Alþýðublaðið - 23.05.1975, Blaðsíða 9
Umsjon. Biorn Bfondai
ÍÞItOTTIIt
Landsleikurinn við Frakka
Síðasti undir-
búningurinn
Landsliðiö undirbýr sig nú af
kappi fyrir landsleikinn gegn
Frökkum á sunnudaginn og eru
nú allir þeir sem kallaðir hafa
verið heim vegna leiksins komn-
ir. Síðastur kom Jóhannes Eð-
valdsson frá Danmörku og var
hann varla kominn til landsins
þegar hann fór á sina fyrstu æf-
ingu með liöinu. Æfingin var að
vfsu ekki úti, heldur var þetta æf-
ing inni, þar sem leikaöferðir
voru ræddar frá öllum hliðum á
sýningartöflu.
Ekki komust allir iandsliðs-
mennirnir á æfinguna og vantaði
Skagamennina fjóra og nýliðann
Arna Stefánsson,sem mun hafa
verið i prófum.
Við ræddum stuttlega við þá
Elmar Geirsson, Asgeir Sigur-
vinsson og Jóhannes Eðvaldsson
áður en töfluæfingin hófst.
Elmar sagði að hann hefði leik-
ið með Berlinarliðinu Hertu
Zerlingdorf i vetur og hefðu þeir
hafnaö I 2. sæti i áhugamanna-
deildinni i Berlin. Hann starfaði
nú sem tannlæknir f Þýskalandi
og byggist við að vera erlendis I
a.m.k. eitt ár ennþá. Elmar
kvaðst vera bjartsýnn fyrir leik-
inn, en þó mætti fólk ekki búast
við of miklu af liðinu.
Ásgeir sagðist hlakka til leiks-
ins, hann hefði séð Frakkana
leika gegn Portúgölum og hefði
sér ekki þótt mikið til leiks
Frakkanna koma, en þó bæri að
hafa það i huga að leikurinn hefði
verið vináttuleikur sem engu
máli hefði skipt fyrir hvorugt lið-
ið.
Jóhannes var rétt kominn til
landsins frá þvi að leika gegn
Slagelse i 1. deild, en þeim leik
hafði Holbæk tapað. Jóhannes
sagðist vera litilsháttar meiddur
á hné en hann yrði örugglega orð-
inn góður á sunnudaginn.
í gærkvöldi átti svo liðið að
leika æfingaleik á grasvellinum i
Keflavik,en heldur i dag til Þing-
valla þar sem dvalið verður fram
að landsleiknum. En liðið mun
skreppa á Laugarvatn á morgun
og sfa þar.
Ctlendingahersveitin... Jóhannes Eðvaldsson, Aageir Signrvlnsson eg
Marteinn Geirsson voru allir kallaðir heim til að leika með landsliðinu
á sunnudaginn.
Tony Knapp... ásamt landsliðinu á töflusfingunni á miðvikudagskvötd. t gsr iék UMð i Keflavfk, en
heldur I dag á Þingvöil.
Fró Lokasprettinum i 4M metra hlaupinu, Belgiumaðurinn Brijdenbach kemur fyrstur I mark, vinstra
megin við hann er Bretinn Jenkins sem varö annar og þá Þjóöverjinn Hofmeistar sem hlaut þriðja sæt-
ið. Lengra frá má sjá Honz sem varð aftarlega i hlaupinu og má hann muna sinn fifil fegurri.
Vertíð frjálsíþrótta
Fyrsta heimsmetið fallið en
árangur samt mjög mismunandi
„Viömiðunarmót” GSI
Umhelgina fór fram „viðmið-
unarmót” GSf og var leikið á
Hólmsvelli, Leiru, og á Hval-
eyrarvellinum.
Alls voru 16 bestu kylfingar
landsins boðaðir til mótsins, en
mæting var afar slæm og léku 8
kylfingar báða dagana.
tslandsmeistarinn Björgvin
Þorsteinsson var meðal kepp-
enda fyrri daginn á Hólmsvelli,
Leiru, og varð þar annar á eftir
heimamanninum Þorbirni
Kiærbo. Seinni daginn keppti
Björgvin hins vegar ekki þvi
hann svaf yfir sig!!
tlrslit „viðmiðunarmótsins”
urðu þessi:
Hólmsvöllur
Þorbjörn Kjærbo G.S.
39-39-39-35 = 152 högg
Björgvin Þorsteinsson G.A.
42- 40-36-42 = 160 högg
Atli Arason G.R.
45-41-37-38 161 högg
Sigurður Thorarensen Keili
43- 36-39-43 = 161 högg
Einar Guðnason G.R.
41- 44-36-44 = 165 högg
Ragnar Ólafsson G.R.
42- 44-39-40’168 högg
Óskar Sæmundsson G.R.
43- 42-46-40= 171 högg
Jóhann Ó. Guðmundsson NK
43-41-42-45 = 171 högg
Hvaleyrarvöllur,
Sigurður Thorarensen, Keili
40-37-38-39 = 154 högg
Einar Guðnason G.R.
42- 36-39-38 = 155 högg
Óskar Sæmundsson G.R.
43- 36-39-40=158 högg
Þorbjörn Kjærbo G.S.
38-40-40-40 = 158 högg
Atli Arason G.R.
40-42-42-40= 164 högg
Július R. Júllusson, Keili
43-44-40-38= 165 högg
Ragnar ólafsson G.R.
42-44-40-42 = 168 högg
Jóhann Ó.Guðmundsson NK 44-
42 hætti
Heildarárgangur 72 holur
högg
1. Þorbjörn KjærboG.S. 310
2. Sigurður Thorarensen,GK315
3. Einar Guðnason G.R. 320
4. Atli Arason G.R. 325
5. Óskar Sæmundsson G.R. 329
6. Ragnar ólafsson G.R. 333
Aðrir keppendur luku ekki til-
skildum 72 holum.
Björgvin Þorsteinsson lék að-
eins 36 holur á Hólmsvelli.
Jóhann Ó. Guðmundsson lék aö-
eins 54 holur samtals.
Július R. Júliusson lék aðeins 36
holur á Hvaleyri.
Nú er vertið frjálsíþrótta-
manna á útimótum að byrja og
eru stórmót erlendis viða komin i
fullan gang. A sama tima er
knattspyrnumótum viðast hvar
að ljúka og erlendir knattspyrnu-
menn komnir eða að fara I sum-
arfri.
Hjá okkur er þessu þó öfugt far-
ið þvi við veröum að nota okkar
stutta sumar fyrir öll okkar mót
og er þvi álagið oft full mikið.
Eitt frjálsiþróttamót hefur far-
ið fram hér I vor en þaö fór að
mestu leyti úrskeiðis vegna veð-
urs, en samt voru þar sett tvö Is-
landsmet.
Erlendis eru mótin þegar byrj-
uð og þar eru þeir þegar farnir að
setja heimsmetin.
Eins og við höfum sagt frá þá
setti V-Þjóðverjinn Karl Hans
Riehm glæsilegt heimsmet i
sleggjukasti um siðustu helgi á
frjálsiþróttamóti í Þýskalandi og
bætti met Rússans Spiridonow
um hvorki meira né minna en 1.84
m.
A mótinu náðist einnig mjög
góður árangur i ýmsum greinum.
1 100 metra hlaupi karla sigraði
Ommer á 10.3 og i 200 metrunum
sigraði Gruse á 21.1.
1 400 metra hlaupinu var árang-
urinn mun betri, þar kom fyrsur i
mark Brydenbach frá Belgiu á
45.4 sek., annar varð Jenkins
Bretlandi á 45.9 sek. og þriðji
Þjóðverjinn Hofmeister á 46.1
sek..
1 800 metra hlaupinu varð
Wuhlbeck hlutskarpastur á 1.47.2
min. og i öðru sæti varð Belgiu-
maðurinn Damme á 1.47.3 min.
1500 metrana sigraði Wessing-
hage á 3:42.4 min. og i 3000 metr-
unum sigraði Israelbúinn Wishni-
zar á 8:09.6 minútum.
Mjög góður árangur náðist i
langstökki, þar sigraði Klöck,
stökk 7.97 metra. 1 stangarstökki
sigraði Klöck, stökk 5.20 m.
Kringlukastið sigraði Neu, kast-
aði 60.96 metra og þar varð Ung-
verjinn Fejer annar með 60.08
metra.
Kvenfólkið lét heldur ekki á sér
standa, i 100 metra hlaupinu sigr-
aði v-þýska stúlkan Richter á
11.1, önnur varð Lynch Bretlandi'
á 11.2. 1 200 metrunum sigraði
Szewinska Póllandi á 22.4 en
Richter varð önnur á 22.8. 100
metra grindahlaupið sigraði
Koschinski á 13.5 og i hástökkinu
Nýi heimsm ethafinn i
sleggjukasti Karl Heins
Riehm kastaði öllum sex
köstunum lengra en gamla
heimsmetið var, það lengsta
78.50 metra og bætti metið
um 1.84 metra.
urðu Munding og Meyfarth hlut-
skarpastar, stukku báðar 1.75 m.
1 Bandarikjunum eru útimótin
lika komin i fullan gang, á móti i
Iowa sigraði Steve Williams i 100
metra hlaupi á 10.0 og á sama
móti stökk Jankuni 2.23 metra i
hástökki. 220 yardana hljóp Gilk-
es frá Gineu á 20.5 sek., 440 yard-
ana hljóp Randle á 45.5.
Föstudagur 23. mai 1975