Alþýðublaðið - 24.04.1975, Síða 14

Alþýðublaðið - 24.04.1975, Síða 14
Sir Wiiliam Stephenson, einhver stórbrotnasti afreksmaður af íslenskum ættum, sem uppi hefur verið H. Montgmnsry Hyda I þýðingu Herstains Pálssonar DULARFULLI33 ! KANADAMAÐURINN með því að greiða Louis Arpels, skartgripasala í New York, dollara fyrir liönd ofurstans, en fyrirtæki Arpels greiddi síðan jafnvirði þeirra í frönk- um inn á reikning Bertrand-Vignes í Frakklandi. Hann hélt líka uppi reglulegum viðskiptum með því að senda peninga til portúgalsks meðal- göngumanns í Lissabon til kaupa á matarbögglum, er senda átti til her- námssvæðis Þjóðverja í Frakklandi. Eitthvað fékkst hann við vegabréfa- brask og sumar áritanirnar, sem hann útvegaði, voru fyrir þekkta flugu- menn Þjóðverja. Hann seldi einnig brottfararleyfi úr hinum óhernumda hluta Frakklands fyrir allmikla f járhæð, og einu sinni var hann með ráða- brugg um, að frönsk skip flyttu spænska flóttamenn til Mexíkó og héldu aftur til Marseilles með fullfermi, en sjálfur ætlaði hann að græða 150 þúsund dollara á hverri ferð. (Óþarft er að taka fram, að ekkert varð úr þessu ráðabruggi). Hann safnaði upplýsingum hjá frönskum stúlkum, fyrrverandi starfsmönnum frönsku innkaupanefndarinnar, sem hann hafði komið í starf hjá ýmsum frönskum og bandarískum verzlunarfyrirtækj- um. Og honum tókst að fá franskt dagblað í Montreal til að ráða ekki Pierre Lazareff, franska blaðamanninn og ritstjórann, sem liann grunaði um stuðning við de Gaulle. Steplienson kom því svo fyrir, að ýtarleg skýrsla var samin um starfsemi Vichy-Frakka í Bandaríkjunum, og þar voru birt afrit af símasamtölum Musa og ljósmyndir af bréfum hans og öðrum skjölum. Skýrslan var afhent Roosevelt forseta, sem las hana sem „háttatímasögu“, og kallaði „skemmtilegasta lesefni, sem ég hef lesið lengi,“ og „bezta og víðtækasta upplýsingastarfsemi, sem ég lief komizt í kynni við síðan í fyrri lieimsstyrjöld.“ Stephenson bað síðan um lieimild forsetans til að hirta hæfilegan útdrátt í bandarískum hlöðum. Forsetinn féllst á það, ef utanríkisráðuneytið væri því ekki mótfallið. Ráðuneytið samþykkti það, en lagði á það álierzlu, að ekki mætti ganga svo hart fram við að koma óorði á stefnu Vichystjórnarinnar í Bandaríkjunum, að stjómmálasam- bandi yrði slitið milli ríkisstjórnanna. Einhverjar vomur voru á Sumner Wclles varautanríkisráðherra, en Cordell Hull utanríkisráðherra, sem taldi Henry-Haye hinn fyrirlitlegasta sendiherra, komst svo að orði, að hann vonaðist til, að Stephenson léti til skarar skriða og „sprengdi Vichy í loft upp.“ 3. Þann 31. ágúst 1941, sem var sunnudagur, birti New York Herald- Tribune eftirfarandi fyrirsögn með stóru letri þvert yfir þrjá dálka á forsíðu: SANNAÐ, AÐ VICHY-SENDIRÁÐIÐ í BANDARÍKJUNUM STJÓRNAR KLlKU FLUGUMANNA, SEM AÐSTOÐA NAZISTA Fyrir neðan voru minni fyrirsagnir, svo sem „Jean Musa, uppgjafa- þjónn, sagður aðalaðstoðarmaður í New York við „upplýsinga“-störf“ og „Henry-Haye hefur að sögn stjóm á hendi“. Fréttin, sem á eftir fylgdi, hafði verið send frá Washington og var höfundur einn fréttaritara Tribuncs, Ansel E. Talbert, sem fengið hafði vandlega valda útdrætti i'ir safni Stephensons um athæfi Vichymanna. Blaðið ásakaði Vicliysendi- ráðið hiklaust um að starfrækja leyniþjónustu innan Bandaríkjanna með fjármunum, sem Bandaríkjastjórn legði hömlur á, í þeim tilgangi að hjálpa nazistum að gera Frakkland að leppríki Þýzkalands. Menn þeir, sem stjórnuðu þessu leynistarfi undir yfirumsjón sendiherrans, voru sagð- ir Bertrand-Vigne ofursti, hermálafulltrúinn, Charles Brousse höfuðs- maður, fyrrum blaðafulltrúi, og Jean Musa. Með fylgdi mynd af sendi- herranum á gangi í garði sendiráðsins ásamt Musa og Bertrand-Vigne. Auk Gestapostarfa þeirra, sem þegar hefur verið lýst, var í fréttinni sagt frá eftirtektarverðum dæmum um upplýsingasöfnun á víðari liern- aðargrundvelli. Var sagt frá því, hvernig Vichy-yfirvöld liefðu getað gert að engu fyrirætlanir de Gaulles um að taka Dakar árið áður. Að því er virtist liafði áætlun um þenna ógiftusamlega leiðangur frjálsra Frakka til vesturstrandar Afríku verið smyglað til Bandaríkjanna — til fram- haldssendingar til Vichy — í benzíngeymi bifreiðar, sem flutt var frá London til Hoboken á gríska gufuskipinu Nea Hellas, I benzíngeymin- um voru einnig skrár yfir franska her- og flotaforingja og flugforingja, sem gengið höfðu í hreyfingu frjálsra Frakka. 1 sömu viku birti Tribune þrjár greinar til viðbótar með svipuðum fyrirsögnum eins og VICHYFLUGUMENN REYNDU AÐ NÁ TEIKN- INGUM AF BRENBYSSUM ásamt undirfyrirsögn: „Reyndu að ná teikn- ingum af vopni, sem ver Bretland fyrir innrás.“ Allar greinarnar voru endurprentaðar í meira en 100 blöðum í Bandaríkjunum og Kanada, þar á meðal Washington Post, Baltimore Sun og New York Daily Mirror. Henry Morgenthau f jármálaráðherra lét í ljós almennan fögnuð yfir þeim, þegar hann óskaði að hitta blaðamann Herald-Tribunes, sem skrifað hefði svo ágætan greinaflokk. Hann sagðist langa til að óska honum persónu- lega til hamingju með svo frábært blaðamennskuafrek. Þetta voru vitanlega stórkostlegar uppsláttarfréttir fyrir Herald- Tribune, þar sem greinarnar voru á allra vörum um landið gervallt og lögðu til efnið í mikinn fjölda forystugreina blaða. Henry-Haye brást þannig við, að hann efndi til blaðamannafundar og sagði, að hann mundi bera fram mótmæli við Hull utanríkisráðherra. „Sannleikurinn er sá, að ég er mjög hnugginn,“ sagði hann við blaðamennina. „Á morgun verður rétt ár frá því að ég fór frá Frakklandi og hélt til lands ykkar til að verða fulltrúi sigraðrar þjóðar — en samt mjög stoltrar þjóðar. Við höfum fært meiri fómir en allir aðrir. Og samt er ég hér neyddur til að gefa ykkur skýringu á árásum, sem eru á engan hátt réttlættar. Hver er til- gangurinn með slíkum árásum? Tilgangurinn er að reyna að hrinda í framkvæmd löngun vissra Bandaríkjamanna og Frakka til að rjúfa eða torvelda stjórnmálasambandið milli frönsku stjómarinnar og Bandaríkj- anna. Ég segi frönsku stjómarinnar, því að engin önnur frönsk stjórn er til en sú, sem ég er fulltrúi fyrir.“ Sendiherrann sýndi tveggja daga gamalt eintak af Herald-Tribune, og bætti við um leið: „Ég sá sönnun- ina í ritstjómargrein blaðsins, sem ver svo miklu rúmi til að birta furðu- fréttir þeirra.“ Stephenson kom því svo fyrir, að meðal viðstaddra var blaðamaður, sem hlynntur var Bretiun, og lét honum í té óþægilegar spumingar til að leggja fyrir sendiherrann. Þetta leiddi til frekari skrifa, sem vom óæskileg fyrir fulltrúa Vichys og starfsmenn hans, þar eð vesaldarleg undanbragðasvör Henry-Hayes vom engan veginn sannfærandi. „Sendi- herrann talar sem fulltrúi frönsku þjóðarinnar, vinsamlegrar þjóðar,“ skrifaði Herald-Tribune síðan í forystugrein, „en samt hefur ríkisstjórn- in, sem hann er fulltrúi fyrir, hvað eftir annað gert hvaðeina, sem henni var unnt, til að vinna að þýzkum sigri, sem Bandaríkin hafa lýst yfir, að sé algerlega fjandsamlegur lífshagsmunum þeirra, og að torvelda viðnám Breta, sem Bandaríkin hafa heitið að veita alla þá hjálp, sem í þeirra valdi stendur.“ Árangur þessarar samræmdu blaðaherferðar var að gera fulltrúa Vichystjórnarinnar í Bandaríkjunum að algerum ómerkingum. Frjálsir Frakkar kunnu sér vitanlega ekki læti. Einhverjar ánægjulegustu afleið- ingamar voru þær, að Gestapó Musa hætti að miklu leyti starfsemi sinni, þótt sendiherrann héldi áfram að hafa Musa á lágum launum. Hvað Henry-Haye snerti, gerði hann ekki framar opinberar tilraunir til að gefa skýringar á árásum á sig og starfsmenn sína og neitaði að svara frekari spurningum um þetta vandræðamál. En maður, sem Stephenson hafði samband við í sendiráðinu, skýrði frá því, að þótt sendiherrann léti á litlu bera, væri hann „harla gramur“. Einu sinni rauk hann óskaplega upp á nef sér, og þá sagði hann, að þetta væri allt að kenna „de Gaulle- istum, Gyðingum, Bretum og F.B.I.“ En hann gmnaði í rauninni Breta aldrei. S.I.S.-höfuðstöðvarnar í London vissu heldur ekki, hvernig í þessu lá. Nokkmm vikum eftir að greinamar birtust, fékk Stephenson orðsend- Auglýsing um ferðastyrk til rithöfunda t lögum nr. 28/1967, um breytingu á og viðauka við lög um almenningsbökasöfn nr. 22/1963 er svofellt bráðabirgða- ákvæði: ,,t>ar til gagnkvæmar höfundagreiðslur vegna afnota I bókasöfnum innan Norðurlanda verða lögteknar er heim- ilt, ef sérstök fjárveiting er tii þess veitt I fjárlögum, að veita rithöfundum styrki árlega til dvalar á Norðurlönd- um.” t fjárlögum fyrir áriö 1975 er 100 þús. kr. fjárveiting handa rithöfundi til dvalar á Norðurlöndum. Umsóknir um styrk þennan óskast sendar stjórn Rithöf- undasjóös tsiands, Skiphoiti 19, fyrir 8. mal 1975. Umsókn- um skulu fyigja greinargerðir um, hvernig umsækjendur hyggjast verja styrknum. Reykjavik, 11. april 1975. Rithöfundasjóður íslands. Styrkur til náms við Stokkhólmsháskóla Háskólaárið 1975-76 veitir Stokkhólmshá- skóli islenskum námsmanni styrk að upp- hæð 15 þúsund sænskar krónur. Styrkur- inn verður veittur til námsdvalar við há- skólann i Stokkhólmi, en er ekki bundinn við sérstaka grein eða áfanga i námi. Við Stokkhólmsháskóla eru þessar deildir: Lagadeild, heimspekideild, félagsvisinda- deild og stærðfræði- og náttúruvisinda- deild. Umsóknir, ásamt námsvottorðum, skal senda Háskóla íslands fyrir 20. mai 1975. L MUNIÐ íbúðarhappdrætti H.S.i. 2ja herb. íbúöað verðmæti kr. 3.500.00. Verð miða kr. 250. © Fimmtudagur 24. apríl 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.