Alþýðublaðið - 21.02.1975, Side 5
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson
Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm)
Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
Afgreiðslustjóri örn Halldórsson
Ritstjórn: Skipholti 19, simi 28800
Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, simi 28660 og 14906
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, simi 14900
Prentun: Blaðaprent hf.
SAGAN ENDURTEKUR SIG
Hér á árunum áður hafði fólk á íslandi tals-
verða reynslu af samsteypustjórnum Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Að
fenginni þeirri reynslu voru menn sammála um,
að verri stjórnir en þær hefðu ekki farið með
völd i þjóðfélaginu. 1 þessum flokkum báðum
eru mjög sterk ihalds- og auðmagnshyggjuöfl og
ávallt varð reynslan sú, að þegar flokkar þessir
náðu saman um stjórn landsins mögnuðu þessi
afturhaldsöfl i flokkunum báðum hvort annað og
afleiðingarnar urðu verstu ihaldsstjórnir, sem
um getur.
Þegar núverandi rikisstjórn tók við völdum
hafði nokkur timi liðið án þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokkurinn færu sam-
an með stjórn. Á þvi timabili hafði ný kynslóð
vaxið upp i landinu, sem ekki hafði við neina
eigin reynslu að styðjast af samstarfi þessara
flokka. Sumt þetta unga fólk hafði jafnvel verið
fengið til þess að halda, að i raun og veru væri
Framsóknarflokkurinn frjálslyndur vinstri
flokkur — jafnvel forystuflokkur á vinstri væng
stjórnmálanna.
Samstjórn Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins hefur nú setið við völd sl. hálft
ár og á þeim tima hefur unga kynslóðin lært
nýja lexiu — og þeir sem eldri eru fengið tæki-
færi til þess að rifja upp gamla reynslu. Stað-
reyndin hefur nefnilega orðið sú, að sagan
gamla um eðli samstjórna Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins hefur endurtekið sig.
Nýjasta samsteypustjórn þeirra — sú er nú situr
— hefur reynst vera með sama markinu brennd
og hinar fyrri, verið römm afturhalds- og hægri-
stjórn mynduð á atkvæðum fólksins um hags-
muni forréttindastéttanna. Hvaða frjálslyndur
og vinstri sinnaður ungur maður er t.d. nú þeirr-
ar skoðunar, að Framsóknarflokkurinn sé
vinstri flokkur — hvað þá heldur eitthvert for-
ystuafl á vinstri væng stjórnmálanna? Þeim
hefur a.m.k. stórum fækkað, sem þeirri villutrú
eru haldnir, eins og ljóst kemur fram i uppgjöri
ýmissa fyrrverandi framsóknarmanna við
flokkinn og forystu hans. Og hvaða islenskur
launþegi telur nú að fenginni reynslu það ekki
hafa verið stórum miður, að þessir tveir aftur-
haldssömu og hægri sinnuðu flokkar skyldu hafa
náð saman um stjórn landsins? Skyldu stjórnar-
flokkarnir t.d. njóta öflugs stuðnings meðal
verkafólks i landinu eftir „afreksverk” þeirra
undanfarna mánuði? Fjarri fer þvi.
Rikisstjórnir á Islandi hafa oft orðið að gripa
til erfiðra og óvinsælla aðgerða vegna efnahags-
vandkvæða. En munurinn á þeim ráðstöfunum,
sem nú hafa verið gerðar og ráðstöfunum, sem
gerðar hafa verið af rikisstjórnum þar sem á-
hrifa verkalýðssinna og raunsannra vinstri afla
hefur gætt er sá, að núverandi ihaldsstjórn hef-
ur algerlega sniðgengið verkalýðshreyfinguna
og hagsmuni almenns launafólks i landinu þar
sem á hinn bóginn rikisstjórnir með aðild
sannra verkalýðssinna hafa ávallt kappkostað
að reyna að koma til móts við launafólkið i land-
inu, viljað hafa raunverulegt samráð við verka-
lýðshreyfinguna um aðgerðir og reynt að haga
þeim þannig að unnt væri að varðveita kjör
þeirra, sem minnst mega sin i þjóðfélaginu.
Slikar starfsaðferðir hefur núverandi rikis-
stjórn gersamlega virt að vettugi eins og verið
hefur hjá öllum þeim ihaldsstjórnum, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn
hafa myndað saman.
alþýðu
ii k i i
FRÁ ALÞINGI
Menntunarleyfi launþega
Vegna mikilla tíðinda i efna-
hagsmálum siðustu dagana áður
en hlé var gert á störfum Alþingis
vegna þings Norðuriandaráðs
hefur láðst til þess að geta
ýmissra nýrra mála, sem þing-
menn Alþýðuflokksins standa að
á Alþingi og lögð voru fram þessa
siðustu daga. Meðal þessara
mála eru tvö frumvörp til laga
um verkalýðsmál, sem þeir flytja
saman, Jón Baldvin Hanni-
balsson, er sat á þingi I forföllum
Karvels Pálmasonar, og
Benedikt Gröndal. Er Jón Bald-
vin fyrsti flutningsmaður þessara
frumvarpa, en Benedikt Gröndal
meðflutningsmaður hans.
Menntunarleyfi
launþega
Annað af þessum frumvörpum
hefur þegar verið tekið til fyrstu
umræðu á Alþingi og fór sú
umræða fram f neðri deild daginn
áður, en gert var hlé á þing-
störfum vegna Norðurlandaráðs.
Er hér um að ræða frumvarp til
laga um menntunarleyfi
launþega og mælti Benedikt
Gröndal fyrir því þar eð fyrsti
flutningsmaður þess, Jón Baldvin
Hannibalsson, var þá horfinn af
þingi.
Frumvarp þetta lýtur að þvi, að
launþegum verði fenginn sá
réttur að fá fri frá störfum ýmist
á launum eða launalaust innan
ákveðinna marka til þess að
stunda nám, m.a. á vegum stétta-
samtaka sinna. Frumvarpið
hljóðar svo í heild sinni:
..l.gr.
Sérhver launþegi, sem unnið
hefur á sama stað s.l. sex mánuði,
eða a.m.k. 12 mánuði á s.l.
tveimur áruni, á rétt til leyfis frá
störfum til náms. Sé um að ræða
námskcið, er launþegi vill sækja
á vegum stéttarsamtaka sinna og
miðar að aukinni þekkingu hans á
málefnum vinnumarkaðarins,
eða nám er ætla megi að geri
hann hæfari til að gegna starfi
sinu, falla þó fyrrgreindar tak-
markanir niður.
3. gr.
Við timasetningu og lengd
leyfis skal taka sanngjarnt tillit
til óska launþega og að ekki valdi
verulegri truflun á rekstri fyrir-
tækis vinnuveitanda.
4. gr.
Óski vinnuveitandi að fresta
umbeðnu leyfi launþega, skal
hann tiikynna það þegar i stað.
Fresti hann byrjun menntunar-
leyfis lengur en 6 mánuði frá þvi
honum barst beiðni launþega,
verður hann að leita samþykkis
viðkomandi stéttarfélags og færa
fram ástæður sinar. Ef umbeðið
leyfi er aðeins til 40 stunda, eða
skemur eða ef umbeðið námskeið
er um verkalýðsfræðslu á vegum
stéttarsamtaka verður vinnuveit-
andi að fá samþykki stéttarfélags
launþega, ef frestunin er lengri en
um tvær vikur. Ef menntunar-
leyfi hefur verið frestað af vinnu-
veitanda i meira en tvö ár, án
samþykkis launþega, má fara
með máliö fyrir félagsdóm.
5. gr.
Launþcgar er taka menntunar-
leyfi skv. öðrum greinum laga
þessara en 1. gr., skulu ekki
missa annarra friðinda, sem af
atvinnu þeirra leiðir, en þeir
mundu venjulega gera við fjar-
vistir frá vinnu.
6. gr.
Samningsaðilar vinnumark-
aðarins geta sett um menntunar-
leyfi nánari regiur innan ramma
laga þessara.
7. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. jan.
1976.
1 greinargerð með frumvarpinu
er nánar fjallað um efni þess og
ástæður fyrir flutningi þess. Þar
segir svo:
,,A siðustu tveimur ársþingum
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
— ILO — urðu miklar umræður
um menntunarleyfi launþega á
launum og var þar gerð sam-
þykkt og tilmæli til stjórnvalda
varðandi það cfni.
Frumvarp það, sem hér liggur
fyrir um þetta mál, gerir ráð fyrir
Jón Baldvin Hannibalsson
tvenns konar rétti launþega, til að
auka við menntun sina og nám.
Annars vegar að á tveggja ára
fresti eigi launþegi rétt til hálfs
mánaðar náms án þess að missa
nokkurs i launum : hins vegar eigi
hann rétt til náms launalaust, en
án þess að missa rétt til friðinda
er atvinnu fylgja, svo sem sumar-
leyfis, atvinnuleysisbóta o.s.frv.,
innan þeirra takmarka er
rammalög þessi setja. Ekki er
hér gert ráð fyrir hvernig fjár-
magna skuli slikt nám, þannig að
aðgengilegt verði fyrir sem
flesta, enda væntanleg á næstunni
löggjöf um simenntun eða
fuilorðinsnám, er hlýtur að setja
reglur um það efni.
Lög, er ganga I svipaða átt,
hafa ýmist verið samþykkt eða
liggja fyrir löggjafarþingum
ýmissa landa Vestur-Evrópu.
Hvergi er þó þörfin á föstum
reglum um þetta efni viðlika og
hér, þar sem langur vinnudagur
hindrar fólk i að nýta möguleika á
kvöldskólum og jafnvel helg-
námskeiðum. Vinnutap og mögu-
legur missirstarfs eru fólki fjötur
um fót að hagnýta sér þau tilboð,
sem þó eru framboðin um nám-
skeið, er geti aukið þekkingu
þeirra og starfshæfni, víkkað
sjóndeildarhringinn og gert það
hæfari og betri þjóðfélagsþegna.
Hér er þvl um sjálfsagt
réttlætismál að ræða og áfanga að
þvi marki, að nám sé ekki sérstök
forréttindi ungs fóks, er ckki
hefur cnn haslaö sér völl á
vinnumarkaðinum.”
i framsögu með frutnvarpinu
benti Benedikt Gröndal auk þessa
á, að eins og frant hefði komið i
fréttum væri nú i þann veginn að
hefja störf nýr skóli i landinu —
skóli, sem verkalýðshreyfingin
hefði stofnað og myndi starfrækja
fyrir félagsmenn slna þar sem
fram myndi fara fræðsla um
stéttarleg málefni og vinnumál.
Auk þess lægi nú fyrir Alþingi
mikill bálkur um fullorðinna-
fræðslu, þar sem stefnt væri að
þvi að gefa fullorðnu fólki, sem af
einhverjum ástæðum hefði farið á
ntis við skólagöngu I sinu ung-
dæmi, möguleika til þess að auka
Benedikt Gröndal
og bæta þekkingu sina ásamt þvi
sem þessu fólki væri gefinn
kostur á cndurh æfingu og
viðbótarmenntun I starfsgrein
sinni.
Aðstaðan verður að vera
fyrir hendi
Benedikt sagði, að það væri
ekki nóg að þessar skólastofnanir
væru fyrir hendi i þjóðfélaginu,
heldur þyrfti einnig að skapa
launþegum aðstöðu til þess að
geta sótt slika skóla án þess að
það yrði þeim fjárhagslega
ofviða. Tilgangurinn með þessu
frumvarpi væri að skapa þá
aðstöðu.
Pá sagði Benedikt einnig, að
þótt svo mætti virðast i fljótu
hragði, að hér væri atvinnurek-
cndum gert að standa undir tals-
verðum kostnaði þá myndi
reynslan hér sem annars staðar
leiða það i ljós, að þegar lengdar
léti myndi það borga sig bæöi
fyrir atvinnureksturinn og þjóð-
félagið i heild að fullorðið fólk
nyti aukinnar menntunar og
viðbótarfræðslu um störf sin. Svo
örar breytingar væri og svo örar
tækniframfarir á öllum sviðum,
að það starfandi fólk þyrfti að fá
reglulega viðbótarfræðslu til þess
að framfarirnar og tækni-
nýjungarnar nýttust eins vel og
eins fljótt og vera þyrfti. Þannig
myndi það fjármagn, sem varið
yrði til þess að standa undir
kostnaði við frekari starfs-
þjálfun og almenna viðbótar- og
endurir.enntun starfandi fólks i
landinu skila sér margfaldlcga
aftur þegar fram i sækti.
Að lokinni þessari fyrstu
umræðu um fruinvarpið var þvi
visað til félagsmálanefndar
deildarinnar til meðferðar.
Akranes
Hér með er starf innheimtumanns á
bæjarskrifstofunni á Akranesi, auglýst
laust til umsóknar.
Umsóknir er greini frá aldri, menntun og
fyrri störfum berist undirrituðum fyrir 28.
febrúar n.k.
Akranesi 19.2.1975.
Bæjarritari.
Föstudagur 21. febrúar 1975.
o