Alþýðublaðið - 23.05.1975, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 23.05.1975, Blaðsíða 3
Björgvin Guðmundsson gagnrýnir sam- dráttarstefnu borgarstjórnar- íhaldsins daginn, að unnt er að gera lóðina byggingarhæfa á mun ódýrari hátt. Það á þvi ekkert að vera þvi til fyrirstöðu að út- hluta lóðinni. Tel ég eðlilegt, að sá byggingaaðili, er á sinum tima fékk vilyrði fyrir lóðinni, fái. henni þegar úthlutað. Verði það gert, getur hann hafið þarna framkvæmdir þegar i stað, þar sem teikningar liggja fyrir. Þá hefur borgarverk- fræðingur einnig tjáð mér, að meðfram Austurbergi i Breið- holti III sé unnt að úthluta lóðum undir eins fimm fjölbýlis- hús með 80 ibúðum án verulegs tilkostnaðar. Það er ófyrirgefanlegt, að borgaryfirvöld dragi að óþörfu að úthluga byggingahæfum lóðum, þegar lóðaskortur er orðinn og byggingafyrirtækin eru komin i vandræði af þeim sökum. Ef til vill eru fleiri lóðir byggingahæfar, þó að ekki sé þeim úthlutað. Væri gott að borgarfulltrúar fengju að vita, hvort svo sé. I framhaldi af þvi, sem ég nú hefi sagt, hef ég leyft mér að flytja hér I borgarstjórn eftir- farandi tillögu: „Með þvi að fyrirsjánlegt er, að mikill skortur verður á lóðum undir sambýlishús i Reykjavik á þessu ári, sam- þykkir borgarstjórn að hraða sem mestöllum undirbúningi að úthlutun sambýlishúsalóða, einkum þeirra sem unnt er að úthluta i sumar án mikils til- kostnaðar. Borgarstjórn samþykkir þvi að flýt'a sérstaklega undirbúningi að úthlutun lóða undir fjölbýlis- hús á Eiðsgranda. Skal stefnt að þvi, að unnt verði að úthluta þeim lóðum fyrir hluta sumars, a.m.k. hluta þeirra”. Einkennileat jafnrétti það! Vilja meta hverju sinni hvort kynið er ráðið til starfa hjá bænum Sl. þriöjudag lá fyrr bæjar- stjórn Hafnarfjarðar tillaga frá bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins, Hauk Helgasyni, þess efnis að framvegis verði ekki viðhöfð kyn- greining i auglýsingum bæjarins eftir starfsfólki. Fyrir nokkru auglýsti bæjar- stjórinn eftir karlmannitil starfa á skrifstofu hafnarstjóra. Að- spurður sagði hann að hafnar- stjórn hefði talið að þar væri um „karlmannsverk” að ræða. Borg- arfulltrúar meirihlutans (sjálfst. og óháðra) töldu það mjög „nátt- úrulegt” að halda áfram slikri kyngreiningu i auglýsingum bæjarins, þar sem kynin væru mismunandi úr garði gerð frá náttúrunnar hendi til að vinna hin ýmsu störf og þar yrði bæjar- stjórn (10 karlm. og 1 kona) að vega og meta, hvort kynið hæfði betur og tilgreina það i auglýsing- um, svo að rangt kyn blekktist ekki til að sækja um stöðuna. Fulltrúar minnihlutans mæltu allir með samþykki tillögunnar. Bentu þeir á að jafn réttur kynj- anna til starfa væri ekki á boröi, þó hann væri i orði. Þróun þjóðfé- lagsins i dag miðaði þó i þá átt að jafna þetta, en talsmenn meiri- hlutans virtust ekki vera á þvi að slik breyting þyrfti aö eiga sér staö. Þeir Arni Grétar Finnsson og Arni Gunnlaugsson báru fram eftirfarandi frávisunartillögu: Þar sem hverju sinni verður aö auglýsa stöður bæjarins og bæjarstofnana, eftir þvi sem við á varöandi kyngreiningu, en þó þannig aö fyllsta jafnréttis kynj- anna sé gætt, þegar aðstaöan Framhald á bls. 4 SUMAR- OG SPARNADAR- AÆTLUN HiA STRÆTÖ Sumaráætlun gengur I gildi hjá Strætisvögnum Reykjavikur fyrsta júni, en þá verður dregið úr tlðni ferða og teknir út aukavagnar, sem settir voru inn I vetur, að þvi er Eirlkur Ásgeirsson forstjóri SVR, sagði I samtali við blaðið I gær. „Þetta er fyrsta tilraun til þess að koma á sérstöku ieiðakerfi yfir sumarmánuðina”, sagði Eirlkur ennfremur, „en breytingarnar eru aðaliega fólgnar I þvl, að ferðum verður fækkað eftir kl. 19 á kvöldin og á laugardagsmorgnum frá þvi sem verið hefur, og auk þess verða tekn- ir aukavagnar, eða svonefndir „fimmtu vagnar” af leiðum 3 og 4 á miðvaktinni”. Þessar áætlanir eru að sjálfsögðu fyrst og fremst gerðar með sparn- að fyrir augum, en kostirnir sem þeim fylgja eru þeir helstir, aö um leiö og tiðni strætisvagnaferöa minnkar á fyrrgreindum timum verða leiðirnar samræmdari en verið hefur, að sögn Eiriks — tiðni verður sú sama á öllum leiðum og likur á þvi, að tenging á milli vagna verði betri en áður. Verið er að vinna að upplýsingabæklingi um þessa breytingu og nán- ari skýringu á henni, og verður hann væntanlega kominn fyrir almenn- ingssjónir fyrir 1. júni. BRÚN 6LER BS 77 (HðGGVARIN) FARA VEL MEÐ AUGUN OG VARÐVEITA NÁTTÚRULITI PRIMETTA ER MEÐ DIN- MERKI sem er gæðastimpill vestur-þýsku neytendasamtakanna PRIMETTA AUKA ÖRYGGI í UMFERÐINNI RAUÐU OG GRÆNU UMFERÐARLJÓSIN SJÁST 20% BETUR MEÐ PRIMETTA O Föstudagur 23. maí T975

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.