Alþýðublaðið - 04.10.1975, Side 7
Frá FÍB:
Hvað þarf
að gera
fyrir
bílinn
undir
veturinn?
LEIÐBEININGAR TIL
ÖKUMANNA FRA F.l.B.
1. YfirfariH kveikju og raf-
kerfi, stillið kveikjutima
og blöndung. Athugið
hvort viftureim sé rétt
strekkt og ósprungin.
2. Athugið hve mikið frost
kælivatnið þolir (það fæst
mælt á bensinstöðvum).
3. Athugið og látið stilla ljós
fyrir 31. október.
4. Athugið að rúðuþurrkur
séu i lagi.
5. Ef bremsur taka ójafnt i,
getur bifreiðin verið stór-
hættuleg i hálku, látið þvi
stilla bremsurnar.
6. Takið tillit til náungans og
hafið aurhlifar I lagi.
7. Athugiö að frá 15. október
til 1. mai er heimilt að nota
neglda hjólbarða (Skuli
þeir þá vera á öllum hjól-
um).
Sérfræðingar Volvo verksmiðjanna ásamt Asgeiri Gunnarssyni
(I miðið) kynna hið nýja verkstæðiskerfi Veltis hf.
Föst verð á
verks tæðisvinnu
Veltir h.f. hefur undanfarna
mánuði unnið að rekstrarbreyt-
ingum verkstæðisins, m.a. að
tekin verða upp föst verð á við-
gerðum sem áður voru seldar
samkvæmt timavinnu.
Hefur Veltir h.f. notið að-
stoðar sérfræðinga frá Volvo við
þessar breytingar.
Volvo hóf fyrir löngu siðan
notkun fastra verða á viðgerð-
um, og er af þessum sökum til
mjög aðgengilegar og fullkomn-
ar timatöflur yfir hverja ein-
staka viðgerð, sem breytt hefur
verið til að henta islenskum að-
stæðum. Timatöflur þessar ná
yfir 90% af öllum viðgerðum
sem snerta einn fólksbil.
Kosturinn við föst verð er sá,
að ef skipta á um t.d. útblást-
urskerfið, þá kostar það fast á-
kveöið verð, og komi annar við-
skiptavinur til sömu viðgerðar,
þá kostar viðgerðin nákvæm-
lega sama verð, burtséð frá þvi
hver vinnur verkið.
Það er einnig stór kostur, að
viðskiptavinurinn veit hvað við-
gerðin kostar áður en hún hefst.
Kerfi þetta gerir stórar kröfur
til sérverkfæra, fullkomins
tækjabúnaðar og góðrar vinnu-
aðstöðu, sem gerir vinnuna létt-
ari fyrir bifvélavirkjann, á
sama tima og vinnan verður
ódýrari, sé hún unnin með slik-
um hjálpargögnum.
Bertil Lindström og Stig Palm
hafa undanfarna mánuði undir-
búið þetta kerfi af hálfu Volvo.
Veltir selur bíla til Afríku!
Þrátt fyrir samdrátt I bíla-
framleiðslu i heiminum heldur
Volvo sinu og vel það. Söluaukn-
ing í V-Þýskalandi nemur um
25% og hvarvetna er mikil að-
sókn að sýningum Volvo.
Það er ekki aðeins á Fróni
sem Veltir selur Volvo bif-
reiðar. Má nefna sem dæmi, aö
fyrirtækið hefur það sem af er
árinu selt átta islendingum I
Afriku bifreiðar, auk samlanda
i öðrum löndum heims.
Raftæknir - Rafvirki
Raftæknir eða rafvirki óskast til starfa i
heimtaugaafgreiðslu vorri. Starfið krefst
m.a. hæfni til skipulegra vinnubragða og
snyrtimennsku við gerð verkblaða, auk
tjáningarhæfni gagnvart verktökum og
öðrum viðskiptavinum.
Laun samkvæmt launakerfi Reykjavikur-
borgar
Nánari upplýsingar varðandi starfið eru
veittar á skrifstofu vorri i Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu, 4. hæð og þar fást einnig
umsóknar ey ðublöð.
^i.’IRAFMAGNS
l \ 1VEITA
LkA reykjavikur
Álestur á ökumæla
— Dagsektir
Álestur ökumæla stendur yfir til 11.
október n.k. Hafi álestur ekki farið fram
fyrir þann tima varðar vanrækslan sekt-
um er nema 500 kr. fyrir hvern dag sem
dregst að láta lesa á mæli bifreiðarinnar
fram yfir hin tilskyldu timamörk.
Séu sérstakar ástæður fyrir hendi getur þó
viðkomandi innheimtumaður veitt undan-
þágu frá hinum tilskyldu timamörkum á-
lesturs, enda hafi beiðni þar að lútandi
borist innheimtumanni, með hæfilegum
fýrirvara, samanber ákvæði i 10. grein
reglugerðar 282, ’75.
Fjármálaráðuneytið.
GLÆSILEG
HÚSGAG NAVERSLUN
MEÐ HÚSGÖGN í ÖLL
HERBERGI HÚSSINS
SÍÐUMÚLI 30
SÍMI 86822
HÚSGAGNAVERSLUN AÐ SÍÐUMÚLA 30 SÍMl: 86822.
Laugardagur 4. október 1975
Alþýöublaöið