Alþýðublaðið - 04.10.1975, Page 2

Alþýðublaðið - 04.10.1975, Page 2
Rödd jafnaðarstefnunnar Hittumst áKili Með fréttaflutningi Alþýðublaðsins og ann- arra blaða af Ármannsfellsmálinu var likt og fyrirband brysti af troðnum hærusekk. Þá blasti við augum manna ýmislegt, sem ekki þoldi dagsljósið. Menn spurðu, hvað meira væri fólgið i pokanum. Þau svör munu ekki reynast auð- fengin. Eftir mesta uppnámið vegna uppljóstrananna var liðið hjá var skipulega hafist handa um að loka opinu á þeim ljósþétta hærusekk, þar sem Armannsfellsmálið og önnur áþekk eru fólgin. Kappmellu var brugðið utan um opið og farið að herða að. Eitt fyrirband verður ekki látið duga: Stöðvuð hefur verið rannsókn sú, sem borgar- stjórn hafði samþykkt að láta fram fara á mál- inu. Ekki á að taka þá áhættu að skyggnst verði undir Ármannsfellsmálið i pokanum. Viður- kennt var, að rétt væri, að Ármannsfell hefði goldið 1 milljón króna til byggingar Sjálfstæðis- hússins og að formaður bygginganefndar hefði svo haft frumkvæði um að útvega fyrirtækinu lóð, sem þvi hafði áður verið neitað um — en þess jafnframt krafist, að færðar yrðu sönnur á tengslin þarna á milli. Saksóknara var ritað bréf, þar sem i raun eru reynt að fyrirskipa dómsvaldinu hvað rannsaka skuli, og hvað ekki. Felld var tillaga um, að byggingaleyfið til Ár- mannsfells yrði afturkallað meðan á rannsókn málsins stæði. Tillögu var visað frá um, að lóða- mál borgarinnar yrðu eftirleiðis afgreidd fyrir opnum tjöldum. Að sögn dagblaðsins Visis endaði svo Albert Guðmundsson ræðu sina á fundi borgarstjórnar Reykjavikur i fyrrakvöld með þessum orðum: ,,Ég hlakka til að hitta ykkur i sakadómi, piltar”! Verið er að loka op- inu á hærusekk ihaldsins. Albert Guðmundsson hlakkar til þess að mæta með hann á bakinu frammi fyrir dómstólum landsins. Og til hvers hlakka þeir menn, sem þegið hafa fjárgjöf af fyrirtæki og siðan notað aðstöðu sina til þess að tryggja gefandanum opinbera fyrir- greiðslu? Þeir hlakka til þess að horfast i augu við almenning i landinu, þegar sakadómur hvitþvær þá af þvi, að nokkur tengsl séu á milli fjárgjafarinnar og fyrirgreiðslunnar vegna þess, að ekki sé hægt að sanna það. Þeir hlakka til þess að standa augliti til auglitis við þá, sem hafa talið Ármannsfellsmálið bæði ósiðlegt og vitavert, þegar dómstólamir á tslandi fella þann úrskurð, að mönnum i opinberum trúnaðarstöðum sé óhætt að taka við fjárgjöfum og veita gefendunum siðan sérstaka fyrir- greiðslu ef þeir aðeins gæta þess, að ekki sé hægt að sanna nein tengsl þar á milli. Eftir slikan úrskurð gæti það orðið refsivert athæfi fyrir blöð að ræða mál eins og Ármannsfells- málið eins og það hefur verið rætt. Það er þetta, sem mennirnir með hærusekkina eiga við, þeg- ar þeir segja: ,,Við hlökkum til þess að hitta ykkur i sakadómi, piltar”! Það má vel vera, að til nokkurs sé fyrir þá að hlakka. Það má vel vera, að islenskt réttarfar hafi harðfrosna réttlætiskennd og að beisklegur aldurtili biði almenns siðgæðis þjóðarinnar eins og Reynisstaðabræðra á Kili forðum tið. Það má vel vera, að sakadómsrannsóknina á Ármanns- fellsmálinu megi botna með sömu orðum og Jón prófessor Helgason endaði visu sina um örlög Reynistaðabræðra i „Áföngum”: „skuggar lyftast og liða um hjarn/likt eins og mynd á þili,/hleypur svo einn með hæru- sekk,/hverfur i dimmu gili.” Stundum finnst mér tilfinnanlegt á gamals aldri, að geta ekki sýnt lit á að höggva í þakkarskuld við góða menn Við Aðalstein Eiríksson, fv. skólastjóra og forstöðumann skólafjármála „Hvar ertu fæddur, Aðal- steinn?” „t Krossavik við Þistilfjörð.” „Og alinn þar upp?” „Nei, aðeins um skamma hrið. Foreldrar minir fluttu til Þórs- hafnar, og þar átti ég heima til 11 ára aldurs, en fór þá i sumardvöl að Holti i Þistilfirði, til Kristjáns bónda Þórarinssonar. Sú dvöl lengdist, og ég ilengdist þar, hefi raunar ætið kallað Kristján fóstra minn, og það var gott fóstur.” „Hvernig var efnahagur og sveitarbragur i Þistilfirði i þinum uppvexti?” Yfirleitt mátti segja, að fátækt væri almenn, þó ekki skortur. Fólk las mikið og söngur var tals- vert iðkaður. Yfirleitt var þess gætt, að vinnutimi væri reglu- bundinn eftir öllum föngum, þannig, að heimilisfólkinu gæfist kostur á að njóta samvista utan sifellds erils einhverra. Tóm- stundir voru oftast einhverjar, sem fólk gat notið sameiginlega, hlýtt á upplestur, tekið lag, eða dregið i spil. Þetta voru kvöld- vökur i þjóðlegum stil. Ung- mennafélag var starfandi og hélt oftast tvær skemmtanir árlega, auk funda. Þá þóttu kirkjuferöir sjálfsagðar öðru hvoru.” „Voru menn trúaðir þar á þeim tima?” „Já.yfirleitt. En það var engin kreddufesta, né áberandi hjátrú, meira bar á virðingu fyrir guðs- orði eins og þaö er túlkað i bibli unni en útleggingu einstakra presta eða hugvekjuhöfunda, sem þó var enganveginn vanmetið. Um sjálfan mig get ég sagt, að ég var frá þvi ég man eftir „religi- öst” sinnaður. Það mun ég hafa drukkið inn með móðurmjólkinni. Móðir min var mikil og einlæg trúkona.” „Eru einhverjir, sem þér eru sérstaklega minnisstæðir af ibú- um sveitarinnar?” „Já,ekkiget ég neitað þvi. Ég á ágætar minningar um marga, reyndar velflesta. Það er erfitt aö draga slikt i dilka. Þó vildi ég nefna Jón i Garði. Hann var ágætt skáld og orðheppinn ræðumaður, sr. Pál Hjaltalin Jónsson á Sval- barði og Hjört á Álandi, föður sr. Hermanns, siðar skólastjóra á Laugum auk heimilisfólksins i Holti og Laxárdal. Annars ef ég lit yfir hópinn og ber hann saman við kynni min siðar af ólki úr öðr- um sveitum, held ég að hlutur Þistilfjarðar hafi verið mjög góð- ur.” „Svo fórstu i skóla?” „Já. Ég var tvö ár á Eiðum. Asmundur Guðmundsson, siöar biskup, var skólastjóri þar þá.” „Hvernig samdi ykkur?” „Okkur samdi vel, og ég hefi æ- tiö metið Ásmund mikils og þau hjón bæði. Reyndar hófst nú aðal- kynningin með áminningu, sem ég fékk fyrir smástriðni viö einn skólafélaga. Hann var ekki við al- þýðuskap og þoldi mig vist illa og kvartaði.” „Var það hörð áminning?” „Nei, en hún var föðurleg, og lauk með þvi, að hann spurði, hvort ég gæti ekki stillt mig um að striða drengnum, og þegar ég svaraði þvi til, aö ég væri afar hræddur um að það gæti ég ekki, fór alvaran af. Ásmundur var annars einstaklega gamansamur i þröngum hóp og hann skemmti sér vel að gamansemi Arna frænda sins Þórarinssonar.” „Nú og svo lá leiðin áfram?” „Já,i Kennaraskólann og siðan út yfir pollinn, til Noregs á skóla r Björgvin og sumarnámskeið Kennaraháskólans i Þrándheimi, sem reyndar var haldið i Staf- angri.” „Var gott að vera meðal Norð- manna?” „Já,'einstaklega. Mér fannst Norðmennirnir vilja bera Islend- inginn á höndum sér. Þar kynnt- ist ég Olav Gullvág ritstjóra, ein- um eftirminnilegasta manni, sem mér hefur auðnast að þekkja, Lars Sör&s, tónskáldi og siðast en ekki sizt Guttorm Vatndal, sem var forstöðumaður við Bergens Guttehjem. Þetta var hæli fyrir munaðarleysingja og drengi, sem höfðu lent á villigötur. Stjórn hans á hælinu var hrein fyrir- mynd, enda var hann ákaflega sterkur persónuleiki. Hann sam- einaði strangan aga og einstaka góðvild, eiginlega kærleiksrika umönnun. Hann kom mörgum til manns. Allra þessara manna minnist ég með söknuði, vegna þess að samfundum sleit svo fljótt, hefði viljað hitta þá aftur.” „Attu við hinumegin?” „Já hvort sem væri, hérna, eða hinumegin, en þess er nú ekki kostur lengur hérna megin graf- ar. Stundum finnst mér tilfinnan- legt á gamals aldri, að geta ekki sýnt lit á að höggva i þakkarskuld við þá og aðra góða menn.” „Og svo tók starfið við að loknu námi?” „Já. Ég kenndi um 10 ára skeið i Reykjavik og starfaði nokkuð að öðrum fræðslumálum, skrifaði um þau i Menntamál, Skinfaxa og viðar. Ég átti talsvert saman aö sælda við Asgeir Asgeirsson siðar forseta og hann gerði mér kleift að reyna hugmyndir, sem ég hafði sett fram i greinum og við- ræðum, þegar Reykjanesskóli við Djúp var stofnaður og ég réðist þangað. Það var fyrst barnaskóli og siðar héraðsskóli með bóklegt og verklegt svið.” „Telurðu, að nýju grunnskóla- lögin séu það sem koma skal?” „Sitthvað er jákvætt i þeim. En annars hefur okkur ekki vantað mest lagasetningar. Það er fram- kvæmdin, sem allt veltur á. Svo illa hefur til tekizt, að við höfum eiginlega alltaf verið að fálma Framhald á bls. 15. Alþýðublaðið Laugardagur 4. október 1975

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.