Alþýðublaðið - 04.10.1975, Page 6
aö vetrí til
Ef þér eigið ieið til höfuðborgarinnar, í verslunarerindum,
i leit að hvíld eða tilbreytingu, þá býður Hótel Esja gott
taekifæri til þessara hluta. Gisting á Hótel Esju er ekki
munaður, heldur miklu fremur sjálfsögð ráðstöfun. Hótel
Esja er í allra leið. Strætisvagnaferðir i miðbæinn á 10
mlnútna fresti, svo að segja frá hóteldyrunum. Opinberar
stofnanir, sundlaugarnar og iþróttahöllin i Laugardal,
skemmtistaðir og verslanir eru i nágrenninu, og síðast en
ekki síst: Við bjóðum vildarkjör að vetri til.
Velkomin á Hótel Esju
SuSurlandsbraut 2, Sími 82200.
n
Vorum
aðfá
0 glæsilegt
úrval
af kjólskyrtuffi
í öllum
stærðum
og
ermalengdum
BÍLASÍÐA
Volvo 26SDL meft sex strokka 125 hö vél er dýrasta gerðin af Volvo-. Framleiðsla hefst um
áramót.
Fjölgun hjá Volvo
fjölskyldunni
Volvo fjölskyldan heldur á-
fram að stækka og i árgerð 1976
er að finna tvo nýja meðlimi.
Hér er um að ræða Volvo 66 og
Volvo 265. Auk þessara nýju
gerða má finna ýmsar endur-
bætur á þeim gerðum sem
framleiddar hafa verið hingað
til og við þekkjum af eigin raun.
Volvoverksmiðjurnar hafa
yfirtekið rekstur DAF verk-
smiöjanna I Hollandi og heita
þær nú Volvo Car B.V. Þar er
Volvo 66 framleiddur og hefur
verið hannaður i samræmi við
aðra bila i Volvo fjölskyldúnni.
Aö sjálfsögðu hefur 66 fengið
Volvo grillið, sem gerir Volvo
auðþekktan hvar sem hann fer.
Bifreiðin er með öryggisstuðara
og mikiðer lagt uppúr þægind-
um við akstur, hagkvæmni i
rekstri og að hægt sé að treysta
bifreiðinni, eins og öðrum teg-
undum Volvo.
Volvo 66 er með vél sem heitir
B130 57 hö og er vélin i samræmi
viö lög,sem gilda um hreinsun á
útblæstri bifreiða. Hreinsunin
er gerð með forhitun á innsogs
lofti, nákvæmri stjörnun á bens-
in/loftblöndunni og stillingu á
kveikju.
Volvo 265 er bifreið fyrir þá
sem kjósa þægindi sex strokka
vélar á station bifreið og verður
eins og Volvo 264 DL með nýrri
vél, B27A. Þessi vél hefur 125 hö
(92 kw). Station bifreiðin er með
nýjum blöndung sem er með
nýrri gerð af legum fyrir ná-
kvæmari stýringu af loft/bensfn
blöndu. Vélin er hönnuð með til-
liti til þess aö ná miklu afli við
litinn snúning eða 20kpm við
3000 sn/min. Þessi Volvo er sá
dýrasti sem boðið er uppá af
fólks- og stationgerðum hér og
er áætlað verð hans um þrjár
milljónir króna. Hefst fram-
leiösla á 265 um áramótin.
1 240 og 260 seriunni verður nú
koparblanda i bremsurörum,
sem eykur enn á gæði bremsu-
kerfisins. útblásturskerfi á ár-
gerð 1976 er nú að hluta úr áli
sem bætir eiginleika kerfisins
gegn ryði. Þeir hlutir sem mest
verða fyrir ágengni ryðsins og
áður þurfti að skipta um algjör-
lega eru nú með valsaðri álhúð,
sem eykur endingu kerfisins að
miklum mun.
— Stór hluti af verðmismun
Volvo miðað við aðrar gerðir
fólksbifreiða liggur i örygginu,
sagði Ásgeir Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Veltis er hann
kynnti Volvo árgerð 1976.
Eins og gefur að skilja er
geysimikill fjöldi Volvo bifreiða
I Sviþjóð, en samt sem áður áttu
aðeins 2% dauðaslysa sér stað i
Volvo bifreiðum, samkvæmt
könnun sem gerð var þar i landi.
Volvo eyðir gifurlegum fjár-
munum i tilraunir til að auka
öryggi i bilum sinum. Hafa
verksmiðjurnar sett sér það
takmark, að bifreiðastjóri og
farþegar i Volvo bifreið geti lif-
Ein af nýjungum Volvo er
fjögurra gfra girkassi sem heit-
ir M45. Þessi kassi verður i bif-
reiðum með vélunum B20, B21
og B27A og eru hannaðir sam-
kvæmt nýjustu niðurstöðum um
hljóðdeyfingar. Girstöngin er
meö samskonar bakgi'rslás og
venjulegur Volvo 264 girkassi,
en vegna nýrra hringja eru
hreyfingar stangarinnar ennþá
léttari en áður.
Nýr knastás i B21 breytir
mengun útblástursins til hins
betra og minnkar eyðslu um leið
og aflið eykst um 3 hö i 100 hö án
þess að breyta aksturseiginleik-
unum.
Verð á Volvo bifreiðum er frá
1.890.000 upp i 2.965.000 og
vökvastýri kostar 100.000 i við-
bót.
að af árekstur eða veltu sem
verður á 80 km hraða.
Meðal öryggisatriða má
nefna, að bensintankurinn
gengur inn undir öxulinn og er
ekki lengur hluti af boddýinu.
Framrúðan er úr teygjanlegu
efni og öryggisbelti eru ekki að-
eins i framsæti, heldur einnig
fyrir þrjá farþega i aftursæti.
Mjög margir af viðskiptavin-
um Volvo hérlendis hafa það
fyrir fasta reglu að skipta um
bil á tveggja ára fresti og leggja
þá eldri bilinn upp i þann nýja.
Var Volvo umboðið með þeim
fyrstu að gefa fólki kost á slik-
um skiptum hérlendis.
Aukið öryggi
hærra verð
Kvennadeild Slysavarnafélags Islands f Reykjavík,
HLUTAVELTA ARSINS
verður f Iðnaðarmannahúsinu að Hallveigarstfg 1 á morgun sunnudag 5. október kl. 2 e.h. Fjöldi góðra
muna - Ekkert happdrætti - Engin núll REYKVÍKINGAR: Styrkið slysavarna- og björgunarstarf SVFÍ
Stjórnin.
Wmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmm^mmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmm^mmmammmmmmm^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi^mm^mmmmmmmammmmmmmmmm^mmmmmm
Alþýðublaðið
Laugardagur 4. október 1975