Alþýðublaðið - 06.09.1975, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 06.09.1975, Qupperneq 6
í HREINSKILNI SAGT Vandamál liðandi stundar Þaöhefur færst óhugnanlega í vöxt á sí&ari árum, að ungmenni lendi i meira og minna alvarlegum árekstrum við umhverfi sitt, og verði á þann hátt hand- bendi samfélagsins. Hér kemur, að sjálfsögðu margt til greina, en þó munu flestir hallast að þvi, að hér eigi lausa- tök heimilanna verulegastan þáttinn i. Þar mun algengast að um sé að ræða óreglu, eða og sennilega ekki siður óhóf- legt vinnuálag á foreldrum utan heimil- ' is, sem áorkar þvi, að börnin verða hálf- eða algerir útigangar sem sniða sér stakk eftir hátterni götunnar. Hún mun sennilega seint verða hollur eða heppi- legur uppalandi eða móta óþroskaðar sálir til manndóms. Og smekkurinn, sem kemst iker, keiminn lengi eftir ber. Það fer stórlega i vöxt, að foreldrar verði æ yngri, jafnvel nýlega búnir að sllta bamsskónum, þegar þeir taka á sig I þá ábyrgð, að ala og ala upp börn. j Gagnvart þeim vanda eru vist flestir j ráðþrota og tilgangslaustað ræða hann i . löngu máli. Ef til vill væri þó ekki f jarri, að gefa smávegis ráðleggingu, sem ætið j er reyndar ódýrt. Si vaxandi hraði I | mannlifinu ruglar vissulega marga, og j veldur þvi, að mat á hlutunum er ekki 1 alltaf reist á yfirveguðu máli. Væri okkur ekki hollt, að staldra oftar við og I athuga okkar gang? Ekkert foreldri læt- ur sér til hugar koma, að óska börnum slnum annars en alls hins ákjósanleg- asta. En það er nú svo, að til þess að sinna uppeldinu svo vel sé, þarf tima. Mannshöfuðið er lengi að skapast og heilbrigt uppeldi barna og unglinga verður ekki afgreitt með góðum vilja - einum né á neins konar færibandi. Til þess þarf alúð við viðfangsefnið tima- freka alúð. Og skyldi ekki uppskeran oftast verða i nokkuð réttu hlutfalli við, hvað við leggjum frá okkur til verk- efnisins? Vera má, að verðmætamat okkar sé á ýmsan hátt brenglað i öllu þessu irafári. En hver vill i alvöru viðurkenna, að meira skipti, að eignast dýrar og skrautlegra gólfteppi, fegurri og hentugri heimilis- tæki, eða möguieika til ferðalaga og skemmtana, ef börnin liða við það i Gefum okkur tíma, í tíma umönnun? Liklega myndu þeir vera fáir. Varajátningar eru hinsvegar alls ekki nægar til að leysa vandann. Þar þarf meira til. Það er nú mikil tizka, að krefjast af samfélaginu margskonar þjónustu, sem leysir nokkurn vanda, s.s. dagheimila og leikskóla, svo eitthvað sé nefnt. Ekki er ástæða til að amast við þvi, svo langt sem það nær. En skyldi ekki vera ennþá óhætt að minnast orða bóndans i Atla Björns i Sauðlauksdal? Atli tjáði þessum vini sinum og velunnara, að honum hefði fæðzt sonur og nú væri ætl- un sin að fæða hann á mjólk úr kúnni og leitaði ráða bóndans um hvernig skyldi að þvi standa. Þessu tók bóndi fjarri og taldi það aðeins efnilegt, að hann ætlaði að ala upp kálf, til að verða vænt naut. Það væri móðurmjólkin og móður- umönnunin, sem gilti. Ekkert annað gæti komið i þess stað. Vera kann, að rauðsokkum nútimans falli þessi skoðun Eftir Odd A. Sigurjónsson ekki I geð. En það hefur það þá. Hvað gerir svo þjóðfélagið, til þess að taka i tauma, ef uppeldið bregzt? Er ekki hollt fyrir foreldra, að hugleiða, hvað við börnunum tekur, þegar þau lenda út fyrir eðlilegan farveg siðgæðis- þjóðfélags? Ekki efast ég um, að það • valdi mörgum sárum trega. En það er bara of seint. Viðhöfum hér nærhendis upptöku- og meðferðarheimili, sem rúmar 10-12 manns af ógæfusömum unglingum. Nýlega fengum við þær upplýsingar þaðan, að við hið vanrækta uppeldi þessara ungmenna störfuðu 10- 11 manns, Hér er ekki ætlunin að eyða orku i, að fjargviðrast um kostnað sam- félagsins, sem af þessuleiðir. Hittmætti vekja spurningar, sem krefjast svara. Halda menn i alvöru, að svona smá- krukk, sé einhver lausn á viðtækum vanda? Og er það nú ekki hrein ofrausn, að hafa einn lærðan uppalanda eða sál- fræðing með hverjum unglingi um nokkurra mánaða skeið? Hætt er við, að við megum halda á spöðunum við að mennta slikt fólk, ef þess er þörf. Og það er einnig hætt við, að seint gengi að kippa málunum i lag, ef vandinn er eins viðtækur og margir vilja vera láta og raunar viðurkennt er. „Meðferðin bygg- ist á þvi, að kenna fólkinu að reka sig á”, segir forstöðumaður. Ójá. En er ekki vistun á sliku heimili talsverður árékstur? Ætla mætti það. Mótmælti of mildum dómi Danskur náungi, sem tek- inn var við akstur og þótti heldur mikið ölvaður, gerði mikinn uppsteit i réttarsaln- um, er honum var tilkynnt um dóminn. Rétturinn úr- skurðaði að kappinn skyldi sitja inni i 20 daga I refsing- arskyni. Hann mótmælti kröftuglega og heimtaði að fá að sitja inni i minnsta mánuð. Ég var urrandi full- ur, sagði hann. Ég get ekki komið heim og sagt konunni minni, að ég hafi ekki fengið nema 20 daga. En dómarinn tók ekkert tillit til þessara óska mannsins og varð hann að láta sér nægja aðeins 20 daga fangelsi. Brando á ný t Þá er Marlon Brando byrj- aður i bransanum á nýjan leik. Og ástæðan? Ja, kapp- inn hefur lýst þvi yfir, að hann sé alveg staurblankur og þvi hafi hann brugðið á það ráð, að snúa sér að kvik- myndaleik að nýju, eftir all- langt hlé. Með honum i þess- ari mynd, sem er vestri og á að gerast um 1880, leika meðal annarra þau Jack Nicholson og Kathleen Loyd. Sögurnar herma að Nichol- son hafi tekið hlutverkið i myndinni, vegna þess að hann langaði til að leika á móti Brando. Og leikstjórinn hafi tekið að sér stjórn myndarinnar, vegna þess að hann langaði til að vinna með þeim báðum. Siðasta myndin, er Brando lék i var „Siðasti tangó i Paris”. Hef ur sú mynd veriö mikið um- töluð og hlotið misjafna dóma. A myndinni sjáum við þristirnið f.v. Nicholson, Kathleen Loyd og Brando. Raggi rólegi DACilNN', UAPIO þée NOKKRA VINUO HAUDAiJ? MAMNIWOM £-12 GRtlViW tuótí/z FÆrúRj ftÞOW' ■ 't&AUS KX&ÆiWu '\ WEpNU ÆUXZ VilG UPANDl At) STCIW ÞXQ VlSSl A CEsri t W'IWU (JM&- DCH/ Alþýðublaðið FJalla-Fúsi Bíéín IÁSKDLABÍÓ iim^2l4(L^í Tízkukóngur i klipu Save the Tiger. Listavel leikin mynd um áhyggjur og vandamál dag- legs lifs. Leikstjóri: John G. Avildsen. ÍSLENZKUR TEXTI. Aðalhlutverk: Jack Lemmon. Jack Gilford. Laurie Heineman. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 'ÓNABÍÓ Slmi :|1IS2 Sjúkrahúslif GE0RGE C.SC0TT “mEHOspmu: PA0DT CHXTEFSKY DUUURIOe Mjög vel gerð og leikin, ný, bandarisk kvikmynd sem ger- ist á stóru sjúkrahúsi i Banjia- rikjunum. 1 aðalhlutverki er hinn góð- kunni leikari: George C. Scott. Önnur hlutverk: Diana Rigg, Bernard Hughes, Nancy Mar- chand. ISLENZKUR TEXTI. Leikstjóri: Arthur Hiller Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum yngri en 16 ára.__________________________ I-red Ziíiliemanns filmof iifii mvoi TIIi:.VACIL\L A John Wi x ilí 1 ’n xluctioi 1 B.ised ontlx; Ixiok b>’ Fredcrlck Furs\th |^JI>i.-tiiliu" (I l>> Oi.«--i,.i J HAFHARBÍÚ Slmi 16444 Percy bjargar mann- kyninu Bráðskemmtileg og djörf ný ensk litmynd. Mengun frá visindatilraun veldur þvi aö allir karlmenn verða vita náttúrulausir, nema Percy, og hann fær sko meira en nóg að gera. Fjöldi úrvals leikara m.a. Leigh Lawson, Elke Sommer, Judy Geeson, Harry H. Cor- bett, Vincent Price. ISLENZKUR TEXTI. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. LAUGARÁSBlð *„.! k«k “ ,VS Framúrskarandi bandarisk kvikmynd stjórnað af meist- aranum Fred Zinnemann, gerð eftir samnefndri met- sölubók. Frederick Forsyth sjakalinn, er leikinn af Ed- ward Fox. Myndin hefur hvar- vetna hlotiö frábæra dóma og geysiaösókn. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10. Bönnuð börnum. LeíkhúsVn tiWÓÐLEIKHÚSIf LITLA SVIÐIÐ RINGULREIÐ, gamanópera. Frumsýning þriöjudag kl. 20.30. 2. sýn. miövikudag kl. 20.30. STÓRA SVIÐIÐ COPPELIA, Gestur: Helgi Tómasson 1. sýn. föstud. 12/9 kl. 20. Ath.Styrktarfélagar isl. dans- flokksins hafa forkaupsrétt á 1. sýn I dag, gegn framvisun skirteina. Sala aðgangskorta (ársmiða) er hafin. Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200. KÓPAVOESBÍO IBióinu lokað um óákveðinn tima. ÍSLENZKUR TEXTI Æsispennandi ný bandarlsk litmynd um sveit lögreglu- manna, sem fást eingöngu við stórglæpamenn, sem eiga yfir höðfi sér sjö árjí fangelsi eða meir. Myndin er gerð af Philip D’Antoni, þeim sem gerði myndirnár Bullit og The French Connection. Aðalhlutverk: Roy Schneider Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. From the producer of "Bullitt" and "The French Connection" THE SEVEN (IPS ‘STJÚRNUBÍQ fVmi Oscars-verðlaunakvikmyndin Nikulás og Alexandra ACADEMY AWARD WINNER! BEST Art Direction BEST Costume Design Nicholas Alexandra Stórbrotin ný amerisk verö- launakvikmynd I litum og Cinema Scope. Mynd þessi hlaut 6. Oscars-verðlaun 1971, þar á meðal besta mynd árs- ins. Leikstjóri: Franklin J. Schaffner. Aöalhlutverk: Michael Jay- ston, Janet Suzman, Hodcric Nobcl, Tom Baker. ISLENZKUR TEXTI. Sýnd kl. 6 og 9. Ath. breyttan sýningartima á þessari kvikmynd. Siöasti Mohikaninn Spennandi ný indjánakvik- mynd i litum og Cinema Scope meö Jack Taylor. Sýnd kl 4. Bönnuö innan 14 ára. Vélhjólaeigendur Moto-x - Moto-x titbúnaður, hanskar hllfar. Lewis leðurjakkarog stfgvél. Plaköt ofl. Bögglaberar f. HONDU 350.KETT - hanskar. DUNLOP-dekk. MÖLTUKROSS speglar og aftur- Ijós. ofl. ofl. Póstsendum. Vélhjólaverslun Hannes Ólatsson Skipasundi 51. Sími 37090 Pér finnið viðskipta- og atha.fna.lif þjóðarinnar í Alþýðublaðinu Ritstjórnar- sími 81866 lalþýðuj Snrmnl Auglýsingasímar 14906 og 28660 Laugardagur 6. september 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.