Alþýðublaðið - 24.08.1975, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 24.08.1975, Blaðsíða 2
PRÝÐIS SÝNING Alþjóðlega vörusýningin 1975 stendur fyllilega undir nafni. A henni eru samankomnir sýning- arbásar fjölmargra islenskra iðnfyrirtækja og svo verslunar- fyrirtækja. Þá sýna einnig er- lend fyrirtæki. Það sem mesta athygli vekur við fyrstu sýn, er mjög gott skipulag og staðsetn- ing allra deilda, og var það mál manna, að þessi sýning væri sú best hcppnaðasta hingað til hvað það snerti. A sýningunni eru heimilistæki og búnaður, matvæli og skyld neysluvara, snyrti- og hrcinlæt- isvörur og design vörur. Það er Kaupstefnan Rcykjavik, sem annast hefur allan undirbúning að þessari sýningu, en sýning- arsvæði er allt að sjö þúsund fermetrar. Stór hluti Iðntækni H/F i sýningunni vekur verðskuldaða athygli, cnda er hcr um merki- legt fyrirtæki að ræða, sem allt of litið er fjallað um i fjölmiðl- um. i bás þeirra gat að lita margar nýjungar sem þeir hafa byggt og fundið uppá á undan- förnum árum, og þegar þær eru samankomnar á einn stað, vcrður manui Ijós hinn stóri hlutur þcirra i isienskri tækni- þróun. Af einstökum sýningardeild- um er þó heilbrigðissýningin merkilcgust og athygiisverðust. Mun óhætt að fullyrða til þess að hvetja alla til þess að sjá þessa einstæðu sýningu. Mikla athygli vakti húsgagn nokkuð er vatnsrúm kallást, enda alíslensk framleiðsla, hannað af A. Guðmundssyni. Flokkaðist fólk hjá honum, potaði í og leist fel á. Þá var mikiS-úrval tjósa, að visu inn- fluttra, en greinilegt var að upp er að koma ný lina i ljósagerð, sem komin er hingað til lands- ins. Voru þau á skaplegu verði, miðað við hve stælleg þau voru. Eftir að hafa skoðað þessa sýningu vel og lengi, var Alþýðublaðinu það vel ljóst, að hér er um merkt átak að ræða I sögu islensks iðnaðar og versl- unar. En betur má ef duga skal, og töluvert meira mætti vera af innlendu framtaki á næstu sýn- ingu. o Sunnudagur 24. ágúst 1975

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.