Alþýðublaðið - 11.03.1975, Qupperneq 11
IÍTVARP
Kl. 14.30 flytur frú Anna Sig-
uröardóttir þriðja erindi sitt um
„Verkakonur á Islandi i 1100
ár”. Heldur hún áfram að segja
frá kjörum vinnukvenna og
margháttuðum störfum þeirra i
Breiðafjarðareyjum, i Reykja-
vik og öðrum byggðum lands-
ins.
Ihinu síðasta þessara erinda,
sem flutt verður kl. 14.30 á
fimmtudaginn kemur, verður
minnst á rausnarlega húsbænd-
ur, sem kunnu að meta störf
vinnufólks síns, helgidaga og
heldidagabrot, blaðaskrif um
uppreisn vinnumanna um 1880,
þar sem ýmsir töldu, að konurn-
ar ættu miklu frekar að fá
kjarabætur en vinnumennirnir.
Sagt verður frá þvi, að minnst
hafi verið á sömu laun fyrir
sömu vinnu á Alþingi 1893 i sam-
bandi við umræður um stjorn-
málaréttindi. Stofnun verka-
kvennafélaga, og að siðustu ým-
is lagaákvæði um jafnrétti karla
og kvenna i atvinnulifinu.
1 fyrri erindunum var sagt
frá upphafi stéttaskiptingar
samkvæmt Rigsþulu Eddu-
kvæða, Gróttasöng, harma-
hljóðum tveggja ambátta. Þá
var sagt frá störfum griðkvenna
i íslendingasögum og getið um
forn misréttislög, svo sem Ti-
undarlögin frá 1096, Grágás,
Búalög og Bessastaðapóst, og
. loks ýmsar frásagnir um kjör
verkakvenna á 19. öld.
Heimshorn:
Kjarnorkuvopn á
Norðurlöndum
Cambodía
Víet-nam
1 kvöld kl. 21.30 er þátturinn
„Heimshorn”, sem að þessu
sinni verður i umsjón Jóns Há-
konar Magnússonar.
Baldur Guðlaugsson fjallar
um kjarnorkulaust belti á
Norðurlöndunum og ekki hvað
sist tillögur Finna um þá tilhög-
un. Má i þvi sambandi minna á
ummæli og tillögur Kalevi Sorsa
á nýloknu þingi Norurlanda-
ráðs. Er það margra manna
mál, að málflutningur Finna
kunni að vera undan rifjum
Rússa runninn, og hefur hann
meðal annars sætt mjög harðri
gagnrýni Norðmanna og Svia,
og hlýtur raunar að varða okkur
íslendinga.
Árni Bergmann ræðir um
striðið i Cambodiu og það ógn-
arástand, sem rikir i Phnom
Penh, þar sem tugþúsundir
manna þjást af hungri og
malariu, og fldttamannabúðir
eru hreint viti, en gerspilltir
stjórnendur hafa vart látið falla
niður glæst matarboð.
Gerald Ford er fimmti forseti
Bandarikjanna, sem leggur
fyrir þingið tillögur um, að
skerast i þennan harmleik um
örlög Cambódiu og tugmilljóna
ibúa landsins.
Haraldur Olafsson fjallar loks
um Indó-Kina og ástandið þar
fyrrog siðar i heild. Verður þar
naumast gengið fram hjá frið-
arsamningunum i Paris fyrir
um það bil tveim árum, og út-
hlutun friðarverðlauna Nóbels i
framhaldi af þeim, brottför
Bandarikjahers af vigvöllum •
Indó-Kina og þá þróun, sem þar
hefur orðið siðan.
STJÖRNUSPÁIN
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Það er áriðandi að þú ekki treystir ráðum vina
þinna og kunningja i fjármálum. Þú verður að
fara mjög varlega, ef misskilningur á ekki að
skemma daginn. Haltu þig við vanabundin störf.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. mars.
Misskilningur gæti skemmt samband þitt við
starfsfélaga. Taktu þér nægan tima til allra á-
kvarðana, en gættu þess að sýna ákveðni, þar
sem hik gerir engum gott. Þér gæti reynst auð-
veltað leysa vandamál barna i dag, svo þú skalt
sinna þeim.
Hrúturinn 21. mars — 20. april.
Láttu ekki flækja þig i gróðabrall vina þinna.
Ástarmálin eru ekki efnileg og ástvinir þinir
.verða liklega móðgunargjarnir þegar á liður.
Reyndu að alda rósemi þinni.
Nautið 21. aprll — 20. mai
Hugmyndaflug þitt er raunhæfara fyrri hluta
dags, svo þú skalt taka daginn snemma. Maki
þinn eða félagi verður þér liklega ósammála i
fjármálum. Dagurinn er ekki góður i ástarmál-
um.
Tviburinn 21. mai — 20. júni
Eitthvað i sambandi við starf þitt veldur liklega
vandræðum gagnvart maka þinum eða félaga og
þér gæti reynst erfitt að lagfæra það. Þér gefst
tækifæri til að laga fjármálin, en flýttu þér hægt.
Krabbinn 21. júni — 20. júli
Gættu orða þinna og gættu þess að hafa afstöðu
þina til málanna skýra. Reyndu að leita ráða
sérfræðinga, ef vandamál koma upp. Reyndu
ekki að leysa hnúta upp á þitt eindæmi.
Ljónið 21. júli — 21. ágúst
Detti þér i hug að leggja út fé i sambandi við ein-
hver áhugamál þin, þá farðu varlega, þvi I-
myndunarafl þitt gæti verið að kúga skynsem-
ina. Dagurinn er óræður.
Meyjan 22. ágúst — 22. september
Maki þinn gæti kúvent öllum áætlunum ykkar i
dag, en reyndu að halda rólyndi þinu og leitaðu
ekki langt yfir skammt að lausn þeirra vanda-
nvála sem skapast. Einbeittur þér.
Vogin 23. september — 22. október
Ruglingur á vinnustað veldur misskilningi, sem
auðvelt ætti að vera að leiðrétta. Fylgdu ákvörð-
unum þinum eftir af akveðni og reyndu að koma
sem mestu i verk. Sinntu heilsunni.
Sporðdrekinn 23. október — 22. nóvember
Imyndunarafl þitt er ofurlitið of virkt i dag, svo
þú skalt hlaupa varlega eftir draumum þinum.
Það er mögulegt að rómantiskt flangs þitt hafi
slæm áhrif á fjárhaginn. Sinntu þér eldra fólki.
Bogmaðurinn 23. nóvember — 20. desember
Fjölskyldan er þér ekki sammála i fjármálum,
en ef þú stendur fast á þinu, er liklegt að allt fari
vel. Sinntu f jármálum maka þins af natni og ein-
beittu þér að umbótum á heimilinu.
Steingeitin 21. desember — 19. janúar.
Tviræður dagur. Láttu ekki útlit blekkja þig.
Þurfir þú að taka ákvarðanir, þá gættu þess að
kynna þér málin nógu vel fyrst. Góður dagur i
vinnunni, en ekki heima við.
RAGGI ROLEGI
FJALLA-FUSI
Graflksýning.
I gær var opnuð i húsnæði
Menningarstofnunar Banda-
rikjanna að Neshaga 16, sýn-
ing á verkum 27 bandariskra
grafiklistamanna. A sýning-
unni eru þrjátiu verk, öll frá
árinu 1973, og tekur hún yfir
vitt stefnusvið: allt frá
naturalisma og realisma, til
„pop” „op” og „top” stefna.
Þótt prentlistin eigi sér orð- t
ið nokkuð langa sögu, á hún
sem viðurkenndur listtján-
ingarmiðill ekki nema fáeina
áratugi að baki. Það var ekki
fyrr en á þriðja tug þessarar
aldar, að verulegur áhugi
vankaði á þeim möguleikum
sem hún bjó yfir, til annarar
sköpunar en bókagerðar. 1 dag
hefur mikill fjöldi listafólks
tileinkað sér grafik sem tján-
ingarform og má með sanni
segja að þar sé á ferðinni
vaxandi listgrein.
„Prentlist” býður upp á
nokkuð margvislega
möguleika hvað varðar tækni
og aöferðir. Mismunur milli
þeirra tekur til efnisvals og
fleira, til dæmis hvort prentað
er á pappir eða einhvers konar
tau, svo og hver tæki eru notuð
til að prenta með. Sýningin I
Menningarstofnun Bandarikj-
anna miðar einnig að þvl að
kynna þessar mismunandi aö-
ferðir nokkuð og hafa verkin á
hana verið valin sérstaklega
með tilliti til þess.
Sýningin er opin frá klukkan
14.00 til 20.00, mánudaga til
föstudaga, þessa viku og þá
næstu og er hún I sýningasaln-
um á þriðju hæð húss menn-
ingarstofnunarinnar.
Málverkasýning.
Nú stendur yfir, að
Klausturhólum við Lækjar-
götu, sýning á verkum Guð-
mundar Hinrikssonar, list-
málara. Myndir þær sem Guð-
mundur sýnir eru Pastel-
myndir, vatnslitamyndir og
teikningar. Sýningin er opin á
almennum verslunartima og
stendur fram á sunnudag.
* *
Æskulýðsráöstefna.
Dagana 9.—14. mars gangast
æskulýðssamböndin á Norður-
löndum fyrir alþjóðlegri ráö-
stefnu um byggðamál að Hótel
Loftleiðum I Reykjavlk. Full-
trúar frá Tiu löndum og land-
svæðum taka þátt I ráðstefn-
unni: frá Sviþjóð, Noregi,
Danmörku, Finnlandi,
Islandsi, Grænlandi, Færeyj-
um, Álandseyjum, Bretlandi
og trlandi.
A ráðstefnunni verða fluttir
fjórir fyrirlestrar og fjalla
þrir þeir fyrstu um efnahags-
leg, menningarleg og félags-
leg vandamál jarðarsvæða I
rikjum við Norður.Atlantshaf,
en sá fjórði og siðasti um
markmið og leiðir byggða-
stefnu. Meginstarf ráðstefn-
unnar mun að öðru leyti fara
fram I starfshópum, sem
munu ræða hina ýmsu þætti
byggðamálanna og skipta um
það álistgjörðum.
* *
Bingó
Félagskonur
Thorvaldsensfélagsins I
Reykjavik hafa bingó I kvöld,
þriðjudagskvöld, að hótel
Sögu klukkan 20.30. Vinningar
eru margir ogglæsilegir.
Bingóið er einn af mörgum
þáttum fjáröflunarstarfsemi
Thorvaldsensfélagsins, en að
tilefni 100 ára afmælis félags-
ins, sem verður þann 19.
nóvember á þessu ári, hafa
félagskonur ákveðið að allt
aflafé þeirra skuli renna til
vangefinna og vanheilla
barna.
Þriðjudagur 11. marz. 1975
o