður sem ekki telst ein- kennisfatnaður skal talinn til tekna á kostnaðarverði. Sé greidd ákveðin fjárhæð I stað fatnaðar, ber að telja hana til tekna. 4. Afnot bifreiða: Fyrir afnot launþega af bif- reiðum, látin honum I té endur- gjaldslaust af vinnuveitanda: Fyrirfyrstu 10.000 km afnot Fyrir næstu 10.000 km afnot Yfir 20.000 km afnot Láti vinnuveitandi launþega i té afnot bifreiðar gegn endur- gjaldi, sem lægra er en framan- greint mat, skal mismunur telj- ast launþega til tekna. C. íbúðarhúsnæði sem eigandi notar sjálfur eða lætur öðrum i té án eðli Iegs endurgjalds. Af ibúðarhúsnæði sem eigandi notar sjálfur eða lætur öðrum i té án eðlilegs endurgjalds skal húsaleiga metin til tekna 4% af gildandi fasteignamati húss (þ.m.t. bilskúr) og lóðar, eins þó að um leigulóð sé að ræða. A bú- jörð skal þó aðeins miða við fasteignamat ibúðarhúsnæðis- ins. 1 ófullgerðum og ómetnum i- búðum sem teknar hafa verið i notkun, skal eigin leiga reiknuð 1% á ári af kostnaðarverði i árs- lok eða hlutfallslega lægri eftir þvi, hvenær húsið var tekið i notkun og að hve miklu leyti. Nokkur frádráttur fæst vegna skólanáms, en h?nn er mismikill eftir þvi, hvaða nám er stundað. Gjaldamat A. Fæði: Fæði fullorðins ... 250 kr. á dag. Fæði barns, yngra en 16 ára ............200 kr. á dag. Fæði sjómanna á Islenskum fiskiskipum sem sjálfir greiða fæðiskostnað: a. Fyrir hvern dag sem Afla- tryggingasjóður greiddi framlag til fæðiskostnaðar framteljanda ... 64 kr. á dag. b. Fyrir hvern róðrardag á þil- farsbátum undir 12 rúmlest- um og opnum bátum, svo og öðrum bátum á hrefnu- og hrognkelsaveiðum, hafi Afla- tryggingasjóður ekki greitt framlag til fæðiskostnaðar framteljanda .. 250 kr. á dag. B. Námsfrádráttur: Frádrátt frá tekjum náms- manna skal leyfa skv. eftirfar- andi flokkun, fyrir heilt skólaár, enda fylgi framtölum náms- manna vottorð skóla um náms- tima, sbr. þó nánari skýringar og sérákvæði I 10. tölulið: 1. 81.000 kr: Bændaskólinn á Hvanneyri, framhaldsdeild Fiskvinnsluskólinn Gagnfræðaskólar, 4. bekkur og framhaldsdeildir Háskóli Islands Húsmæðrakennaraskóli Is- lands. Iþróttakennaraskóli Islands Kennaraháskóli tslands Kennaraskólinn Menntaskólar Myndlista- og Handiðaskóli Is- lands, dagdeildir Teiknaraskóli á vegum Iðnskól- ans I Reykjavik, dagdeild Tónlistarskólinn i Reykjavik, píanó- og söngkennaradeild 13 kr. pr. km. 15 kr. pr. km. 11 kr. pr. km. Tækniskóla Islands (Meina'- tæknideild þó aðeins fyrir fyrsta námsár) Vélskóli íslands, 1. og 2. bekkur Verknámsskóli iðnaðarins Verslunarskóli Islands, 5. og 6. bekkur 2. 67.000 kr: Fóstruskóli Sumargjafar Gagnfræðaskólar, 3. bekkur Héraðsskólar, 3. bekkur Húsnæðraskólar Loftskeytaskólinn Lýðháskólinn i Skálholti Miðskólar, 3. bekkur Samvinnuskólinn Stýrimannaskólinn, 2. og 3. bekkur, farmannadeild Stýrimannaskólinn, 2. bekkur, fiskimannadeild Vélskóli tslands, 3. bekkur Verslunarskóli Islands, 1.—4. bekkur 3. 50.000 kr: Gagnfræðaskólar, 1. og 2. bekk- ur Héraðsskólar, 1. og 2. bekkur Miðskólar, 1. og 2. bekkur Stýrimannaskólinn, 1. bekkur farmanna- og fiskimannadeilda Unglingaskólar 4. Samfelldir skólar: a. 50.000 kr. fyrir heilt ár: Bændaskólar Garðyrkjuskólinn á Reykjum b. 36.000 kr. fyrir heilt ár: Hjúkrunarskóli Islands Hjúkrunarskóli i tengslum við Borgarspitalann i Reykjavik Leiklistarskóli samtaka á- hugamanna um leiklist Ljósmæðraskóli íslands Námsfíokkar Reykjavikur, til gagnfræðaprófs c. 30.000 kr. fyrir heilt ár: Meistaraskóli Iðnskólans I Reykjavik d. 25.000 kr. fyrir heilt ár: Námsflokkar Reykjavikur, til miðskólaprófs og verslun- ar- og skrifstofustarfa Póst- og simaskólinn, sim- virkjadeild á fyrsta ári Röntgentæknaskóli Sjúkraliðaskóli Þroskaþjálfaskóli 5. 4 mánaða skólar og styttri: Hámarksfrádráttur 30.000 kr. fyrir 4 mán. Að öðru leyti eftir mán- aðafjölda. Til þessara skóla teljast: Hótel- og veitingaskóli tslands, sbr. 1 og 2. tl. 3. gr. laga nr. 6/1971 Iðnskólar Stýrimannaskólinn, undirbún- ingsdeild Stýrimannaskólinn, varðskipa- deild Teiknaraskóli á vegum Iðnskól- ans i Reykjavik, siðdegisdeild Vogaskóli, miðskólanámskeið 6. Námskeið og annað nám utan hins almenna skólakerfis: a. Maður sem stundar nám ut- an hins almenna skólakerfis og lýkur prófum við skóla þá er greinir I liðum 1 og 2, á rétt á námsfrádrætti skv. þeim liðum i hlutfalli við námsár- angur á skattárinu. Þó skal sá frádráttur aldrei hærri en sem heilsársfrádrætti nem- ur, enda þótt námsárangur (i stigum) sé hærri en sá náms- árangur sem talinn er vera tilsvarandi við heilsársnám. Auk þessa fái nemandi frá- drátt sem nemur greiddum námskeiðsgjöldum. b. Dagnámskeið sem stendur yfir eigi skemur en 16 vikur, enda sé ekki unnið með nám- inu, frádráttur 1.800 kr. fyrir hverja viku sem námskeiðið stendur yfir. c. Kvöldnámskeið, dagnám- skeið og innlendir bréfaskól- ar, þegar unnið er með nám- inu, frádráttur nemi greidd- um námskeiðsgjöldum. d. Sumarnámskeið erlendis leyfist ekki til frádráttar nema um framhaldsmenntun sé að ræða, en frádráttur vegna hennar skal fara eftir mati hverju sinni. 7. Háskólanám erlendis Vestur-Evrópa 180.000 kr. Austur-Evrópa. Athugist sér- staklega hverju sinni vegna námslaunafyrirkomulags. Norður-Amerika 245.000 kr. 8. Annað nám erlendis: Frádráttur eftir mati hverju sinni með hliðsjón af skólum hérlendis. Atvinnuflugnám: Frádráttur eftir mati hverju sinni. 10. Nánari skýringar og sérákvæði: a. Námsfrádrátt skv. töluliðum 1 — 5 og 7 skal miða við þann skóla (og bekk) sem nám er hafið I að hausti og skiptir þvi eigi máli, hvort um er að ræða upphaf eða framhald náms við hlutaðeigandi skóla. Þegar um er að ræða nám sem stundað er samfellt i 2 vetur eða lengur við þá skóla, sem taldir eru undir tölulið- uml, 2, 3, 4og 7, er auk þess heimilt að draga frá allt að helmingi frádráttar fyrir við- komandi skóla það ár sem 4 námi lauk, enda hafi náms- timi á þvi ári verið lengri en 3 mánuðir. Ef námstimi var skemmri má draga frá 1/8 af heilsársfrádrætti fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði, sem nám stóð yfir á þvi ári sem námi lauk. Ef um er að ræða námskeið sem standa yfir 6 mánuði eða lengur, er heimilt að skipta frádrætti þeirra vegna til helminga á þau ár sem nám stóð yfir, enda sé námstimi siðara árið a.m.k. 3 mánuðir. b. Skólagjald: Við námsfrá- drátt skv. töluliðum 1—5 bæt- ist skólagjald eftir þvi sem við á. c. Álag á námsfrádrátt: Búi námsmaður utan heimilis- sveitar sinnar meðan á námi stendur, má hækka námsfrá- drátt skv. töluliðum 1—5 og 6a.og b. (þó ekki skólagjald eða námskeiðsgjald) um: 1. 20% hjá þeim nemendum sem veittur er dvalarstyrkur skv. lögum nr. 69/1972 um ráðstafanir til jöfnunar á námskostnaði eða hliðstæðar greiðslur á vegum sveitarfé- laga. Dvalar- og ferðastyrk- ir, veittir skv. þessum á- kvæðum, teljast ekki til tekna né til skerðingar á námsfrádrætti. 2. 50% hjá þeim nemendum sem ekki nutu styrkja þeirra sem um ræðir i 1. tl. þessa stafliðar. d. Skerðing námsfrádráttar: Hafi nemandi fengið náms- styrk úr rikissjóði eða öðrum innlendum ellegar erlendum opinberum sjóðum, skal námsfrádráttur, þ.m.t. skólagjald, lækkaður sem styrknum nemur. Dvalar- og ferðastyrkir skv. 1 tl. staflið- ar c. teljast ekki námsstyrkir i þessu sambandi. Rvk., 8. janúar 1975 Sigurbjörn Þorbjörnsson, ríkisskattstjóri o Sunnudagur 19. janúar 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.