Alþýðublaðið - 04.10.1975, Side 5
HELGARLEIÐARINN
|alþýðu|
RÖDD FÓLKSINS
Fyrir tveim vikum birti Alþýðublaðið sunnudags-
leiðara um skattamál. Tilefnið voru miklar umræð-
ur, sem orðið höfðu í Svíþjóð í framhaldi af því, að
viðtekjuskattsálagningu þar kom í Ijós, að f jölmarg-
ir, sem allir vissu, að höfðu mjög háar tekjur,
greiddu lítinn tekjuskatt, og hlutfallslega lægri en
allur almenningur. í hópi þessara manna var sjálfur
fjármálaráðherrann, og vakti það auðvitað enn
meiri athygli á málinu en ella.
Nú hef ur sá gleðilegi atburður gerzt hér á landi, að
skattgreiðendur í þrem bæjum hafa risið upp og
krafizt rannsóknar á skattalögum bæjarbúa vegna
augljóss misréttis i skattálagningu. Bolvíkingar riðu
á vaðið. (búar Borgarness og Hveragerðis fylgdu í
kjölfarið. Vonandi koma margir fleiri á eftir.
Umkvörtunarefnið er í öllum tilfellum hið sama:
Skattgreiðendur, sem allir í þessum litlu bæjum vita,
að hafa háar tekjur, greiða sáralítinn tekjuskatt af
þeim. Almennir launþegar, sem vart hafa meira en
til hnífs og skeiðar í þeirri ofsadýrtíð, sem ríkir í
landinu, greiða hins vegar verulegan hluta af tekjum
sínum í skatta. Þetta særir að sjálfsögðu réttlætis-
skyn manna. AAenn sætta sig ekki við þetta. Þeir
kref jast leiðréttingar. Og hana eiga þeir að fá.
Eðlilegt er, að menn velti því fyrir sér, hvernig
slíkt megi gerast. Enginn vafi er á því, að í sumum
tilfellum er um bein skattsvik að ræða. Þau eru ekk-
ert séríslenzkt fyrirbæri. Þau eru vandamál í öllum
löndum. Skattsvik eiga sér hvarvetna stað, bæði að
því er snertir beina skatta og óbeina. En i mjög
mörgum tilfellum á misréttið alls ekki rót sína að
rekja til skattsvika. Það á rót sína að rekja til þess,
að lögum og reglum um tekjuskatt fylgja margvís-
legar frádráttarheimildir og smugur, sem gera
mönnum kleift að lækka skattgreiðslu sína. Sumar
heimildirnar eru þannig, að álitamál getur verið,
hvort þær séru réttmætar eða ekki í einstökum tilvik-
um. AAisréttið, sem hér er um að ræða, á vafalaust í
mörgum tilfellum rót sína að rekja til þess, að af
hálfu skattayfirvalda er^ekki fylgzt nægilega með
því, hvort frádráttarheimildir séu notaðar með eðli-
legum hætti. En í mörgum tilfellum, eflaust mjög
mörgum, er allt með felldu frá lagalegu sjónarmiði.
Eðli tek juskattkerf is er þannig, að rétt f ramtal getur
leitt til óréttlátrar skattgreiðslu.
Nú er svo komið hér á landi og víðar, að út-
svar er ekki lengur stighækkandi, heldur ákveðið
hutfall af brúttótekjum, 10—11% Og stighækkun
tekjuskattsins er komið niður í það, að um tvö skatt-
þrep er að ræða. Tekjujöfnunaráhrifin eru því orðin
lítil. Auk þess hafa nú aðrir þættir þjóðlífsins miklu
meiri þýðingutil tekjujöfnunar en stighækkun tekju-
skatta nokkru sinni hafði, og er hér fyrst og fremst
um að ræða almannatryggingarnar, ókeypis skóla-
göngu og ýmislegt fleira. AAeð hliðsjón af þeim
augljósu göllum sem tekjuskattheimta hlýtur að
hafa í för með sér, er því orðið tímabært að athuga í
fyllstu alvöru skilyrði til þess að hætta henni, að
hluta að minnsta kosti. Sá, sem þetta ritar, telur að
sveitarfélög ættu áfram að innheimta útsvör með
sama hætti og þau nú gera, en athuga skilyrði til þess
að auka smám saman hlutdeild fasteignagjalda í
tekjuöf lun sinni. Hins vegar ætti ríkið að taka til al-
varlegrar athugunar að hætta tekjuskattsheimtu af
launþegum, en halda henni áfram gagnvart þeim,
sem stunda atvinnurekstur. Útgjöld ríkisins munu á
þessu ári verða rúmir 50 milljarðar króna. Tekju-
skattur sá, sem einstaklingar greiða, er 4,5 milljarð-
ar, en félög greiða 1,2 milljarða. Hluti einstakling-
anna stundar atvinnurekstur, og ætti því áfram að
greiða stighækkandi tekjuskatt. Það ætti þvi að vera
vandalítið að bæta ríkissjóði tekjumissinn af því að
hætta að láta launþega greiða tekjuskatt. Að því yrði
mikil þjóðfélagsbót að forða launafólki frá þeirri
óánægju — og í mörgum tilfellum réttlátu reiði —
sem tekjuskattsgreiðslan nú veldur. Jafnframt
mundi ríkið spara stórfé í innheimtu kostnað, því að
það er óhemju dýrt að láta hvern einasta einstakling í
landinu eyða tíma og fé í að telja fram tekjur sínar,
hvort sem þær eru skattskyldar eða ekki, og láta síð-
an hundruð manna starfa að því að skoða framtölin
og reikna út skattinn. Þetta er satt að segja svo mikið
verk, að ekki er við því að búast, að starfsmenn
skattkerf isins komist yfir að reyna að fullnægja öllu
réttlæti. Ef hins vegar aðeins þeir, sem atvinnu-
rekstur stunda, yrðu tekjuskattskyldir, mætti beinta
þá miklu strangara eftirliti en nú á sér stað.
GÞG
Laugardagur 4. október 1975
alþýðu
n FtiTTil
Rltstjórn SIAumúla II - Slmi 81866
HELGARBLAÐ
Drekaafbrigðið i Sikileyjar-
vörn hefur verið vinsælt hjá
mörgum skákmönnum. Hérna
sjáum við hvernig Matulovic
bregst við með hvitu mönnunum,
þegar Velimirovic teflir „Drek-
ann” gegn honum i Kragujevac
1974. 1. e4, c5. 2. Rf3, d6. 3. d4,
exd4. 4. Rxd4, Rf6. 5. Rc3, g6. 6.
Be3, Bg7. 7. f3, 0-0. 8. Dd2, Rc6. 9.
Bc4, Bd7. 10. h4, Dc7. 11. Bb3,
Re5. 12. Bh6, Rc4. 13. BxRc4,
BxBh6. 14. DxBh6, DxBc4, 15.0-0-
0, Be6. 16. h5, Kh8.
17. hxg6, fxg6. 18. RxBe6, DxRe6.
19. Dxg6, Hg8. 20. Hxh7 skák.
Svartur gaf.
Að lokum ein stöðumynd úr
skák þeirra Basmans og Whiteley
i keppninni um meistaratitil
Bretlands 1973. Hvitur á leikinn,
þrir leikir nægja.
jeS anjJBAS HXH '£ ‘HXH ‘^?MS
8}H 'Z 83h ‘5i?MS iPfH '1 : usnei
Svavar Guðni Svavarsson.
Ýmislegt
Til nokkurs að vinna fyrir
fyrsta enska stórmeistarann.
Enska bókaútgáfufyrirtækið
Faber og Faber býður fyrsta
Englendingnum, sem nær stór-
meistaraárangri eitt þúsund
punda samning vegna útgáfu
skákbókar, auk þess hefur Slater
hinn þekkti stuðningsmaður
skáklistarinnar lofað hárri upp-
hæö þeim Englendingi, sem nær
þessum árangri.
Haustmót T.R. er hafið en
margt er óljóst enn vegna frest-
unar skáka, þvi nokkrir þátttak-
endur I A-riðli voru á sex landa
keppninni.
Það virðast margir halda að
Fischer hefði unnið Karpov ef
þeir hefðu teflt einvigið. Það má
minna á það að fyrir einvigi
þeirra Capablanca og Aljekhins
1927, þá voru ekki margir sem
bjuggust við sigri Aljekhins.
Capablanca hafði skömmu áður
sigrað I móti, þar sem Aljekhin,
Nimzowitch, Vidmar, Spielmann
og Marshall tefldu. Hver skák-
maður tefldi fjórar skákir við
hvern hinna. Capablanca fékk 14
vinninga, Aljekhfn varð annar og
fékk ellefu og hálfan vinning.
Fólk gleymir oft sögunni. Máttur
Karpovs gegn Fischer er óþekkt
stærð enn!
James Schroeder frá Cleveland •
heldur því fram að vinningar
gangi kaupum og sölum I skák-
mótum og meira að segja ekki að-
eins I meistaramótum. Schroeder
hefur skrifað töluvert um skák og
er mjög hressilegur i skrifum sin-
um, en ekki að sama skapi áreið-
anlegur.
Bókaútgáfan Orn og Orlygur hef-
ur gefið út Tónfræði eftir dr. Hall-
grim Helgasontónskáld. Þá hefur
samaforlagtekið að sér dreifingu,
á Sögu tónlistarinnar eftir Sigrid
Rasmussen i þýðingu dr. Hall-'
grims Helgasonar. Enn hefur út-
gáfan gefið út bók um Stjómar-
skrá íslands með skýringum fyrir
almenning. Höfundur Gunnar G.
Schram. Bókin er samin sem
kennslubók i félagsfræðum.
Nýr leikskóli, á vegum KFUM og
KFUK mun bráðlega taka til
starfa I félagsheimilinu i Langa-'
gerði 1. Skólinn er ætlaður 2—6
ára börnum og mun geta tekiö
2x30 böm. Skólinn verður öllum
opinn. Forstöðukona veröur
Ragnhildur Ragnarsdóttir fóstra.
Nánar auglýst siðar um innritun.
Fulltrúar um 50 samtaka kvenna
vinna ötullega að þvi, að koma á
kvennafrii á degi Sameinuðu
þjóðanna, þann 24. október nk.
Undirtektir segja þær með ágæt-
um, þvi' að kannanir á ýmsum
vinnustöðum hafa leitt i ljós
80—100% stuðning. Allar, sem
taka vilja þátt i undirbúningi, eru
velkomnar i hópinn, sem hefur
bækistöð ihúsakynnum Kvenrétt-
indafélags Islands að Hallveigar-
stöðum kl. 2—4 og 9—18, simi
18156. Samtaka nú!
Þrjár félagsdeildir hafa verið
stofnaðar hér á landi á liönu
sumri, á vegum Norræna félags-
ins. Deildirnar em i Vestmanna-
eyjum, ólafsfirði og Dalvik. A
vegum félagsins hafa 1700 Islend-
ingar ferðast til Norðurlanda á
árinu og 550 Norðurlandabúar
hingað á vegum félagsdeildanna
á Norðurlöndum. Um 70 nemend-
ur eru nú farnir eða á förum til
náms við Norræna lýðháskóla. Is-
landsdeildin hefur annast um að
útvega þeim flestum skólavist og
nokkra námsstyrki.
Þær myndir, sem Kjarval heitinn
málaði á veggfóður i dvalarstað
sinum i risi hússins Austurstræti
12 verða eign erfingja lista-
mannsins. Þetta er niðurstaða dr.
Gauks Jörundssonar, prófessors,
sem erfingjar Kjarvals og eig-
andi húsnæðisins (Listasafn
rikisins) féllustá að myndi kveða
upp salómonsdóm i deilu um
eignarrétt veggtóöursins.
Þann 9. október nk. munu ganga I
gildi Flugreglur, sem samgöngu-
málaráðuneytið hefur nýgefið út.
Reglurnar birtast i islenskri þýð-
ingu úr ensku og fylgir iangur
orðalisti. Sitthvað forvitnilegt er
þar að finna af enskumorðum,
sem öðlast nýtt mntak. Dæmi:
Ceiling = skýjaþekja, Cruisising
level = farflugsal, Flight drew
member = flugverji.Er þetta hin
fróðlegasta lesning, þótt ekki
heyri undir afþreyingarbók-
menntir.
Lausjtörf við Alþýðublaðið
Hafið l^jií^^samband afgreiðslu blaðsins á mánudag - Sími 14900 Reykjavík'. Bakkavör Melabraut Miðbraut Nesvegur Skólabraut Sævargarðar Vallarbraut Melahverfi
Bifreiðaeigendur:
Á meðan þér bíðið er bifreiðin ryksuguð,
þvegin og bónuð.
Opið alla daga nema sunnudaga
frá kl. 8 ■— 18.40
BON OG ÞVOTTASTOÐIN HF.
SIGTÚNI 3
Alþýðublaðið'